Morgunblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 5
Stakk lög- regluna af tvívegis og var svipt- ur ökuleyfi Hafnarfjarðarlögreglan átti í fyrrakvöld í höggi við öku- fant á amerískum bfl, sem ók um bæinn á ofsaferð og braut allar mögulegar umferðar- reglur. Fór hraðinn mest í 150 km á Reykjanesbrautinni en innanbæjar ók hann oft á um 100 km hraða. Eltingaleikur- inn stóð í tæpan hálftíma en þá brá lögreglan á það ráð að hætta eftirförinni vegna siysa- hættu enda hafði hún þá borið kennsl á bflinn og ökumann- inn. Átti að sækja hann heim við fyrstu hentugleika. I gærmorgun greip lögreglan svo í tómt þegar hún ætlaði að sækja kauða því hann var farinn til Grindavíkur og kom- inn í róður. Hins vegar tók lögreglan bílinn í sína vörzlu. Ökumaðurinn, sem er 18 ára piltur, var í gær sviptur öku- leyfi að honum fjarstöddum því auk þessa glannaaksturs hafði hann verið staðinn að því að aka undir áhrifum áfengis. Fimm hljóta fálkaorðuna FORSETI íslands hefir í dag sæmt eftirtalda íslenska ríkis- borgara heiðursmerki hinnar fslensku fáikaorðui Eirík Brvnjólfsson, forstöðu- mann Kristneshælis, riddara- krossi, fyrir störf í þágu Kristnes- hælis; Gunnar Friðriksson, forseta Slysavarnafélags Islands, stórriddarakrossi, fyrir störf að slysavarnarmálum; Frú Jónu Er- lendsdóttur, fyrrverandi formann Hvítabandsins, riddarakrossi, fyr- ir líknar- og félagsmálastörf; Karl Guðmundsson frá Valshamri, fyrrverandi bónda, riddarakrossi, fyrir félagsmálastörf; dr. Sturlu Friðriksson, erfðafræðing, ridd- arakrossi, fyrir vísinda- og félags- málastörf. Athugasemd frá rafmagns- veitustjóra MORGUNBLAÐINU hefur borizt athugasemd frá Kristjáni Jónssyni, rafmagnsveitustjóra, vegna fréttar Mbl. um að hann hafi verið að pví kominn aö segja af sér. „Vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær vil ég taka fram eftirfarandi: Ummæli þau sem eftir mér eru höfð varðandi Vesturlínu má skilja á þann veg, að ég sé mótfallinn lagningu hennar. Þvert á móti er tenging samtengi- svæðis Mjólkárvirkjunar og Dala- veitu við landskerfið að minu mati mjög nauðsynleg framkvæmd, sem Rafmagnsveitur ríkisins gerðu til- lögu um til fjárlaga 1978. Fjölmenni á Snæfellsjökli UM PÁSKANA efndi Útivist til ferðar á Snæfellsnes og tóku bátt í henní 77 manns. Gist var í félagsheimilinu að Lýsuhóli og á páskadag gengu síðan 40 manns af hópnum á Snæfellsjökul. í frétt frá Útivist segir að veður hafi verið hið bezta, sól og „sindr- andi nýsnævi og þótti ferðalöngum, sem þeir hefðu himin höndum tekiö er upp kom." Segir einnig í fréttinni að þetta hafi verið fjölmennasti hópur sem gengið hafi á jökulinn. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978 5 NU I LOFTI Aldrei meira sportfatnaöi en einmitt nú úrval af TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS ÖSS KARNABJER M AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborói 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.