Morgunblaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 26 Landssamband íslenzkra verzlunarmanna; Mótmælir ómerk- ingu kjarasamninga Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá LtV: Seint verður nægileg áherzla lögð á mikilvægí þess, að kjara- samningar séu virtir, rétt sem aðrar fjárskuldbindingar i þjóðfé- laginu. Allt of oft hafa þó stjórn- völd brotið gegn þessu grund- vallaratriði og er mál til komið að linni. Þegar samningar voru gerðir á s.l. vori var miðað við þáverandi ástand efnahagsmála og áætlanir um þróun þeirra til loka samn- ingstímabilsins. Síðan þá hafa efnahagsástæður sízt versnað. Verðbólgan heldur þó áfram að vaxa og dylst engum nauðsyn þess að hamla þar á móti og tryggja að atvinnuvegir landsmanna geti þrifizt með eðlilegum hætti. Eng- um dettur í hug aó hægt sé að kveða niður verðbólguna í einni svipan. Til þess þarf lengri tíma og um það þarf að nást samstaða allra meginafla í þjóðfélaginu, ef árangurs á að vænta. Framhald af bls. 48 og ríkisstjórnin beitir sér nú fyrir með atfylgi atvinnurekendasam- takanna: 1: Samþykkt frumvarps þessa fæli í sér grófa og stórfellda kjaraskerðingu allra launþega þar sem þeir yrðu sviftir hálfum samningsbundnum verðbótum fyrir verðlagshækkanir sem ekki geta numið minna en 30—40% frá 1. nóv. 1977 — 1. nóv. 1978 en það er það tímabil sem verðlags- bætur yrðu skertar fyrir skv. 1. gr. frumvarpsins. 2. Með ákvæðum 3. gr. frum- varpsins er gert ráð fyrir að óbeinir skattar skuli ekki hafa áhrif á verðlagsbætur frá og með næstu áramótum. Auk þeirrar ómældu kjaraskerðingar sem þetta ákvæði hefði í för með sér er augljóst að með þessum nýja og gerbreytta verðbótagrundvelli yrðu réttir aðilar vinnumarkaðar- ins sviftir lagarétti sinum til að semja sín í milli um eitt helsta og mikilvægasta atriði, sem launa- kjörin varða og ríkisvaldinu í raun fengið í hendur einræðis- vald til að ákvarða launakjör I landinu. Þar með yrðu launþegasamtök- in gerð ómerk í kjarabaráttu sinni að þeim hætti sem tíðkast í þjóð- löndum þar sem lýðréttindi eru í minnstum hávegum höfð. Þótt ekki kæmu til margvísleg fleiri atriði en að framan er greint frá er augljóst að með ráð- stöfunum þessum væri hafin slík aðför að verkalýðsstéttinni og samtökum hennar að óhjákvæmi- lega nauðsyn bæri til að gegn henni verði snúist með öllu því afli sem samtökin hafa yfir að ráða. Leggur ráðstefnan í því efni sérstaka áherslu á fulla samstöðu og samráð við Bandalag starfs- manna ríkis og bæja og Far- manna- og fiskimannasamband ís- lands sem bæði hafa þegar lýst eindregnum vilja sínum til sam- starfs og baráttu við hlið Alþýðu- sambands íslands. Ráðstefnan ítrekar fyrri áskoranir verkalýðssamtakanna til ríkisstjórnarinnar um að stöðva framgang frumvarpsins. Verði ekki orðið við þeim ein- dregnu tilmælum samþykkir ráð- stefnan að fela miðstjórn ásamt stjórnum eða fulltrúum BSRB og FFÍ að skipuleggja sameiginlegar baráttuaðgerðir og skal miða við að þær hefjist 1. mars n.k. en þann dag á fyrsta kaupskerðingin að koma til framkvæmda. Allar skulu aðgerðir samtakanna stefna að þvi marki að þeim ólögum, sem sett hafa verið hagsmunum og rétti launamanna til höfuðs verði í reynd eytt þannig að kjara- og réttindaskerðingin komi ekki til framkvæmda og verði ekki þoluð af neinu verkalýðsfélagi né ein- stökum félögum þeirra. Kjörorð baráttunnár vérðí: Kjarasámn- ingana í gildi“. Ennfremur var samþykkt: Ekki má grípa til neinna þeirra aðgerða í stundarárangursskyni, sem síðar gætu spillt fyrir fram- haldsaðgerðum til úrbóta. Sá þáttur frumvarps ríkis- stjórnarinnar, sem nú er til með- ferðar á Alþingi og ógildir að hluta gildandi kjarasamninga, er því bæði rangut og mjög óvitur- legur, þar eð hann veldur litlu um hömlun gegn verðbólgunni, en eyðir trausti og samstarfsmögu- leikum milli stjórnvalda og laun- þegasamtaka, stuðlar beinlínis að harðari kröfugerð og hindrar að hægt sé að gera samninga til lengri tíma. Með vísun til framangreinds mótmælir stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna harð- lega þeim áformum um ómerk- ingu kjarasamninga, sem fram koma í greindu stjórnarfrum- varpi, og hvetur allt verzlunar- fólk til samstöðu og baráttu til varnar umsömdum kjörum, og gegn hugsanlegri takmörkun samningsréttarins. „Ráðstefnan felur miðstjórn ásamt fulltrúum þeirra launþega- samtaka annarra, sem með henni vilja vinna í baráttunni gegn kjara- og réttindaskerðingunni, sem nú dynur yfir, að nota tímann fram til 1. mars til hins ýtrasta til að efla samstöðu og baráttuað- gerðir með fundahöldum í sam- ráði við verkalýðsfélögin, með sérstökum svæðaráðstefnum launþegafélaganna og með út- gáfustarfsemi. Ráðstefnan felur framan- greindri framkvæmdanefnd einn- ig að standa í fyrirsvari gagnvart samtökum atvinnurekenda og ríkisvaldinu, en kalla til eftir þörfum fulltrúa aðildarsamtak- anna þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir umfram þær sem í samþykktum ráðstefnunnar eru tilgreindar". — íþróttir Framhald af bls. 46. arsson gerði góða hluti í leiknum og sömuleiðis Gisli Blöndal. en þann síðarnefnda vantar greini- lega meiri leikgleði. Dómarar voru þeir Björn Kristjánsson og Gunnlaugur Hjálmarsson og græddu Framar- ar örugglega ekki á dómgæzlu þeirra. MÖRK FRAM: Arnar 7 (lv), Árni 6, Birgir 3, Jens 2. Atli 2, Gústaf 2, Guðjón 1. MÖRK VALS^ Þorbjörn öuð- mundsson 6, Jón Karlsson 6 (3v), Gísli 3, Bjarni 2, Jón Pétur 2, Steindór 2. Misheppnuð vítaköst: Arnar átti vitakast I stöng i fyrri hálf- leik. — áij — Miles með betri stöðu Framhald af bls. 48 hrók, en Margeiri tókst að halda jafntefli með því að þrá- leika. Larsen og Miles tefldu mjög skemmtilega skák og stendur Miles heldur betur. Staðan er þá þannig að Lar- sen er með 7'A vinning og bið- skák, Friðrik, Hort og Browne eru jafnir með 6‘A vinning, en Browne á þar að auki eina bið- skák með verri stöðu og næstur er Miles með 6 vinn- inga og biðskák. — Nýja loðnu- verðið Framhald af bls. 2 þarf að vinna áfram að endur- bótum í þeim efnum“. Jón Reynir Magnússon fram- kvæmdas,tjóri Sildarverksmiðja ríkisins sagði að kaupendur loðnunnar væru óánægðir með þetta nýja loðnuverð. en að öðru leyti vildi Jón Reynir ekki tjá sig um málið. — Árleg merkjasala Framhald af bls. 2 sjálfra heldur er þetta hagsmuna- mál allrar þjóðarinnar. Stuðlum öll að því, að byggja svo vel upp björgunarsveitirnar, að þær séu vel undir það búnar að takast á við erfið verkefni. Hætturnar liggja allsstaðar í leyni. Slysin eru alltof mörg í okkar litla þjóðfé- lagi. Tökum höndum saman og reyn- um að fækka þeim. Það er ósk slysavarnakvennanna að borgar- búar taka þeim vel, sem bjóða þeim merki á föstudag og laugar- dag næstkomandi. Merkin verða tvennskonar, plastmerki og slaufumerki og kosta 200 kr. stykkið. Reykvíkingar góðir. Um leið og þið kaupið merki, þá eruð þið að leggja ykkar skerf til varnar slys- um í landinu. Foreldrar eru beðnir um að leyfa börnum sínum að selja merkin. Verða þau afhent í barna- skólum borgarinnar. Munu 20 söluhæstu börnin fá sérstök verð- laun. — Prófkjör Framhald af bls. 2 I væntanlegum hreppsnefndar- kosningum, sem fram eiga að fara í maímánuði n.k. Rétt til þátttöku í prófkjörinu eiga allir meðlimir Skjaldar og aðrir sjálfstæðis- menn, konur og karlar, svo og allir óflokksbundnir kjósendur 18 ára og eldri, sem lögheimili eiga á Patreksfirði. En framboðs- frestur rennur út sunnudaginn 19. febrúar n.k. kl. 4 síðdegis. Kjörgengt er allt sjálfstæðisfólk, sem og allir sem eru óflokks- bundnir, en vilja vinna með sjálf- stæðismönnum að málum hrepps- félagsins. Prófkjörið er bindandi fyrir 3 efstu menn listans, samkvæmt nánari regíum um prófkjör. — Bretar deila Framhald af bls. 1 bætti þvi við að ekki væri ljóst hvort um misskilning væri að ræða eða „vísvitandi tilraun fær- eyskra yfirvalda til að takmarka samninginn sem við höfum ný- lega gert.“ Hann sagði að ef síðari mögu- leikinn reyndist réttur væri málið mjög alvarlegt og það þýddi að samningurinn væri að engu hafð- ur. Hann bað Efnahagsbandalagið og færeysk stjórnvöld að gefa þegar í stað skýringu á afstöðu eyjaskeggja. — Sex börn Framhald af bls. 1 neistaflóði frá hárþurrkara sem var notaður til að hita upp herbergi sem þau sváfu í i gær- kvöldi. Móðir þeirra var fjarstödd. — Kristján Thorlacius Framhald af bls. 2 sem samstaða verður um að grfpa til og í okkar samþykkt felst að þaó geti meðal annars verið um að ræða vinnustöðvan- ir í einhverri mynd.“ Kristján kvaðst telja, að „ástandið nú kalli á sérstakar baráttuaðgerðir utan við hefð- bundna samninga um kaup og kjör. Ég tel samningsréttinn mjög stórt mál fyrir allt launafólk og að endurtekin riftun kjara- samninga undanfarin ár kalli nú á sterk og ákveðin mótmæli gegn slíku og baráttu til að tryggja og treysta þennan rétt, sem við höfum fengið með lög- um. Þessi ályktun formannaráð- stefnu BSRB er sterk og ákveð- in mótmæli gegn þeim ^triðum frumvarps ríkisstjórnarinnar, sem þýða skerðingu á kjara- samningunum. Það er mín skoðun, að hér á landi skuli ekki eingöngu vera þingræði, heldur gerir stjórnarskráin einnig ráð fyrir lýðræði, sem ekki aðeins þýðir að almenning- ur eigi að fá að segja sína skoð- un á kjördegi. Almannasamtök- in í landinu eru hluti af lýðræð- inu, ekki sízt samtök launa- fólks, sem eru 70—80% þjóðar- innar. Alþingi hlýtur því að taka fullt tillit til skoðana slíkra samtaka og auðvitað von- um við að svo verði, en fari á annan veg munum við leita eft- ir samstarfi við önnur verka- lýðssamtök um andsvör. Frum- varp ríkisstjórnarinnar þýðir stórkostlega skerðingu á kjara- samningunum og mönnum hrýs hugur við því að ekki verði staðið við samningana og fjár- skuldbindingar þeirra, eins og aðrar fjárskuldbindingar." — Kolafram- leiðsla Framhald af bls. 22. eftir og getur komið að því að stærstu fyrirtæki þar • verði að minnka eldsneytisnotkun við sig um helming. Gæti það orðið til þess að um 750.000 verkamenn misstu atvinnuna að því er ríkis- stjórinn, James Rhodos, skýrði Carter frá á mánudag. I Indiana er áformað að takmarka eldsneyt- isnotkun í skólum um 50% í lok vikunnar og 25% í fyrirtækjum. — Skorar á Alþingi Framhald af bls. 5. band Islands, Farmanna- og fiski- mannasambands íslajids, Banda- lag háskólamanna og Samband ísl. bankamanna um aðgerðir til að hrinda þeirri árás á frjálsan samningsrétt, sem frumvarpið felur í sér. Skorar formannaráðstefnan á Alþingi að hætta við að sam- þykkja þau ákvæói frumvarpsins, sem fela i sér riftun á samningum um kaup og kjör. Verði Alþingi ekki við þessari áskorun er launafólk knúið til að- gerða til verndar samningsréttin- um nú og í framtiðinni. Ef nauðsyn krefur og samstaða næst við önnur launþegasamtök um aðgerðir, felur formannaráð- stefnan stjórn BSRB að gangast fyrir víðtækri þátttöku félags- manna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja í þeim. Komi til vinnustöðvunar, er stjórn Banda- lagsins falið að taka þátt í stjórn- un hennar af þess hálfu.“ — Rhódesíu- deilan Framhald af bls. 1 fallið í stríðinu á sex fyrstu vikum ársins og ekkert bendir til þess að lát verði á bardögunum. Joshua Nkomo, annar tveggja leiðtoga Föðurlandsfylkingarinn- ar, sagði i viðtali við Reuter í dag að samkomulagið breytti engu og hann bætti við: „Þetta táknar að- eins að óvinir frelsunarinnar eru orðnir einn óvinur." Samkomulagið er i átta liðum og samkvæmt þvi er gert ráð fyrir þingi skipuðu 100 þingmönnum, þar af 28 hvítum næstu 10 ár og þeir eiga að gæta hagsmuna hvítra manna. Enn á eftir að ná samkomulagi um samsetningu heraflans og tímasetningu kosn- inga sem leiða til myndunar meirihlutastjórnar. Ef samkomulag næst um mynd- un bráðabirgðastjórnar verður einn helzti vandi hennar sá að sannfæra umheiminn um að sam- komulagið sé marktækki eru lik- ur á því að Sameinuðu þjóðirnar fáist til að aflétta viðskiptabann- inu á Rhódesiu. Fyrstu viðbrögð sýna að erfitt verður að sannfæra umheiminn. 1 New York sagðj Andrew Young, sendiherra Bandaríkj- anna hjá Sameinuðu þjóðunum sem nýlega tók þátt i viðræðum við Föðurlandsfylkinguna á Möltu, að samkomulagið væri „engin lausn“. Hann sagði að það gæti leitt til nýrrar styrjaldar í líkingu við borgarastríðið í Angola. Young sagði að Banda- ríkjamenn og Bretar yrðu að reyna að stuðla að samkomulagi skæruliða við stjórnmálaöfl í Rhó- desiu. Samkomulagið fékk líka dræm- ar undirtektir i bandariska utan- rikisráðuneytinu þar sem sagt var að það virtist óviðunandi þar sem þ'áð væri gert án aðildar Föður- landsfylkingarinnar og fullnægði ekki þeim þörfum sem gert væri grein fyrir i tillögum Breta og Bandarikjamanna um lausn deil- unnar. Séra Ndabaningi Sithole, einn hinna þriggja blökkumannaleið- toga sem standa að samkomulag- inu, sagði að samkomulagið hefði ekki verið gert til að þóknast Föð- urlandsfylkingunni. Hann sagði að næsta skrefið yrði undirritun samningsins og myndun bráða- birgðastjórnar. Sithole er i Jó- hannesarborg og er á leið til Belgiu, Vestur-Þýzkalands, Frakklands og Bretlands þar sem hann mun greina frá samkomu- laginu og reyna að afla því stuðn- ings. Samkomulagið kveður á um verndun mannréttinda og vernd gegn þjóðnýtingu og eignatöku; frelsi og hæfni dómsvalda; nefnd sem tryggi óháða embættis- mannastjórn; ópólitíska lögreglu og ópólitiskan her; tryggingu fyr- ir greiðslu eftirlauna utan Rhó- desíu; leyfi handa Rhódesiu- mönnum að hafa tvöfalt ríkis- fang; þing skipað 100 fulltrúum, þar af 28 hvítum; að hvítir einir kjósi 20 hinna hvítu manna og hvitir menn tilnefni frambjóð- endur til hinna þingsætanna átta er svartir og hvítir kjósi. — Begin Framhald af bls. 1 Þetta er í fyrsta skipti sem Banda- ríkjamenn hafa samþykkt að selja Egyptum árásarvopn. Hingað til hafa þeir aðeins fengið flutninga- vélar og fjarskiptatæki frá Banda- ríkjunum. Diplómatar í Kaíró segja að F-5 flugvélin sé ódýr og viðhald henn- ar kosti lítið. Hún er talin hentug til varnar en óhentug til stuðn- ings árás á ísrael á landi. Haft var eftir Sadat forseta í viðtali við vestur-þýzka timaritið Quick í dag að hann vildi minnast undirritunar friðarsatnnings við Israel með því að reisa kirkju, mosku og gyðingabænahús á Sinai-fjalli. — Sprengjuvél Framhald af bls. 1 flugvélinni hefðu verið handtekn- ir. Flugstjórinn sagði blaðamönn- um að yfirmenn hans hefðu sagt honum að fljúga til Mogadishu og ekki skýrt honum frá því hver farmurinn væri. Egypzka stjórnin spurði stjórn Kenya fyrr í vikunni hvort egypzkar flugvélar mættu fljúga yfir Norður-Kenya á leið sinni til höfuðborgar Sómalíu, en neitað var um leyfi ti_i þess að sögn kenýsku fréttastofunnar. Síðan hafa þrjár egypzkar Boeing 707 flugvélar flogið yfir Kenya ein á mánudag og tvær i gær. Egypzka sendiherranum var sagt í gær að Egyptar yrðu að hætta að senda þannig vopn til Sómalíu, en hann neitaði því að Egyptar tækju þátt í vopna- sendingum til Sómalíu. — Friðrik bætti Framhald af bls. 31. bundnar leiðir en eftir 16. leik hvits var staðan þessi: Hvítur hótar að drepa peðið á b7 og því valdar svartur það i næsta leik, en það leynist fleira i stöðunni, hvítur vinnur peð samt sem áður. 16. . .. IIfb8, 17. Rxe5 — Dd4, 18. Rc4 — Rc8 og hvítur vann auðveldlega í 31. leik. — ASÍ stefnir að aðgerðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.