Morgunblaðið - 16.02.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
3
Oþekkt stúlka, myndin er frá um 1930.
Einar Jónsson.
Ljósmyndir: Kaldal
Sýningin LJÓS á Kjarvalsstöðum:
90 ljósmyndir Kaldals og
120 myndir félaga í LJÓS
Ein af mannlffsmyndum Kjartans B. Kristjánssonar.
Ljósmyndasýning fjög-
urra ljósmyndara verður
opnuð í Kjarvalsstöðum í
dag og nefnist sýningin
LJÓS. Aðstandendur
hennar eru þrir ljós-
myndarar, þeir Pjétur J.
Maack, Kjartan B.
Kristjánsson og Gunnar
S. Guðmundsson, en
fjórði ljósmyndarinn,
Jón Kaldal, er gestur
þeirra á sýningunni og
sýnir hann þar um 90
portrett frá ljósmynda-
ferli sínum en Kaldal tók
eingöngu portrett-
myndir. Þeir þremenn-
ingar sýna alls um 120
myndir og eru myndir
Gunnars helgaðar nátt-
úrulífsmyndum, myndir
Pjéturs eru helgaðar
vatninu og Kjartan sýnir
mannlífsmyndir.
Hluti af Kaldalsmynd-
unum eru frá sýningu
hans 1966, en einnig eru
margar myndir sem þeir
þremenningar hafa
stækkað upp i samvinnu
við Ingibjörgu Kaldal
ljósmyndara dóttur Jóns.
LJÓS sýndi síðast 1975,
en þetta er fjórða sýning
þeirra félaga. Sýningin
verður opin frá 16.—28.
feb.
Þingeyjarsýslu: Víta landbúnaðarráð-
herra og ráðamenn bænda
FUNDUR bænda af Svalbarðs-
slrönd úr Höfðahverfi og
Fnjóskadal haldinn um landbún-
aóarmál í samkomuhúsinu á Sval-
barósströnd 16. jan. 1978 sam-
þykkti eftirfarandi ályktanir:
Fundurinn lætur i ljós mikla
óánægju með lélega frammistöðu
forráðamanna bændasamtakanna
og Iandbúnaðarráðherra í þeim
erfiðleikum sem nú steðja að
bændastéttinni. Telur fundurinn
að taka verði upp raunhæfari að-
gerðir i kjaramálum bænda og
vill sérstaklega benda á eftirfar-
andi atriði:
1. Ekki komi til greina neins
konar skattlagning á rekstarvör-
ur, enda samrýmist það illa marg-
ítrekuðum samþykktum bænda
um aðgerðir til þess að lækka
rekstrarkostnað og að fá niður-
greiðslur á frumstigi.
2. Leggja beri sexmannanefnd-
ina niður og taka upp beina samn-
inga við ríkisvaldið. Þar verði
bændum tryggt umsamið verð
fyrir afurðir sínar, en vinnslu-
stöðvarnar verði sjálfar ábyrgar
fyrir rekstri sínum.
3. Taka skuli upp kvótakerfi til
þess að hindra óæskilega fram-
leiðsluaukningu. Ennfremur
skuli lána- og styrkjakerfi land-
búnaðarins beitt í sama augna-
miði.
4. Gera beri allt sem unnt er til
þess að afla hagstæðari markaða
erlendis fyrir landbúnaðarafurðir
og sé í því sambandi nauðsynlegt
að fleiri aðilar en nú er fái heim-
ild til útflutnings. Stórauka beri
kynningar- og auglýsingastarf-
semi landbúnaðarins.
Þúsund tonn af
lakki til Rússlands
NVLEGA voru undirritaðir samn-
ingar I skrifstofu sovéska
verzlunarfulltrúans I Reykjavík,
Valdimars K. Valssonar, um sölu
á 1000 tonnum af hvítu lakki, sem
afgreiðast eiga á næstu mánuð-
um. Málningarverksmiðjan
Harpa h.f. selur 800 tonn en Sjöfn
á Akureyri 200 tonn.
Fob-verðmæti þessa samnings
er um 260 milljónir króna, auk
þess sem Sovétmenn greiða ís-
lensku skipafélögunum yfir 25
milljónir í flutningsgjöld.
Þetta er þrettánda árið sem
Rússar kaupa málningu frá Is-
landi, en fyrsti samningurinn var
gerður við Hörpu h.f. árið 1965.
Akureyri:
Eldurinn stöðvaðist
við Sparisjóð
Glæsibæ j arhrepps
Akureyri, 15. febr.
ELDUR kom upp kl. 16 í
dag í húsinu nr. 7 við
Brekkugötu, en það er tví-
lyft timburhús á háum
kjallara. Eldurinn kom
upp í grennd við rafmagns-
töflu í kjallara hússins, en
er talinn hafa kviknað
fyrst við inntaksstofn sem
hafi ofhitnað vegna of mik-
ils álags. Eldurinn sjálfur
olli litlum skemmdum en
reykskemmdir urðu mikl-
ar.
Eldur varð all bráður í skilrúmi
og lofti á bak við stiga sem liggur
upp á fyrstu hæð og reykur fór
um allt húsið og olli miklum
skemmdum. Litlu munaði að
eldurinn kæmist í húsnæði Spari-
sjóðs Glæsibæjarhrepps sem er í
áfastri viðbyggingu og í sjálfum
kjallaranum. Sparisjóðsstjórinn,
Skarphéðinn Halldórsson, varð
fyrstur var við eldinn þegar hann
af tilviljun átti leið í kjallarann
úr skrifstófu sinni. Slökkviliðið
kom nær samstundis og gekk
Harpo í
Reykjavík
SÆNSKI rokksöngvarinn
HARPO kemur fram á tvennum
hljómleikum I veitingahúsinu
Sigtúni í Reykjavík um næstu
helgi, sunnudags- og mánudags-
kvöld, ásamt fimm manna hljóm-
sveit sinni. Hljómleikarnir á
sunnudagskvöldið hefjast kl. 22,
en á mánudagskvöldið kl. 20:30
og eru þeir ætlaðir 13 ára og
eldri.
HARPO er um þessar mundir
að ljúka sínu fyrsta hljómleika-
ferðalagi um Norðurlönd. Hefur
hann hvarvetna skemmt fyrir
troðfullu húsi áheyrenda og hlot-
ið afbragðs góðar viðtökur.
í sumar verða þrjú ár liðin síð-
an HARPO skaut upp á stjörnu-
himininn með lagi sínu
„Moviestar". Fór lagið viða í efsta
sæti vinsældalistanna og var þar
lengi. „Moviestar" naut mikilla
vinsælda hériendis — og hljóm-
sveitin Deildarbungubræður
gerði það vinsælt í annað sinn í
íslenzkum búningi á fyrstu plötu
sinni.
rösklega fram í að slökkva eldinn.
1 húsinu eru tvær íbúðir. Ein-
hleyp kona býr i annarri en
þriggja manna fjölskylda í hinni.
___________________ Sv.P.
Prófkjör
Alþýðuflokksins
á ísafirði:________
Kosið um
þrjá í 1.
sæti, sjálf-
kjöríð í hin
FRAMBOÐSFRESTUR hjá
Alþýðuflokksmönnum á Isafirði
vegna prófkjörs til bæjarstjórnar-
kosninga er runninn út og sam-
kvæmt upplýsingum Gests Hall-
dórssonar á Isafirði buðu þrir sig
fram í I. sætið en einn í 2. sætið
og einn í 3. sætið og er því sjálf-
kjörið í 2. og 3. sæti. 11. sæti buðu
sig fram Marías Þ. Guðmundsson
framkvæmdastjóri, Kristján
Jónasson framkvæmdastjóri og
Kjartan Sigurjónsson skólastjóri.
Verður prófkjörið á milli þeirra
hinn 26. febr. n.k.
I 2. sætið bauð sig fram Jakob
Ölafsson rafveitustjóri og Snorri
Hermannsson húsasmiður i 3.
sætið.
Vik í Mýrdal:
Vegagerðar-
menn sóttir
á jarðgtu í
iðulausri
stórhríð
Litla-IIvammi, 15. feb.
MIKIL snjókoma er hér
og hefur verið öðru
hvoru síðan á laugardag,
en í dag hefur verið iðu-
laus stórhríð. Eru vegir
allir lokaðir og kominn
mikill snjór á þá. Nokkr-
ir bílar eru tepptir hing-
að og þangað um Mýrdal-
inn. Viðgerðarmenn frá
Vegagerð rikisins sem
ætluðu til Víkur voru
tepptir úti í Mýrdal og
var farið eftir þeim á
jarðýtu í dag, en þeir
voru að koma með vara-
hlut i snjóruðningstæk-
ið. Símasambandslaust
er milli Víkur og
Klausturs og mun línan
biluð á Höfðabrekku-
heiðum. Öll kennsla ligg-
ur niðri í skólum í Mýr-
dal. — Sigþór.