Morgunblaðið - 16.02.1978, Page 39

Morgunblaðið - 16.02.1978, Page 39
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 '39 Soffía Sigurjónsdótt- ir — Minningarorð Fædd 2. nóvember 1902 Dáin 9. febrúar 1978 „Skjótt hefur sól brugðiö sumri“. Dauðinn gerir ekki boð á undan sér og sú varð ekki heldur raunin á í þetta sinn. Enginn fyrirboði um síðustu samfundi, er ég um hádegisbil á miðvikudag ók henni í bæinn, tæpum sólarhring síðar var hún ekki lengur hér. Þrir aldar- fjórðungar voru að baki, löng veg- ferð í þjóðlífi breyttra tíma. Hún var fædd að Gerðum í Garði næst- elst 12 barna hjónanna Steinþóru Þorsteinsdóttur og Sigurjóns Arn- laugssonar, er þar bjuggu. Ölst upp í Garðinum en fluttist um tvítugsaldur ásamt fjölskyldu sinni til Hafnarfjarðar og átti þar heimili ávallt síðan. Hinn 26. júni 1925 gekk hún að eiga Kristin Þorsteinsson en hann lést 16. júní 1967. Börn þeirra urðu fjögur, Asta, Lilja, Þorsteinn og Hörður, sem fóst með togaranum Júlí 8. febrúar 1959. Þetta er í stuttu máli lífsramminn. En inn í þann ramma mætti fella langa sögu, ekki sögu sem væri frábrugðin sögu svo margra af hennar kyn- slóð, um mikla vinnu frá ungum aldri, skort á menntun og aðstöðu- leysi á ýmsa lund. En það yrði jafnframt saga um gleði og sigra og ótal hamingjustundir þess, sem unnið hefur lífsstarfið af fullum trúnaði við sjálfan sig og aðra. Ég kom í fjölskylduna fyrir rúmum átján árum og ég held að á þá sambúð hafi ekki margir skuggar fallið. Við vorum ólíkar um flest, en áttum svo margt sam- eiginlegt að lífsþræðir okkar hlutu mjög saman að liggja. Hún er þvi í dag kvödd með sárum söknuði. Margt er ógert og ósagt, þegar kveðjustundin rennur upp svo óvænt. Hjá henni komst enginn efi að um annað líf eftir þetta. Megi óskir hennar um endurfundi við kæra ástvini hafa ræst og megi allt það góða sem við vildum svo gjarnan hafa verið henni meðan hún var meðal okkar, verða henni lítið vegar- nesti á hinni ókunnu strönd. Dagbjört 1 dag verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði Soffía Sigurjonsdóttir, sem lést að Hrafnistu í Hafnarfirði hinn 9. þ.m. Soffía var fædd í Garðinum í Gullbringusýslu hinn 4. nóvem- ber 1902. dóttir hjónanna Sigur- jóns Arnlaugssonar og Steinþóru Þorsteinsdóttur. Sigurjón og Steinþóra eignuðust 12 börn og komust átta þeirra til fullorðins- ára. Að Soffíu genginni eru þrjú þessara systkina á lífi, þau Jóna, Kristinn og Einar. Á þriðja áratugnum fluttist fjölskyldan til Hafnarfjarðar og bjuggu Sigurjón og Steinþóra í Firðinum til dauðadags. Sigurjón var fyrst formaður á bátum í Garðinum, en lengst af verkstjóri á Geirsstöðinni í Hafnarfirði, eftir að hann fluttist þangað. Kunnastur mun þó Sigurjón af framlagi sinu á tónlistarsviðinu, en eftir hann liggja ýmis kunn lög, og hann var lengi söngstjóri kirkjukórs Fríkirkjunnar í Hafn- arfirði. Skömmu eftir að fjölskyldan fluttist til Hafnarfjarðar giftist Soffía bernskuvini sínum og skólabróður úr Garðinum, Kristni Þorsteinssyni. Gengu þau í hjóna- band hinn 26. júni 1925 og settu niður bú i Firðinum. Kristinn stundaði sjóinn, en Soffía vann oftast ýmis störf við fiskverkun. Börnin urðu fjögur: Asta gift Kristni Ö. Karlssyni, netagerðar- manni, Lilja gift Sigurði Stefáns- syni, bifvélavirkja, sem nýlega er látinn, Hörður, loftskeytamaður, sem fórst með b/v Júlí 1959, kvæntur Dóru Sigurðardóttur og Þorsteinn, skrifstofumaður, gift- ur Dagbjörtu Torfadóttur. Það reyndi oft á Soffíu bæði í lífsbaráttunni og í persónulegu lífi, en aldrei kveinkaði hún sér. Heimilisstjórnin hvíldi fyrst og fremst á henni eins og öðrum sjómannskonum. Hún var sterk og sjálfstæð, og sterkust, þegar á móti blés og örlögin virtust köldust og torráðnust. Hún þurfti að sjá á bak syni á besta aldri frá konu og börnum í greipar Ægis. Það voru þungir dagar, en hún æðraðist ekki. Eiginmaðurinn varð líka bráðkvaddur fyrir aldur fram. Aldrei lét Soffía erfiðleik- ana yfirbuga sig. Og hún sótti styrk í sönginn og tónlistina, sem voru .hennar yndi eins og föður hennar. 1 desember síðastliðnum fluttist Soffía á hina nýju Hrafn- istu í Hafnarfirði. Hún hafði fyrir löng sett sér, að þangað vildi hún flytja, meðan hún væri enn frísk og sjálfbjarga og gæti notið þess félagsskapar, sem þar væri að finna. A Hrafnistu undi hún vel sínum hag og naut hvers dags, eins og hún hafði reyndar alltaf tamið sér að njóta allra daga. Kallið kom svo án fyrirvara, rétt eins og hún hafði kósið. Hún var sátt við tilveruna, taldi sig hafa lokið dagsverki sínu og setti traust sitt á Guð í sterkri trú. Eg kynntist Soffiu fyrst á unglingsárum mínum af félags- skap og vináttu við Þorstein, son hennar. Síðar lágu leiðir okkar saman hjá Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar, en Soffía vann í mörg ár hjá því fyrirtæki, allt fram undir sjötugt. Síðustu árin hittumst við oft í sambandi við félagsstarf aldraðra bæjarbúa. Alltaf fannst mér Soffía eins; glöð, ánægð og sátt við allt og alla, jafnlynd og góðgjörn. Það var ævinlega ánægjulegt að hitta Soffíu, hvort heldur ég skauzt inn á heimilið, unglingurinn, hitti hana í fiskin- um hjá Bæjarútverðinni eða í hópi eldri Hafnfirðinga í félags- starfi þeirra. Ég þakka ánægjuleg kynni um leið og ég votta börnum og barna- börnum og fjölskyldum þeirra hluttekningu mína og minna. Kjartan Jóhannsson. Nú er amma horfin af sjónar- sviðinu og við sitjum eftir hljóð og hnípin. Þó hún ætti 75 ár að baki héldum við samt að við mætt- um njóta samvista við hana miklu lengur Það er svo sárt að finna það sem er verða það sem var. Hún innrætti mér frá blautu barnsbeini óbilandi trú á að lífið héldi áfram hinum megin við tjaldið stóra. Og þegar afi féll frá trúði hún þvi að aðskilnaður þeirra yrði aðeins um stundarsak- ir. Ég er sannfærð um að trú hennar er rétt og nú geti þau glaðst yfir því að vera aftur saman. Amma var fædd árið 1902 að Gerðum í Garði. Foreldrar hennar voru Steinþóra Þorsteinsdóttir og Sigurjón Arnlaugsson. Hún var næstelst af 12 systkinum 4 dóu í bernsku. Amma sagði mér oft frá bernsku sinni í Garðinum hve lífsbaráttan var hörð miðað við lífsþægindi dagsins í dag, en þó hafði þeirra tíma fólk gæði, sem virðast vera að glatast í dag, það er óbilandi trú á æðri máttarvöld. Faðir hennar var formaður á bát, sem reri úr Gerðavör. Og oft sagði hún að mamma sín hefði staðið við gluggann og horft á þegar bátur hans kom inn. Það virtist sem heil eilífð frá því báturinn hvarf í öldudal og þar til hann birtist á ný, en alltaf komst hann heill að landi. Fjölskyldan flyst síðan til Hafn- arfjarðar. Þá var öld opnu bát- anna liðin, enda Garðsjór uppur- inn af fiski fyrir stöðugum ágangi breskra togara upp í landsteinun- um. Árið 1925 giftist amma svo afaL Kristni Þorsteinssyni. Þau voru æskuvinir og fermingarsystkini úr Garðinum. Þau eignuðust 4 börn, Astu, Lilju, Hörð og Þorstein. Hörður fórst með Júlí árið 1959, og hygg ég að þær stundir hafi verið ömmu hvað erfiðastar i lífinu. En amma var stórbrotin persóna, sem lét ekki sorgina buga sig, heldur reyndi að styðja aðra. Það fund- um við best þegar sorgin barði að dyrum hjá okkur síðast liðið vor, þá var amma sú sem huggaði og studdi. ' Afi stundaði lengst af sjó, á stríðsárunum var aflanum siglt til Englands og grun hef ég um að einhvern tímann hafi hún átt and- vökunótt, að vita af afa úti á hafi í þeim mikla hildarleik, þar sem margir íslenskir sjómenn týndu lifi. Amma vann í fiskvinnu allt til ársins 1974. Fróðlegt þótti mér að heyra lýsingar hennar á kjörum verkakvenna hér áður fyrr. En þrátt fyrir oft erfið kjör var lífsgleði hennar mikil, sem aðrir nutu góðs af. Söngur og hljómlist fylgdu henni víða enda alin upp við slíkt á bernskuheimilinu. Hún var heilsteypt kona, og hafði ákveðna lifstefnu og henni vék hún aldrei frá. ömmu Soffíu þakka ég allar samverustundirnar, alla ástúðina og umhyggjuna. Guð Geymi hana. María Jóna Gunnarsdóttir. Garðar Eymunds- son - Minningarorð í tilveru okkar stöndum við stundum frammi fyrir svo erfið- um staðreyndum, að vart virðist yfirstíganlegt. Ein s.lík staðreynd ér sú, að vinur okkar á besta aldrí, er skyndilega kvaddur burt af sjónarsviðinu. Eftir er aðeins tóm, sem aðstandendur, vinir og kunningjar eru lengi að átta sig á að ekki verði fyllt á ný. Vinur okkar Garðar Eymunds- son lést af slysförum 7. febrúar við störf sin á hafi úti. Garðar var fæddur á ísafirði 4. júlí 1931. Foreldrar hans voru hjónin Rannveig Benediktsdóttir og Eymundur Torfason. Barn að aldri misst Garðar móð- ur sína, en ölst upp með föður sínum og sí0ar stjúpu Kristjönu Jakobsdóttur. Ungur að árum fór Garðar að vinna fyrir sér, og eins og að líkum lætur með dreng í sjávar- þorpi, var það mest við ýmis störf er að sjómennsku lúta. Til Hafnarfjarðar fluttist hann 1956 og var næstu 4 ár á Faxaborginni, síðan á Eldborginni til hins síð- asta dags. Garðar kvæntist 1957 eftirlif- andi konu sinni S’alöfne Sigfús- dóttur frá Stóru-Hvalsá í Stranda- Sýslú. Þaú bjuggu í Háfnarfirðí til ársins 1972, síðan í Garðabæ. Þáú eignúðust einn sotl, Ara Kfistiii, f. 1963. Okkur hjónunum er ljúft að minnast Garðars heitins. Það er ekki oft á lífsleiðinni sem maður hittir mann eins og hann. Er við lítum til baka, koma margar dýr- mætar minningar fram í hugann. Hann var ætíð boðinn og búinn til að rétta hjálparhönd ef með þurfti og hreinskilni hans, heiðar- leiki og hjartahlýja var með ein- dæmum. Hann var mjög barnelsk- ur maður og fundu börn fljótt að þau áttu þar traustan vin sem aldrei brást. Það var ein af lyndis- einkunnum Garðars, að tengja órofa tryggð við þá, sem hann batt vináttu við, og nutum við þeirrar dygðar. Garðar heitinn var mjög heimakær, góður eiginmaður og faðir. Það var hans aðaltakmark að búa eiginkonu og barni sem besta heimilisaðstöðu. Við erum þakklát fyrir að eiga ljúfar minningar um góðan dreng. En við ráðum svo litlu um tímans rás. Eitt erum við þó sann- færð um, að ef nokkur fær himna- sælu notið þá er það hann. Guð blessi elsku Lóló okkar, Ara og Eymund, og styrki þau á erfiðum stundum. Við þökkum Garðari allt sem hann gaf okkur, minningin um góðan dreng lifir að eilífu. Okkar hinsta kveðja. Jóhanna og Sigfús. 1 dag 16. febrúar er til moldar •borinn frá Hafnarfjarðarkirkju Garðar Eymundsson. Ilvanna- lundi 9 I Garðabæ, Hann lést af slysförum hinn 7. þ.m. á fertug- asta og sjöunda aldursári. Garðar Var fæddur h. 4. júlí 1931 á ísa- firði. Foreldrar hans voru hjónin jEymundur Torfason og konahans Rannveig Benetiktsdóttir sem þá bjuggu að Norðurpól á ísafirði. Móður sína missti Garðar þegar hann var 6 ára og var það honum mikið áfall, sem að líkum lætur, þar sem faðir hans stundaði sjó- inn og gat því ekki alltaf með nærveru sinni, bætt sinum unga syni móðurmissinn eins og hann hefði viljað, en systir Eymundar Rannveig Torfadóttir tók þá Garð- ar að sér, og átti hann síðan lengi athvarf hjá henni, enda kallaði hann hana ætíð fóstru sína. Garðar fór á sjóinn þegar hann var 15 ára og gerði sjómennskuna að sínu ævistarfi og hafði nú ver- ið á sjónum í rúm þrjátiu ár. Fyrir vestan til ársins 1956, en þá fluttist hann til Hafnarfjarðar og gerðist háseti á Faxaborginni og hjá þeirri útgerð vann hann óslit- ið síðan, eða svo til. Árið 1956 stofnaði hann heimili með unn- ugtu sinni Salóme Sigfríði Sigfús- dóttur frá Stóru-Hvalsá í Hrúta- firði og kvæntist henni h. 15. júní 1957. Sonurinn Ari Kristinn fæddúr 4. apríl 1963 var eins og áð likum lætur, bjartásti sólar- géislinri i lífi þeirra hjória, énda mikill efnispiltur. Garðar var framúrskarandi góð- ur starfsmaður enda vel látinn og virtur jafnt af starfsfélögum setp öllum öðrum, sem nutu kunning$- skapar hans ogvináttu. Hann var hæggerður og dulur, en glaðlynd- ur og góðúr félagi. Tryggur og vinfastur. Ekki hvarflaði það að mér þeg- ar ég var heima hjá þeim hjónum nokkrum dögum áður en hann lagði í sína hinstu sjóferð, að það yrðu okkar síðustu samfundir, en það setti að mér geig þegar hann á síðasta ári keypti sér bát og hvarf frá því fyrirtæki, sem hann hafði þjónað svo lengi, þó ekki ætti það að vera nema um stundarsakir, en hann stundaði sjóinn á bátnum sinum í sumar og oft voru þeir feðgarnir tveir á báti, og sá geigur sem ég fann til var bundinn við þær sjóferðir, en ekki það sem biði hans þegar hann kæmi aftur um borð í Eldborgina. En við mennirnir erum svo skammsýnir og það sem við ályktum er tíðum æði langt frá því sem lífsreynslan kennir okkur, og stóru og sterku skipin reyriast stundum hættu: legri vettvangur heldur en smáu bátkænurnar, sem haldið er úti til fiskjar allt umhverfis landið okk- ar. Nei, það mun seint verða hægt að búa svo að sjómannsstarfinu, að því fylgi ekki mikil áhætta, hvort sem skipin eru stór eða smá, og hversu vel sem þau eru úr garði gerð, og slysin gera ekki boð á undan sér, hvorki hugboð né annað getur komið í veg fyrir það, og nú hefur einn úr hópi okkar bestu sjómanna i blóma lífsins verið hrifinn burt á óvæntan og harkalegan hátt, og eftir standa ástvinirnir, eiginkona, sonur og aldraður faðir, systir og stór frændgarður í orðvana sorg, en minningarnar streyma fram, minningar um ástrikan eigin- mann og föður, um umhyggju- saman og nærgætinn son og kær- an bróður, sem tryggan og einlæg- an vin, sem öllum vildi gott gera. Mér sem þessar línur rita er í fersku minni þegar móóir min, blessuð sé hennar minriing, gerði sér Ijóst, að hún ætti skammt eftir ólifað, þá kaus hún að eyða síð- ustu ævistundunam hjá þeim Salóme yngstu dóttur sinni og Garðari, og það er mér kunnugt um, að enginn sonur hefði getað verið henni betri en hann var þar til yfir lauk. Og nú hefir hann líka verið kallaður burt frá starfsíns önn, burt frá heimilinu sínu fal- lega og hlýja, burt frá konunni sem hefir beðið hans heima í hverri sjóferð og búið honum öryggi og skjól í hvert sinn er hann hefur snúið burt frá hætt- um hafsins, hann hefir verið kallaður burt frá syninum unga, sem líka hefir beðið í hvert skipti, með óþreyju hins unga manns, beðið þess að pabbi komi af sjón- um til að eyða nokkrum frídögum með honum en ef til vill og líklega miklu oftar aðeins nokkrum klukkustundum, en þannig er sjó- mannslífið, og nú hefur hann haf- ið sína hinstu ferð og við kveðjum hann, og þökkum honum sam- • fylgdina, þökkum honum allar minningarnar um vináttu hans og kærleika, og biðjum Guð að blessa ástvinum hans allar minningarri- ar um þær stundir sem þeir fengu •að njóta samvista hans, og við biðjum Guð að hugga og styrkja þau sem mest hafa misst, eigiji- konu hans, einkasoninn og aldrað- an föður. Lárus Sigfússon. ____AfmæMs-og minningargreinar Að marggefnu tilefni skal athygli vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Sé vitnað til ljóöa eða sálma skal höfundar getið. Greinarnar þurfa að vera vélritaðar og með góóu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.