Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 2

Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 — segir Þórhallur Halldórsson, formaður, eftir stjómarkjörið Bæjarstjórnar- og hreppsnefndarkosningar: Prófkjör sjálfstæð- ismanna í Kópavogi og á Patreksfirði FULLTRÚARAÐ sjálfstæðisfé- laganna í Kópavogi hefur ákveðið að viðhafa prófkjör 4. og 5. marz Rúgbrauð og olíubíll í árekstri HJÓN slösuðust nokkuð í hörðum árekstri sem varð í gær í Vest- mannaeyjum milli rúgbrauðs og olíubíls, en að lokinni rannsókn á Sjúkrahúsinu í Eyjum var þeim leyft að fara heim. Áreksturinn varð á mótum Heiðarvegar og Há- steinsvegar, en mikil ófærð var í Eyjum í gær vegna snjókomu. um val frambjóðenda fyrir Sjálf- stæðisflokkinn við Bæjarstjórn- arkosningarnar í vor. Samkvæmt reglum um prófkjör geta meðlim- ir sjálfstæðisfélaganna gert til- lögur um framhjóðendur innan 3ja daga frá fyrstu birtingu próf- kjörs auglýsingar. Sú tillaga er aðeins gild að hún sé undirrituð minnst 25 og mest 27 félags- bundnum sjálfstæðismönnum úr Kópavogi. Ekki er heimilt að undirrita nema eina slfka tillögu. Framboðum skal skilað til skrif- stofu Sjálfstæðisflokksins í Kópa- vogi Hamraborg 1, fyrir kl. 23 fimmtud. 16. febr. Þá hefur Sjálfstæðisfélagið Skjöldur á Patreksfirði ákveðið að efna til prófkjörs þann 26. febrúar n.k. um val frambjóðenda Framhald á bls. 26 Vestmannae.vjaskipið Herjólfur var tekið f slipp f Revkjavfk f gær til botnhreinsunar, en skipið verður sjósett I dag aftur og cr áætlað að það fari frá Re.vkjavfk um miðjan dag til Þorlákshafnar á leið til Eyja. Ljósmvnd Mbl : koe. Starfsmannafélag Reykjavikurborgar; Erlingur Gfslason og Sigurveig Jónsdóttir í hlutverkum sfnum í Alfa Beta. Leikfélag Akureyrar: Alfa Beta á fjalimar Verður gestaleikur í Þjóðleikhúsinu LEIKFÉLAG Akureyrar mun frumsýna leikritið Alfa Beta eftir bretann E A Whitehead. föstudaginn 1 7. febrúar n.k. Þýðinguna gerði Kristrún Eymundsdóttir, leikmynd er eftir Þráin Karlsson. en leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Leikritið gerist i Liverpool á 9 ára timabili i lifi hjóna, sem þau Sigurveig Jónsdóttir og Erlingur Gislason leika. Verkið er i þremur þáttum og er þeim skipt með sýningu skyggnimyndum úr ýmsum fjólskyldualbúmum. en Ásgrimur Ágústsson. Ijósm. sá um þann þátt sýningarinnar. Verkið verður aðeins sýnt á Akureyri nú um þessa helgi og næstu, þar sem það flyzt til Þjóðleikhúss i lok febrúar og verður sýnt þar í byrjun marz á litla sviðinu í boði Þjóðleikhúss, sem gestaleikur. „MÉR er auðvitað efst í huga þökk til allra þeirra sem tryggðu aigjöran sigur þessa samhenta hóps sem stjórnina nú skipa,“ sagði Þórhallur Halldórsson, for- maður Starfsmannafélags Reykjavfkurborgar, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að end- anlegar tölur lágu fyrir um stjórnarkjör f félaginu en listi uppstillingarnefndar náði þar kjöri. I kosningunni til formannssæt- is hlaut Þórhallur Halldórsson 796 atkvæði en mótherji hans, Gunngeir Pétursson, sem var í fyrirsvari fyrir „Nýrri hreyf- ingu“, hlaut 600 atkvæði. Allir aðrir frambjóðendur upp- stillinganefndar til stjórnar hlutu kosningu, Guðmundur Eiríksson 1185 atkvæði, Eyþór Fannberg 836 atkvæði, Arndís Þórðardóttir 811 atkvæði, Ingibjörg M. Jóns- dóttir 836 atkvæði og Ingibjörg Agnars 758 atkvæói en af fram- bjóðendum Nýrrar hreyfingar til stjórnar hlaut Helgi Eggertsson 618 atkvæði, Anna Karen Júlíus- sen 605, Jónas Engilbertsson 539 og Þorgerður Hlöðversdóttir 528 atkvæði. A kjörskrá voru 2366, atkvæði greiddi 1441, auðir seðlar 13 og ógildir 8. Þórhallur Halldórsson sagði ennfremur í samtali við Mbl., að launþegasamtök í landinu ættu nú fyrir höndum harða baráttu í því skyni að tryggja kjör sin, og því væri það mikils virði að geta gengið til þeirra átaka sem fram- undan væru með reyndu og traustu liði samstarfsmanna. Árleg merkjasala kvennadeildar SVFÍ; „Leggið ykkar skerf til vamar slysum í landinu” Þórhallur Halldórsson MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Kvennadeild Slysavarnafélagsins f Reykjavfk: Næstkomandi föstudag 17. og laugardag 18. febrúar verður hin Nýja loðnuverðið við- unandi fyrir sjómenn - ekki tilefni til aðgerða Segir Magni Kristjánsson skipstjóri á Berki NK „MEÐ hliðsjón af þvf loónuverói sem fyrir var og því sem veriö er aö gera f efnahagsaógeróum þá finnst mér nýja loónuverðió viðunandi fyrir sjómenn og ég tel að þessi veróákvöróun gefi ekki tilefni til neinna aógeróa þegar menn meta stöóuna og þær efnahagsaógerðir sem verið er aö framkvæma", sagði Magni Kristjánsson skipstjóri á Berki frá Neskaupsstað þegar Morgun- blaöió náói tali af honum í gærkvöldi og spurói hann álits á nýja loónuverðinu. Mbl. ræddi einnig vió fulltrúa LÍU, Sjómannasam- bandsins og verksmiðjueigenda. ,,Það hefur orðið bre.vting frá þvi sem fyrir var“. hélt Magni áfram. „og þetta virðist hafa komið m.a. út úr aðgerðum okk- ar sjómanna fyrr í vetur. Þá hefur einnig verið hækkað framlagið i verðjöfnunarsjóð þannig að staðan hefur sigið upp á við. Þetta nýja loðnuverð þýðir að siðan um áramót í fyrra hefur orðið 46—48% hækkun á loðnuverðinu, en hins vegar er óbættur kafli á loðnuvertiðinni síðan um áramótin siðustu, en vonandi kemst það til skila með langri og aflamikilli vertíð“. sagði Magni að lokum. „Varðandi minar undirtektir í sambandi við nýja loðnuverð- ið tel ég með tiiliti til alls að verðið sé viðunandi", sagði Óskar Vigfússon forseti Sjó- mannasambands Islands í sam- tali við Morgunblaðið í gær- kvöldi", ég tel að með heimsigl- ingu flotans á sínum tima og ferð okkar fulltrúa hinna ýmsu aðila til Færeyja, Danmerkur og Noregs fyrir skömmu, hafi verið innlegg i það að nú hefur verið miðað við betri nýtingu hráefnisins í verðákvörðuninni. Hins vegar má geta þess að janúarmánuður hefur verið ákaflega erfiður loðnusjömönn- um og margir hafa farið í geitarhús að leita ullar i þeim efnum. en ég vona að þetta nýja verð sé nokkur sárabót og um leið mótmæli ég þvi algjörlega að þetta sé gengisfellingarverð eins og haft var eftir Jóni Sigurðssyni i útvarpsfréttum. Obbinn af gengisfellingunni fór í verðjöfnunarsjóð og við sjómenn höfum alltaf stutt verðjöfnunarsjóð". „Við teljum að við höfum fengið nokkra leiðréttingu okkar mála við þessa verðiags- breytingu þar sem hún er nokkru hagstæðari en fyrra verð. Hins vegar er það stað- reynd að nýtingin i okkar verk- smiðjum er ekki eins góð og í nágrannalöndum okkar og það Framhald á bls. 26. árlega merkjasala kvennadeildar Slysavarnafélagsins í Reykjavík. Eins- og Reykvíkingum er nú orðið kunnugt eru kvennadeild- irnar út um allt land sterkur þátt- ur í starfsemi SVFl. Þær hafa aðallega unnið að fjáröflun til uppbyggingar björgunarstarfinu í landinu. Hefur þeim orðið vel ágengt í þeim efnum, því að lík- um lætur að þær leggi fram ár- lega rúmlega 90% af því fé, sem fer til björgunarstarfsins og björgunarsveitanna, enda sýna þær í verki fádæma dugnað og áhuga fyrir málefninu. Kvenna- deildarkonur hér í Reykjavík eru mjög þakklátar Reykvíkingum fyrir skilning þeirra á þessu starfi, alveg frá því þær hófu að safna fé til slysavarna fyrir tæp- um 48 árum. Gaman væri á 50 ára afmælisári SVFl, að allir leggðust á eitt um að gera starf þess sem öflugast, með því að styrkja það og styðja í þessu líknarmáli þjóð- arinnar. Slysavarnirnar eru ekk- ert einkamál slysavarnafélaganna Framhald á bls. 26. Vilja ekkert láta uppi RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur ekkert viljað láta uppi um rannsókn á tveimur dauðsföllum vegna hugsanlega rangrar eða gá- leysislegar lyfjagjafar eins og Mbl. skýrði frá í gær. Ólafur Ólafsson landlæknir kvaðst held- ur ekkert vilja segja um mál þetta þar sem rannsókn þess væri á algjöru byrjunarstigi auk þess sem hann kvaðst ekki sáttur við orðalag fréttarinnar. Mikils virði að ganga til baráttu með traust lið samstarfsmanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.