Morgunblaðið - 05.02.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978
15
Arabíu eftir þennan atburð, en
hins vegar kveðst hún ekki for-
dæma þetta einfaldlega vegna
þess að þetta sé í sambandi við lög
landsins. Siðir og lög Austur-
landaþjóða væru oft villimannleg
f augu Vesturlandabúa, en menn
gerðu sér ekki grein fyrir að allt
væri svo gerólíkt með Vestur- og
Austurlandabúum í Iífsviðhorfi,
trúarskoðunum, hverju sem
nefna mætti.
Það var kaldhæðni örlaganna
að konungurinn hafði nokkru áð-
ur reynt að túlka lög landsins
Mishu í hag og það varð þó til þess
að útkljá í eitt skipti fyrir öll
örlög hennar. Eiginmaður hennar
fyrrverandi hafði farið á fund
Khaleds konungs og beðið um
leyfi hans til að kvænast annarri
konu. Samkvæmt múhameðstrú
mega menn eiga f jórar konur.
En Khaled konungur neitaði
og sagði:
Því aðeins færðu að giftast að
þú veitir Mishu skilnað.
Eiginmaðurinn neitaði hug-
mynd um skilnað og án þess að
þeir hefðu þar með hugmynd um
höfðu þeir kveðið upp dauðadóm-
inn yfir prinsessunni ungu.
Saudi-Arabía að
h verf a aftur til
gamla tímans
í refsingum
Khalid konungur neitaði að
dæma prinsessuna og mann
hennar, en hann gat ekki beitt
sér fyrir því að þau fengu að
halda lífi. Það var nefnilega
kóngurinn sjálfur sem f fyrra
gaf út þau fyrirmæli, að ákvæði
Kóransins skyldi haldin í hvf-
vetna f Saudi-Arabfu.
Þessi úrskurður hefur haft í
för með sér að á ný hafa verið
tekin upp refsingar, sem á
Vesturlöndum eru taldar villi-
mannlegar. Aflimun fyrir
þjófnað og aftaka fyrir alvar-
legri afbrot. Aftökur í Saudi-
Arabíu eru þvf að verða hér um
bil daglegt brauð. Eitt af þeim
orðum sem Aröbum er hvað
tamast á tungu er Inshallah —
ef guð vill. Ekkert er dregið í
efa sé það gert í guðs nafni.
Og múgurinn æpti
AFTAKA: Sverðinu er sveiflað og hinn dauðadæmdi geldur nú fyrir það með lffi sfnu að hafa gerzt brotlegur við arabfsk lög og elskað
Mishu prinsessu. ^
Böðullinn hefur hoggið í sjötta sinn sverði sfnu, unnusti prinsessunnar er ekki lengur með Iffsmarki og múgurinn fagnar
Frásögn Barry Milners
Ég sá þegar Misha prinsessa var skotin. Og það, sem gerðist næst, var
nokkuð sem ég gat vart trúað ...
Þarna á miðju rykugu torginu, sem var troðfullt af hlæjandi og
masandi Aröbum, stóð hermaður sem þungt, gneistandi sverð reitt til
höggs.
Við fætur hans kraup maður, sem var nýbúinn að horfa á konu sfna
tekna á lífi. Nú var komið að honum að deyja. Skyndilega féll sverðið.
Og um lcið og það reið á háls fðrnarlambsins þrýsti ég skjálfandi
hendi á hnappinn á myndavélinni, sem var falin. Fimm sinnum til
viðbótar þurfti að reiða sverðið til höggs áður en búið var að vinna á
eiginmanninum.
Loks var búið að hálshöggva hann og þúsundin á torginu, sumt börn,
lyftu örmum fagnandi. Aftakan átti sér stað f Jeddah — vfggirtri borg
frá miðöldum.
Fórnarlömbin voru Misha Bin Abdul Aziz, 23 ára, barnabarn bróður
Khaleds konungs, og ungur stúdent, sem hún hafði hlaupizt á brott
með. Gla'purinn: Elskhugunn var ekki aðalsættar og hjónaband þeirra
braut í bága við hjúskaparlög Kóransins. Aftakan vegna ólöglegs
ástarsambands og hjónabands.
Ég gleymi aldrei þessum dauðdaga í anda kjötkveðjuhátíðar. Hún
var grönn og hávaxin, svartklædd. Þeir leiddu hana að sandbing. Tveir
menn, lögreglumenn eða hermenn, drógu upp skammbyssur, miðuðu
og skutu sfðan þremur skotum hvor.
Hún riðaði við og féll síðan aftur á bak f sandinn. Líkami hennar
kipptist til nokkrum sinnum, sfðan lá hún kyrr.
Böðlarnir léku á alls oddi. Þeir ste.vptu stömpum eins og skólastrák-
ar. Þeir höfðu ánægju af hverju augnabliki. Nutu hverrar mínútu.
Múgurinn rak upp fagnaðaróp. Réttlætinu hafði verið fullnægt — frá
þeirra sjónarhóli.
Ég hefði þurft að fá mér vænan vískísjúss en áfengi er bannað í
Saudi-Arabfu.
Ég fór til Saudi-Arabíu til að vinna mér inn peninga. Þangað fer ég
aldrei aftur eftir það sem ég hef orðið vitni að.