Morgunblaðið - 31.03.1978, Side 16

Morgunblaðið - 31.03.1978, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson Aðalstræti 6, simi 10100. Aðalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 90 kr. eintakið Grát, ástkæra fósturmold Morgunblaöið hefur birt bréf íslandsdeildar Amnesty International ásamt nöfnum þeirra, sem undir það skrifa, en hér er um að ræða opið bréf til Vorsters, forsætisráðherra S-Afríku, vegna kynþátta- misréttis þess, sem stjórn Suður-Afríku hefur látið viðgangast þar í landi — og ber raunar ábyrgð á. Ástæöa er til að taka heilshugar undir gagnrýni þá, sem í bréfinu felst, og jafnframt þær áskoranir á stjórn S-Afríku áð breyta stefnu sinni og koma á jafnrétti allra þegna í landinu, hvort sem þeir eru svartir eða hvítir. Þetta er í samræmi við stefnu Sameinuðu þjóð- anna og yfirlýsingu utan- ríkisráðherra Norðurlanda, sem birt var nýlega. Hitt er svo annað mál, að mannréttindi eiga undir högg að sækja víðar en í S-Afríku og sums staðar er ástandið jafnvel mun verra en þar í landi, eins og bent var á hér í Reykjavíkurbréfi á sl. sumri, þar sem rætt var um mannréttindamál í heimin- um og byggt á upplýsingum, sem blaðamaður Morgun- blaðsins aflaði sér hjá mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna í Genf, Sviss- landi. Ástandið í þessum málum er mjög slæmt í S-Afríku, en menn skulu ekki gleyma því, að þar í landi er einungis um hluta af vanda- málinu að ræða, svo hörmu- legt sem ástandið er í löndum eins og Uruguay, Uganda, miðalda einræðisríki Bokassa keisara í Afríku og víðar. Þá hafa Arabaríki tekið upp miðalda refsiaðgerðir og lög- leitt alls kyns trúarfyrirmæli Kóransins, sem eiga engan rétt á sér nú á dögum, s.s. að höggva hendur af þjófum o.þ.h. Fulltrúar mann- réttindanefndar Sameinuðu þjóðanna hafa horft upp á það með hryllingi að sjá afturförina í þessum efnum í landi eins og Egyptalandi, en þar hefur merkur stjórn- málamaður eins og Sadat látið það viðgangast, að þing landsins leiði það í lög á ný, að hendur séu höggnar af þjófum. Þá þarf ekki heldur að spyrja að ástandinu í kommúnistaríkjunum, en það er kunnara en frá þurfi að segja, Gulagið er á sínum stað og engum sögum fer af því, að íbúum þess fari fækkandi. Á Kúbu eru til- tölulega fleiri pólitískir fang- ar en nokkurs staðar annars og Castro hefur ekki leyft neinum að fylgjast með hög- um þeirra. Andi Stalíns stjórnar Kúbu. Samt eru Kúbukommar í „frelsisbar- áttu“ út og suður, t.a.m. í Afríku. Amnesty International á þakkir skilið fyrir árvekni sína. Samtökin hafa komið mörgu góðu til leiðar og þá ekki sízt í Sovétríkjunum, þar sem þau hafa rétt and- ófsmönnum hjálparhönd, svo um hefur munað. En forystu- menn Amnesty International þar í landi hafa fengið að súpa seyðið af starfsemi sinni, eins og margoft hefur verið skýrt frá í fjölmiðlum. íslandsdeild Amnesty International hefur tekið þátt í viðtækri herferð vegna ástandsins í S-Afríku, en hún hófst 18. jan. sl. og stóð yfir fram eftir þessum mánuði. Hið opna bréf til forsætisráð- herra S-Afríku er birt í fjölmiðlum víða um heim, jafnframt því sem reynt verður að fá það birt í fjölmiðlum S-Afríku og má vel vera að það vekji sam- vizku einhverra þeirra, sem standa fyrir kynþáttaofsókn- um og eiga þátt í því .að gera líf svartra manna í landinu nær óbærilegt. Leikritið um ástandið í S-Afríku, sem finnski leik- flokkurinn sýndi á Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu í fyrra, var flestum ógleyman- legt, enda voru listræn tök þess með þeim hætti, að það átti erindi við alla þá, sem unna merkilegri leiklist, en hafa ekki einungis áhuga á pólitískum áróðri af lélegasta tagi. Boðskapur leikritsins komst vel til skila vegna listrænna yfirburða. Hið sama má segja um bækur s-afríska rithöfundarins Alan Patons, sem þýddar hafa verið á íslenzka tungu og þannig fært kynþátta- vandamál þesssa fjarlæga lands inn á gafl hjá okkur. Rostropovich hrekur árás London. 30. marz. AP. SOVÉZKI scllóleikarinn Mstis- lav Rostropovich ok kona hans siinjíkonan Vishovskaya svör- uðu í datí síðustu ásiikunum sovózkra yfirvalda som hafa svipt þau sovózkum ríkisborg- ararótti ok siikuðu þau um að reyna að roka floys milli þeirra os tvoKKja dætra þoirra. Þau sögðu að sovézk yfirvöld hefðu endurnýjað vegabréf dætranna og sökuðú þau um að reyna að stía þeim burtu. Að þeirra sögn er hin raunverulega ástæða til þess að þau féllu í ónáð vinátta þeirra við Nóbels- skáldið Alexander Solzhenitsyn sem dvaldist hjá þeim fjóra vetur á sveitasetri þeirra á þeim tíma þegar hann lenti fyrst í útistöðum við sovézk yfirvöld. Rostropovich og kona hans sögðu á fjölmennum blaða- mannafundi í hótelinu Waldorf Astoria að sovézka stjórnin hefði beðið þau að úthýsa Solzhenitsyn og þegar þau hefðu neitað því hefði þeim verið gert ókleift að starfa í Sovétríkjun- um, en þeim hefði tekizt að komast úr landi með aðstoð vina í Evrópu og Danmörku. Rostro- povich neitaði ásökun sovézkra yfirvalda um að hann hefði síðan haldið 63 tónleika á Vesturlöndum til ágóða fyrir samtök landflótta hvítliða og sagði að ágóðinn hefði runnið til góðgerðastarfsemi. Hann neitaði einnig ásökun- um um að þau hjónin stæðu í nánu sambandi við fjandsamleg öfl og hefðu aldrei viljað snúa aftur til Sovétríkjanna. „Við skorum á allan heiminn, alla vini okkar, allt heiðarlegt fólk að sp.vrja ríkisstjórn okkar hvað við höfum gert rangt,“ sagði Rostropovich. Hjónin hafa beðið Kurt Wald- heim, framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, að stuðla að því að þau fái aftur sovézkan ríkisborgararétt og hafa ekki ákveðið í hvaða landi þau ætla að setjast að. Óvænt lækkun á gengi punds London. 30. marz. Router. AP. PIJNDIÐ la-kkaði óvænt á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu í dag on gengi dollarans hækk- aði nokkuð. Pundið lækkaði um rúmlega eitt cent gagnvart dollaranum, en dollarinn hækkaði um eitt yen eftir motiækkunina gagnvart jap- anska gjaldmiðlinum í gær. Ovíst er hvort Englandsbanki hafi gert ráðstafanir til hjálpar pundinu og óvíst er um orsök lækkunar þess. Þó getur skýr- ingin verið óvissa vegna fjár- lagafrumvarpsins sem brezka stjórnin leggur fram 11. apríl og sú niðurstaða árlegrar skýrslu hagfræðideildar háskólans í Cambridge, að atvinnulausum í Bretlandi muni fjölga á næsta áratug úr 1.4 milljónum í fimm milljónir. Bætt staða dollars gagnvart yeni kann að vera stundarfyrir- bæri að sögn kunnugra sem halda að yenið muni brátt halda áfram að hækka eins ört og það hefur gert að undanförnu. Rétt áður en kauphöllum var lokað varð dollarinn aftur fyrir þrýst- ingi. Verð á gulli lækkaði um tvo dollara. Jafnframt varaði vestur-þýzki efnahagsmálaráðherrann, Otto Lambsdorff, við því í dag að Vestur-Þjóðverjar kynnu að neyðast til að endurskoða það tákmark sitt að auka þjóðar- tekjur um 3.5% á þessu ári vegna lækkunar dollarans og kaupkrafna innanlands. Veður víða um heim Amsterdam 11 skýjaó Aþena 19 sólskin Berlin 18 bjart Brússel 11 rigning Chicago 7 skýjaó Frankfurt 15 rigníng Genf 11 skýjað Helsinki 6 sólskin Jóhborg 21 sólskin Kaupm.hófn 13 skýjað Lissabon 15 rtgning London 13 bjart Los Angeles 18 rigning Madrid 16 sótskin Malaga 18 bjart Miami 26 skýjað Moskva 8 bjart New York 17 bjart Ósló 5 skýjaö Palma. Majorca 11 skúrir París 12 rigning Róm 15 sólskin Stokkh. 10 sólskin Tel Aviv 18 rigning Tokýó 17 bjart Vancouver 13 skýjaó Vin 18 sólskin Rostropovich Sovézkir andófsmenn dæmdir Moskvu 30. marz. AP. TVEIR fólagar í Úkraínu-deild Helsinkinofndar andófsmanna í Sovétríkjunum hafa verið daundir í sjö ára þrælkunar- vinnu og fimm ára útlegð. að því er fréttir frá andófsmönn- um í Kiev hermdu í dag. Samkvæmt fréttunum voru Miroslav Marinovich og Mikola Matusevich sekir fundnir um and-sovézkan áróður í réttar- höldum er lauk á miðvikudag. Framhald á bls. 18 Kúbanir falla í árás í Ogaden Nairobi, 30. marz. AP. ÚTVARPIÐ í Mogadishu sagði í dag að sómalskir skæruliðar hefðu fellt 170 Eþíópíumenn og níu Kúhumenn þegar þeir veittu eþíópískum liðsafla íyr- irsát á Degahabur-Kebri-Dahar veginum í miðri Ogadeneyði- mörkinni í gær. Skæruliðar eyðilögðu 10 eþíópíska herflutningabíla og tóku þrjá herfangi í árásinni að sögn útvarpsins. Eþíépíska útvarpið sagði í dag að kúbönskum hermönnum sem berjast með Eþíópíumönnum hefði nýlega verið haldin sigur- veizla í borginni Dire Dawa í Austur-Eþíópíu og að fulltrúar eþíópísku stjórnarinnar hefðu hrósað þeim fyrir aðstoð þeirra í stríðinu. Fulltrúar stjórnarinnar sögðu að aðstoð Kúbumanna hefði eflt „málstað alþjóðahyggju öreiga" að sögn útvarpsins. Bandaríska utanríkisráðuneytið áætlar að 12.000 Kúbumenn séu í Eþíópíu auk 1.000 rússneskra ráðunauta. Þetta gerðist 1971 — William ('alley lautinant dæmdur í ævi- langt fangeisi fyrir þátt sinn i morðunum í My Lai. 1970 —- Níu japanskir stúdentar ræna japanskrí farþegaflugvél og snúa henni til Noröur-Kóreu Karl von Spreti grejfa sendiherra Vestur-Þjóðverja í Guatemala rænt. 1961 — Uppreisn hefst gegn Joao Goulart for- seta í Hrazilíu. 1953 — I >ag Hammar- skjöld kji)rinn fram- kvænidastjóri Samein- uðu þjóðanna. 1918 — Bandaríkjaþing samþykkir samninginn um Marshall-aðstoöinu. 1911 — Þjóðverjar hefja gagnsókn í Norð- ur-Afríku. 1905 — Heimsókn \’il- hjálms II Þýzkalands- keisara til Tangier kem- ur af stað fyrstu Marokkó-deilunni. 18X9 — Eiffelturn í París opnaður. 1885 Osigrar Frakka fyrir Kínverjum í Hanoi valda falli ríkisstjórnar Jules Ferry. 1851 — Bandaríski flolaforinginn Perry gerir fyrsta samninginn við Japani og tvær japanskat' hafnir eru opnaðar útlendingum. Afmælii Rene Descartes, franskur heimspekingur (1506 _ 1650) Josef llaydn, austurrísk tón- skáld (1732 _ lSOOi Nikolai Gogol rússnesk- ur rithofundur tlsOít IS.)2) R.W. von Bunsen þýzkur efnafræðingur (lSll — 1S00I. Ilugleiðing dagsinsi Að sigra sjáifan sig er mesti stgurinn ’latoti griskur heimspekingur (um 127—347 f.Kr.l.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.