Morgunblaðið - 16.02.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
27
Pétur Sigurðsson:
Sama lausnin, hver sem
ríkisstjómin hefur verið
— síðastliðna nokkra áratugi — Samráð við
launþegasamtök i
Pétur Sigurðsson (S)
var annar tveggja þing-
manna Sjálfstæðisflokks-
ins, sem tók afstöðu gegn 3.
gr. frv. um efnahagsráð-
stafanir, þess efnis, að
óbeinir skattar skuli
hverfa úr vísitölugrund-
velli frá komandi áramót-
um. PSig gerði grein fyrir
afstöðu sinni. Hann sagði
m.a. að lausnir í efnahags-
dæmum þjóðfélagsins
hefðu áratugum saman, og
burt séð frá því hvers kon-
ar ríkisstjórnir hafi setið
við völd, verið í eina átt, en
þó tvískiptar, þ.e. til kaup-
bindingar eða kauplækk-
unar. Illt væri máske við að
una en sannleikur væri
þetta samt.
PSig sagði að alla valkosti sér-
fræðinga okkar í efnahagsmálum,
sem Verðbólgunefnd hefði haft
til meðferðar, hafa falið í sér
gengislækkun og/ eða einhvers
konar skerðingu umsamins kaup-
máttar á komandi mánuðum. Um
nauðsyn einhvers konar ráðstaf-
ana efaðist enginn, enda úttekt á
vandamálinu fyrirliggjandi. Um
orsakir vandans væri hins vegar
deilt.
Stjórn jafnaðarmanna í Bret-
landi hefur sett algjört bann við
kauphækkunum umfram 10% á
ári. Hér urðu kauphækkanir um
og yfir 70% á liðnu ári. Ef ástæða
er fyrir Breta að staldra við 10%
kauphækkunarmörk, er þá ekki
ástæða fyrir okkur að horfa til
átta við 70% mörkin, m.a. með
hliðsjón af þeim hluta kaup-
gjaldshækkunar, sem hverfur í
hít verðbólgunnar.
PSig vék að 8% gengislækkun
Norðmanna. Ekki væri hún gerð
af tilefnislausu fremur en gengis-
lækkunin hér og hefðu þó kostn-
aðarhækkanir í framleiðslu
langtímalausnir
Pétur Sigurðsson alþingismaður.
hvergi nærri verið eins örar þar
og hér. Sem betur fer þyrftum við
ekki að horfa upp á jafn stórtækt
atvinnuleysi og jafnaðarmanna-
stjórnin í Danmörku, þar sem for-
sætisráðherrann leggur til að
vinnandi menn taki sér frí 10.
hverja viku til að fleiri fái verk að
vinna. Slíkri vá hefur tekist að
bægja frá alþýðu manna hér á
landi og ég vona í lengstu lög að
ástand kreppuára hér á landi,
1930—1940, heyri alfarið fortíð-
inni til. Vandamál eru ekki neitt
einsdæmi á Islandi.
Huga verður að rekstraröryggi
þeirrar greinar þjóðarbúsins, sem
stendur nær alfarið undir gjald-
eyrisöflun þjóðarinnar og er sem
slík undirstaða fjölmargra ann-
arra atvinnuþátta þjóðarbúsins.
PSig áréttaði að samhliða
gengislækkun yrði m.a. að huga
að vanda islenzkra námsmanna
erlendis, sem yrðu fyrir barðinu á
breyttu gengi. Ég þykist raunar
sjá að ríkisstjórnin hefur leitast
við að þessar aðgerðir, sem nauð-
synlegar voru, komi sem léttast
niður á þeim, sem verst eru settir
í þjóðfélagi okkar. En huga verð-
ur að námsmönnum okkar erlend-
is.
PSig vék að fiskverðshækkun-
inni. öðru vísi væri nú farið með
islenzka fiskimenn en oft áður við
hliðstæðar kringumstæður. Fisk-
verð varð að hækka til að sjómenn
héldu sínum hlut miðað við land-
verkamenn. Sú varð ekki raunin i
gengislækkun ársins 1974, þegar
aðrir héldu um stjórnvöl.
PSig ræddi árásir, sem hann og
Guðmundur H. Garðasson (S)
hefðu orðið fyrir frá stjórnarand-
stöðu, m.a. vegna þess, að þeir
skipuðu báðir sess í samtökum
launafólks en styddu þó núver-
andi ríkisstjórn. Þá væri það
nefnt sem dæmi um vaxandi kraft
afturhaldsafla í Sjálfst.fl., að þeir
tveir (PSig og GHG) hefðu ekki
komið betur út úr prófkjöri en
raun bæri vitni um. Sögur ganga
ljósar um, sagði PSig, að þessi
afturhaldsöfl hafi víðar komið
við, m.a. í sigri formanns Alþýðu-
flokksins í prófkjöri og nýrrar
stjörnu annarrar þar á bæ. Sann-
Ieiksgildi sagna léti hann hins
vegar liggja milli hluta.
Pétur Sigurðsson sagði að lok-
um, efnislega:
1) 1 3ju gr. frv. er að mínu mati
verið að benda á leið, sem getur
verið hluti aðgerða, en aðeins
hluti aðgerða, til að vinna bug á
óðaverðgólgunni. Inn í þessa
grein hefði þó þurft að koma
ákvæði um niðurgreiðslur vöru-
verðs að lágmarki.
2) Þrátt fyrir það tel ég að
þetta ákvæði um óbeina skatta úr
vísitölugrundvelli eigi ekki heima
í frv. Þetta er stefnumarkandi
ákvæði, sem gjarnan má ganga til
dóms í kosningum að vori. Ég
mun þvi greiða atkvæði gegn
þessari frv.grein.
3) Uppskurður er hinsvegar
nauðsynlegur á vísitölukerfinu.
En þar þarf að hafa samráð og
samstarf við hagsmunaaðila.
Varðandi frv. í heild og ráð-
gerðar efnahgsaðgerðir sagðist
PSig efast um, að öðru visi skipuð
stjórn hefði lagt fram betri eða
öðru vísi lausnir í umræddum
vanda atvinnuvega og efnahags-
lifs. Svo oft hefðu ólíkar rikis-
stjórnir lotið að sama ráði.
ingu í fiskiðnaði skyldi í
reglugerð lögð „sérstök
áherzla á" þau svæði senrt
verst væru sett atvinnulega
og „skila lakastri nýtingu hrá-
efnis og fjármagns '.
Þessi tillaga var felld. Ólaf-
ur G. Einarsson (S) gerði
grein fyrir atkvæði sinu. Vék
þegar að ákveðnu framlagi
Byggðasjóðs til hagræðingar
í fiskiðnaði, sem og þeirri
ráðstöfun á hluta gengis-
hagnaðar, sem frumvarp
rikisstjórnarinnar gerði kleift
að verja í þessu skyni Sjálf-
gefið væri að hagræðingarfé
yrði varið í samræmi við hag-
ræðingarþörf ÓIGE sagðist
treysta rikisstjórninni og
stjórn Byggðasjóðs til að út-
hluta þessu fjármagni með
réttlátum hætti Þepr hátt-
Byggðasjóður og gengishagnaður:
Stýring á f jármagni
til hagræðingar
í frystiiðnaði
ER frumvarp um breytingu á
gengi islenzkrar krónu var til
meðferðar i neðri deild
Alþingis kom fram tillga frá
Gils Guðmundssyni (Abl,
þess efnis, að við setningu
reglna um stuðning af
gengishagnaði við hagræð-
virtir þingmenn, sem ekki
treystu flosldbræðrum sinum
i stjórn Byggðasjóðs, þ.e.
þeir hefðu næga réttlætis-
kennd til að bera við
ákvarðanir, ættu að vinna að
framgangi málsins i þing-
flokkum sínum.
Þingfréttir í stuttu máli:
Ef nahagsf r u m var pið
komið til efri deildar
Stjórnarfrumvarp um ráðstafanir í cfnahagsmálum var samþykkt
f ncðri deild Alþingis að loknum útvarpsumræðum f fyrrakvöld
mcð 25 atkvæðum gcgn 10. I gær kom frv. á dagskrá efri deildar.
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpinu. Sfð-
an urðu almennar umræður í deildinni. Stefnt mun hafa verið að
því að Ijúka 1. umræðu um málið og koma því til nefndar í
gærkveldi. Hafi það tekizt má búast við því að frv. hljóti lagagildi
við meðferð c.d. í dag, ef ekki kemur til málþófs í deildinni.
© Aðgangur að
upplýsingum hjá
almannastofnunum
Lagt hefur veriö fram á Al-
þingi stjórnarfrumvarp til laga
um aðgang að upplýsingum hjá
almannastofnunum. Frumvarp
þetta er samið af nefnd sem
dómsmálaráðherra skipaði í
september 1976.
Frumvarpið hefur þann
megintilgang að opna almenn-
ingi greiðari aðgang að hvers
konar upplýsingum hjá al-
mannastofnunum og hjá stjórn-
kerfinu. Frumvarpið tekur til
almannastofnana, hvort sem
þær eru á vegum ríkis, sveitar-
félaga, Alþingis eða dómstóla,
að löggjafar- og dómstörfum þó
frátöldum. Ennfremur taka
þau til fyrirtækja, sem eru al-
gerlega i eigu rikis og/ eða
sveitarfélaga. Öllum er heimilt
að kynna sér skjöl í málum, sem
eru eða hafa verið til meðferðar
hjá þessum stofnunum, segir í
frv. 1 því eru þó margar undan-
þágur: s.s. varðandi mál eða
skjöl, sem hafa að geyma upp-
lýsingar um öryggi ríkisins;
varnir landsins; samskipti við
erlend ríki; mál, sem eru i
rannsókn (lögbrotamál); fyrir-
hugaðar breytingar (hagræð-
ingu) i rekstri fyrirtækja;
fyrirhugaðar ráðstafanir í rikis-
fjármálum eða sveitarfélaga-
fjármálum og sitt hvað fleira.
© Frumvarp um
Kennara-
háskóla Íslands
Endurflutt hefur verið frum-
varp til laga um Kennarahá-
skóla Islands. Helztu nýmæli i
frumvarpi eru talin þessi í
greinargerð:
1. „Kennaraháskólinn skal
vera miðstöð vísindalegra rann-
sókna í uppeldis- og kennslu-
fræðum í landinu.
2. Hann skal annast uppeldis-
og kennslufræðilega menntun
allra kennara á grunnskólastigi
og i öllum skólum á framhalds-
skólastigi.
4. Heimilt er að fela skólanum
að annast fullnaðarmenntun
kennara i þeim greinum grunn-
skóla, sem kenndar eru i sér-
skólum við setningu laganna.
4. Stofna skal til kennslu í upp-
eldisfræði til B.A..-prófs við
Kennaraháskóla Islands. Auk
þess er heimilt samkvæmt
ákvörðun skólaráðs og að
fengnu samþykki menntamála-
ráðherra að efna til framhalds-
náms í Kennaraháskólanum til
æðri prófgráðu en B.A.-prófs.
5. Gert er ráð fyrir að tekið
verði upp námseiningakerfi og
kveðið er á um meginþætti
kennaranáms á þeim grund-
velli. Jafnframt er valgreina-
kerfið gert sveigjanjegra og
tekur nú einnig til sérstakra
verksviða í grunnskóla, t.d.
byrjendakennslu.
6. Æfingaskólinn skal sinna
þróunarverkefnum á uppeldis-
sviði í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið, einkum skóla-
rannsóknadeild."
© Frumvarp til laga
um búnaðarfræðslu
Stjórnarfrumvarp að lögum
um búnaðarfræðslu hefur verið
lagt fram á Alþingi, samið af
sérstakri nefnd, er landbúnað-
arráðherra skipaði 1973. Bún-
aðarþing hefur haft frv. til
meðferðar og mælt með sam-
þykki þess með minniháttar
breytingum. Frv er í 4. köflum:
1) Hlutverk, skipulag og stjórn,
2) Um húnaðarnám, 3) Um bú-
vfsindanám og 4) Um embætt-
isbústaði, auk kafla um ýmis
ákvæði.
Hér sjást tveir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins bera
saman bækur sínar í and-
dyri þinghússins —
skömmu áður en þingfund-
ur hefst: Eyjólfur Konráð
Jónsson, þingmaður Norð-
urlands vestra, og Guð-
mundur Garðarsson, þing-
maður úr Reykjavík.
Nýr þingmaður
JOHANNES Arnason sýslumaður
hefur tekið sæti á Alþingi í fjar-
veru Matthiasar Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra, sem er i op-
inberri heimsókn i Sovétríkjun-
um. Jóhannes er 1. varamaður
kjörinna þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi.