Morgunblaðið - 14.03.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
35
Félag ísl. stórkaup-
manna mótmælir
skertri álagningu
Blaðinu hefur borizt svohljóð-
andi ályktun írá Félagi ís-
lenzkra stórkaupmannai
Félag íslenzkra stórkaup-
manna mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun verðlagsyfirvalda að
lækka verzlunarálagningu um
10% í kjölfar gengisfellingarinn-
ar í febrúar.
Frá því álagning var lítillega
leiðrétt í apríl 1975 eftir lækkanir
í kjölfar gengisfellinga í sept.
1974 og febrúar 1975 hefur
álagning aðeins verið leiðrétt
einú sinni eða í nóvember 1977,
en sú takmarkaða leiðrétting
hefur nú verið tekin að fullu
aftur.
Alagning í heildsölu er aftur
komin í fyrra lágmark. í greinar-
gerð verðlagsstjóra fyrir tillög-
unni til hækkunar í nóvember s.l.
segir, að í skýrslu þjóðhagsstofn-
unar um verzlun komi fram að
afkoma þeirra greina sem bundn-
ar eu verðlagsákvæðum sé
almennt ekki góð og í sumum
tilfellum slæm, og hækkunin
aðeins miðuð við að verzlunin
geti haldið í horfinu. Lækkun nú
er alveg órökstudd.
Félag íslenzkra stórkaup-
manna mótmælir því harðlega að
álagning í -heildverzlun er nú
mun lægri en hún hefur verið
áður, á sama tíma og allir
kostnaðarliðir hafa stórhækkað,
þar má nefna vexti, gjöld til pósts
og síma svo sem af telexi,
vinnulaun o.fl. Rekstrarfjár-
skortur heildverzlunar hefur
aldrei verið meiri og eru vaxandi
erfiðleikar með að fjármagna
eðlileg vörukaup, sem dregur úr
viðskiptaþjónustu, neytendum til
tjóns.
Félag íslenzkra stórkaup-
manna leggur áherzlu á að
heildverzluninni verði heimiluð
eðlileg starfskjör og álagning
miðuð við þarfir vel rekinna
fyrirtækja svo heildverzlun geti
gegnt sínu mikilvæga hlutverki í
íslenzku þjóðfélagi.
Dómsmál — dóm-
ur Hæstaréttar
í þættinum Dómsmál í blaðinu á
sunnudag þar sem tekið var
fyrir mál þar sem deilt var um
skilyrði ráðherra er veitt var
leyfi fyrir verksmiðjuskipinu
Norglobal, féll niður sjálfur
dómur Hæstaréttar 26. janúar,
s.l. sem var á þá leið, sem hér
greiniri
Ekki á valdi
ráðherra
að ákveða
gjaldtökuna
Hafnarsjóður Seyðisfjarðar
áfrýjaði niðurstöðu héraðsdóms
til Hæstaréttar með stefnu 5.
mars 1976 og gerði þar sömu
kröfur, en stefndu kröfðust þar
staðfestingar á hinum áfrýjaða
dómi.
verði ekki talið, að með bréfa-
skiptum stefnda, Hafsíldar h/f,
og sjávarútvegsráðherra hafi
stefndu orðið skuldbundnir gagn-
vart áfrýjanda til að greiða
honum fé, er svari til þess
aflagjalds sem loðnuseljendur
hefðu þurft að greiða áfryjanda
ef þeir hefðu skipað afla sínum
upp í Seyðisfjarðarhöfn í stað
þess að selja hann stefndu til
vinnslu í Norglobal. Að svo vöxnu
máli beri að staðfesta niðurstöðu
hins áfrýjaða dóms.
í héraði dæmdi Magnús Thor-
oddsen, borgardómari, í málinu
en í Hæstarétti hæstaréttar-
dómararnir Björn Sveinbjörns-
son, Benedikt Sigurjónsson, Logi
Einarsson, Magnús Þ. Torfason
og Þór Vilhjálmsson.
AJR.
M-420 l. .. I - ■ . m '■
Litla Ijósritunarvélin
meðstóru
kostina
Nýjasta gerðin af Apeco ljósritunarvélum
heitir M 420. Þessi vél hefur ýmsa kosti, sem
gera hana aðgengilegri en aðrar
ljósritunarvélar.
APECO M420 er:
Lítil og nett rúlluvél. ^
Tekur varla meira pláss en ritvél.
Lengd ljósritsins má stilla frá 20—36 cm.
Ódýrari en flestar sambærilegar vélar.
Auðveld í notkun. ^
Með pappírsstilli.
\ \
%
Hafið samband við
sölumenn okkar strax í dag.
Sýningarvél í söludeild,
Hverfisgötu 33.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
% +
x ^ Hverfisgötu 33
Sími 20560 - Pósthólf 377
í niðurstöðum réttarins segir
m.a. að með bréfi stefnda, Haf-
síldar " h/f, til
sjávarútvegsmálaráðherra 22.
janúar 1975 var þess farið á leit,
að stefndu yrði heimilað að taka
verksmiðjuskipið Norglobal á
leigu og var aðalleiguskilmála
getið. I bréfi ráðherrans 24.
janúar s. á. sagði, að hann
samþykkti fyrir sitt leyti, að
skipiö yrði tekið á leigu og
starfrækt hér við land á næstu
loðnuvertíð. Síðan var getið 4
atriða.
Ákvæði 24. gr. hafnarreglu-
gerðar fyrir Seyðisfjarðarkaup-
stað nr. 151/1962, sbr. 4. gr. og
5. gr. reglugerðar nr. 271/1972 og
2. tl. 12. gr. hafnarlaga nr.
45/1973 veittu áfrýjanda ekki
heimild til þess beint eða fyrir
lögjöfnun að innheimta svonefnt
aflagjald, er ákvarðað væri sam-
kvæmt framangreindum reglu-
gerðarákvæðum, af loðnuafla,
sem skipað var upp í verksmiðju-
skipið Norglobal utan marka
Seyðisfjarðarhafnar. Þá verði
áðurgreint bréf sjávarútvegsráð-
herra til stefnda, Hafsíldar h/f
ekki heldur metið löglegur grund-
völlur fyrir áfryjanda til þeirrar
gjaldtöku. Sé hvorki sérstaklega
mælt fyrir í bréfinu um
álagningu og greiðslu aflagjalds
né heldur hafi það verið á valdi
ráðherra að ákveða gjaldtökuna
utan þeirra tilvika sem greind
eru í 2. tl. 12. gr. hafnarlaga. Loks
OHARIAR
Nú á tímum fjöldaframleiðslu og færibanda finnst mörgum að flatneskjan
ráði ríkjum; mismunur milli hluta verði sífellt minni og minni.
Á þetta ekki síst við um margar bílategundir nútímans.
Citroén verksmiðjurnar hafa aldrei fylgt þessari þróun.
Þar er krafist auðugs hugmyndaflugs og frjórrar hugsunar
itroen»gspallas yið íeikniborðin. Víðtæk tækniþekking og fullkomin vandvirkni
eru skilyrði, sem ekki eru umflúin. Enda er árangurinn einstæður.
CITROEN ® CX PALL AS
Við nefnum nokkur dæmi:
Vökvafjöðrun, hæðar- og hleðslujafnari, þrjár mismunandi
hæðastillingar, straumlína í lögun, framhjóladrif, góð ending.
Öll þessi atriði ásamt ótal fleiri eru ánægjuleg
sönnun þess, að saman geta farið þægindi, fegurð og sparneytni.
En gjörið svo vel, — reynsluakið, það er raunhæfast.
G/obus? SÍMI81555
CITROÉN
w
argus