Morgunblaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 31 Friðrik bætti enn einni skrautf jöður í safnið I níundu umferð Reykja- víkurskákmótsins hlaust sigur i hverri skák enda allar mjög fjörlega tefldar og er nú greini- legt að keppendur leggja allt í sölurnar og tefla stíft og ákveð- ið til vinnings en jafnteflishug- leiðingar látnar lönd og leið. Sá keppenda sem teflir af hvað mestu öryggi og festu er án efa Bent Larsen, sem nú hefur tek- ið forystu i mótinu. Það er lær- dómsríkt að sjá hvernig Larsen fer að þvi að innbyrða hvern vinninginn á fætur öðrum, en það gerir hann ávallt án þess að taka á sig nokkra áhættu að þvi er virðist og gerir þetta létt og leikandi án fyrirhafnar en það er einkennandi fyrir mikla listamenn. SkákstíU Larsens hefur þannig þróast með árun- um en áður fyrr var hann með sóknharðari mönnum og fórn- aði mönnum á báða bóga fyrir sókn og aftur sókn. Nú þarf hann ekki lengur að fórna mönnum til þess að ná upp vinningsstöðum því á öllum sviðum skákarinnar sýnir hann geysilega tækni, hvort heldur það er í byrjuninni, miðtaflinu eða endataflinu. Hann hefur einungis tapað einni skák, fyrir Friðriki Ólafssyni, en sú skák var af Friðriks hálfu tefld af slíkum krafti og eldmóð að jafnvel Larsen var nóg boðið. Sú skák hlýtur einnig að hafa gefið Friðrik „vind i seglin“ heldur betur því í þessu móti hefur Friðrik sýnt þessa hlið á sér oftar en hann hefur gert í lengri tíma áður og skemmt áhorfendum með litríkri tafl- mennsku. Munurinn á tafl- mennsku Larsens og Friðriks er i rauninni sá að Larsen hef- ur tamið sér varfærnari skák- stíl þó undir niðri ólgi og sjóði, enda skilar slík taflmennska betri árangri þegar til lengdar lætur, en Friðrik hinsvegar verður oft fyrir skakkaföllum þegar hann sézt ekki fyrir í sóknarþunganum, enda eru margar fórnir Friðriks byggðar meira á innsæi og tilfinningu heldur en þaulhugsuðum út- reikningum þó oft liggi að baki miklar rannsóknir eins og t.d. skák hans við Polugajevsky, þar sem Friðrik fórnar manni án þess að sjáanlegt væri í lang- an tíma hvernig hann ynni íið til baka. En fórnin byggðist á slæmri stöðu kóngsins og innan tiðar varð Polugajevsky að láta af hehdi drottninguna og mátti þakka fyrir jafntefli. Friðrik bætti einni skrautfjöðrinni í þetta safn sitt af fallegum sóknarskákum er hann tefldi við Smejkal i 9. umf. Friðrik byrjar á því að fórna manni i 14. leik, býður siðan drottningu fala og síðan fjúka mennirnir hver af öðrum. Sanúkölluð „Friðriks-skák". Hvitt: Smejkal Svart: Friðrik Kóngs-indversk vörn I. c4 — Rf6, 2. Rc3 — g6, 3. Rf3 — Bg7, 4. e4 — d6, 5. d4 — 0-», 6. Be2 — e5, 7. 0-0 — c6, 8. Dc2 — Rbd7, 9. Hdl — De7, (Smejkal kemur ekki að tóm- um kofanum hjá Friðrik varð- andi þessa byrjun því Friðrik hefur nánast sérhæft sig og teflt margar glæsilegar skákir, bæði með svörtu og hvitu, ein- mitt með þessari byrjun.) 10. Hbl — (Hvítur á um ýmsar leiðir að velja: hann gæti leikið t.d. 10. d5 og lokað þannig mið- borðinu og siðan hafist handa á drottningarvæng eins og hann undirbýr með textaleiknum). 10. ... exd4, (Svartur opnar nú miðborðið og svörtu mennirnir koma nú þeysandi fram á sjón- arsviðið hver á fætur öðrum) II. Rxd4 — Rc5, 12. f3 — Rh5, 13. Bfl — (Varfærnislegur leikur, en hvítur hefur talið sig hafa nægan tima til að reka riddarann á b4 af höndum sér.) 13. . .. f5!, (Kraftmikill leikur) 14. b4 — (Hvítur mátti að sjálf- sögðu ekki leika 14. exf5 vegna 14. ... Bxd4, 15. Hxd4 — Bxf5 og svartur vinnur lið og hefur yfirburðastöðu) Skák 14. ...fxe4!! (Það þarf mikla dirfsku og áræði til að fórna þannig manni á móti stórmeist- ara, en hugboð Friðriks segir honum að fyrir utan nokkur peð fái hann einnig sókn og hún er ekki svo litils virði) 15. bxc5 — dxc5, 16. Rde2 — exf3, 17. gxf3 — Hxf3 (Svartur hefur þegar fengið tvö peð fyrir Hort tapaði annarri skák á mót- inu í nfundu umferðinni, þegar hann stóðst Browne ekki snún- inginn. manninn og mjög gott spil fyrir mennina. Hvítu mennirnir hinsvegar vinna illa saman þó þeir séu í einum hnapp og m.a. annars hótar svartur nú Bf5). 18. De4 — Df8, 19. Bg5 — (Hót- ar að vinna dr. með Hd8) Skýringar: Gunnar Gunnarsson, Leifur Jósteinsson, Sævar Bjarnason Miles varð f fimmta sæti við kjör skákmanns ársins 1977 á eftir Tal, Romanichin, Korts- noj og Karpov, sem hlaut „Skák-Óskarinn“ fimmta árið í röð. Tveir aðrir keppendur Reykjavfkurmótsins urðu með- al 10 efstu í kjörinu; Larsen sem kom næstur Miles að stiga- fjölda og Hort, sem varð í átt- unda sæti, en á milli þeirra varð Boris Spassky. 19. ... Hxc3!! (Svartur fórnar drottningunni!) 20. Be7 (en hvitur þiggur hana ekki! Eftir 20. Hd8 á svarlur hið geysiöfl- uga svar 20. ... Bf5! og allir menn svarts ráða lögum og lof- um á borðinu. Þó verður senni- lega sú staða seint brotin til mergjar því svo flókin er hún og erfið rannsóknar hvað þá að finna bezta svarið yfir borðinu með takmörkuðurn umhugsun- artíma). 20. ... Rf6! (Óvæntur milli- leikur sem hvitum hefur kannski yfirsézt) 21. Bxf8 — Rxe4 22. Hd8 (í fljótu bragði virðist hvitur vera að ná undir- tökunum því nú hótar hvítur fráskák og einnig að taka hrók- inn á c3) 22. ... Hf3 (Svartur leyfir fráskákina því hún reyn- Lombardy hefur komið á óvart á mótinu með sigri yfir Miles og langri viðureign við Browne, en nokkuð er nú síðan banda- ríski stórmeistarinn hefur tek- ið þátt f skákmóti. ist hættulaus) 23. Bxc5 — Kf7 24. Bg2 — Rxc5 (og enn fórnar svartur skiptamun, en nú var það hinsvegar þvingað. Eftir darraðardansinn kemur svartur út með skiptamun und- ir en er með 5 peð á móti 2 peðum hvíts. Liðsyfirburðir svarts leyna sér ekki og fram- hald skákarinnar teflir Friðrik mjög sannfærandi og nýtir liðs- yfirburði sína mjög vel) 25. Bxf3 — Bf6 (Hrókurinn á d8 verður nú að hörfa úr áttundu IJnunni þar sem hann stóð mjög vel og ógnandi) 26. Hd2 — Bf5 27. Hbdl — Bg5 28. Hb2 — Bf6 29. Hbd2 — Bg5 30. Hb2 — He8 (Tímahraki keppenda er nú lokið en siðustu leikirnir voru einungis til þess gerðir að vinna tíma og ljúka tilskildum leikjafjölda) 31. Rd4 — Bh3 32. Bg2 — Bg4 Friðrik Ólafsson hefur vakið hvað mesta athygli þátttakenda f Reykjavíkurskákmótinu fyrir litríka taflmennsku. Hér hugs- ar Friðrik ráð sitt yfir kaffi- bolla, en á bak við sést Bent Larsen þungt hugsi yfir sinni stöðu, en hann hefur með geysi- legri tækni sinni vakið aðdáun mótsgesta og heldur öruggri forystu. 33. Bf3 — Bc8 (Svartur forðast ótimabær uppskipti á mönnum sem myndi létta mjög á stöð- unni hjá hvítum) 34. Kg2 — He3 (Svartur undirbýr nú komu riddarans til d3 með margvislegum hótunum) 35. Hf2 — Bf6 (Hvitur hótaði frá- skák en nú er hótunin Rd3 orðin alvarleg) 36. Hc2 — Rd3 37. Re2 (eini leikurinn sem kom i veg fyrir bæði Bxd4 og Rel og vinnur skiptamuninn til baka) 37. ... Bh3c! 38. Kxh3 (þvingað; ef t.d. 38. Kg3 — Be5 og svartur vinnur allan skipta- mun til baka). 38. ... Rf2 39. Kg2 — Rxdl 40. Hd2 — Rb2 41. c5 — Ra4 42. Hc2 — He5 43. Hc4 — Rxc5 44. Gefið. Hvitt: Ögaard Svart: Guðmundur Sigurjóns. 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — d5, 4. Rc3 — Be7, 5. Bg5 — Rb-d7, 6. e3 — 0-0 (Þetta er einhver þekktasta staða sem til er í Drottningarbragði og sting- ur upp kollinum af og til þó hún sé ekki i tizku lengur) 7. Hcl — a6, 8. c5 (Þessum leik er oft leikið en hann er kannski ekki sá besti) 8.... c6, 9. Bd3 — e5 (Hér kom Guðmundur Ögaard á óvart, leikurinn er tiltölulega nýr af nálinni) 10. dxe5 — Re8, 11. Bf4 — Rxc5, 12. Bbl — f5 (Góður leikur sem jafnar taflið fullkomIega)13. exf6 — Rxf6, 14. Rf5 (Hér of- býður hvitur stöðunni. Betra var að hróka og taka lifinu með ró. Svartur er búinn að jafna taflið) 14.... Re6, 15. Dd3 (Enn hafði hvítur tima til að snúa við og leika RxR og siðan hrökun) 15.... Rxf4, 16. exf4 — h6 17. 0-0 (Loks sér hvitur að eitt- hvað skárra hefði verið að halda áfram en að fórna manni t.d. 17 Rf7 — Hf7 18. RxR — HxR 19. Dh7x — Kf7 Svartur hefur að vísu miklu betra tafl en hann er ekki manni yfir) 17.... Dd5, 22. DxD — cxD 23. Bxf5 — Hxf5 (Svartur hefur manni meira og unnið tafl lokin þarfnast ekki skýringa. Guð- raundur innbyrðir vinninginn örugglega enda hver punktur mikilvægur í svo harðri keppni) 24. f4 — Bd6, 25. g3 — He8, 26. Kf2 — Kf7, 27. Kf3 — He4, 28. Hf-dl — Ha4, 29. a3 — d4, 30. Hc2 — Kc6, 31. Hd3 — Hc5, 32. He2x — Kd5, 33. He4 — Hc2, 34. f5 — Hf2x, 35. Kxf2 — Kxe4, 36. f6 w6 gxf6, 37. g6 — He4, 38. Hb3 — Hc2x, 39. Kel — b5, 40. h4 — Bf8, 41. h5 — d3e, 42. Kdl — Ke3 og hvlt- ur gafst upp. L.Jó Hvitt: Jón L. Árnason Svart: Bent Larsen. Kóngsbragð. 1. e4 — e5. f4 (kóngsbrað, eins og Jón tefldi við Kuzmin, en Larsen hefur örugglega reikn- að með þvi) exf4, 3. Rf3 — d6, 4. Bc4 — h6, (Kuzmin lék Be7. Bobby Ficher skrifaði einu sinni langa grein sem hét „Refutation of Kings gambit“ þar sem hann mælir með þeirri uppbyggingu sem Larsen beitir nú) 5. d4 — g5, 6. 0-0 — Bg7, 7. g3 (hvítur reynir að opna f. línuna) Rc6, 8. gxf47 (Betra er 8. c3 — g4. 9. Rh4 — f3 með flóið hættulega sókn i staðinn, en þannig hafa margar skákir teflst.) g4. 9. d5 — gxf3, 10. dxc6 — Df6, (óvæntur og sterk- ur leikur. Svarta drottningin ryðst nú inn í hebúðir hvits) 11. Bb5 — (kannski var skást að leika 11. f5, en svartur stendur þá einnig betur) Dg6+, 12. Kf2 — Dg2+, 13. Ke3 — Kf8, 14. Hf2? — (Betra var 14. Rd2, hvitur verður að koma mönnum sínum á drottningarvæng í gagnið) Dg6, 15. Dxf3 — Dgl, (mjög sterkur leikur, svarta drottningin lamar allt samspil á milli hvitu mannanna.) 16. Rc3 — Bxc3. 17. bxc3 — Rf6 (hótar Rg4) 18. Kd3 — Bg4, 19. Dg2 (endataflið er vonlaust fyrir hv. reyna mátti 19. De3) Dxg2, 20. Hxg2 — Bf3, 21. cxb7 — Bxe4+, 22. Kd3 (betra Kd2) c5+, 23. Kc4 — Bxb7, 24. Hgl — Be4, 25. Ba4 — Hb8, 26. Hdl — Ke7, 27. Ba3 — Hh-c8, gefið. Stöðumynd: Hv: Ke3, Df3, Hf2, Hal, Rbl.'Bcl, Bb5, a2, b2, c2, c6, e4, f4, h2. Sv: Kf8, Dgl, Ha8, Hh8, Bc8, Bg7, Rg8, a7, b7, c7, d6, f7, h6. S. Bj. Polugajevsky beitti Enska leiknum á móti Helga Ölafssyni og þræddu þeir i fyrstu hefð- Framhald á bls. 26 Þolinmæði þrautir vinnur allar Bandaríkjamcnnirnir, Brown og Lombardv hafa verið þaulsetnir við skák þá er þeir tefla innbyrðis i Reykjavíkur- skákmótinu. Þeir hafa ekki ennþá lokið skák þeirri sem þeir hófu að tefla f 7. umferð og fór hún í 4. skipti i bið f gær eftir að leiknir höfðu verið 112 leikir. Lombardy hafði löngum eitt peð yfir og sóttist eftir vinningi en Brown varðist. Svo fór um síðir að Lombardy vann annað peð og eru nú allar lfkur á því að hann fari með sigur af hólmi. Biðstaðan f skák þeirra eftir 112 leiki er þessi, hvftur lék biðleik: Hvftt: Brown Svart: Lombardy

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.