Morgunblaðið - 14.03.1978, Side 15

Morgunblaðið - 14.03.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978 15 Bergerfjölskyldan, talið frá vinstri Ralph (Viðar Eggerts- son), Myron (Guðbrandur Valdimarsson), Bessi (Guð- ríður Guðbjörnsdóttir). Henní (Svanhildur Jóhannes- dóttir) og Jakob (Leifur ívarsson). Vaknið og syngið. I báðum þessum verkum koma fram áhrifamiklar kvenpersónur, harðstjórar á heimilum sínum. Bessí Berger í Vaknið og syngið er þó ólíkt geðfelldari en Regína Giddens í Refunum. Þegar á allt er litið er stjórnsemi hennar réttlætanleg. En ekki verður þrætt fyrir það að harka hennar og ófyrirleitni er á köflum yfirþyrmandi. Guðríður Guðbjörnsdóttir nær góðum tökum á hlutverki Bessíar. Leikur hennar er kraft- mikill og ákveðinn án þess að skyggja um of á aðra leikendur þótt tilefni til þess gefist oft. Eiginmann Bessíar, Myron, leikur Guðbrandur Valdimars- son og sýnir vel veikleika haíis, Kreppa og ný fyrirheit Leikfélag Kópavogs: VAKNIR OG SYNGIÐ eftir Clifford Odets. Þýðingi Asgeir Iljartarson. Leikstjórm Haukur J. Gunn- arsson. Leikmyndi Björn Björnsson. Búningari Ilaukur J. Gunnars- son. Lýsingi Lárus Björnsson. Vaknið og syngið eftir Cliff- ord Odets gerist í Bronxhverfi í New York á árunum 1934—35. Það eru krepputímar í Banda- ríkjunum, mikil óvissa hvat- vetna og stjórnmálaólga. Gyð- ingafjölskyldan í leiknum spegl- ar þessa tíma og vandamál innflytjenda sem höfundurinn kynntist sjálfur í æsku sinni. Leikstjórinn segir okkur frá því í leikskrá að eftir frumsýn- ingu Vaknið og syngið hafi það hlotið „mikið lof og Odets var h.vlltur sem arftaki Eugene 0‘Neill á sviði bandarískrar leikritunar". Það er að mínu viti ofrausn að jafna þeim saman Odets og 0‘Neill, en engu að síður er Odets að mörgu leyti snjall leikritahöfundur. Vaknið og syngið er vel skrifað verk þótt ýmislegt í því sé farið að láta undan tönn tímans. Það er fyrst og fremst unnt að njóta þess sem heimildar um banda- rísk kreppuár og þá einkum hve trúverðuglega er dregin upp mynd þeirrar fjölskyldu sem það snýst um. Þetta er stað- bundið verk, en hefur þá rétt- lætingu á íslensku leiksviði að vera unnið af kunnáttu og hugkvæmni. Nöturlegur hvers- dagsleiki verksins hefur til dæmis í sér fólgið skáldlegt andrúmsloft og að mörgu leyti var það fyrirboði nýrra og betri tíma. Leikhúsgestir eiga þess nú k'ost að sjá tvö bandarísk leikrit. I Iðnó er verið að leika Refina eftir Lillian Hellman og Leikfé- lag Kópavogs býður upp á Lelkllst eftir JÓHANN HJÁLMARSSON hve ófær hann er að taka af skarið þegar á reynir. Börn þeirra hjóna leika þau Svanhildur Jóhannesdóttir og Viðar Eggertsson. Henní Svan- hildar kemst prýðilega til skila. Umhverfið leikur þessa stúlku grátt, en hugsanlega .rætist úr að lokum og draumar rætast. Viðar Eggertsson er efnilegur ungur leikari, túlkaði hið veiga- mikla hlutverk Ralphs svo að tíðindum sætir. Þessi drengur er von höfundar um upplitsdjarf- ari kynslóð og þótti mér skiln- ingur Viðars á hlutverkinu mjög í anda Odets og með því sem gefur þessari sýningu gildi. Jakob, föður Bessíar, leikur Leifur ívarsson. Jakob er full- trúi þeirra Bandaríkjamanna sem bundu vonir við marxism- ann og þróunina í Sovétríkjun- um, bolsi sem alltaf er að boða trú sína. Hann er ósáttur við dóttur sína og son sem komist hefur áfram í viðskiptaheimin- um, en er staðráðinn í að hjálpa Ralph til að verða að manni. Leifur ívarsson komst þokka- lega frá þessu hlutverki og skorti ekki nema herslumun til þess að leikur hans gæti talist góður. Bjarni Ingvarsson túlkaði Morty frænda, soninn sem datt í lukkupott fyrirheitna landsins, með leikrænum brögðum sem ef til vill voru of ýkjukennd, en þessi persóna er í eðli sínu fremur slök frá hendi höfundar vegna þess hve hann hefur litla samúð með henni. Konráð Þórisson lék Moe Axelrod, sérstæðustu persónu verksins. Konráð var réttur maður á réttum stað í þessu hlutverki og kom á óvart með næmri túlkun og góðri fram- sögn. Sam Feinschreiber er fórnar- lamb þeirra mæðgna, Bessíar og Henníar, kúgaður eiginmaður hinnar síðarnefndu. Hlutverkið er ekki stórt, en Finnur Magnús- son gæddi það lífi sem varð eftirminnilegast á tímum upp- gjörs þegar vanmáttur Sams verður algjör. v Þá er aðeins eftir að minnast á Einar Torfason í hlutverki Schlossers húsvarðar. Hann féll vel inn í þetta gyðingalega Bronxumhverfi. Um leikstjórn Hauks J. Gunn- arssonar er það að segja að hún var hófsöm og í anda raunsæis- stefnu Cliffords Odets. Leik- mynd Björns Björnssonar er ekki fallin til bollalegginga. Þýðing Asgeirs Hjartarsonar er vönduð, en full bókmálsleg á köflum. Leikfélag Kópavogs hefur nú fengið til liðs við sig unga leikara sem menntast hafa í Leiklistarskóla Islands, áhuga- samt fólk sem líklegt er til góðra hluta. Árangursríkt starf Leiklistarskólans kemur nú æ betur í ljós. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON átti hér myndir á sýningu ekki fyrir löngu, en það, er hann nú sýnir, er mun betra að mínum dómi, en það er hann hefur sýnt hér áður. Sérlega var pastell-myndgerð hans mér að skapi. Finnar eiga þarna forláta grafíklistamenn eins og Helmi Kuusi með ágæt verk og Tuulikki Pietila með mjög aðlaðandi grafík, þar sem hann hefur skerjagarðinn að fyrirmynd. Norðmenn eiga einnig frábæran grafíker á þessari sýningu. Hann er Dag Fyri, sem sýnir mikla tækni og viðkvæma myndgerð. Af Svíum fannst mér skemmtilegast að kynnast verkum Nils André Malmström, sem gerir verk sín í brenndan leir og nær skemmti- legum árangri. Af Dönum er sérstæðastur Jens V. Rasmussen, en hann virðist dálítið einhæfur og hefur afar danskan tón í verkum sínum. Emil Hörbov er einnig Dani og sýnir bæði olíumálverk og teikningar. Teikningar hans eru margar héðan af landi 9g stinga nokkuð í stúf við málverk hans, sem einnig eru dæmigerð fyrir danska myndlist. Af myndhöggvurunum var það Daninn Jytte Thompson, sem vakti mestan áhuga minn. Mósaik hennar er ágætt verk og eins og mósaik á að vera, en hefur ekki verksmiðjusvip þann, er við okkur blasir daglega í þessari borg. Framhald á bls. 36 Af sértökum ástœðum getum við boðið fáeinar DODGE ASPEN ogPL YMOUTH VOLARÉ 2ja og 4ja dyra, árgerð 1977, ídeluxe útgáfum með sérstöku uekifcerisverði. Bílamir verða til afgreiðslu í byrjun apríl. Látið þetta uekifæri ekki framhjá ykkur fara. Hafið samband við okkur strax í dag og tryggið ykkur Dodge Aspen eða Plymouth Volaré á sérstöku afsláttarverði. Hér er aðeins um takmarkaðan fjölda að rceða. 1/ökull hf. Ármúla 36 Sími:84366 PLJDVCI CD V#I III m öinCl* flWVMIW Símar: 83330 - 83454 BILASALA HINRIKS HARALDSSONAR Vesturgöm 57. - Akrarteu - Sími: 93-1143 SNIÐILL HF. Óseyri 8 - Akureyri Sími: 22255

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.