Morgunblaðið - 16.02.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
13
Þannig aðstoöaði Stalin dyggilega
við að skipuleggja pólitískan
frama Hitlers og árás hins síðar-
nefnda á Ráðstjórnarríkin. Aftur
sigaði Stalin þýzka kommúnista-
flokknum á „kratana“, á árunum
1947—’48, og gaf þar með forvig-
ismönnum kalda stríðsins, nýnas-
istum og hernaðarsinnum í Vest-
ur-Þýzkalandi byr undir báða
vængi,
Þeir félagar í kommúnista-
flokkum Evrópu, sem ekki tóku
þátt í þessari komintern-stefnu,
— eins og t.d. Tito — voru stimpl-
aðir ,,fasistar“, og margir þeirra
voru einangraðir, ofsóttir og
myrtir eftir að sýndarréttarhöld
höfðu farið fram yfir þeim.
Rautt og svart
5. Við erum þess vegna sömu
skoðunar og kínversku flokks-
bræður okkar, að hinir sovézku
valdhafar séu í reynd nýfasistar
að gerð og hugsunarhætti. Þeir
voru á undan Hitler með nauð-
ungarfangabúðir, þeir beita enn í
dag gyðingaofsöknum.
Rússakeisari greiddi hinum
pólitísku föngum sinum fram-
færslueyri og lét þá búa í útlegð,
— eins og t.d. þá Lenin og Stalin,
sem bjuggu á síbirískum bænda-
býlum. Það kom í hlut sovézka
kommúnistaflokksins að setja á
stofn hinar ógeðslegu þrælkunar-
og refsifangabúðir fyrir gagnrýn-
endur eða loka þá inni á geð-
veikrahælum.
Mannfall í
kommúnistaflokkum
Villimennskan í flokkskerfinu
hefur krafist mun meiri mann-
fórna meðal félaga í kommúnista-
flokknum eftir árið 1945 heldur
en hitlersfasisminn og síðari
heimsstyrjöldin, bæði í Ráðstjórn-
arríkjunum og í mörgum af hin-
um innlimuðu austur-evrópsku
ríkjum. Það er meira en tákn-
rænt, að síðasti baráttufélagi Len-
ins fluttist burt frá Ráðstjórnar-
ríkjunum á síðasta ári, 1977.
Arörændir
verkamenn
6. Verkamannastétt Ráðstjórn-
arríkjanna er arðrænd af sníkj-
andi skriffinnastétt, sem hirðir
mestan hlutann af arðinum. Það
var ekki fyrr en 1956, að komið
var á almennu tryggingarkerfi í
Ráðstjórnarríkjunum fyrir verka-
menn og fasta starfsmenn, en
samyrkjubændur fengu loks smá-
ellilífeyri árið 1966, enda eru þeir
í reynd ánauðugir og bundnir við
ákveðinn jarðarskika. Ekki einu
sinni innan Ráðstjórnarríkjanna
sjálfra hafa sovézkir þegnar fullt
og eðlilegt ferðafrelsi. Lífskjörin
eru miklum mun lakari heldur en
íhinum iðnvæddu auðvaldsríkj-
um.
Sovézkt
lénsskipulag
Hvar er þá hinn þjóðfélagslegi
og framar öllu hinn pólitíski
ávinningur í Ráðstjórnarrikjun-
um? Það er rétt, að atvinnuleysi
hefur verið útrýmt. En ríkið borg-
ar heilum her af sníkjudýrum
laun fyrir sýndarvinnu í kúgunar-
vél þeirra, sem beitt er gegn fólk-
inu. Annars væri löngu komið at-
vinnuleysi í Ráðstjórnarríkjun-
um, vegna mikilla endurbóta á
vinnuaðferðum og vegna sjálf-
virkni, alveg eins og I hinu vest-
ræna kerfi ríkiseinokunar.
En hvar er hið mannlega, hið
lýðræðislega yfirbragð þessa svo-
kallaða sovézka sósíalisma? í hinu
rússneska lénsskipulagi vorra
daga'eru valdhafarnir algjörlega
án eftirlits innan sinnar valda-
stéttar, miklu voldugri heldur en
hinir einvöldu furstar fyrri alda,
því núverandi valdhafar deila
ekki einu sinni völdum sínum
með rússnesku kirkjunni.
,, Skólar annsókna-
deild þarf meiri
fjárstuðning
FÉLAG skólastjóra og yfirkenn-
ara á grunnskólastigi hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem fram
kemur óánægja stjórnar félagsins
vegna ónógra f járveitina til skóla-
rannsóknadeildar menntamála-
ráðuneytisins á þremur s.l. árum.
Félagið efndi einnig til blaða-
mannafundar þriðjudaginn 14.
jan. þar sem formaður félagsins,
Asgeir Guðmundsson, og varafor-
maður, Ólafur H. Óskarsson, vör-
uðu við afleiðingum skertra fram-
laga til námsstjórnar og námsefn-
isgerðar. Hrólfur Kjartansson og
Ólafur Proppé gerðu grein fyrir
sjónarmiðum skólarannsókna-
deildar á fundinum.
Fram kom á fundinum, eins og
segir í yfirlýsingunni, að verksvið
skólarannsóknadeildar er í meg-
inatriðum tvíþætt. í fyrsta lagi er
það endurskoðun námsefnis og 1
öðru lagi námsstjórn og kennslu-
leiðbeiningar. Felur þetta m.a. í
sér aðstoð við skóla í að taka upp
nýtt námsefni, gerð námsskráar,
almenna kennaramenntun og
endurhæfingu kennara. Munu all-
ar helztu breytingar er átt hafa
sér stað á síðastliðnum áratug
hafa átt rætur sínar i starfi skóla-
rannsóknadeildar en varðandi
innihald og framsetningu hefur
orðið á gerbylting á þessum tíma
að sögn fundarmanna.
1 yfirlýsingunni segir: „Náms-
efnisgerð er kostnaðarsamt og
tímafrekt verkefni, sem hlýtur
samkvæmt eðli verksins að taka
mörg ár í hverri námsgrein.
Samning námsefnis er nú unnin í
starfshópum og er nýtt efni kennt
í tilraunaskyni í nokkrum
bekkjardeildum til að fá reynslu
og skoðanir kennara á efninu. I
starfshópum þessum starfa kenn-
arar á grunnskólastigi og á það
skipulag að sjálfsögðu að tryggja
betra og fjölbreyttara námsefni
fyrir nemendur.
Um leið og nýtt námsefni er
tekið í notkun á einu námsári
kallar það á breytt námsefni á því
næsta o.s.frv. og er því óhjá-
kvæmilegt að sjá nemendum fyrir
framhaldi námsefnis í sömu
grein. Þessi keðjuverkun má ekki
rofna meðan endurskoðun fer
fram ella skapast öngþveiti í skól-
um og verkið sjálft bíður afhroð.“
Fulltrúar skólarannsóknadeild-
ar bentu á að skerðing fjárfram-
laga bitnaði á mörgum þáttum.
Hún bitnaði á samningu námsefn-
is, fresta yrði eða beinlínis stöðva
áætlanir. Einnig yrði endurskoð-
. un námsgreina að sitja á hakan-
Frá fundi Félags-skólastjóra og yfirkennara á grunnskölastigi. Frá
vinstri, Hrólfur Kjartansson og Ólafur Proppé frá skólarannsókna-
deild, Ólafur H. Óskarsson, varaformaður félagsins og Asgeir
Guðmundsson formaður.
um og oft yrði að hverfa aftur til
gamalla kennslubóka, sem ylli
mjög óþægilegum truflunum t.d. í
byrjendakennslu auk þess sem
það hefði síður en svo uppörvandi
áhrif á þá, er að verkinu störfuðu.
Vöktu Hrólfur Kjartansson og
Ölafur Proppé athygli á að fjár-
framlög væru minnkuð á sama
tíma og kröfur til nýs námsefnis
væru auknar stórlega.
Ásgeir Guðmundsson gerði
samanburð á áætlunum skóla-
rannsóknadeildar, fjárlagatillög-
um Hagsýslustofnunar og endan-
legri samþykkt Alþingis siðastlið-
in þrjú ár. Sá samanburður, sem
byggður er á upplýsingum skóla-
rannsóknadeildar, lítur þannig
út:
Áætlun skóla ranns.d.
1976 41.587.000.-
1977 92.293.000,-
1978 118.488.000,-
Tillögur Hagsýslustj.
34.283.000,-
52.Ö74.000.—
56.956.000,-
Afgreiðsla Alþ.
34.283.000,-
52.858.000,-
87.987.000,-
(Þar af 25.129.000 kr. vegna
launa- og verðlagshækkana).
Samkvæmt þessu, sagði Asgeir,
hefur raunveruleg fjárveiting til
skólarannsóknadeildarinnar að-
eins hækkað um 10.000.000 frá
árinu 1977. Framlag þetta rann
allt til endurskoðunar á námsefni
grunnskóla og á framhaldsstigi og
er því ljóst, sagði Ásgeir, að ekki
er um neina fjárveitingu til ann-
arra verkefna deildarinnar að
ræða. Miðað við áætlun skóla-
Framhald á bls. 45.
er mest seldi bíllinn
í Evrópu og hefur
verið það í ^
síðastliðin 4 ár.
Nú hafa verið
gerðar nokkrar
endurbætur
á árgerð 1978.
FALLEGRI
OG BJARTARI
Stærri afturgluggar gera
bjartan bíl enn bjartari.
Nýtt grill, listar, fram og
afturljós og nýir stuðarar
gera bílinn fallegri.
ÞÆGIIMDI
Breiðari og betri sæti með
mismunandi áklæðum og
val um 3 glæsilegar inn-
réttingar í gerðum L — C
og CL.
HLJÓÐLÁTUR
Með því að minnka hraða
vélarinnar og með endur-
bættum hljóðeinangrun
heyrist nú minna vélar-
hljóð í bilnum en áður.
SPARNEYTINN 5 — 6
LÍTRAÁ HUNDRAÐI
Þó að Fiat 127 sé einn spar-
neytnasti bíll i heiminum i dag,
þá hefur þó tekist með endurbót-
um á vel að minnka eyðsluna um
7%— 1 0%.
Það er ekki að ástæðulausu sem allar helstu bílaverksmiðjur heimsins
hafa reynt að framleiða sambærilegan bíl
— En það er aðeins einn
aaaa \n
KOMIÐ OG SKOÐIÐ NÝJAN
L
FÍAT EINKAUMBOÐ Á iSLANDI
DAVÍÐ S/GUfíÐSSOfíl hf.
SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855
BUUU'121. BUBU fremstur í flokki