Morgunblaðið - 14.03.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.03.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978 19 Frumvörp um ávöxtun á fé lífeyrissjóða — Misræmi milli lögbundinna og ólögbundinna sjóða Pétur Sigurðsson, alþingismaður: Pétur Sigurðsson (S) flytur frv. til laga um breytingar á fjórum lífeyrissjóðum sjómanna, starfsmanna ríkisins, barnakennara og hjúkrunarkvenna. Meðflutningsmenn með fyrst talda frv. eru ólafur G. Einarsson (S), Garðar Sigurðsson (Abl) og Þórarinn Þórarinsson ÍF). Með- flutningsmenn með þremur hinum síðari eru ölafur G. Einarsson (S) og Gunnlaugur Finnsson (F). Frumvarpið um lífeyrissjóð sjómanna var afgreitt frá neðri deild til efri deildar Alþingis í gær, en hin eru í nefnd, eftir 1. umræðu í deildinni. Efnisatriði frv. eru hin sömu og eru á þessa leið. 2. málsgr. 4. gr. laganna orðist svoi Stjórn sjóðsins skal sjá um ávöxtun á fé hans, og skal það gert á eftirfarandi hátti 1. ríkisskuldabréfum. 2. skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs. 3. skuldabréfum bæjar- og sveitarfélaga. 4. vaxtabréfum veðdeildar Landsbankans og Búnaðar- bankans. 5. í bönkum og sparisjóðum sem fullnægja ákvæðum laga nr.,69/1941. 6. í skuldabréfum tryggðum með veði í húseignum allt að 65% af brunabótamatsverði, eða sé brunabótamat ekki fyrir hendi þá af matsverði, sem ákveðið er af tveim mönnum, sem fjármálaráðherra tilnefnir, og allt að 75% af fasteignamatsverði lóða í kaupstöðum og kauptúnum. Lög þessi öðlast þegar gildi. Pétur Sigurðsson mælti fyrir þremur þessara frv. á Alþingi fyrir helgina. Framsaga hans fer hér á eftir að meginmáli: Til skýringar á frumvörpunum vil ég vitna til greinargerðar en þar segir með leyfi forseta: „Fjórir lögbundnir lífeyrissjóðir hafa nú skilyrðislaus ákvæði um tryggingu á 1. veðrétti í fasteign- um eða ríkisábyrgð, þegar lífeyris- sjóðslán eru úr þeim tekin. Þessir sjóðir eru: Lífeyrissjóður sjó- manna, Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins, Lífeyrissjóður barnakennara og Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna. Fimmti lög- bundni sjóðurinn, Lífeyrissjóður bænda, er ekki bundinn af lögum um tryggingar, en í 5. gr. 1. nr. 101 frá 1970 um Lífeyrissjóð bænda segir: „Heimilt er sjóðsstjórn að veita lán til íbúðabygginga fyrir sjóðfélaga gegn veðrétti í fasteign- inni“, og enn fremur segir þar: „Í reglugerð skal nánar kveðið á um fasteignaveð og aðrar tryggingar, sem krafist skal við lánveitingar og verðbréfakaup". Misræmið milli lögbundnu sjóð- anna fjögurra og pkvæða þessa efnis hjá ólögbundnum sjóðum kom m.a. fram í flutningi frv. um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð sjómanna nú fyrir skömmu og ég hefi áður gert grein fyrir. Á þetta er einnig bent rækilega i jákvæðri umsögn þingfundar um það frv. Einnig erfiðleikana við að fram- kvæma ákvæði framangreindra laga um, að skylt sé að tryggja með lögum veðrétti í fasteign þegar veitt er lífeyrissjóðslán úr sjóðum þessum. Húsnæðismála- stjórn krefst undantekningarlaust 1. veðréttar. Hafa stjórnir lífeyris- sjóðanna því freistast til að lána með 1. veðrétti B, er víki fyrir lánum húsnæðismálastjórnar. Hafi lántaki 1. veðrétt bundinn af einhverjum öðrum lánum hús- næðismálastjórnar, hefur hann orðið að ganga í byggingarsam- vinnufélag til að eiga kost á ríkisábyrgð samkv. ákvæðum c-liðar, 15. gr. 1. nr. 36 frá 1952 um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kaup- túnum. Með 1. nr. 59 frá 1973 átti að takmarka mjög veitingu ríkis- ábyrgða, en í 11. gr. 1. þessara segir: „Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1974 og taka til allra þeirra íbúða, sem þá hafa eigi verið afhentar eigendum. Frá sama tíma falla úr gildi lög nr. 26 frá 1952 um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kaup- túnum. Þau lög gilda þó áfram um íbúðir á vegum byggingarsam- vinnufélaga, sem hafist hefur verið handa um að reisa eða veitt hafa verið lán til með ríkisábyrgð fyrir gildistöku þessara 1. I reynd hefur allt frá því að lög nr: 59 frá 1973 tóku gildi engin heimild verið til veitingar ríkisábyrgða vegna húsa, sem hafist var handa við að byggja eftir 1. jan. 1974. Slíkt hefur þó verið gert til að gera mönnum kleift að taka lífeyris- sjóðslán sín. í framkomnu frv. um breytingu á 1. um Lífeyrissjóð sjómanna er lagt til, að skylt sé að hafa veðtryggingu i fasteign innan við 50% af brunabótamati viðkomandi fasteignar eins og það er á hverjum tíma. Nú hefur verið upplýst af fjmrn., að við veitingu ríkisábyrgða hafi það yfirleitt miðað við, að eigi sé farið yfir 50% af brunabótamati. Heimilað hefur þó verið að fara allt upp í 65% af brunabótamatinu. Reynt hefur verið að greiða fyrir fólki, er festir kaup á litlum íbúðum, þannig að íbúðirnar gætu í reynd verið að veði fyrir húsnæðismálastjórnarláni, líf- eyrissjóðsláni og upphæð þar til viðbótar, er svarar til hálfs láns húsnæðismálastjórnar. Slík lán hafa stundum fengist hjá spari- sjóðum eða hjá aðilum, sem gera mjög strangar veðtryggingarkröf- ur. Ymsir lífeyrissjóða hafa 60—65% mörk, t.d. Lífeyrissjóður Sóknar, Lífeyrissjóður vörubif- reiðastjóra og biðreikningur líf- eyrissjóðsiðgjalda. Telja verður óráðlegt með hliðsjón af ofansögðu að binda veðtrygginguna við 50% af brunabótamati. Lagt er hér til, að veðtryggingin verði að hámarki 65%. og það verði á valdi stjórnar að hvaða marki hún sé nýtt. Eins og hér kom fram áðan, þá hefur félagsmálanefnd efri deildar samþykkt að mæla með og það þegar' samþ. hér í hv. d. þá breytingu á frv. til 1. um breyt. á 1. um Lífeyrissjóð sjómanna, sem er samhljóða því frv., sem hér er flutt og þeim frv. tveim, sem í kjölfarið fara. I erindi fjmrn. kom fram, að 1. veðréttur sé sjaldnast laus vegna húsnæðismálastjórnarlána og lagaheimild ekki fyrir hendi til veitinga ríkisábyrgða, þegar um nýbyggingu er að ræða. Brýna nauðsyn beri því til að breyta tryggingarákvæðum hjá öllum þeim sjóðum, er með lögum eru bundnir við 1. veðrétt eða ríkis- ábyrgð með útlán sín. Ráðuneytið leggur því til, að veðtryggingar- ákvæði verði samhljóða í 1. líf- eyrissjóða sjómanna, starfsmanna ríkisins, barnakennara og hjúkrunarkvenna. Það er tekið fram i grg. að nokkrir aðilar hafi mælt með að þessi frv. verði flutt. Þess hefur þó ekki verið getið sem þar hefur vegið hvað þyngst, en það er að hinn almenni félagsmaður og félagsmenn í öllum þessum sjóðum mæla eindregið eða óska eindregið eftir því að þessar breytingar nái fram að ganga. Stjórnarfrumvörp: Áskorunarmál og breyting á tollskrárlögum —Þingsályktun um iðnað í strjálbýli Áskorunarmál Lagt hefur verið fram Stjórn- arfrumvarp um áskorunarmál, samið af réttarfarsnefnd. Frv. felur í sér nokkrar breytingar á lögum um þetta efni nr. 49/ 1968. Frumvarp til laga um áskor- unarmál var á sínum tíma samið af Magnúsi Thoroddsen borgardómara og Stefáni Má Stefánssyni núverandi prófess- or. Hefur verið haft samráð við þá um breytingar þær, sem lagt er til að gerðar verði á lögunum. Ný þing- mál Þá hefur borgardómaraembætt- ið í Reykjavík fengið frumvarpið til athugunar og telur það breytingarnar til verulegra bóta. Áskorunarmál hafa verið tæplega helmingur af dæmdum útivistarmálum á bæjarþingi Reykjavíkur undanfarin ári. Árið 1976 voru þau 2109 en 2005 árið 1977. Önnur skriflega dæmd útivistarmál voru 2186 árið 1976 en 2197 árið 1977. Nokkrar líkur eru á, að áskorun- armálum fari hlutfallslega fækkandi á næstu árum. Ástæð- an mun m.a. vera sú, að lögmenn vilja spara sér ferð á fund dómara til að fá útgefna áskor- unarstefnu, en samkvæmt nú- gildandi lögum er skylt, að dómari gefi út áskorun á hendur stefnda að greiða stefnukröf- urnar. Skal áskorun þessi rituð eða stimpluð á stefnu. Lögin um áskorunarmál hafa reynst vel í framkvæmd og eru tvímæla- laust til þess fallin að flýta meðferð mála, spara dómurum tíma og minnka vélritun. Þykir því rétt að Ieggja til, að sú breyting verði gerð á þeim, að stefnandi geti sjálfur gefið út áskorunarstefnu. Það mundi einnig spara vinnu fyrir dómara við að lesa og gefa út stefnu. Er breyting því við það miðuð, að stefnandi geti valið um, hvort hann fær dómara til þess eða geri það sjálfur. Þá er lagt til, að stefnukröfur verði aðfararhæfar að liðnum sjö sólarhringum frá áritun dómara um aðfarahæfi, án þess að sérstök birting þurfi að fara fram. Mundi það spara tíma og fyrirhöfn fyrir stefnanda og flýta endanlegri afgreiðslu máls. Ástæðan fyrir hinum mikla fjölda skuldamála hér á landi er í flestum tilfellum vilja- eða getuleysi skuldara til að greiða skuld sina. Aðeins ör- sjaldan er krafan umdeild. Réttarfarsnefnd telur, að breytingar þær, sem frumvarpið felur í sér muni stuðla að fjölgun áskorunarmála og þar með flýta meðferð mála og auka afköst dómstóla. Breytingar á tollskrárlögum Þá hefur verið lagt fram frv. til breytinga á lögum nr. 120/ 1976 sbr. lög nr. 24/ 1977. Frv. fjallar um ýmsar breytingar á gildandi tollskrárlögum og er fyrst og fremst lagt fyrir Alþingi til þess að samræma íslenzku tollskrána þeim breyt- ingum, sem gerðar hafa verið á tollnafnaskrá Tollasamvinnu- ráðsins frá því að hún var gefin út að nýju í janúar 1976 með áorðnum breytingum, m.a. nýrri undirskiptingu tillnafnaskrár- innar sem samþykkt var fyrir tilstilli Tölfræðistofnunar Sam- einuðu þjóðanna. I gr.g. með frv. segir m.a.: „Breytingar þessar valda þó ekki einá mikilli breytingu á tollum og ætla mætti. Stafar það m.a. af því að tolltaxtar íslenzku tollskrárinnar eru ekki eins margvíslegir og víðast hvar annars staðar og sömu tolltaxt- ar eru hér fyrir skyldar vörur innan sama flokks og kafla...“ Þjónustu- og úrvinnsluiðnaður í sveitum Helgi F. Seljan o.fl. þingmenn Alþýðubandalagsins flytja til- lögu til þingsályktunar um eflingu þjónustu og úrvinnslu- iðnaðar í sveitum. Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að beita sér fyrir sérstökum stuðningi opinberra aðila við stofnun þjónustu- og úrvinnsluiðnaðar í sveitum. Byggðadeild Framkvæmda- stofnunar ríkisins skal falið að rannsaka möguleika smáiðnað- ar í sveitahreppum, safna hug- myndum um hugsanlegar fram- leiðslugreinar, kanna viðhorf og áhuga heimamanna víðs vegar um land og gera áætlun um framkvæmdir. Við undirbúning þessa máls ber einnig að taka mið af þeirri allsherjarathugun og tillögugerð varðandi atvinnu- möguleika aldraðra, sem sam- þ.vkkt hefur verið á Alþingi. Jafnframt skal lánadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins falið að veita heimaaðilum aðstoð við stofnun fyrirtækja, sem komið er á fót samkvæmt þessari áætlun, og skipuleggja fjármagnsöflun til fram- kvæmda. Sérstaklega ber að kanna möguleika á stofnun framleiðslusamvinnufélaga í sveitum og skal því rekstrar- formi veittur sérstakur stuðn- ingur. Stuðla ber að því, að veitt verði óafturkræf framlög úr Byggðasjóði eða ríkissjóði til stuðnings smáiðnaði í sveitum, allt að 15% stofnkostnaðar. Þegar ár er liðið frá samþ.vkkt þessarar tillögu skal ríkisstjórn- in gefa Alþingi skýrslu um framkvæmd hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.