Morgunblaðið - 05.02.1978, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.02.1978, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 Barrv Milncr Ástarævintýri prinsessunn- ar sem endaði með aftöku Misha prinsessa íSaudi- Arabíu var að flýja úr landi með ástmanni sínum þegar þau voru handtekin og líflátin opinberlega Unga Bretanum Barry Milner var mjög brugðið þegar hann sneri heim frá Saudi- Arabíu. Ekki aðeins hafði hann orðið vitni að opinberri aftöku sem var framfylgt vegna laga- brota fórnarlambanna. Hann hafði líka laum- ast til að taka myndir af þessum hryllilega atburði og smyglað þeim út úr landinu. Misha prinsessa. M.vndina tók Rosemarie Bosehow, þýzk-fædd kennslukona, sem vann í höll Mohammeds prins. M.vndin var tekin öfáum dögum fyrir aftökuna. Barry Milner er 25 ára gamall, ættaður frá Yorkshire. Hann notaði örlitla Instamaticvél og faldi hana í sígarettupakka. Hann segist þó ekki hafa gert sér fulla grein fyrir því fyrr en eftir á að hann hefði í raun náð einstæðum myndum og þær hafa komið róti á hugi manna víða um heim og ekki að ósekju. Hann segist ekki treysta sér til að hugsa þá hugsun til enda hvað um hann hefði orðið ef uppvfst hefði orðið um myndirnar. Rosmarie Busehow, þýzkættuð kennslukona, sem starfaði í höll Mohammeds prins í Saudi- Arabíu, hefur leyst frá skjóðunni eftir að þessir atburðir gerðust og sagt frá því sem hún vissi um ástarævintýri prinsessunar og Musleh A1 Shaer. Rosemarie hefur og skýrt frá því að Khaled konungur og Mohammed bróðir hans hafi verið með tárin í augunum af geðshrær- ingu þegar þeir veittu með þögn- inni samþykki sitt fyrir því að unga fólkiðyrði líflátið. Rosmarie segir að prinsessan hafi áreiðanlega aldrei gert sér grein fyrir því að svo gæti farið að hún yrði tekin af lífi þó svo .að hún vissi hver refsing lægi við því að hafa mök við sér ótignari per- sónu. Hún talaði aldrei opinskátt um ástarævintýri sitt við Ros- marie en þó kom fyrir að hún vék að honum og kallaði hann þá jafn- an ,,habibi“ sem þýðir „ástin“ eða „elskan". Eiginmaður Mishu hafði yfirgefið hana og hún virtist nú að sögn kennslukonunnar hafa fundið gleði sína aftur í samvist- unum við Husleh A1 Shaer. Talið er að ástarævintýrið hafi staðið í hátt á annað ár er þau voru hánd- tekin. B*endir margt til að þau hafi verið farin að gruna að þau yrðu ekki óhult í Saudi-Arabíu. Er nú og álitið að Misha og ástmaður hennar hafi átt með sér leynilega fundi í London árið 1976. Khaled konungur og Mohammcd prins: þeir treystu sér ekki til að koma 1 veg f.vrir aftökuna. Þau kynntust að sögn i Beirút í Líbanon þar sem bæði voru við nám og tókust fljótlega með þeim ástir. Lítill vafi leikur á því að prinsessan áttaði sig á því að hún var kominn út á hættulega braut, enda þótt hún hafi áreiðanlega ekki trúað þvf fyrr en öll sund voru lokuð, að henni yrði refsað á þennan miskunnarlausa hátt. Fréttum ber ekki saman um hvort hún hafi verið grýtt til dauða eða skotin. Hið fyrra er þó sennilegra samkvæmt arabískum lögum. Misha var 23 ára gömul, barnabarn Mohammeds prins, bróður Khaleds konungs Saudi- Arabíu. Hún var ekki löglega skil- in við mann sinn, en hjónabandi þeirra var fyrir æði nokkru lokið og hafði verið kalt og ástlaust að sögn þeirra sem til þekktu. Barnaafma'li í höllinni en f því tók Rosemarie einnig þátt. Misha beitti ýmsum brögðum til að geta haldið sambandi við ástmanninn, en á utanlandsferð- um hennar, foreldra hennar og systkina voru alltaf sérskipaðir eftirlitsmenn sem gættu prinsess- anna. Þó mun hún og Musleh A1 Shaer hafa haft tök á þvf að eiga saman stundir í London haustið 1976. Lengi vel hafði afi Mishu eng- ar spurnir af málinu. í júnf á sl. ári mun eitthvað hafa farið að berast honum til eyrna orðrómur en þessa leyndarmáls hafði verið vandlega gætt í Kvennahöllinni í Riyadh í upp undir ár. En þegar fréttirnar tóku að berast til karlmannanna í fjöl- skyldunni fór málið að verða al- verlegt. Bróðir Mishu, S:ad prins, gerði sér tíðförult í Kvennahöll- ina til að aðgæta hvort Misha væri þar og virtist hann áhuggjufullur ef hún var ekki heima, og leitaði þá mjög eftir að fá að vita hvar hún væri. Bendir flest til þess að hann hafi fljótt fengið hugboð um að hún myndi ekki geta komizt undan refsingu ef upp kæmist og hafi reynt á ýmsan hátt að beita áhrifum sfnum henni í hag. Og bróðurleg umhyggja Saads reynd- ist árangurslaus. Misha vildi ekki hlusta á aðvaranir bróður síns um að slíta sambandi við ástmann sinn eða fara að með meiri gát. Þó kom á daginn að henni var engan veginn rótt og ákvað nú að fram- kvæma flóttaáform sín. Fyrst reyndi hún að sviðsetja eigin drukknun með því að skilja eftir föt sfn á árbakka þar sem hún fór stundum í sund. En þegar lík hennar fannst ekki eftir fjögurra sólarhringa leit var tortryggni manna vakin fyrir alvöru. Var nú hafin dauðaleit að henni um ger- vallt landið og flugvöllum var lok- að. Á einni flugstöð fannst Misha svo og ástmaður hennar og þau voru handtekin. Nú tóku við miklar rökræður innan konungsfjölskyldunnar um til hvaða ráða skyldi gripið. Lög Kóransins voru skýr. Elskendurn- ir urðu að deyja. Mohammed prins og Khaled bróðir hans áttu í miklu sálarstríði og vissu að þeir urðu að hlýða lögunum. Þeir leit- uðu engu að síður eftir því hvort færi væri á að veita undantekn- ingu frá því en það reyndist ógerningur. Rosmarie Buschow segist ekki hafa getað fest yndi í Saudi-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.