Morgunblaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra: „Flest hraðfrystihús hefðu ney ðzt til að s töðva rekstur’ ’ — án gengisbreytingar og hliðarráðstafana Stjórninni bar skylda til að taka ákvarðanir, er tryggðu áframhaldandi verðmætasköpun og atvinnuöryggi Hér fer á eftir að megin- máli ræða Matthíasar Bjarnasonar, sjávarútvegs- ráðherra, er hann flutti við útvarpsumræður frá Al- þingií fyrrakvöld. Tvö markmið Góðir íslendingar. Þegar núv. ríkisstj. tók - við völdum fyrir þremur og hálfu ári setti hún sér tvö höfuðmarkmið: I fyrsta lagi aó færa fiskveiðilögsögu okkar út i 200 sjómílur og stefna að alger- um yfirráðum Islendinga yfir fiskveiðum á öllu þessu hafsvæði. í öðru lagi að draga úr verðbólg- unni. Þar náðist mjög umtalsverð- ur árangur, því að á miðju s.I. ári var verðbólgan komin niður I 26%. Nú er hún að vísu á leiðinni yfir 30% markið, vegna þess að kauphækkanir hafa síðustu tvo mánuði hækkað að meðaltali um rúmlega 60% á sama tíma sem meðaltalshækkun á útflutningsaf- urðum okkar hefur ekki numið nema um 20%. Við verðum líka að hafa I huga, að frá því að kjarasamningarnir voru gerðir hafa ytri aðstæður versnað hjá okkur islendingum hvað snertir verð og sölu á út- flutníngsafurðum. Að undan- förnu hefur ekki orðið framhald hækkana á freðfiskafurðum; salt- fiskafurðir hafa lækkað frá því sem áður var og við eigum óseldar skreiðarbirgðir fyrir 5000 millj. kr. Þessar breytingar allar hafa rýrt afkomu útflutningsatvinnu- veganna gífurlega og á þann veg, að ekki varð komist hjá aðgerðum til þess að koma I veg fyrir, að flest hraðfrystihús landsins hefðu neyðst til þess að stöðva rekstur sinn. Sömuleiðis þótti bæði rétt og sanngjarnt að hækka fiskverð um 13%, sem staðið hafði óbreytt frá 1. júlí á s.l. ári. Eg tel eðlilegt, að slík fiskverðs- breyting ætti sér stað á sama tíma og aðrir launþegar hafa fengið miklar hækkanir. Það var ekki hjá því komist en sjómenn fengju þessa hækkun sem og útgerðar- menn, til þess að mæta hækkun- um á útgerðarkostnaði skipa sinna. Það er augljóst mál, að þegar kaupgjald og verðlag þre- faldast miðað við verðmæti út- flutningsframleiðslunnar, þá þarf að gera sérstakar ráðstafanir. Ef fiskvinnslan hefði stöðvazt Eftir kjarasamningana á s.l. sumri og með nýju fiskverði frá áramótum fór hagur hraðfrysti- húsanna og flestra annarra greina I fiskiðnaði mjög versnandi og svo var komið nú um áramótin, að óumflýjanlegar voru ráðstafanir til þess að koma I veg fyrir stöðv- un þessara mikilvirku atvinnu- tækja. Stöðvun hraðfrystiiðnaðar- ins þýddi stöðvun útgerðar óg stöðvun velflestra atvinnugreina I þessu landi, því að sjávarútvegur- inn er undirstöðuatvinnuvegur landsmanna. Þegar hann bregst bregðast einnig aðrar stoðir ís- lensks efnahagslífs. Þess vegna var gengisbreyting gerð og I fram- haldi af henni þær hliðarráðstaf- anir, sem þetta frv. gerir ráð fyr- lr' 1 þeim hliðarráðstöfunum er fyrst og fremst stefnt að því að tryggja þeim, sem minnst hafa I þjóðfélaginu svipuð lífskjör og þeir áður höfðu. Hins vegar verð- ur ekki hjá því komist að draga úr kaupuppbótum á öll meðallaun og upp úr þannig, að þeir sem hæst launin hafa, verða að krónutölu að fórna mestu. Samhliða þessu eru gerðar ráðstafanir til þess að bæta hag ellilífeyrisþega og ör- orkuþega fram yfir það, sem oft áður hefur verið gert. Ég tel, að þessar ráðstafanir, sem hér er verið að gera séu eins mildar og hægt er. Það er óhjákvæmilegt annað en að taka vísitöluna til meðferðar, því áð við getum ekki lifað og rekið okkar þjóðfélag með því vísitölufyrirkomulagi, sem við búum við og er margvið- urkennt af talsmönnum allra flokka, að þurfi að breyta til þess að draga úr hinum mikla verð- bólguhvata, sem það hefur I för með sér. En þegar á hólminn er komið standa menn ekki við stóru orðin. 70 þúsund manns fóru utan Það má lengi deila um hvaða breytingar eigi að gera á vísitölu- grundvellinum. Þær breytingar, sem þetta frv. felur I sér eru að mínum dómi eðlilegar, þegar jafnframt er höfð I huga sú yfir- lýsing, sem hæstv. forsrh. gaf hér áðan varðandi niðurgreiðslur á vöruverði. Atvinna hefur verið mikil I landinu og tekjur hjá öll- um stéttum verið mjög góðar. Kaupgeta hefur verið meiri en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það að góðæri hefur verið ríkjandi hjá öllum þorra Iandsmanna er kynt undir elda að glóðum óánægju. Þar hefur neikvæð frétta- mennska, bæði ríkisfjölmiðla og annarra fyrst og fremst verið að verki. Þar er aldrei spurt um, hvað áunnist hefur, hvort við höf- um gengið götuna til góðs, heldur er alltaf spurt: ertu ekki óánægð- ur með þetta eða hitt? Alltaf er reynt að finna einhvers staðar óánægju. Er þá mögulegt, að óánægjan eigi fyrst og fremst að vera ríkjandi, þegar flest leikur I lyndi? Ber kaupmáttur launa á s.l. ári vott um, að almenningum hafi átt við mikla erfiðleika að stríða I efnahagsmálum á s.l. ári? Ber það vott um, að lífskjörin hafi versnað, þegar 70 þús. manns hafa farið utan og keypt gjaldeyri I íslenskum bönkum fyrir 5.8 milljarða kr. Til samanburðar fóru utan 59 þús. manns með gjaldeyri 3.2 milljarða kr. á árinu á undan? Ber það vott um fátækt, að keyptar voru til landsins á s.l. ári 7563 bifreiðar á móti 4310 á árinu 1976? Ber það vott um pen- ingaleysi, að flutt eru inn 8827 sjónvörp á árinu 1977 á móti 2202 árið undan, þar af þeim eru 97% litasjónvörp. Ber þetta vott um, að það hafi kreppt alvarlega að almenningi I þessu landi. Eða ætl- ar einhver að halda því fram, að þessi innflutningur nái aðeins til örfárra forréttindamanna eða stétta I þjóðfélaginu. Verslun á s.l. ári og þó serstak- lega I desembermánuði hefur aldrei verið meiri. Lífsgæðakapp- hlaupið hefur verið I algleymingi. Finnst hlustendum þetta ekki vera I samræmi við sultarræðu Sighvats Björgvinssonar hér áð- an? Vítahringur sem komast verdur út úr En við verðum að taka tillit til aðstæðna I þjóðfélaginu. Við vit- um það, að það var gengið of langt i verðlags- og kauphækkunum á s.I. ári og dýrtíðarhjólið hefur snúist hraðar og við stefnum rak- leitt í svo gífurlega dýrtíð, að á tveimur árum, ef ekkert er að gert, myndum við nálgast það Evrópumet sem var, þegar Lúðvík Jósepsson og þeir félagar fóru frá stjórn 1974. Það dugar skammt að berja sér á brjóst og bölva verðbólgunni. En þegar á að gera ráðstafanir til þess að draga úr skaða þessa skrímslis er snúist á Útvarpsumræður um efnahagsmálafrumvarp ríkisstjórnarinnar: „Gengisbreytingin var alger nauð- syn vegna stöðu atvinnuveganna og vegna viðskipta við önnur lönd” sagði Halldór E. Sigurðsson samgönguráðherra ÞRIÐJA umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar til laga um aðgerðir í efnahagsmálum fór fram í fyrra- kvöld og var útvarpað frá henni. Þeir þingmenn, sem töluðu af hálfu Sjálfstæðisflokksins, voru Geir Hall- grímsson forsætisráðherra en ræð: hans var birt í blaðinu í gær, og Matthías Bjarnason sjávarútvegsráð- herra og er ræða hans birt í heild sinni í blaðinu í dag. Þá töluðu af hálfu Framsóknarflokksins Tómas Arna- son og Halldór E. Sigurðsson samgönguráðherra, af hálfu Alþýðuflokksins Benedikt Gröndal, Sighvatur Björgvinsson og Gylfi Þ. Gíslason, af hálfu Alþýðu- bandalagsins Lúðvík Jósepsson og Eðvarð Sigurðsson og að lokum af hálfu Samtaka frjálslyndra og vinstri- manna þeir Magnús Torfi Ólafsson og Karvel Pálmason. Fer hér á eftir úrdráttur úr ræðum þessara þingmanna: Lúðvík Jósepsson (Abl); For- sætisráðherra heldur þvi fram að nauðsynlegt hafi verið að gera þessar ráðstafanir til að tryggja rekstur atvinnuveganna svo og að ekkert þjóðfélag þyldi 50—60% faunahækkanir á einu ári, og að reynt væri að tryggja hagsmuni láglaunafólks og að stefnt væri að því að kaupmáttur launa yrði svipaður og á siðasta ári. Hér er um lélegar skýringar forsætisráð- herra að ræða, skýringar sem ekki segja hálfan sannleikann og ganga á svig við kjarna þess alvar- lega máls, sem hér er um að ræða. Gengislækkun sú er samþykkt var fyrir fáum dögum og orsakar 14.9% hækkun á erlehdum gjald- eyri éða um 15% verðhækkun á öllum innfluttum vörum, var að- eins formleg tilkynning um ákvörðun sem ríkisstjórnin hafði tekið fyrir mörgum mánuðum. Það var verðhækkunarstefna ríkisstjórnarinnar sem margfald- aði 8—9% kaupmáttaraukningu upp í 60—70% krónutöluhækkun kauptaxta, sem nú er verið að tala um og síðan leiddu allar þessar hækkanaráðstafanir til þess að gengið var fellt nú, er þetta því alls ekki sök verkalýðshreyfingar- innar að svo er komið í efnahags- máium þjóðarinnar. Tómas Arnason (F): A undan- förnum árum hefur verið beint miklu fjármagni til þess að byggja upp atvinnutæki til lands og sjávar. Samhliða sigursælli baráttu fyrir útfærslu fiskveiði- lögsögunnar hefur fiskiskipaflot- inn verið efldur og er að allri gerð og búnaði eins og bezt verður á kosið. Á þessu ári verður að mestu lokið við uppbyggingu og endurbætur á fiskiðjuverum og frystihúsum úti á landsbyggðinni utan Reykjavíkur og Reykjanes- svæðisins, en verið er að leggja grundvöll að skipulegri uppbygg- ingu á því svæði m.a. með þeim ráðstöfunum, sem hér eru til um- ræðu. I landbúnaði hefur einnig verið stórfelld uppbygging, sem gerir fáliðaðri en atorkusamri bændastétt kleyft að brauðfæða þjóðina með hollum og heilnæm- um fæðutegundum. Þjónustu- og framleiðsluiðnaður hefur verið stórefldur, þar á meðal vaxandi útflutningsiðnaður. Sem dæmi um árangur þessara þróttmiklu framleiðslustefnu má nefna, að útflutningsverðmæti sjávaraf- urðaframleiðslunnar nam yfir 80 milljörðum króna á s.l. ári. Það er mála sannast, að sjaldan eða aldrei hefur Islendingum vegnað betur en einmitt hú, velmegun er mikil og almenn og atvinnuleysi er í algjöru lágmarki, þetta finnur og veit öll þjóðin. Að lokum vil ég segja það að við erum of hátt uppi i efnahagsmálum til að geta stokkið niður á trausta jörð i einu stökki, án þess að skaða okkur. Benedikt Gröndal (A): Þessi ríkisstjórn sem nú situr að völd- um er algerlega misheppnuð, hún kom til valda fyrir þremur og hálfu ári í frekar lélegu árferði, en allt frá þeim tíma hafa aðstæð- ur allar batnað og hafa aldrei verið betri en einmitt nú, samt hefur stjórn þjóðarbúsins farið í handaskolum, landið er að sökkva í erlent skuldafen og verðbólgan riður húsum, svo að einstakling- um og stofnunum er varla vært. 30—50% verðhækkanir á ári hafa þurrkað út siðferðiskennd þjóðar- innar, og leitt af sér meira órétt- læti, meiri spillingu, meiri sér- réttindabrask en þjóðin hefur nokkru sinni kynnst fyrr. Ríkis- stjórnin mun augsýnilega skilja við efnahagsmál okkar i meiri ógöngum en þau voru þegar hún tók við. Þær efnadhagsráðstafan- ir sem hér er verið að ræða um eru gerðar fyrst og fremst á kostnað launþega, sem minnst mega sín og er það furðulegt að þeim tillögum, sem verðbólgu- nefndin sendi frá sér, er alger- lega stungið undir stól af rikis- stjórninni, en í mörgum þeirra leiðum er gert ráð fyrir að skerða á engan hátt hlut vinnandi fólks í landinu. Magnús Torfi Ólafsson (Sfv): Ríkisstjórnin hóf feril sinn með tveimur gengisfellingum á einu misseri og nú framkvæmir hún þá þriðju í lok valdaferils síns. 1 framhaldi af þessari gengisfell- ingu leggur hún svo fyrir frum- varpið sem hér er til umræðu, þar sem kveðið er á um ógildingu verðbótaákvæða allra kjarasamn- inga og helmingslækkun þeirra verðbóta á laun, sem samið var um á seinni hluta s.l. árs fyrir þorra launafólks. Einnig hyggst ríkisstjórnin gera gangskör að því að breyta vísitölugrundvellinum með því að nema úr grundvelli verðbótavísitölu alla óbeina skatta, s.s. söluskatt og hvers kon- ar aðflutningsgjöld og benzín- skatt. 1 starfi verðbólgunefndar nú siðustu mánuði fór það ekki dult að ríkisstjórnin var að undir búa slíkar aðgerðir í efnahags- málum, sem og varð raunin á. Það er einnig ljóst í þessu frumvarpi að hver höndin hefur verið uppi á móti annarri í stjórnarflokkunum um afgreiðslu þess, þannig að ekki er von á góðu. Þetta frum- varp er ekki markviss ráðstöfun samhentrar rikisstjórnar, sem veit hvað hún vjll og hefur mark- að sér leið af framsýni og yfirveg- un. Þetta frumvarp er vanburða afsprengi sundurleits þingmeiri- hluta, sem hangir saman á því einu að hann veit sig sameigin- lega ábyrgan fyrir misheppnaðri stjórn flokks sem hafa fyrirgert trausti margra sinna beztu stuðn- ingsmanna. Sighvatur Björgvinsson (A); Enn ein kollsteypan blasir nú við í efnahagsmálum, undir lok fjög- urra ára valdaferiis ríkisstjórnar tveggja stærstu stjórnmálaflokka á Islandi. Nú stendur þjóðin á barmi hengiflugs. Við blasir 35—40% verðbólga, hrun at-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.