Morgunblaðið - 16.02.1978, Side 48
au<;lVsin<íasiminn ER:
22480
JR#rjjunbI«t>iÍ>
LÝSINGASÍMINN ER:
22480
JH#rf(unM«í)it>
FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
Alþingiskosningar:
Framboðslisti Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík ákveðinn
Framboðslisti Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík í
næstu Alþingiskosningum
var samþykktur samhljóða
á fjölmennum fulltrúaráðs-
fundi sjálfstæðisfélaganna
í gær, en uppstillingar-
nefnd gerði tillögur um
skipan framboðslistans
sem byggðist á úrslitum
prófkjörs sem fram fór í
nóvembermánuði s.l. og er
skipan 12 efstu sæta í sam-
ræmi við niðurstöður próf-
kjörsins.
Framboðslisti Sjálfstæð-
isflokksins er birtur í heild
á miðsíðu Morgunblaðsins í
dag.
BSRBogASÍ
Formannafundi BSRB og formannaráðstefnu ASl lauk f gær. Þessar
myndir tók Friðþjófur; þá efri á formannafundi BSRB og þá neðri við
upphaf formannaráðstefnu ASt.
70.000
manns
fóru
utan 1977
0 Sjötíu þúsund manns
fóru utan á liðnu ári og
keyptu gjaldeyri fyrir 5.8
milljarða króna — móti
59.000 manns með 3.2 millj-
arða 1976.
0 Keyptar vóru til landsins
7563 bifreiðar 1977 en 4310
1976.
0 Flutt vóru inn 8827 sjón-
vörp 1977 (þar af 97% lita-
sjónvörp) móti2202 1976.
0 Kauptaxtar ASÍ-félaga
hafa hækkað um 225.5% í
tíð núverandi ríkisstjórnar,
launþega í heild um 221.7%.
0 Tekjutryggingarmark
elli- og örorkulífeyris að við-
bættri tekjutryggingu hefur
hækkað um 286.1% —
Tekjutryggingarmark með
heimilisuppbót um 354.2%.
Framanritað kom fram í
ræðu Matthíasar Bjarnason-
ar, sjávarútvegsráðherra, i
útvarpsumræðum í fyrra-
kvöld. Ræða ráðherrans er
birt í heild á bls. 18 og 19 í
Mbl. í dag.
11 þús.
tonn af
loðnu í gær
í FYRRINÓTT fengu 26
loðnuveiðiskip tæplega 11
þús. tonn á miðunum aust-
ur af Glettinganesi, en alls
voru um 65 skip á miðun-
um í gær. Engri loðnu hef-
ur verið landað sunnar en
á Djúpavogi enn sem kom-
ið er.
ASI stefnir að að-
gerðum l.marz nk.
Munum hafa samráð við BSRB og Farmanna- og fiskimannasambandið, segir Björn Jónsson
„ÞAÐ segir í þessari samþykkt að
verði ríkisstjórnin ekki við þeim
tilmælum okkar að stöðva fram-
gang frumvarpsins um ráðstafan-
ir í efnahagsmálum, skuli aðgerð-
ir okkar hefjast strax fyrsta
marz,“ sagði Björn Jónsson, for-
seti ASl, er Mbl. ræddi við hann f
gærkvöldi að lokinni formanna-
ráðstefnu ASl. „Hverjar þær að-
gerðir verða, er ekki ákveðið enn,
en við munum nota tfmann til 1.
marz til að skipuleggja sameigin-
legar baráttuaðgerðir, en um þær
munum við hafa samráð og sam-
flot með BSRB og Farmanna- og
fiskimannasambandinu. Kjörorð-
ið er: kjarasamningana f gildi.“
Þegar Mbl. vísaði til samþykktar
miðstjórnar ASf, þar sem m.a.
sagði, að ASt liti svo á að félags-
menn yrðu siðferðilega óbundnir
af lögunum um efnahagsráðstaf-
anir, og spurði Björn, hvort hann
teldi verkföll koma til greina, áð-
ur en mánaðaruppsagnarfrestur
yrði liðinn frá 1. marz, svaraði
hann: „Það var gegnumgangandi
í máli manna hér á formannaráð-
stefnunni, að við ættum að grfpa
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Kemur íslenzkt til-
boð fyrir hádegi í dag?
„ÞAÐ KOMA upp nýjar
stöður í skákum alveg
fram á síðustu stundu og
það er nú verið að kanna
alveg nýja hugmynd og
nýja leið til þess að Is-
lendingar geti boðið í
heimsmeistaraeinvígið í
skák,“ sagði Einar S. Ein-
arsson forseti Skáksam-
bands íslands í samtali
við Morgunblaðið í gær,
en tilboðsfrestur rennur
út kl. 11 fyrir hádegi.
„Ef grænt ljós kemur á
þessa nýju hugmynd til
þess að skapa fjárhags-
grundvöll fyrir tilboði þá
verður það gert fyrir til-
settan tíma, en það var
unnið að þessum hug-
myndum í dag og við
munum halda áfram í
fyrramálið til þess að
reyna til þrautar að leysa
málið.“
til harðra aðgerða og það fljótt.
Verkfallsvopnið er okkar beitt-
asta vopn, en ég vil ekkert full-
yrða um okkar aðgerðir. Þar kem-
ur allt til greina og þær aðgerðir
eru til, sem hægt væri að grfpa til
strax 1. marz og ekki teljast ólög-
legar.“ Þegar Mbl. spurði, hvort
þarna væri átt við yfirvinnubann,
kvaðst Björn ekki vilja fara nán-
ar út í neinar aðgerðir, „enda
engin ákvörðun verið tekin og
það ekki okkar ætlun að taka okk-
ur einræðisvald í þeim efnum,
heldur hafa samráð við önnur
verkalýðsöfl.“
Ráðstefna formanna verkalýðs-
félaga innan ASl, formanna land-
sambanda þess, svæðasambanda
og miðstjórnar hófst á Hótel Loft-
leiðum klukkan 16 í gær. Björn
Jónsson setti ráðstefnuna og
fluttu hann og Asmundur Stef-
ánsson, hagfræðingur ASl, inn-
gangserindi, en síðan voru frjáls-
ar umræður. Fyrir kvöldverðar-
hlé kom Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, og ávarpaði ráð-
stefnuna, en þá var formanna-
fundi BSRB lokið skömmu áður.
(Sjá samþykkt hans og viðtal við
Kristján Thorlacius á bls. 5). 1
kvöldverðarhléi vann nefnd að
undirbúningi ályktunar og hófst
fundur aftur klukkan 21:30. Að
loknum nokkrum umræðum var
samþykkt eftirfarandi með öllum
greiddum atkvæðum, en einn sat
hjá — um 130 manns sátu ráð-
stefnuna:
Ráðstefna formanna verkalýðs-
félaga innan Alþýðusambands Is-
lands, formanna landssambanda
þess, svæðasambanda og mið-
stjórnar haldin i Reykjavík 15.
febrúar 1978 ályktar eftirfarandi
vegna þeirrar allsherjarriftingar
kjarasamninga verkalýðssamtak-
anna sem felst í frumvarpi til laga
um ráðstafanir í efnahagsmálum
Framhald á bls. 26.
Miles med
betri stöðu
í biðskák
gegn Larsen
(JRSLIT í 10. umferð Reykja-
víkurmótsins í gær urðu þau
að Lombardy vann Poluga-
jevski, Kusmin vann Guð-
mund Sigurjónsson, Browne
vann ögard, Hort vann Jón L.
Arnason og Friðrik Ólafsson
og Margeir gerðu jafntefli.
Skák Helga Ólafssonar og
Smejkal var frestað vegna
veikinda Helga.
1 kvennamótinu vann Jana
Hartston Guðlaugu og Aslaug
Kristinsdóttir og Sigurlaug
Friðþjófsdóttir gerðu jafii-
tefli.
1 Reykjavíkurskákmótinu
fór skák Larsens og Miles í bið
og verður hún tefld í dag kl. 14
á Loftleiðahótelinu ásamt
maraþonskák þeirra Browne
og Lombardy.
Friðrik tefldi fremur rólega
byrjun og komst lítið áleiðis
gegn Margeiri og fórnaði síðan
skiptamun til þess að flækja
stöðuna og síðan fórnaði hann
Framhald á bls. 26.