Morgunblaðið - 16.02.1978, Page 23

Morgunblaðið - 16.02.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 23 Vadim Borisfolets (lengst til hægri), einn 11 sovézkra diplómata sem hefur verið vísað úr landi í Kanada fyrir njðsnir, bfður ásamt þremur samstarfsmönnum á Ottawa-flugvelli eftir flugvél sem hann fór með til Montreal fyrir nokkrum dögum. Blumenthal fer vongóður Washington, Hamborg, 15. feb. AP. Reuter. BANDARlSKI fjármálaráðherr- ann, Michael Blumenthal, sagði f dag að bjartsýni ríkti f stærstu iðnríkjunum um að takast mætti að auka hagvöxt og forðast jafn- framt að raska jafnvægi á heims- mörkuðum með snörpum gjald- miðilssveiflum. Blumenthal kallaði saman á blaðamannafund f dag en hann hefur nýlokið þriggja daga ferð til Evrópu þar sem hann kom að máli við fjármálaráðherra Bret- lands, Japan, Frakklands og V- Þýzkalands f París. Einnig átti hann einkaviðræður við fjármála- ráðherra Saudi-Arabfu, Sheikh Mohammed Ali Abal-Khail. Auk þess ræddi hann við Helmut Schmidt f Bonn í gær. A blaðamannafundinum skýrði Blumenthal frá þvf að V- Þjóðverjar hefðu sagt honum að þeir hefðu farið vel af stað í við- leitni sinni til að auka hagvöxt sinn um 3,5% á árinu. Samkvæmt embættismönnum í Bonn mun Schmidt þó hafa daufheyrzt við ósk Blumenthals um að V- Þjóðverjar settu markið enn hærra. Kom það fram hjá Blum- enthal að ef V-Þjóðverjar fram- kvæmdu áform sín mundi það engu síður hafa mjög góð áhrif á alþjóðlegt efnahagslíf. Banda- ríkjamenn hafa einnig lagt ríkt á við Japani að þeir reyni að fara fram úr áætlun sinni, sem hljóðar upp á 7% í ár. Bandaríkjamenn hafa sjálfir einsett sér að auka hagvöxtinn um 4,5%. Að sögn fjármálaráðherrans hafa Saudi-Arabar heitið því að halda áfram að verðsetja olíu sína heim í dollurum og þannig að forðast að veikja bandaríska gjaldmiðilinn frekar. I viðtali við v-þýzka efnahags- málaráðherrann, Otto Lambs- dorff, í Hamborg á miðvikudag kom fram að Bandaríkjamenn hefðu ofmetið getu V-Þjóðverja til að bjarga viðskiptalöndum sín- um úr kreppu. Hann vitnaði í orð Blumenthals i þá veru að V- Þjóðverjar sinntu ekki skyldum sínum í alþjóðlegu efnahagslifi sem skyldi. Stjórn Carters hefur litið svo á að aukinn innflutning- ur til V-Þýzkalands og Japans myndi örva efnahag viðskipta- landa þeirra, eins og Frakklands og Italíu. Með því væri unnt að halda atvinnuleysi í skefjum og þannig stemma stigu við áhrifum kommúnista að því er stjórnin telur. Fólksfjölgun í Washington, 15. feb. Reuter. FOLKSFJÖLGUN í heiminum er nú ( rénum, að þvf er mannf jölda- fræðingar skýrðu frá f Washing- ton f dag. Er fjölgunin nú ekki eins ör og fyrr vegna óvæntrar lækkunar fæðingartfðni f þróun- arlöndunum. Að sögn mannfjöldafræðing- anna við Mannf jöldamiðstöð Har- vard-háskóla nam fjölgun fólks í heiminum 1.7% á sfðasta ári, en var 1.9% árið 1970. Segja þeir að í ljósi þessa megi ætla að 5.5 millj- arðar fólks verði á jörðinni árið 2000 f stað 6.5 milljarða, eins og sfðustu athuganir Sameinuðu þjóðanna geri ráð fyrir. Mannfjöldafræðingarnir skýrðu frá þvi í dag að fæðingar- tíðni í þróunarlöndum hefði lækk- að meira en fyrr hefði verið gert Ráðgjafi Strauss kominn í leitirnar Míinchen, 15. febr. AP. RÁÐGJAFI v-þýzka stjórnmála- leiðtogans Franz Josef Strauss í utanrfkismálum kom loks i leitirnar f dag eftir að hann hvarf á dularfullan hátt á miðvikudags- morgun. Skýrði hann svo frá að sér hefði verið rænt. Talsmaður lögreglunnar sagði að fórnarlambinu, Dieter Huber, sem er þrítugur að aldri, hefði verið kastað út úr blárri fólksbif- reið kl. 1 eftir miðnætti og hefði hann gengið í næsta síma og haft samband við lögregluna. Köm lög- reglan síðan að honum á hrað- braut nokkra kílómetra norður af Miinchen illa til reika Og var fárið með hann á sjúkrahús, þar eð hann bar öll merki þess að hafa orðið fyrír taugaáfalli. Litið er enn vitað um tildrög þess að Hub- er var rænt. Ráðgjafans var saknað á mánu- dag, eftir að bíll hans fannst auð- ur og yfirgefinn ekki alls fjarri heimili hans að því undanskildu að hundur hans sat í framsætinu Nokkrum klukkustundum síðar barst lögreglunni bréf þar sem mátti lesa: „Nú fær Strauss tæki- færi til að sýna hve mikils virði frelsi og mannslíf eru honum“. Bréfið var ekki skýrlega undirrit- að og engar kröfur settar fram. Huber hefur fengið leyfi frá störfum meðan rannsókn á máli hans stendur yfir. Að sögn lög- reglumanns voru rannsóknar- menn enn að reyna að koma heim og saman frásögn Hubers og stað- hæfingum. Hann dvelur enn á sjúkrahúsi i Munchen. rénum ráð fyrir. Er lækkunin meiri á síðustu 5—7 árum en hún var á árunum 1940—1970. Telja mann- fjöldafræðingarnir að lækkunin sé einkum og sér í lagi vegna meiri dreifingar tekna í þróunar- löndunum auk bætts efnahags- ástands þeirra. A þetta einkum við lönd eins og Kína, Formósu, Suður-Kóreu, Malaysiu og Sri Lanka þar sem tíðni fæðinga féll mjög á síðustu árum. Opinberar aðgerðir og áætlanir um takmörkun fæðinga, eins og t.d. í Indlandi, hafa borið mjög litinn árangur, segja mannfjölda- fræðingarnir. Telja þeir slíkar að- gerðir eiga óverulegan þátt i lækkun tíðni fæðinga að undan- förnu. Spgja þeir að þessar að- gerðir háfi jafnvel aukið á frjó- semi í einstökum fátækum lönd- um, án þess þó að nefna þar um dæmi. Fjórir farast Varsjá, 14. febrúar. Reuler. PÖLSKT síðdegisblað sagði í dag að fjórir járnbrautaverkamenn hefðu látist og fimm særst "þegar tómur olíugeymir sprakk i dag. Slysið varð þegar verkamennirnir voru að reyna að losg geyminn af járnbrautarvagni, eftir að vagn- inn hafði farið út af sporinu. Polanski vill nýian dómara Santa Monica, Kaliforníu 15. febr. Reuter LÖGFRÆÐINGUR Romans Polanskis sagði f dag að verið gæti að Polanski sneri aftur til Bandarfkjanna og tæki út dóm sinn, ef skipt væri um dómara f máli hans. Polanski á yfir höfði sér allt að 50 ára fangelsisdóm fyrir að hafa átt mök við 13 ára gamla stúlku. Lögfræðingurinn sagði að dómarinn I málinu, Laurensce Rittenband, væri fullur af hleypi- dómum í garð Polanskis og það hefði áhrif á úrskurð hans. Polanski flýði frá Bandaríkjun- um til Frakklands 31. janúar síðastliðinn af ótta við að Ritten- band dæmdi hann til langrar fangelsisvistar. Rittenband hafði sagt að hann hygðist dæma hann til 90 daga geðrannsóknar, en Polanski segir að dómarinn hafi skipt um skoðun þegar hann sá mynd af Polanski í dagblaði um- kringdum fögrum konum. Sendiráðsmanni vísad úr Svíþjóð Stokkhólmi, 15. febrúar. AP. SÆNSKA utanrfkisráðuneytið tilkynnti í dag að starfsmaður við júgóslavneska sendiráðið f Svf- þjóð, Berislaw Delate, hefði verið rekinn úr landi fyrir að njósana um júgóslavneska útlaga í Svf- þjóð. Delale var tilkynnt þriðja þessa mánaðar að stjórnvöld teldu hann óæskilegan sendiráðsmann, vegna þess að hann hafði fengist við störf sem ekki snertu störf sendiráðsmanna. Ekki er enn vit- að hvort Delate er farinn úr land- inu og sendiráðið neitaði að segja nokkuð um það. Utanríkisráðuneytið segir að líklegt sé að Delale hafi verið í sambandi við júgóslavnesk hjón sem nýlega voru handtekin i Sviþjóð fyrir njósnir. Fréttir hermdu að hjónin hefðu gefið júgóslavneska sendiráðinu upp- lýsingar um það hvaða Júgóslav- ar, sem búa i Svíþjóð, væru and- vigir núverandi stjórn Júgó- slavíu. Fyrr í mánuðinum höfðu fjöl- miðlar í Júgóslavíu gagnrýnt sænsk yfirvöld harðlega fyrir að leyfa sýningu á fréttamynd um Króata í sænska sjónvarpinu, og sagt að nú stæði yfir andjúgóslav- nesk herferð í Sviþjóð. Saudi-Arabar setja þak á olíuvinnslu New York, 15. feb. Reuter. SAUDI-ARABAR hafa sett þak á olfuvinnslu sína. Verða ekki framleiddar f ár meir en 8,5 milljónir tunna af olfu á dag, að þvf er forstöðumaður Exxon- stofnunarinnar skýrði frá í dag, en stofnunin er aðili að olíu- vinnslu landsins. Er vinnsluþakið um tveimur milljónum tunna fyrir neðan mögulega vinnslu- getu. Saudi-Arabar settu slðast þak á olíuvinnslu sína síðla árs 1976. Forstöðumaður Exxon sagði, að þakið næði til framleiðslu banda- rísk Varabíska olíuvinnslufyrir- tækisins Arameo, en það fyrir- tæki vinnur úr jörðu svo til alla olíu Saudi-Arabiu. Aramco- félagið er sameiginlegt fyrirtæki fjögurra bandariskra olíufyrir- tækja.þ.á m. Exxon, og saudi- arabíska ríkisins. Hið nýja vinnsluþak kveður á um afköst sem á dag eru um 500 þúsund tunnum minni en verið hafa að undanförnu, að því er áreiðanlegar heimildir skýrðu frá í dag. Meðalvinnslan á dag 1977 var um 9 milljónir tunna, en síð- ustu þrjá mánuði ársins voru unn- ar allt að 9,5 milljónir tunna á dag. Meðaltal olíuvinnslu í land- inu á dag var 8,3 milljónir tunna 1976 og 6,8 milljónir 1975. Saudi- Arabar eru með á prjónunum áætlanir um að geta unnið allt að 14 milljónir tunna af olíu á dag í byrjun niunda áratugarins. Vilji Breta óljós í fiskveiðimálum Strasbourg, 15. feb. Reuter. FORSVARSMAÐUR Efnahags- bandalagsins í fiskveiðimálum, Finn Olav Gundelach, sagði f dag að ráðherranefnd bandalagsins gæti ekki gert nýjar tillögur f fiskveiðimálum fyrr en Ijóst væri hvað Bretar í rauninni vildu. Viðræður um fiskveiðilögsögu Efnahagsbandalagslandanna fóru út um þúfur í síðasta mánuði, er sjávarútvegsráðherra Breta, John Silkin, hafnaði tillögum hinna að- ildarlandanna um ráðstafanir til verndar fiskstofnum. „Það, sem beðið er eftir, er að Bretar kveði fastar að orði um hvað það er sem þeir þurfa með,“ sagði Gundelach I ræðu í Evrópuþinginu. Hann tók fram að hugsanleg úrlausn yrði að vera í samræmi við öll núver- andi samningsákvæði bandalags- ins. Samkvæmt þessum ákvæðum takmarkast einkafiskveiðilögsaga bandalagslanda við þröngt belti út af ströndum þeirra. í samningaviðræðunum i síð- asta mánuði kröfðust Bretar 50 mílna forréttindalögsögu til handa sjómönnum sínum. Þessu gátu hin löndin ekki gengið að. Landbúnaðarráðherra Dana, Paul Dalságer, sem stjórnað héfur fundum ráðherranefndarinnar um fiskveiðimál á þessu ári, sagði að engra framfara væri að vænta fyrr en Bretar féllust á samþykkt hinna landanna átta. Dalsager sagði einnig að allar tafir á reglu- geTð um sameiginlega fiskveiði- lögsögu gæti haft háskalegar af- leiðingar fyrir samninga um gagnkvæm veiðiréttindi við ríki, sem ekki eiga aðild að Efnahags- bandalaginu. Kekkonen formlega forseti Helsinki, 15. feb. AP. URHO Kekkonen var í dag form- lega endurkjörinn forseti Finn- lands til næstu sex ára. Hlaut Kekkonen stuðning 259 kjör- manna af 300 á kjörmannasam- kundunni í þinghúsi Finnlands i Helsinki. Kekkonen hefur nú sitt fimmta kjörtimabil sem forseti Finnlands. Hefur hann gegnt því starfi frá 1956.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.