Morgunblaðið - 31.03.1978, Page 2

Morgunblaðið - 31.03.1978, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978 Aukatónleik- ar Sinfóníu- hljómsveit- ar Islands LAUGARDAGINN 1. aprfl held- ur Sinfóníuhljómsvcit íslands aukatónleika í Iláskólabiói oií eru þetta miðnæturtónleikar, sem hefjast kl. 23.30. Eru þcir með allnýstárleKu sniði og með tilliti til dagsins. 1. aprfl. en vi'ða um heim eru haldnir tónleikar þenn- an dag sem eru sjarnan nefndir „aprflKahb“. I frétt frá Sinfóníuhljóm- sveitinni segir svo um tónleikana: Sinfóniuhljómsveit íslands hef- ur fengið 4 erlenda listamenn til að stjórna og taka þátt í þessum tónleikum. Skal þar fyrstan telja háðfufílinn og tónlistargagnrýn- andann Denb.v Richards, en hann hefur sviðsett svipaða tónleika og þessa þennan dag 12 sinnum í London við mikla hrifningu. Þá kemur einnig frá London tón- Framhald á bls. 18 V estmannaey jar: Aðeins sex skip til kol- munnaveiða við Færeyjar? Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú auglýst eftir umsóknum um kolmunnaveiðar á vori komanda og rennur umsóknarfrestur út 25. aprfl n.k. en þá er gert ráð fyrir að kolmunnaveiðar hefjist á Færeyjamiðum. ef miðað er við reynslu fyrri ára. íslendingar hafa hcimild til að veiða 35 þúsund lestir af kolmunna við Færcyjar í ár. sem er mun meira en þeir máttu vciða í fyrra en þá var langt frá því að hægt væri að fullnýta kvótann. Jón B. Jónasson deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að alls mættu 15 íslenzk skip stunda kolmunnaveiðar innan færeyskrar fiskveiðilögsögu og alls 17 ef Ný símaskrá í prentun NY simaskrá er í prentun og verður hún vænt^nlega afhent símnotendum upp úr miðjum aprfl samkvæmt upplýsingum Ilafsteins Þorsteinssonar sím- stjóra í Reykjavík. Símaskráin verður að þessu sinni í 100 þúsund eintaka upplagi. Hún verður heldur stærri en skráin, sem nú er í notkun, eða tæpar 700 blaðsíður. Símaskráin er prentuð í Odda og fara í hana 100 tonn af pappír. einhver skip væru með tvílemb- ingsvörpu. Kvað Jón mjög ósenni- legt að svo mörg íslenzk skip yrðu búin til þessara veiða í vor, en hins vegar væru starfsmenn sjávarút- vegsráðuneytisins að kanna hvað hægt væri að gera til að hvetja menn að stunda þessar veiðar frekar. Morgunblaðinu er aðeins kunn- ugt um sex íslenzk skip, sem verða vel búin til kolmunnaveiða í vor. Eru það Sigurður RE, Börkur NK, Víkingur AK, Bjarni Ólafsson AK, Narfi RE og hið nýja skip Fiskaness h.f. í Grindavík, sem væntanlegt er til landsins í byrjun maí. Þá er og vitað, að Breki VE og Óskar Halldórsson AK eru einnig vel búnir til kolmunnaveiða, en búizt er við að eigendur þeirra sendi þau frekar til veiöa með botnvörpu í sumar eða fram eftir sumri. Loðnufrysting aðeins nokkur hundruð tonn — en 2300 tonn fryst af hrognum LOÐNU- og hrognafrysting fór að mestu leyti forgörðum í vetur. en Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sjávarafurðadeild Samhandsins og íslenzka umhoðssalan höfðu öll Ný ljóðabók eftir Sigurð A. Magnússon IIJÁ Helgafelli kemur út í dag ljóðabók eftir Sigurð A. Magnús- son. sem nefnist „í ljósi næsta dags" og er bókin gefin út á fimmtugsafmæli höfundar. Sigurður A. Magnússon Efni bókarinnar skiptist í þrjá meginkafla: Tilbrigði, Tildrög og Tilræði, auk ljóðsins Að yrkja. Á bókarkápu segir: „Sigurður A. Magnússon á að baki óvenju fjölbreytt bókmenntaverk: ljóð, sögur, leikrit, ferðabækur, rit- gerðir og þýðingar í bundnu og óbundnu máli. Hann hefur verið skeleggur gagnrýnandi og aðsóps- mikill ritstjóri undanfarna ára- tugi. I ljóðagerð er hann nýstefnu- maður og andlegar og pólitískar hræringar samtímans eiga sterk ítök í ljóðum hans. Jafnframt ástundar hann líka innhverfari ljóðagerð, sem ber ljós merki einkalegrar reynslu. Báðir þessir þættir koma mjög eftirminnilega fram í þessari nýju ljóðabók hans.“ Ljóðabókin í ljósi næsta dags er 76 blaðsíður og eru í henni 37 ljóð. gert samninga við Japani um sölu á loðnu og loðnuhrognum í vetur. Morgunblaðið aflaði sér þeirra upplýsinga f gær. að aðeins hefðu verið fryst nokkur hundruð tonn af loðnu en hrognafrystingin fór yfir 2000 lestir. Frystihús innan vébanda Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna frystu um 2000 lestir af hrognum og nokkur hundruð tonn af loðnu, og var hlutí loðnunnar ætlaður til beitu á innanlandsmarkað. Frystihús innan Sambandsins frystu síðan 330 tonn af hrognum og loðnufrysting til útflutnings nam aðeins-35 lestum. í upphafi vertíðar höfðu menn gert sér vonir um að SH-frystihúsin myndu frysta allt að 5000 lestir af loönu og Sambandsfrystihúsin um 3000 lestir. Ilvað frystingu hrogna snertir, þá hljóðuðu samningar upp á það magn, sem mögulegt væri að frysta í vetur. Tveir skipstjórar teknir fyrir dóm SKIPSTJÓRAR tveggja Vest- mannaeyjabáta, sem Landhelgis- gæzlan hafði kært fyrir að hafa brotið reglur þorskveiðibannsins um hámark af þorski í afla voru teknir fyrir dóm hjá bæjarfóget- anum í Vestmannaeyjum í gær. Að sögn Júlíusar B. Georgssonar fulltrúa, sem er dómsformaður, voru teknar skýrslur af skipstjór- unum. Svo sem kunnugt er af fréttum voru skipstjórar tveggja báta til viðbótar kærðir. Annar bátanna kom inn seint í gærkvöld og var farinn aftur á sjó snemma í gærmorgun og tókst ekki að ná skipstjóranum fyrir dóm. Verður hann tekinn fyrir dóm við fyrsta tækifæri svo og skipstjóri fjórða bátsins. Júlíus sagði að mál skipstjór- anna yrðu send ríkissaksóknara til umsagnar. Mun hann síðan taka um það ákvörðun hvort málin verða felld niður, þau afgreidd með sátt eða ákæra gefin út. Meðdómendur með Júlíusi eru skipstjórarnir Friðrik Ásmunds- son og Steingrímur Arnar. Yfirlæknir Freeport heimsækir Reykjavík Börkur, Sigurður og Víkingur stunduðu kolmunnaveiðar við Færeyjar í mánaðartíma í fyrra með misjöfnum árágri. En eftir því sem leið á veiðitímabilið gekk íslenzku skipunum betur. Skipin áttu lengi vel í vandræðum með vörpurnar, þar sem þær voru of veikbyggðar til þessara veiða. Þá var Börkur NK á kolmunnaveiðum undan Austfjörðum. í 18 daga í ágústmánuði á s.l. ári. Gengu þær veiðar framar vonum og fékk skipið 3600 lestir á þessum tíma. Háði það skipverjum, að Börkur var einskipa og þurfti því að leita að góðum lóðningum í hvert skipti, sem komið var á miðin, en það sem réð úrslitum um það, að skipið var ekki lengur á kolmunnaveiðum, var að ekki fékkst nándar nærri eins gott verð fyrir kolmunnann og loðnuna í fyrrasumar. DR. FRANK Herzlin yfirlæknir Freeport-sjúkrahússins í New York kemur til íslands n.k. mánudag í boði Freeport-klúbbs- ins. Mun hann dvelja hérlendis í rúma viku og ræða m.a. við ráðamcnn og lækna, flytja fyrir- lcstur i Iláskólanum. kynna sér starfscmi SÁÁ og Vífilsstaða og tala á opnum fundi hjá AA-sam- tökunum. Einnig mun hann halda fræðslufundi fyrir almenning þar sem hann ræðir áfengismál, og vcrða þeir dagana 8. og 9. aprfl. Dr. Herzlin fékk áhuga fyrir málefnum alkóhólista fyrir um 15 árum og var þá einn af fáum læknum í Bandaríkjunum sem höfðu hug á læknismeðferð drykkjusjúka, segir í frétt frá Freeport-klúbbnum. Stofnaði hann Freeport-sjúkrahúsið og hefur helgað alla krafta sína baráttunni við drykkjusýki. Marg- ar af aðferðum hans hafa verið teknar upp á öðrum sjúkrahúsum og stofnunum fyrir alkóhólista. Dr. Frank Herzlin Hefur honum m.a. verið boðið í fyrirlestrarferðir og aðstoðað við gerð útvarps- og sjónvarpsþátta um sjúkdóminn. Olíukynding aftur 1 gagnið í Siglufirði BÚIÐ var að tengja olíukyndingu á nýjan leik við flest hús í Siglufirði í gærmorgun og gekk það verk mun greiðar en síðast. að sögn Snorra Björns Sigurðssonar. bæjarritara, enda menn komnir í æfingu. kort til yfir öll húsin með slíka kyndingu og gert hafði verið við gömlu kyndingarnar víða þegar heita- vatnsleysið hrjáði bæjarbúa síðast. Auk þess hjálpar nú upp á sakirnar að veðurfar hefur verið mun hagstæðara en var þegar snjóflóð í Skútuda! lagði hitaveituna i' Siglu- firði í rúst fyrir fáeinum vikum. Að sögn Snorra eru menn enn að gæla við þá von að ekki hafi orðið miklar skemmdir á sjálfum dælu- búnaðinum fyrir hitaveituna í Skútudal enda þótt vitað væri að húsið þar væri í maski, enda hefði það verið veigalítið bráðabirgðahús- næði er reist var í snatri eftir síðasta snjóflóð. Nú væri talið að 3—5 metrar væru niður á dælubúnaðinn og væru helzt hugmyndir uppi um að láta um 20 manna vinnuflokk handmoka ofan af búnaðinum. Snjóbíll brauzt yfir Siglufjrðar- skarð í gær nokkru á undan vega- vinnuflokknum sem var að moka leiðina í gær og átti snjóbíllinn síðan að flytja flokk manna í Skútudal til að kanna aðstæður og hefja þar vinnu. Snorri Sigurösson sagði hins* vegar að ef kæmi á daginn að þetta verk reyndist of tafsamt, þá væri stórvirkur snjóblásari á leið með skipi frá ísafirði til Siglufjarðar fyrir snjómokstursmenn Vegagerð- arinnar og myndi Siglufjarðarbær geta fengið afnot af honum, ef á þyrfti að halda. Færeysku tog- aramir koma ekki fyrr en 11. apríl n.k. EINS og Morgunblaðið hefur skýrt frá áður, þá mega færeysk fiskiskip nú hefja veiðar á ný við ísland. samkvæmt fiskveiðisamn- ingi ríkjanna. Færeyska landsstjórnin hefur heimilað 11 línuskipum að hefja veiðar við Island en hins vegar hefur stjórnin ekki heimilað tog- urum að hefja veiðar hér við land strax og mega þeir ekki hefja veiðar á ný fyrr en 11. apríl n.k. Færeysk fiskiskip hættu veiðum á íslandsmiðum í janúar s.l., en þá höfðu þau veitt upp í .kvótann, sem er í gildi. Nordurleidin opnaðist í gær NORDURLEIÐIN opnaðist í gær en pá tókst aö opna Öxnadalsheíðí en fært var um Holtavörðuheiöi og Vatnsdal. Þá var í gær kappsamlega unnið að pví aö opna leíðina til Siglufjarðar par sem er mikill snjór og einnig leiðina út frá Akureyri til Dalvíkur og til Ólafsfjaröar fyrir Múlann. Frá Akureyri var í gær hins vegar ófært til Húsavíkur en ráðgert að hefja mokstur á leiðinni um Dalsmynni í dag. Þá var í gær verið aö moka í Mývatnssveit og austan Tjörness og allt til Þórshafnar. Þar fyrir austan er hins vegar allt ófært. Þá eru fjallvegir á Austfjörðum enn ófærir nema hvað Fagridalur var opnaður og mokað allt suður til Fáskrúösfjaröar, svo að þar um er fært allt suður um og um Suðurlandið. Þó var nokkur snjókoma í Mýrdalnum í gær en spillti þó ekki færð að neinu marki. Á Vestfjörðum breyttist ástand lítið frá , því sem var daginn áður nema hvað hafinn var mokstur milli Þingeyr- ar og Flateyrar og einnig þurfti í geermorgun að ryðja Óshlíðina. Haft var samband við Mbl. frá Hellissandi og sagt að rangt væri að Útnesvegur væri ófær — hann hefði veriö fær alveg frá því fyrir páska.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.