Morgunblaðið - 12.03.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1978
Fyrri
umferð
nokkurs
konar
forkosning
Kosningarnar
í Frakkiandi:
blaðs-
Express
sér Giscard
d’Estainjf for-
scta að loknum
þinjfkosninK-
unum.
Ná vinstri menn völdum
eftir 20 ár úti í kuldanum?
FRANSKAR Dingkosningar fara
fram í vetur umferðum, nema í
tveimur kjördæmum Dar sem
frambjóðandí hlýtur hreinan meiri-
hluta í fyrri umferð. Slík frammi-
staöa er afar ósennileg í baráttunni
um pau 491 Þingsæti, sem kosið er
um í Frakklandi, nema bá í örfáum
tilfellum. Má pví líta á fyrri umferð-
ina sem nokkurs konar úlilokun
beirra frambjóðenda sem minnsta
mögutelka hafa, Þannig að hin
raunverulega kosning fer fram að
viku liðinni. Þá sigrar sá frambjóð-
andi, sem fær flest atkvæði. Venju-
lega er síðari lota kosninganna
barátta millí tveggja aðila Því að til
áframhaldandi Þátttöku í
kosningunum verður frambjóðandi
að hafa hlotið að minnsta kosti
12'/2% atkvæöa í fyrri umferðinni.
Enginn smáflokkanna virðist hafa
slíkt fylgi, Þannig aö Þátttaka í
síöari lotu virðist bundin við fjórar
stjórnmálafylkingar: Franska lýð-
ræðisbandalagiö, Gaullista, jafnað-
armenn og kommúnista. Franska
lýöræöisbandalagiö er kosninga-
bandalag Þriggja flokka, Lýöveldis-
flokks Giscards, Rótttæka flokksins
með Servan Schreiber í broddi
fylkingar, og Miðflokks jafnaöar-
manna.
Samanlagt fylgi vinstri flokkanna
í Þingkosningunum 1973 var 46,3%,
en Þá fengu hægri- og miðflokkarn-
ir 53,7%. Samkvæmt síðustu
skoðanakönnunum hefur Detta
hlutfall raskazt mjög og er hægri
flokkunum nú spáð 45—47% fylgi
en vinstri flokkunum 51—52%. í
Þingkosníngunum fyrir fjórum árum
fengu jafnaöarmenn 20,4% at-
kvæða, en Ijóst er aö síöan hafa
Þeir bætt við sig verulegu fylgi, og
geta nú búizt við aö hljóta um 28%
atkvæöa. Kommúnistar fengu í
siðustu kosningum 21,3% atkvæða,
en siðan virðast peir hafa staðið í
staö, eða jafnvel tapað fylgi, Þannig
aö Þeir hljóta nú vart yfir 20%
atkvæða. Samkvæmt skoðana-
könnunum hefur Lýðveldisflokkur
Framhald á bls. 33.
Eftir tveggja áratuga samfellda
stórn hægri- og miðflokka viröist
nú sem Frökkum Þykí kominn
tími til að vinstri menn spreyti
sig, að minnsta kosti ef marka má
skoðanakannanir og kosningaúr-
slit undanfarinna ára, sem benda
ótvírætt til að jafnaðarmenn hafi
bætt verulega við sig fylgi.
Raymond Barre forsætisráðherra
heldur pví að vísu fram að í síðari
umferð kosninganna muni Frökk-
um ekki bregðast búvitið fremur
en endranær, um leið og hann
segir að nái vinstri menn völdum
muni ekki líða á löngu bar til
efnahagslífið í landinu verði
komið í allllgjört öngpveiti og
Frakkland á vonarvöl.
Ef tekið er meðaltal skoðana-
kannana um kjörfylgi og kosninga-
úrslit, sem niðurstöður birtust úr í
lok kosningabaráttunnar, er
4—5% munur á fylgi vinstri- og
hægri aflanna, og hafa vinstri
menn þar vinninginn og hreinan
þingmeirihluta.
Helzti efnahagsmálapáfi jafn-
aðarmanna, Jaques Attali, er að
vonum ekki jafnsvartsýnn og Barre
forsætisráðherra um efnahags-
ástandið í Frakklandi ef viijstri
menn komast í stjórn. Hann heldur
því fram að ekki skipti máli hvor
fylkingin vinni, hægri eða vinstri —
efnahagsleg umbylting í Frakklandi
sé óumflýjanleg hvort sem er.
Hann spáir því að það muni taka
um það bil fimm ár að koma á
stööugleika, þannig aö full atvinna
verði í landinu og veröbólgan hafi
hjaönað. Um ein milljón manna —
eða 5% vinnufærra — er atvinnu-
laus í Frakklandi um þessar
mundir, en jafnaðarmenn undir
forystu Mitterands hafa gert áætl-
un um hvernig útrýma eigi atvinnu-
leysinu. Þeir vilja stytta vinnuvik-
una, sem nú er 44 stundir í 40
stundir, auka atvinnu á vegum hins
opinbera, og draga úr verðbólgu.
Þá beita jafnaðarmenn sér fyrir
breyttri skattalöggjöf, en flestum
ber saman um að hún sé mjög
óréttlát í Frakklandi eins og nú er.
Jafnaðarmenn vilja koma á sér-
stökum auöæfaskatti, sem aðeins
taki til þeirra sem beinlínis velti sér
í peningum, um leiö og þeir
hyggjast skattleggja höfuðstól
fyrirtækja, en svipuð skattlagning
hefur tíðkazt í V-Þýzkalandi um
árabil.
Stjórnmálafræðingar eru margir
þeirrar skoðunar að nái vinstri
flokkarnir völdum verði breyting-
arnar í frönsku þjóðfélagi svo
miklar á næstu árum að jafna megi
við gjörbyltingu. í kosningabarátt-
unni hefur stjórnmálaleiðtogum og
frambjóðendum tekizt að koma sér
saman um fátt annað en það að
Frakkar standi nú á krossgötum og
að kosið verði um grundvallar-
atriöi, sem ráða muni úrslitum um
þjóðfélagsgerðina á næstu áratug-
um.
Vinstri flokkarnir — jafnaðar-
menn og kommúnistar — hafa
heitiö því aö fái þeir meirihluta í
þessum þingkosningum muni
lægstu laun hækka um meir en
þriðjung þegar í næsta mánuði.
Þannig mundu lægstu laun, sem nú
nema 1750 frönkum á mánuði,
hækka í 2.400 franka, eða sem
nemur um 125 þús. íslenzkra
króna. Barre forsætisraæðherra og
STÁLOFNAR HF. sími 73880
•=dn
OFNINN
GEFUR GÓÐAN YL
STÓ ofninn er íslensk framleiösla og framleiddur fyrir íslenskar aöstæður. Hann er smíöaöur úr
1,8 mm þykku holstáli, rafsoðinn saman að mjög miklu leiti með fullkomnum sjálfvirkum vélum,
sem tryggja jöfn gæöi suðunnar.
STÓ ofninn hefur þá sérstöðu að allar mælingar á hitanýtingu og styrkleika hafa verið gerðar á
íslandi af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaöarins að Keldnaholti, og þá notuð hitaveita.
STÓ ofninn er stílhreinn og fer allstaðar vel. Þeir fagmenn sem hafa kynnt sér STÓ ofninn mæla
sérstaklega með honum, ekki eingöngu vegna útlits, heldur miklu frekar hvernig hann er
uppbyggöur, hve vel hann nýtir hitann, og handhægt er að leggja pípulagnir að honum.
Leitið nánari upplýsinga. Gerum föst verötilboð.
VELDU STÓ OFNINN OG HANN MUN YLJA ÞÉR UM ÓKOMINN TÍMA:
Stórkostleg
útsaia
á öl/um vörum
Verzlunin Hof, Ingólfsstræti 1
Bifreiðastillingin,
Smidjuvegi 38, Kópavogi,
sími 76400
Nú stendur yfir hin árlega bifreiöaskoöun. Viö
undirbúum bifreiöina undir skoöun. Önnumst
einnig allar aörar viögeröir. Björt og rúmgóö
húsakynni. Fljót og góö afgreiösla.
Ðifreiöastilling,
Smiðjuvegi 38, Kópavogi,
sími 76400.