Morgunblaðið - 05.02.1978, Síða 46

Morgunblaðið - 05.02.1978, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 V ar gengið yfir Beringssund? WashintKon, 3. feb. AP. MENN ferðuðust á fæti á milli Sfberíu og N-Amerfku miklu fyrr en haldið hefur verið fram til þessa, að þvf segir f könnun sovéskra vfsindamanna. Samkvæmt almennum kennslu- bókum í mannfræði ferðuðust menn yfir sundið milli Síberíú og Alaska fyrir 15,000 til 20,000 ár- um. En nú hafa sovéskir vísinda- menn hins vegar fundið leifar mannabúsetu í Síberíu, sem þeir telja að séu a.m.k. 35,000 ára gamlar. Svipar áhöldum, er þar hafa fundizt, mjög til minja, er fram hafa komið í N-Ameríku. Þar að auki sýna veðurfarsskýsl- ur að risavaxið jarðbelti var á milli landanna yfir sjávarmáli, sem ferðast mátti um á 5000 ára tímabili 34,000 til 29,000 árum aftur í tímann. Alíta vfsindamenn að ferð sú hafi verið hvort tveggja kuldaleg og háskasöm en eigi að síður verið farin. Það var banda- ríski mannfræðiprófessorinn Robert E. Ackerman í Washing- ton, sem kunngerði þessar niður- stöður Sovétmannanna f ávarpi nýlega. — Trédúkka Framhald af bls. 2 Snorra Karlsefnissonar, var móðir Þorláks biskups Runólfs- sonar, auk þess sem Þorkell Gellisson, föðurbróðir Ara, hafði verið á Grænlandi og afl- að sér þar fróðleiks. En þó get- ur verið að þjóðin, sem menn urðu varir við á Vínlandi, hafi ekki verið Eskimóar, heldur Indíanar. Af samningi Islendinga við Ólaf konung helga má ráða, að tslendingar hafi verið miklir landkönnuðir á 1.. öld, og hefur það haldizt eitthvað fram á 12. öld. I Konungsannál segir við árið 1121: „Eiríkur biskup af Grænlandi fór að leita Vín- lands“ — og svipað stendur í öðrum annálum. Eiríks er áður getið, en ekki er vitað, hvernig honum gekk ferðin né hvort hann kom aftur úr henni. Ann- álsgreinin sýnir, að ferðir til Vínlands hafi lagzt niður eða menn hafa ekki vitað nákvæm- lega, hvar það var. Hins vegar hafa siglingar til Marklands haldizt og að öllum líkindum einnig til Hellulands. Um ferð til Marklands er til samtlma- heimild, Skálholtsannáll. Þar segir við árið 1347: „Þá kom skip af Grænlandi minna vexti en smá Islandsför. Það kom I Straumfjörð hinn ytra (á Snæ- fellsnesi). Það var akkeris- laust. Þar voru á 17 menn og höfðu farið til Marklands, en siðan orðið hafreka.“ Til Mark- lands hafa Grænlendingar lfk- lega sótt timbur. I stuttri heimslýsingu, sem er til í handriti frá hér um bil 1300 (AM. 736 I, 4to), segir svo: „Fyrir norðan Noreg er Finn- mörk. Þaðan víkur landi til landnorðurs og svo til austur, áður komi til Bjarmaiands. Það er skattgilt undir Garðakonung. Frá Bjarmaland ganga lönd til óbyggða of norðurætt, allt til þess er Grænland tekur við. Frá Grænlandi í suður liggur Helluland, þá Markland. Þaðan er eigi langt til Vínlands, er sumir menn ætla að gangi af Affrica. England og Skotland ey ein eru, og eru þó sitt hvort konungsríki. írland er ey mikil. Island er og ey mikil í norður frá írlandi. Þessi lönd öll eru I þeim hluta heims er Europa er kallaður.““ — Prófkjör Framhald af bls. 2 kosningar í Reykjaneskjördæmi, er kjörnefnd skylt að gera þá til- lögu til kjördæmisráðsfundar um skipan framboðslista flokksins við kosningarnar, að þrjú efstu sæti listans skipi þeir frambjóð- endur sem eru í þremur efstu sætunum samkvæmt prófkjörinu, enda hafi þeir fengið hver fyrir sig atkvæði á a.m.k. helmingi allra gildra prófkjörsseðla. Þó er kjörn’efnd heimilt I tillögu sinni að færa frambjóðendur úr einu sæti í annað innan framan- greindra sæta ef hún telur það nauðsynlegt vegna heildarsvips listans, eða að það sé lsitanum til styrktar. Að lokum skal þess getið að yfirkjörstjórn hefur aðsetur sitt í Sjálfstæðishúsinu í Kópavogi þar sem allar upplýsingar varðandi prófkjörið verða gefnar í síma 40708. —Frissi köttur Framhald af bls. 3. einkum ætlaðar fyrir sjónvarp og litla klúbba, en sýningarvélar Há- skólabfós geta ekki sýnt nema 35 mm myndir og stærri. Nefndin ákvað því að taka myndina I 35 mm kópíu og greiddi inn á hana fyrir jól. Þessi kópía var væntanleg til landsins s.l. föstudagsmorgun, að sögn Friðriks Friðrikssonar, frá London. Flugleiðir h.f. felldu niður það flug og myndin sat því á Lundúnaflugvelli. Þetta er að sjálfsögðu bagalegt og nefndin harmar að slík mistök hafi átt sér stað. Þess má að lokum geta, að lög- fræðilegar hliðar sýningarréttar eru ákaflega flóknar og það er aðeins lögfræðingur, Ragnars Aðalsteinsson, sem sér um þá hlið. Frissi köttur er væntanlegur með fyrsta flugi frá London og verður þá væntanlega sýnd á Kvikmyndahátiðinni". — Carter vill ekki þvinga Israela... Framhald af bls. 1. ríkjamenn skærust I leikinn. Komst hann svo að orði að rás atburða sfðan hann fór til Jerú- salem í nóvember hefði sannað að friðurinn væri fallvaltur og vand- meðfarinn. I stuttu ávarpi, sem hann flutti, andmælti Sadat af- stöðu Israelsmanna f tveimur mikilvægum málum. Gagnrýndi hann í fyrsta lagi þá kröfu Israels- manna að varðveita bústaði Gyð- inga í Sinai og öðru lagi neitun þeirra við þeirri ósk að veita Palestínumönnum fullkomna sjálfstjórn á vesturbakka Jórdan- ár og á Gazasvæðinu. Vitnaði Sadat í orð Carters sjálfs um að færa út og standa vörð um mörk mannréttindabaráttunnar um heim allan. Þá veittist Sadat einn- ig að Begin, forsætisráðherra ísraelsmanna á óbeinan hátt og lýsti því yfir að hugmyndafræði- legar öfgar og einstrengisháttur ættu ekki að hefta „hina heilögu framrás á brautinni til friðar“. I athugasemdum Carters áður en hann og Sadat héldu frá Hvfta húsinu í átt til fjalla kom fram að Bandaríkjamenn æskja þess að Israelsmenn og Egyptar taki á sig rögg að nýju og bindi enda á þófið með tilstuðlan Bandaríkjanna og annarra þjóða. Forsetarnir tveir áttu með sér einkaviðræður í bústað Carters í Camp David í Catocin-fjöllum í gær, en í morgun var fyrirhugað að ráðgjafar þeirra kæmu saman með þeim til nánari viðræðna. I fylgdarliði Carters voru þeir Walter Mondale varaforseti og Cyrus Vance utanríkisráðherra en f för með Sadat var m.a. egypski utanríkisráðherrann, Mohammed Ibrahim Kamel. — Tíbet lok- að áfram Framhald af bls. 1. Virtist hann að sögn fréttamanna ágæta vel fyrirkallaður og hress f bragði. Fréttamenn leituðu mjög eftir svörum við þvi hvort Kínnverjar myndu opna Tíbet fyrir viðskipt- um og ferðamönnum erlendis frá og var af orðum Teng að skilja að það yrði ekki gert af heilsufars- ástæðum. Hann sagði að vegna þess hve hátt Tfbet lægi og lands- lag þar væri hrjúft og erfitt yfir- ferðar væri óhugsandi að þróa þar ferðamannastraum og fjölþættari viðskipti að svo stöddu. Hann sagði að meira að segja væri kín- verskum varaforsætisráðherra ekki frjálst að fara inn i ákveðin svæði í Tfbet og hann hefði aðeins getað horft þangað úr lofti. Teng sagði að þeir sem vildu fara til Tíbet yrðu að fara í nákvæma læknisskoðun áður, þar sem loftið væri mjög þunnt, enda landið í 4 þús. metra hæð yfir sjávarmál. Teng var spurður hvort „bófarnir fjórir frá Shanghai" hefðu alger- lega verið yfirbugaðir og sagði hann þá hraðmæltur „vitaskuld" en bætti sfðan við að það væri sjálfgert að baráttunni yrði hald- íð ffram gegn hvers kyns niður- rifsöflum. Teng sagði að samskipti Nepals og Kina væru til fyrirmyndar og þar bæri hvergi skugga á og við- ræður hans við ráðamenn hefðu verið einkar gagnlegar. Costa del Sol Kanaríeyjar Irland Jugóslavía Sumaráætlunin tilbúin! Samvinnuferðir AUSTURSTRÆTI 12 SIMI 27077 LANDSÝN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI 28899 Sumir versla dýrt — aórir versla hjá okkur. Okkar veró eru ekki tilboð heldur árangur af hagstæðum innkaupuml A morgun er Bolludagur... Því ekki að hafa fiskibollur? — eða kjötbollur? Okkar rómaða fiskf ars hefur alltaf verið gott, en aldrei eins og á Bolludaginn Kjötfars, saltað og nýtt STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.