Morgunblaðið - 16.02.1978, Side 37

Morgunblaðið - 16.02.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 37 In memoriam: Ingibjörg Edda Ednumdsdóttir Fædd 7. janúar 1945 Dáin 8. febrúar 1978 Það birti til og voraði nokkra daga i byrjun febrúar. Einn þess- ara fögru daga lést Ingibjörg Edda Edmundsdóttir á Land- spítalanum í Reykjavík. Vorblærinn reyndist vera dálít- il vin i óumflýjanlegum íslensk- um vetri en var í samræmi við endurvakta bjartsýni og trú Eddu mágkonu minnar síðustu dagana sem hún lifði. Edda var fædd í Reykjavík 1945, dóttir Sólveigar Búadóttur og Edmund O. Gates, sem nú er látinn. Hún varð stúdent frá Mennta- skólanum i Reykjavík vorið 1965 og iagði að þvi loknu stund á meinatækni. Hún fór utan og hóf nám i enskum bókmenntum og listasögu við Edinborgarháskóla haustið 1966. I ársbyrjun 1967 giftist hún eftirlifandi eigin- manni sinum, Jóni Ottari Ragn- arssyni, sem stundaði nám við sama háskóla. Þau luku bæði prófi vorið 1969 og fluttust til Bandaríkjanna. Edda lagði stund á framhaldsnám í listasögu við Tuftsháskólann I Boston veturinn 1970—71. Henni voru sérstaklega húgleikin tengsl listarinnar við trúarþörf manns- ins og trúarbrögð. - Þau hjón fluttust heim til ís- lands, þar sem þeim fæddist dótt- irin Sólveig Erna sumarið 1972. Edda kenndi ensku og listasögu við Menntaskólann í Reykjavík og síðan listasögu við ýmsa æðri skóla, þar á meðal Háskóla Is- lands. Þess má geta að þar vann hún ásamt Ólafi Hannssyni prófessor brautryðjandastarf, þar sem ekki hafði áður verið kennd listasaga, hvorki við háskólann né Menntaskólann i Reykjavík. Haustið 1974 héldu þau hjón enn til náms og að þessu sinni til Minnesota í Bandaríkjunum Edda lagði þar enn stund á listasögu veturinn 1975—76 og lauk loka- prófí skömmu áður en hún kenndi fyrst þess sjúkdóms sem varð henni að aldurtila. Atti hún þá aðeins ólokið síðustu drögum að ritgerð til meistaragráðu í Iistasögu. Við fjölskyldan og vinir hennar sem eftir stöndum munum varð- veita minninguna um hiýja, við- kvæma, leitandi manneskju, sem var i þann mund að hefja ævistarf sitt. Heima stendur skápur fullur af bókum, skrifuðum blöðum, mynd- um og ritgerðum, starf hennar undanfarin ár, eins og tákn þess lífs sem var að mestu leyti undir- búningur, eins konar forleikur. Ég mun sakna löngu góðu sam- talanna, alls samstarfs okkar, þess, sem við höfðum lagt drög að, og hins, sem í vændum var, — starfshópanna í framtíðinni að óþrjótandi verkefnum á sviði þjóðlífs og menningarmála. Það var svo fullkomdlega eðli- legt að leita til Eddu. Hún var uppörvandi, ótrauð og með á nót- unum, en samt ævinlega sjálfstæð og varfærin. Það var ekki hennar hlutverk að koma af stað ölduróti heldur að byrja hægt og ljúka til fullnustu, hyggja að því smáa, sjá dýrðina í einni lítilli helgimynd, þar sem hvert tákn felur i sér djúpa merkingu. Það var einmitt næmi hennar á fegurðina í þvi smáa, sem átti svo mikinn þátt i að opna augu okkar hinna fyrir gildi listarinnar i menningu þessa lands. Við Islendingar erum fá- menn þjóð og starfið sem vinna þarf hvílir á fárra herðum. Það munar svo mjög um hverja örv- andi hönd og svo stórt skarð er höggvið, þegar þeirrar sömu nýt- ur ekki lengur við. Það er í hennar anda að áfram verði unnið, þar sem frá var horf- ið, að því markmiði að Islending- um auðnist að varðveita þjóðlega menningu sína og beri jafnframt gæfu tii endurnýjunar og þrótt- mikils skapandi lífs á grundvelli fyrri athafna og afreka. Það stendur einhvers staðar, að móður sína missi maður aldrei. Sólveig litla dóttir hennar á dýr- mæta minningu um sívakandi, gjöfula móður, sem aldrei verður frá henni tekin. Móðir missir í rauninni heldur aldrei barn sitt, nema ef til vill það sem vex frá henni. Það barn sem guð tekur á hún áfrám allar stundir. Erna Ragnarsdóttir. Ingibjörg Edda bjó sig undir það siðustu árin sem hún lifði að taka við starfinu, sem ég hafði valið mér af barnalegri bjartsýni. Hugur minn var, meðal annars af þeirri ástæðu, bundinn henni í báða skó ægisterkum böndum, menntun hennar, lífi og starfs- orku. Og vissan um að henni mátti treysta, hvað sem hún tæki sér fyrir hendur, var mér i senn leiðsögn og uppbót vegna eigin vanmáttar. Elsku Edda mín. Ungur má en gamall skal, segir i gömlu spak- mæli, og þó að trú þín væri sterk, voru örlög þín ráðinn, og enginn annar en Guð á himnum sætti sig við þá blessuðu hugsun, að þú hyrfir héðan á undan okkur, sem óðfluga nálgumst vegamótin, þar sem við höfum kvatt svo marga ógleymanlega vini á undan þér. R.J. Kveðja Hin sára fregn kom okkur i opna skjöldu. Vissulega var okkur fullkunnugt um, að Edda háði baráttu við ólæknandi sjúkdóm, en samt trúðum við þvi, að hún myndi hafa betur, að máttarvöld- in myndu gera undantekningu og leyfa okkur að njóta hennar áfram. Og að undanförnu virtist líka ýmislegt benda til þess að vonir okkar rættust. Þrek hennar fór vaxandi síðustu vikurnar og hinn gneistandi áhugi hennar á lífinu kom aftur upp á yfirborðið. Fram til hinztu stundar skegg- ræddi hún um hina ýmsu þætti mannlífsins, bókmenntir, listir, skipulagsmál, brá á glens og gerði framtíðaráætlanir. Læknar létu þau orð falla, að hún stæði sig framar björtustu vonum, og hún stóð á vonartindinum, þegar hún leið fyrirvaralaust á brott úr þess- um heimi. Þess vegna var höggið svo ofurþungt. Það laust ekki einungis nánustu ættmenni og vini, heldur nálega alla, sem þekktu hana, því að frá henni stafaði hvarvetna birta og fegurð á hinni skömmu vegferð. Ingibjörg Edda fæddist í Reykjavík 7. janúar 1945. For- eldrar hennar voru Solveig Búa- dóttir kennari og Edmund O. Gates, bandarískur læknir, sem látinn er fyrir allmörgum árum. Hún var einkabarn móðijr sinnar og augasteinn og ólst upp við tak- markalaust ástríki hennar. Sol- veig kostaði kapps um, að með- fæddar gáfur hennar og hæfileik- ar fengju að njóta sín, en mikils- verðara taldi hún þó, að dóttirin unga öðlaðist þá eiginleika, sem vega þyngst í samskiptum manna, einlægni, góðvild og hjartahlýju. Þessi verðmæti urðu það, sem hún mat meira en glæsilegan námsárangur og uppskeru þrot- lausrar þekkingarleitar siðar á ævinni. Þegar hún óx úr grasi, virtist hún hafa flest það til brunns að bera sem manninn getur prýtt. Hún var bráðgáfuð, skemmtileg með afbrigðum, glæsileg ytra og viðmótið ástúðlegt og glaðlegt í senn. Þannig var hún, þegar leiðir okkr allra lágu saman í mennta- skóla. Seytlandi lífsfjör laðaði og lokkaði, og í kringum hana var alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera. Gráar hversdagsmanneskj- ur tendruðust upp af samvistum við hana, og hnyttin tilsvör henn- ar og athugasemdir gátu komið hvaða fýlupúka sem var til að veltast um af hlátri. Og hún var fljót til að rétta hjálparhönd, þegar eitthvað bjátaði á einhvers staðar í hinum stóra hópi vina og kunningja, og það var auðfundið, að hún átti undur viðkvæma strengi í hörpunni sinni, sem oft- ast hljómaði svo glatt. Snemma í menntaskóla kynntist Edda mannsefnininu sínu, Jóni Óttari Ragnarssyni, og urðu þá mikil þáttaskil i lífi henn- ar. Með honum eignaðist hún nýja fjölskyldu, sem hún mat mikils og átti eftir að móta framtíð hennar að verulegu leyti. Foreldrar Jóns, Ragnar Jónsson útgefandi og frú Björn Ellingsen, og dætur þeirra, Auður og Erna, tóku henni tveim höndum og segja má að Ragnar hafi gengið henni í föðurstað. Þau leiddu hana inn á brautir bók- mennta, lista og þjóðfélagsum- ræðu, sem höfðu litt freistað hennar áður. Það var sem nýr heimur opnaðist henni, og þangað þeysti hún með sífrjóum huga og barnslegri einlægni. Hún sökkti sér niður í bókmenntir og braut heilann um margslungin þjóð- félagsfyrirbæri. Það var þó eink- um myndlistin, sem heillaði hana, enda hafði hún tekið listræna hæfileika í arf frá móðurfólki sinu. Þessar nýju hliðar á Eddu komu okkur eilítið spánskt fyrir sjónir í fyrstu en hér sem endra- nær hreif hún okkur með sér, þannig að saumaklúbbarnir okkar urðu stundum hálfgerðir um- ræðufundir um þjóðfélags- og menningarmál. Þó að hún væri potturinn og pannan í öllu, sem við tókum okkur fyrir hendur, á þessu sviði sem öðrum, örlaði aldrei fyrir oflæti eða þekking- arhroka hjá henni, því að lítillæti var eitt af aðalsmerkjum hennar. Hún leitaði fast eftir sjónarmið- um annarra og sá oftast eitthvað jákvætt við þau, en bjargföstum skoðunum sínum fylgdi hún eftir af þeim tilfinningahita, sem henni var i blóð borinn og ein- kenndi orð hennar og athafnir alla ævi. Því miður urðu samvistir okkar við Eddu skemmri en skyldi, því að eftir stúdentspróf dvaldist hún lengst af erlendis við nám. Eftir eins árs nám í meinatækni venti hún kvæði sínu i kross og hélt til Edinborgar, þar sem Jón Ottar var við nám í verkfræði. Þau gengu í hjónaband um áramótin 1967 hér heima, en heimili þeirra var ytra til 1969. Edda lagði stund á enskar bókmenntir og listasögu við Edinborgarskóla' og lauk þaðan M.A. prófi. Síðan lá leið , þeirra hjóna vestur um haf til frekara náms og árin 1969—1971 dvöldust þau í Boston. Þar hóf Edda framhaldsnám í listasögu, sem henni auðnaðist ekki að ljúka til fullnustu. Arið 1971 kom Edda heim og hóf enskukennslu við gamla skól- ann okkar og síðar kennslu í ensku og listasögu við M.H. Henni var það mikið kappsmál að tekin yrði upp kennsla í listasögu við M.R. og stuðlaði að því að svo yrði. En ekki lét hún þar við sitja, heldur gekk á fund Ölafs Hans- sonar, prófessors, og benti honum kurteislega á, að tímabært væri að hefja kennslu í listasögu við æðstu menntastofnun þjóðarinn- ar. Ölafur tók henni vel, og fól henni brautryðjendastörf á því sviði við Háskólann. Var hún ákaflega vel látin af nemendum jafnt sem samkennurum, og býr Háskólinn að þessu skemmtilega frumkvæði hennar. Haustið 1974 héldu þau hjónin utan enn á ný með dóttur sína tveggja ára gamla, að þessu sinni til Minnesota. Tók Edda upp þráðinn í listasögunáminu, þar sem frá var horfið og sóttist það vel. Það var stutt í lokapróf, þegar fjölskyldan fluttist heim aftur, og hún lauk því að mestu hér heima. En skömmu áður en hún ætlaði utan til að ganga frá meistara- prófsritgerð sinni tóku örlögin í taumana. Alltaf birti yfir hópnum, þegar Edda kom aðvífandi frá útlöndum með hugann fullan af viðfangs- efnum, sem hún vildi leita álits okkar á. Þrátt fyrir hinar löngu fjarvistir hennar rofnaði aldrei sambandið við okkur. Hún var alltaf söm og jöfn, en samt var eins og lífsgleðin þyrri smám saman og alvaran risti dýpri rúnir í persónugerð hennar. Þegar hún kom alkomin heim frá Minnesota hlökkuðum við til að njóta samvista við hana um alla framtíð, en fljótlega kom í ljós að henni var brugðið. Skemmtilegu tilsvörin hennar heyrðust æ sjaldnar og þau viðfangsefni, sem stríddu á hug- ann leituðu ekki lengur út, heldur inn. Hún hafði einnig látið á sjá hið ytra. Fáa grunaði þó, að alvarlegur sjúkdómur hefði búið um sig í henni, en smám saman varð ljóst hvert stefndi. Það var hræðilegt reiðarslag fyrir hana, alla aðstandendur og vini, þegar lækn- ar hér heima og erlendis kváðu upp úr um, að batavonir væru hverfandi. Hún lét samt ekki bug- ast, heldur ákvað að berjast til þrautar og sýndi mikinn hetju- skap. Þó var önnur hetja henni enn meiri, Solveig móðir hennar. Einkabarnið átti hug hennar og hjarta og hún ætlaði ekki að láta það af hendi átakalaust. Hún fluttist inn á heimili hennar og um margra mánaða skeið stund- aði hún dóttur sína af þvílíkri elju og með þvílíkum kærleika, að jafnvel hin fagra mynd Asdísar á Bjargi bliknar við samanburðinn. Og eftir að Edda hafði verið flutt fársjúk á Landspítalann, dvaldist hún hjá henni hverja stund milli þess, er hún leitaði úrræða þar sem glampaði á einhvern vonar- neista. Vonarneistarnir glæddust smám saman, en þegar þeir slokknuðu fyrir fullt og allt var Solveig sama hetjan og fyrr og leitaði huggunar í trúarstyrk sin- um. Það dýrmætasta, sem Edda eftirlét heiminum, var dóttirin Solveig Erna, sem aðeins 5 ára gömul er svipt yndislegri móður. Vönandi fer heimurinn mildum höndum um hina ungu sál, sem á sorgarinnar stundu er umvafin kærleika föður síns, ömmu og föðurfólks. Skarðið hennar Eddu verður aldrei fyllt hér á þessari jörð, en harmur okkar mildast af þeirri fullvissu að þjáningum hennar skuli vera lokið. Hún trúði á fram- haldslíf, þar sem kærleikurinn ríkir, og þar sem samkeppni og eltingaleikur um fánýta hluti þekkist ekki. I slíku samfélagi líður henni vel. Þar mun hún sitja í öndvegi. Bekkjarsystur í MR. Þegar bráðaldan hnígur í hinsta sinn og öldurót lifsstríðs hefur lægt, fellur kyrrðin á. Að þessu sinni er hún svo djúp og alger að hún yfirgnæfir alla fyrri reynslu, hefur sig upp yfir tíma og rúm. En smám saman gárast hafflöt- urinn að nýju og ljúfar bárur minninganna skolast hægt en tregablandið að landi, hvar spor liggja í sandi, spor sem við þekkj- um og sem hlæja við okkur í elsku þeirra minna sem þau eftir'skilja. Slík eru gæfuspor. Það var haustið 1962, er kynni okkar Eddu hófust, þá bæði nem- endur í þriðja bekk Reykjavíkur- skóla. Líkt og svo mörg vinakynni á þeim næmu unglingsárum þeg- ar barnsleg einlægni ræður enn ríkjum í viðmóti og vináttu, þá var til þeirra stofnað á þann veg að órofin hafa staðið síðan. Frem- ur en nokkuð annað voru þessi ár í góðum vinahóp eins konar óður til lífsins og gleðinnar, full af elskulegu ábyrgðarleysi svo sem ungu fólki er tamt, þar sem lífs- nautnin varð oftast yfirsterkari áhyggjum morgundagsins, en skólinn með misjafnlega umburð- arlyndum kennurum varð fyrst og fremst sameiningarafl fyrir at- beina óskilgreindra húmanis- tiskra verðmæta, sem umhverfi hans og andi gat af sér fremur en markvissrar kennslu í lærðum greinum. Þessi verðmæti hafa líka eflaust reynst flestum besta vegarnestið þegar út í alvöru lífs- ins kom, a.m.k. var svo með Ingi- björgu Eddu eins og'reynslan átti eftir að sýna. Það var snemma á skólaárunum i M.R., sem Edda kynntist eigin- manni sínum Jóni Ottari. Strax á þessum árum vakti Edda athygli allra sem hana sáu fyrir sérstakan glæsileik og fegurð svo eftir var tekið, en i viðmóti öllu var hún ljúf og góðgjörn og vildi hvers manns vanda leysa, enda var^ Edda jafnframt vinamörg meðal bekkjarsystra og skólafélaga. Yf- irleitt voru þau tvö hvatar að öll- um vinafagnaði, sem til var stofn- að og traustastir vinir vina sinna. Bar heimili þeirra jafnan svip þessarar reynslu unglingsáranna. Að loknu námi í Reykjavíkur- skóla héldu þau til Edinborgar til náms og síðar meir eftir stutta dvöl hér heima til náms í Banda- rikjunum, þar sem þau dvöldust um 4 ára skeið. I Skotlandi lagði Edda stund á listasögu og enskar bókmenntir og lauk prófi frá há- skólanum í Edinborg, en í Banda- ríkjunum hélt hún áfram námi í listasögu og lauk þaðan prófi rétt í þann mund er hún kenndi sér fyrst meins af veikindum þeim, sem nú hafa hvatt hana burt af sjónarsviði jarðnesks lífs. Fáa órar sjálfsagt fyrir því hve mikla atorku og einbeitni til hef- ur þurft til að ganga í gegnum það nám, sem Edda lauk samhliða þvi að veita heimili forstöðu og sinna móðurskyldum við ungt barn, fjarri hjálp ættingja og vina í fjarrænu stórborgarumhverfi. En námsárangur hennar var þó i mínum huga enn stærri fyrir það að jafnhliða námi sínu eða öllu heldur ofar námi þessu hafði Edda náð að þróa með sér ein- staka hæfileika til skarprar gagn- rýnnar hugsunar ásamt óvenju- legu næmi fyrir listrænum gild- um hvort sem voru í myndum, máli eða tónum. Að eðlisfari hafði Edda til að bera mjög góða greind, enda námsmaður góður. En það sem réð úrslitum í þroska meðfæddra hæfileika var fyrst og fremst sú afstaða, sem heimili þeirra hjóna einkenndist svo mjög af, að í tómstundum var hversdagsleikinn aldrei til um- ræðu heldur stöðugt sótt á ný mið, á vit nýrrar reynslu, nýrrar upp- lifunar. Þetta umhverfi gerði miklar kröfur en var ögrandi og heillandi í senn, og þeim sem reyndu vináttu þeirra eru ógleymanlegar liðnar samveru- stundir, því þær voru frjórri en flestar aðrar, gáfu einhverja and- lega fullnægju sem verður ekki skýrð með orðum. Nú þegar tjaldið hefur verið dregið fyrir og horft er á bak ástvini, sem fallið hefur frá í blóma lífsins, hljóta spurningar að leita á hugann og gerast áleitn- ar. Af hverju hún, og var þá til einhvers barist eftir allt. Ekki er nema mannlegt að þannig sé spurt og vissulega kunna slíkar spurningar að ala á beiskju í barmi og valda kala i hjörtum inni. En á slíkum stundum þegar staðið er frammi fyrir örlaganna þyngsta dómi er mest um verð tilfinningin og vitundum það að þrátt fyrir stutta jarðneska ævi var hún að verkum, reynslu og þroska miklum mun meiri en hægt var með nokkurri sanngirni að gera kröfu til hjá svo ungri konu. Þannig má i óeiginlegri merkingu með nokkrum sanni segja að Edda hafi lifað ævina til fulls, lifað blóma síns lífs. I því sambandi verður mér hugsað til írska skáldsins Oscars Wilde sem Edda hafði mikið dálæti á, en í því kvæði sem hann hefnir „Magdalen Walks“ gerir hann einmitt að yrkisefni hvort ein- hvers sé misst að falla frá að liðnu vori eftir að hafa notið vors, lífs og ástar, því jafnvel stutt ham- ingjustund geti gefið lífinu allt þess gildi. Þannig verði hlutskipti margra að sakna liðinna æsku- daga sem aldrei koma aftur. Mikill harmtir er nú kveðinn að fjölskyldu Eddu, eiginmanni og dóttur, tengdaforeldrum og ást- vinum, en siðast en ekki síst ást- sælli móður, sem sér nú á bak einkabarni sínu, sem frá fyrstu tíð gaf Eddu allt sem góð móðir ein getur og var henni stoð og stytta í þungbærum veikindum. Við Asthildur vottum þeim öll- um okkar innilegustu samúð. Megi guð veita þeim líkn og styrk í sorg þeirra. Minningin um góðan vin mun ætíð lifa. Þorsteinn Ölafsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.