Morgunblaðið - 05.02.1978, Qupperneq 1
48 SIÐUR
30. tbl. 65 árg.
SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Væringar út af
hrapi frankans
Paris. 4. feb. Reuter.
PÓLITtSKAR sviptingar urðu í Frakklandi í dag vegna
viðbragða stjórnarinnar við hrapi franska frankans á
gjaldeyrismörkuðum i gær. Hafa sósíalistar sakað sam-
steypustjórn mið- og hægriflokka um að greiða fvrir
falli frankans nú þegar aðeins. fimm vikur eru til
frönsku þingkosninganna.
Franski frankinn féll í verði i
gær gagnvart v-þýzka markinu og
svissneska frankanum og báru
viðskiptamenn að um væri að
kenna ótta manna við kosninga-
sigur vinstrimanna. Leiðtogi
sósíalista, Francois Mitterand,
bar það á forsætisráðherra lands-
ins, Raymond Barre, að hann
reyndi að ala á vangaveltum
manna um stöðu frankans i póli-
tisku ábataskyni fyrir kosningar.
Sjálfur skýrði Barre fréttamönn-
um frá þvi að of hátt hrap gjald-
miðils Frakka gæti haft verkanir,
sem erfitt væri að hafa stjórn á.
Hann útskýrði ekki nánar hvað
hann ætti við.
Aðstoðarfjármálaráðherra
landsins, Robert Boulin, sagði í
útvarpsviðtali i gær að hann sæi
enga ástæðu til að lengur haliaði
undan fæti fyrir frankanum, ef
miðað væri við efnahagslegar að-
stæður Frakka og gjaldeyrisforða
landsins. Hann tók fram að frek-
ara fall gætí haft slysalegar af-
leiðingar fyrir viðskiptajöfnuð
þjóðarinnar vegna þess að ýmis
hráefni, einkum olía, eru greidd í
dollurum og yrðu þvi langtum
dýrari.
ísraelar senda
vopn til Eþíópíu
Carter v^ll ekki
þvinga Israela
Washinton, 4. feb. Reuter.
Washin^ton. 3. feb. — Reuler.
ÍSRAELSMENN hafa hafa séð Eþíópíumönnum fyrir
vopnum í baráttu þeirra gegn uppreisnarmönnum í
Eritreu að því er sagði í heimildum bandarísku stjórnar-
innar á föstudag. Samkvæmt þeim hafa ísraelsmenn
látið Eþíópíumönnum í té klasasprengjur, eldflaugar,
sem skjóta má úr flugvélum, og napalmsprengjur.
CARTER Bandarfkjaforseti mun
í dag hafa ráðið Sadat Egypta-
lands forseta að gera hlé um
stundarsakir áður en hann tekur
upp þráðinn á nýju þar sem hann
slitnaði f samningaumleitunum
hans og Israelsmanna. Var einnig
haft eftir bandarfskum embættis-
mönnum að Carter væri í viðræð-
um sfnum við Sadat að reyna að
fullvissa hann um að hann myndi
ekki reyna að þvinga Israelsmenn
til að gera tilslakanir f friðarvið-
ræðunum f Miðausturlöndum.
Forsetarnir tveir settust á rök-
stóla f dag á dvalarstað Carters f
Catocin-fjöllum f Maryland, 96
kflómetra norður af Washington.
Að sögn embættismannanna er
það skoðun Carters að Sadat eigi
að senda samninganefnd sína
aftur að friðarborðinu. Eins og
Tíbet lokað
áfram af
heilsufars-
ástæðum —
segir Teng
Katmandu. Nepal, 4. febr. AP.
TENG hsiao ping, aðstoðarforsæt-
isráðherra Kína, ræddi f dag við
blaðamenn eftir viðræður sem
hann átti með forsætisráðherra
Nepals, Kirti Nidhi Bista. Þykir
það tfðindum sæta að Teng ræði
þannig beinlfnis við fréttamenn.
Framhald á bls. 46.
kunnugt er kallaði Sadat nefnd-
ina til baka í síðasta mánuði og
bar við þráa ísraelsmanna f við-
ræðunum. Sögðu embættismenn
að Carter virtist ísraelsmenn
sveigjanlegir og þjónaði það eng-
um tilgangi að Bandarikin kæmu
beint til skjalanna og reyndu að
þvinga hlutaðeigandi aðila til
samninga. Þeir bættu við að
Carter fyndist að Sadat kynni að
ofþóga sjálfum sér í viðleitni hans
til að laða almenningsálit i Banda-
rikjunum til fylgis við sig.
Er forsetarnir hittust við komu
Sadats til Bandaríkjanna í gær-
kvöld beindi Sadat þegar þeim
tilmælum til Carters að Banda-
Framhald á bls. 46.
I upplýsingum stjórnarinnar
sagði að embættismenn hefðu
veitt athygli þvi sérstæða ástandi
að ísraelsmenn seldu vopn til
Eþíópíu ásamt Sovétmönnum.
sem væru málsvarar Arabaþjóða í
stríðinu við Israelsmenn i Mið-
Austurlöndum. Auk þess eru það
einkum Saudi-Arabar og aðrar
Arabaþjóðir. sem stutt hafa við
bakið á uppreisnarmönnum i Eri-
treu, en þeir eru flestir múhamm-
eðstrúar. Aðrir hlutar Eþiópiu
eru að mestu kristnir.
Að sögn notast Eþíópiumenn
enn að hluta til við vopn síðan
fyrir þann tima að slitnaði upp úr
samskiptum þeirra og Banda-
ríkjamanna. Höfðu Bandarikja-
menn, allt fram i aprilmánuð sl„
selt þeim orrustuskip. skriðdreka
af gerðinni M-60 og flugvélar af
gerðinni F-5E. Ekki er vitað hvort
Eþiópiumenn nota vopn frá Israel
á vigstöðvunum i Ogaden-
eyðimörkinni gegn herjum Sóm-
ala. en þar njóta þeir stuðnings
Kúbana og Sovétmanna.
Fundin 240 þús. ára gömul
mannabein?
Kaupmannahöfn, febr.
Frá fróttaritara Mbl. Erik Larsen.
SANDDÆLUSKIP fann
fimmtudag f Sejeröfirðinum
úti fyrir Kalundborg leifar
beinagrindar af manni. Beina-
grindarhlutar þessir eru ef til
vill yfir 240 þús. ára gamlir. Ef
það reynist rétt hafa fundizt á
danskri grund mannaleifar,
sem eru eldri en beinin af
Neandertalsmanninum og Cro-
Magnonmanninum sem eru
scnnilega um það bil 50 þús. og
100 þús. ára. Beinaleifarnar
eru taldar vera frá tfmabili
milli fsalda en þann tfma var
hitabeltisloftslag f Danmörku.
Áður hafa fundist i Dan-
mörku dýrabein og verkfæri úr
tinnusteini, sem talin eru mjög
forn. Dýrabeinin sem fundust
árið 1910 voru úrskurðuð vera
70—80 þús. ára gömul. Verk-
færin voru af fornleifafræðing-
um talin vera ekki minna en
240 þús. ára gömul. Það er að
segja að verkfærin séu frá
sama skeiði og þær mannaleifar
sem nú hafa fundist í Sejerö-
firði.
Beinaleifarnar fundust þegar
sanddæluskipið var að grafa
niður á 12—14 metra dýpi í
firðinum. Beinin eru nú í rann-
sóknarstofu Mannfræðistofn-
unar Kaupmannahafnarhá-
skóla. Forsvarsmenn rannsókn-
arstofunarinnar búast við þvi
að hálft ár kunni að líða unz
riiðurstaða liggur fyrir. Beina-
leifarnar verða kannaðar með
fullkomnustu rafeindatækjum.
Vísindaleg greining á beinunum sem fundust í Sejeröfirði er nú
hafin og mun flestra spá að þetta sé einhver merkasti fornleifa-
fundur sem um getur. Hér sést skipstjórinn Kaj Mortensen á
sanddæluskipinu „Sigriður" sem fann mannaheinin.