Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
47
urum sigur gegn Val
Barátta færði Fröm-
ÞAÐ ER óhætt aó leikmenn Fram hafi komið á óvart í leik sfnum vió Val í gærkvöldi, en Framarar gerðu
sér Iftið f.vrir og unnu tslandsmeistarana 23:21. A mánudagskvöldið léku Framarar við nvliða Ármanns
og máttu þá þola átta marka tap, en f gærkvöldi. var allt annað Framlið inni á vellinum og með miklum
baráttuleik tókst þvf að snúa blaðinu algjörlega við frá því á mánudagskvöldið.
Það er eitthvað meira en lítið að
i herbúðum íslandsmeistaranna
um þessar mundir. Leikmenn
virðast vera að spila hver fyrir sig
privat og persónulega og gengu
greinilega með sama hugarfari til
leiksins á móti Fram og Framarar
gerðu á móti Ármanni. Þeir héldu
að þeir væru að spila við mun
lélegri andstæðinga og ynnu þá
auðveldlega. Valsmenn voru allt-
of mikið með hangandi haus i
þessum leik og tapaðist knöttur-
inn, var sjaldnast keyrt aftur í
vörnina.
Annars einkenndist þessi leik-
ur af miklum æsingi hjá báðum
liðum og leikurinn á köflum mik-
ill darraðardans. Framarar voru
lagnir við að komast i gegnum
vörn Vals með gegnumbrotum og
það er langt siðan maður hefur
séð Valsvörnina eins slaka og i
þessum leik. Hafa bcr það i huga
að Framliðið hefur verið þekkt
fyrir allt annað en sterkan og
harðan sóknarleik, þó svo að þar
séu nokkrir liprir spilarar.
Valsmenn höfðu lengstum yfir-
höndina i fyrri hálfleiknum, þótt
munurinn væri aldrei mikill og
munaði aðeins 2 mörkum á liðun-
um í leikhléi, 11:9 fyrir Val. 1
seinni hálfleiknurn jöfnuðu
Framarar fljótlega 11:11, en Val-
ur komst yfir á nýjan leik. Fram-
arar jöfnuðu 14:14 og komust sið-
an yfir. Eftir það létu þeir foryst-
una aldrei af hendi og munurinn
var tvö mörk, 22:20, þegar aðeins
rúm minúta var til leiksloka.
Þá var SigUrbergi vísað af leik-
velli og Þorbjörn Guðmundsson
skoraði gott mark. Valsarar fengu
knöttinn aftur, en Bjarni
Guðmundsson missti hann frá sér
ÞORBERGUR
TIL LIÐS VIÐ
LEIKMENN KA
ÞAÐ VAR mikið áfall fyrir
knattspyrnumenn KA á Ákur-
e.vri þegar þeir fréttu að I stað
þess að koma til Akureyrar
hefði Arni Stefánsson ákveðið
að fara til Jönköping i 2. deild-
inni sænsku. Akureyringar
geta aftur tekið gleði sina þvi
Þorbergur Átlason hefur
ákveðið að leika með KA I
sumar og munar miklu fyrir
KA að fá svo revnslumikinn
leikmann til liðs við sig.
Þorbergur hefur leikið 13
landsleiki fyrir Island, en
hann er þrltugur að aldri.
Ilann hefur ekki mikið leikið
mcð Fram undanfarin ár
vegna þrálátra meiðsla og eins
staðið I skugga Árna Stefáns-
sonar hjá Fram. En nú hefur
Þorbergur náð sér af meiðsl-
um og heill er hann snjall
markvörður, það fer ekki á
milli mála. Þorbergur mun að
öllum Ifkindum dvelja í
Revkjavik i sumar og æfa með
Fram, en fara norður til
heimaleikja KA-liðsins.
— áij.
i öllum látunum í hraðaupp-
hlaupi. Valsmenn léku maður á
mann síðustu minútuna, en Arnar
Guðlaugsson hélt boltanum og
tafði tímann með þvi að rekja á
milli lcikmanna Vals. Á siðustu
sekúndunum barst knötturinn til
Birgis Jóhannessonar, sem skor-
aði gott mark af linu i þann
mund, sem flautað var til leiks-
loka.
Spennandi leik var lokið með
óvæntum sigri Fram, 23:21.
Beztur i liði Fram i þessum leik
var Arnar Guðlaugsson og lék
hann leikmenn Vals mjög grátt i
fyrri hálfleiknum, en þá skoraði
hann 4 mörk. Hefur Arnar ekki
verið betri i annan tima og var
það vonum seinna að Valsmenn
tóku hann úr umferð er leið á
seinni hálfleikinn. Eigi að síður
gerði Arnar þrjú mörk í seinni
hálfleiknum. Arni Sverrisson
skoraði 6 mörk fyrir Fram í þess-
um leik og hann hefur heldur
ekki áður leikið eins vel fyrir
Fram. Árni gerði sig sekan um
mistök i þremur dauðafærum i
leiknum, en hann bætti það upp
með óvæntum mörkum á mikil-
vægum augnablikum.
Þó þessir tveir leikmenn hafi
verið afgerandi beztir í liði Fram,
þá var þó liðsheildin fyrst og
fremst að baki sigrinum. Menn
eins og Guðjön Erlendsson mark-
vörður, Birgir Jóhannesson og
Sigurbergur Sigsteinsson skiluðu
sínu hlutverki allir mjög vel.
Framarar geta náð árangri með
góðri baráttu og eru leikir þeirra
við Ármann og Val beztu dæmin
þarum.
Af leikmönnum Vals stóð Þor-
björn Guðmundsson sig mjög vel
að þessu sinni og hann skoraði 6
mörk með fallegum skotum, sem
alltof litið hefur sést af í vetur.
Brynjar Kvaran stóð i marki Vals
framan af leiknum og til að byrja
með varði hann mjög vel, en dal-
aði síðan er leið á leikinn og Jón
Breiðfjörð bætti ekki um betur er
hann kom inn á. Steindór Gunn-
Framhald á bls. 26
Bjami Bessason var iR-ingum drjúgur I gærkvöldi og átti stóran þátt i
að ná jafntefli gegn Vikingum.
DARRAÐARDANS OG
FURÐULEGIR DÓMAR
TVÖ MÖRK Sigurðar Svavarssonar úr vítaskotum á siðustu minútu leiksins við Viking i 1. deildinni i gærkvöldi
breyttu stöðunni úr 18:16 fyrir Viking i jafntefli 18:18. Leikur þessi mun lengi i minnum hafður og þá sérstaklega
fyrir vitleysur þær, sem leikmenn beggja liða og ekki siður dómarar leiksins gerðu sig seka um. Er leið á leikinn
varð varla heil brú i störfum dómaranna, fyrst högnuðust Vikingar á öllum vafasömum atriðum, en siðasti
vítakastsdómurinn í leiknum var hrein gjöf til ÍR-inga. Hneyksli, sögðu áhorfendur í Laugardalshöllinni, en e.t.v.
aðeins sanngjörn uppbót á það sem af ÍR-ingum hafði verið tekið fyrr i leiknum. Hvað um það, frammistaða
dómaranna reynslulitlu var þeim ekki til álitsauka.
Ef litið er á lið Vikings og ÍR þá er með landsliðsmenn í nær hverri stöðu
það furðulegt að Vikingar skuli eiga i á að vera öruggur sigurvegari í leikj-
brösum og aðeins ná jafntefli Víkingur um, gegn slikum mótherjum. Það
HLAUPAHELGI
HJÁ FH-INGUM
FH-INGAR gangast fvrir tveimur vfðavangshlaupum um komandi
helgi. A laugardaginn kl. 14 fara fram hlaup fyrir börn og unglinga.
Hefjast þau við Lækjarskólann og verður hverjum þátttakanda veitt
ein stjarna fyrir að mæta.
A sunnudaginn kl. 14 fer fram fjórða Stjörnuhlaup vetrarins og
hefst það einnig við Lækjarskólann. Vegalengd í karlaflokki er rúmir
5 km en kvenfólkið hlevpur um 2.5 km.
Elnkunnag ioiin
FRAM: Guðjón Erlendsson 2. Birgir Jóhannesson 2, Jens Jensson 2.
Jóhannes Helgason 1, Árni Sverrisson 4, Gústaf Björnsson 1, Sigur-
bergur Sigsteinsson 2, Guðjón Marteinsson 1. Arnar Guðlaugsson 4,
Atli Hilmarsson 2, Hjörtur Þorgilsson 1.
VALUR. Brynjar Kvaran 2, Bjarni Jónsson 1, Þorbjörn Jensson 1,
Stefán Gunnarsson 2, Jón Pétur Jónsson 1, Gisli Blöndal 2, Jón H.
Karlsson 2. Steindór Gunnarsson 2, Bjarni Guðmundsson 2, Karl
Jónsson 1, Þorbjörn Guðmundsson 3, Jón Breiðf jörð 1.
ÍR: Jens G. Einarsson 3, Ásgeir Eliasson 3, Sigurður Svavarsson 3,
Guðmundur Þórðarson 1, Bjarni Bessason 3, Ársæll Hafsteinsson 1,
Vilhjálmur Sigurgeirsson 1. Árni Stefánsson 2, Brynjólfur Markússon
2.
VÍKINGUR: Kristján Sigmundsson 2. Jón G. Sigurðson 2. Ölafur
Jónsson 1. Skarphéðinn Óskarsson 1. Magnús Guðmundsson 2, Páll
Björgvinsson 2, Þorbergur Aðalsteinsson 2, Viggó Sigurðsson 1. Árni
Indriðason 2, Steinar Birgisson 1. Bjérgvin Björgvinsson 3. Eggert
Guðmundsson 2.
vinnst þó enginn leikur fyrirhafnar-
laust, á þvi fengu Vikingar að kenna i
gærkvöldi Auk þess mættu þeir gefa
sér aðeins meiri tíma til að hugsa. það
sakar ekki að brúka skynsemina i
bland
ÍR er baráttulið og hugmyndaríkum
leikmönnum eins og Ásgeiri Eliassyni
og Bjarna Bessasyni má aldrei sleppa
Einmitt þessir leikmenn voru Víkingum
erfiðastir i gærkvöldi, en Sigurður
Svavarsson gerði engar vitleysur í vita-
köstunum i lok leiksins Hann tók fyrst
viti þegar þrjár minútur voru eftir og
breytti stöðunni i 16:17 Víkingar
komust i 18:16 með marki Björgvins,
en ÍR-ingar fengu aftur viti og Sigurður
skoraði.
Er hér var komið sögu voru 25
sekúndur eftir og Vikingar með bolt-
ann Viggó fékk boltann út í horn og
Jens Einarsson var kominn út úr mark-
inu Viggó tók mikla áhættu er hann
skaut úr nær lokuðu færi Knötturinn
fór yfir mark ÍR-inga, sem brunuðu
upp völlinn Við punktalinu komu tveir
Vikingar á móti Sigurði Svavarssyni
Ekki tókst þeim að stöðva hann og
vissu ekki fyrr til en þeir lágu báðir
flatir i eigin vítateig Hafði Sigurður
rutt þeim úr vegi sínum og öllum á
óvart var dæmt vitakast á Viking Úr
þvi skoraði Sigurður siðan gott mark
eftir að leiktima lauk. en fráleitt var að
láta ÍR fá vitakast þarna
í þessum leik voru Vikingar með
forystu lengstum, nema hvað ÍR skor-
aði fyrsta mark leiksins þegar liðnar
voru sjö minútur Komst Vikingur i
mest þriggja marka forystu i fyrri hálf-
leik og leiddi 8:6 í hálfleik. Víkingur
leiddi siðan upp i 13:13 og komst
aftur yfir 1 6 14 og 18 16 Lok leiksins
eru áður rakin
Beztu menn Vikings i leiknum voru
ENÍ ICUATT^ekJAtO
Hef=feT til \j
SlRTAST
tiSTACACiOlo
E.CA
LTSA. c-»i=»r> c-Gucr
UoUjlUNJ f\
H M
IR og Vík-
ingur geröu
jafntefli
18:18
Björgvin Björgvinsson og markverðirn-
ir báðir Aðrir leikmenn liðsins léku
flestir undir getu og það var engu
likara en t.d þeir Þorbergur og Viggó
ætluðu að skora öll mörkin sjálfir og
helzt tvö i hverri sókn
Ásgeir, Bjarni, Jens og Sigurður
voru beztir ÍR-inga að þessu sinni
Dómarar voru Jón Magnússon og
Pétur Christiansen
Mörk ÍR: Bjarni 6. Ásgeir 4, Sig-
urður 4 (3v), Brynjólfur 3 (1 v), Jóhann
Ingi 1
Mörk Víkings: Björgvin 6. Þorberg-
ur 3, Jón S. 3, Árni 2. Viggó 2. Páll 1
(1 v), Magnús 1
Misheppnuð vStaköst: Kristján
varði vitakast frá Vilhjálmi, Eggert frá
Brynjólfi og Jens frá Páli
Brottvísanir: Björgvin Björgvinsson
i 2 minútur
—áij
Stúdentar
gegn Fram
í kvöld
1 KVÖLD fer fram einn leikur í 1.
defld Islandsmótsins f körfu-
knattleik. IS og Fram leika í
lþróttahúsi Kennaraháskólans og
hefst leikurinn kl. 20.00.
Stúdentar eru sigurstranglegri
fyr-irfram, en hins vegar getur allt
gerst ef Framarar detta niður á
toppleik eins og gegn KR og
UMFN. Stúdentar mega ekki tapa
í kvöld, þvi að hver tvö stig í
lokaslagnum um íslandsmeistara-
titilinn eru dýrmæt. Framarar
hafa þó sjálfsagt fullan hug á að
næla sér i fleiri stig i botnbarátt-
unni, sem er ekki siður hörð en
toppbaráttan.