Morgunblaðið - 31.03.1978, Side 22

Morgunblaðið - 31.03.1978, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978 t HARALDUR HALLDÓRSSON bóndi, Efri-Rauðalak í Holfum, sem andaöist 21. marz. veröur jarösunginn frá Árbæjarkirkju laugardaginn 1. apríl kl. 14. Bílferö veröur frá Umferöarmiðstööinni í Reykjavík kl. 12. Ólafia Sigurpóradóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför, KRISTÍNAR GUDMUNDSDÓTTUR, húafreyju, Eikiholti, fer fram frá Stafholtskirkju laugardaginn 1. apríl kl. 2. Ferö veröur frá Umferðarmiöstöðinni kl. 9 sama dag. Börn og tengdabörn. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vináttu við andlát og útför. JÓNS GÍSLASONAR, múrara, Skipasundi 5. Gunnar L. Jónaaon, Bírgir Jónaaon, Bryndia Benediktadóttir, barnabörn og aórir aóatandendur. t Þökkum innilega öllum er sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og útför, RAFNS SVEINBJÓRNSSONAR, frá Bíldudal. Elíaabet Þorbergadóttir, Geróur Rafnadóttir, Bent Jónaaon. Áalaug Rafnadóttir, Guómundur Hallgrímaaon. og barnabörn. t Viö þökkum auösýnda samúö viö fráfall KARLS KRISTJÁNSSONAR fyrrverandi alpingiamanna og sendum kveöjur öllum þeim, sem minritust hans. Sérstakar þakkir færum viö stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga, bæjarstjórn Húsavíkur, stjórn Kaupfélags Þingeyinga og stjórn Garöræktarfélags Reykhverfinga fyrir veglegan heiöursvott viö minningu hans. , , ..... ■ “ Pálína Jóhanneadóttir, börn og tengdabörn. t Þökkum sýndan vinarhug og samúö viö andlát og útför frænku okkar, GUÐRÚNAR FINNSDÓTTUR, Stórholti 27. Þökkum sérstaklega starfsfólki hjúkrunardeildar Vífilsstaðaspítala fyrir hlýlega og góöa umönnun viö hina látnu. FriðDjófur H. Torfason, Pálmi A. Arason, Aðalheiður Torfadóttir, Sígurfinnur Arason. Ásthildur Torfadóttir, Högni Torfason, Halldóra Torfadóttir, EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU Al GLVSINGA- SÍMINN ER: 22480 Minning: Jóhann V. Jóns- son bifreiðastjóri Fæddur 16. september 1910. dáinn 19. mars 1978. Hver kynslóð er örstund ung og aftur til grafar ber, en eilíföaraldan þung lyftir annarri á brjósti sér. Þá kveöjumst vió öll, voru kvöldi hallar — en kynslóö nýja til starfa kallar sá dagur, sem órisinn er. (Tómas Guömundsson.) Fyrir fáum dögum var jafn- dæfjri á vori, Of; að öllu jöfnu horfum við björtum augum móti lengri degi og hækkandi sól. Sorgar- og saknaðarský hefur dregið fyrir sólu, góður vinur og samferðamaður hefur verið kallaður burt i ferðina miklu til fyrirheitna landsins. En öll él birtir upp um síðir og geislar frá skini hækkandi sólar munu eyöa sorg og trega. Sú frétt að Jóhann væri dáinn kom engum að óvörum sem til þekktu, hann hafði gengið með banvænan sjúkdóm um langa hríð, en þrátt fyrir það að hann væri sjúkur, stundaði hann starf sitt á síðastliðnu sumri en það duldist engum sem til þekktu, að nú var hann aðeins að eyða síðustu kröftunum á meðan hann dokaði við í biðsal dauðans. Jóhann var fæddur á Syðra-Hóli í Kaupangssveit í Eyjafirði 16. september 1910, sonur hjónanna Ingibjargar Jónsdóttur og Jóns Jóhannssonar sem þar bjuggu. Hann var næst elstur af fimm börnum þeirra hjóna. Barn að aldri fluttist hann með foreldrum sínum að Æsustaðagerði og ólst þar upp í foreldrahúsum. Sextán ára gamall missti hann föður sinn og um svipað leyti flutti fjölskyld- an til Akureyrar. A Akureyri fékk hann vinnu hjá ölgerð Eggerts Einarssonar og vann þar fram yfir tvítugsaldur. A þessum árum var hann jafnframt í Iðnskólanum og lauk þaðan prófi. Fljótlega eftir tvítugsaldur gerði hann bifreiða- akstur að aðalatvinnu sinni. Byrj- aði á vörubifreið en fljótlega tók hann meirapróf og gerðist leigu- bifreiðastjóri og stundaði síðan það starf til dauðadags. Hann starfaði allmörg ár á bifreiðastöðvum Akureyrar, en lengst af á B.S.R. eða um 30 ára skeið. í október 1947 giftist hann eftirlifandi konu sinni Kristrúnu Kristjánsdóttur ættaðri vestan úr Hnífsdal og ekki þarf að draga það í efa að það hefur verið honum mikil gæfa að eignast jafn góðan lífsförunaut sem Kristrún er. Þau eignuðust tvær dætur, Ingibjörgu, gifta Halldóri Guðmundssyni arkitekt, og Önnu Sigríði, gifta Kjartani Kjartanssyni málara. Þegar Jóhann og Kristrún giftu sig átti Kristrún ungan son sem Kristján heitir. Jóhann reyndist honum eins og besti faðir, og mun Kristján hafa launað þann föður- kærleika vel og dyggilega. Kristján er flugvirki að mennt, kvæntur Jónu Hallgrímsdóttur. Kynni okkar Jóhanns eru þrjá- tíu ára gömul og á þau hefur enginn skuggi fallið. Hann er mér sérstaklega minnisstæður af þeim mönnum sem ég kynntist fyrst á B.S.R. Hann var mjög vel greindur en dulur og hlédrægur að eðlisfari og það verður ekki um hann sagt að hann væri fyrirferðarmikill í röðum samferðarfólksins, en þegar hann lét skoðanir sínar í ljós voru þær ákveðnar og hiklausar og hann var einn af þeim mönnum sem vildu vera hugsjón sinni trúir. Hann naut trausts á vinnustað og það var enginn einn sem naut liðstyrks hans. Það er mikill auður í sjóði minninganna að hafa átt góða samferðarmenn. Jóhann var mikill dugnaðar- og eljumaður. A uppvaxtarárunum kynntist hann fátækt og erfiðleik- um en hann mun snemma hafa sett sér það takmark og láta ekki baslið smækka sig. Þegar ég byrjaði á B.S.R. voru ekki margir starfsbræður mínir sem áttu þak yfir höfuðið, en Jóhann var einn af þeim sem átti ibúð og mjög fallegt heimili. Gestrisni og myndarskapur réðu þar ríkjum, en þar var hann ekki einn, húsmóðirin setti glæsilegan svip á heimilið enda langt yfir allt meðallag'hafin. Glaður var hann í vina hópi og í mörg ár létu hjónin sig aldrei vanta þegar við félagar á stöðinni áttum sameiginlegar gleðistundir. Eftir einn slíkan gleðifagnað bauð hann okkur hjónunum heim til sín og áttum við þar stund sem mér líður ekki úr minni. Hann hafði mikið dálæti á þjóðskáldinu okkar Davíð Stefánssyni og ekki hvað síst vegna þess að hann hafði af honum persónuleg kynni. Nú fór hann að lesa okkur ljóð eftir Davíð og skáldið bergmálaði í gegnum ljóðalestur húsbóndans. Við sáum gegnum holt og hæðir og eygðum í fjarska þann tilgang sem ljóðin túlka. Jóhann bjó yfir skemmtilegri kímnigáfu og var hann fundvís á það skoplega í fari náungans, gat fært það í góðan búning og gert að því góðlátlegt grín. Það var ekki í fari hans að særa neinn, en styðja þá sem voru minnimáttar og veita þeim hjálp sem þurftu þess með. Yfirborðsmennska og hroki voru ekki að hans geði en hann mat þá menn sem eru drengilegir í skoð- unum þó deilt væri og skoðanir féllu ekki í sama farveg. í nokkur ár var hann í stjórn Bifreiðastjórafélagsins Frama og reyndist þar traustur, samvinnu- þýður og tillögugóður. Jóhann átti alltaf mjög góða bíla enda góður bifreiðastjóri og fyrirhyggjusamur ferðamaður. Margar og ótaldar eru ferðirnar sem hann átti á milli Akureyrar og Reykjavíkur þó öðrum leiðum sé sleppt sem honum voru kunnar. Hann tryggði sér marga og góða viðskiptavini sem höfðu við hann beint samband þegar þeir þurftu á þjónustu hans að halda. Jóhann var mikill bókamaður og ljóðavinur og án efa hefði hann viljað helga þeim fræðum meiri tíma ef annríki hversdagslífsins hefði ekki kallað jafn mikið á starfskrafta hans. Jóhann hafði bæði gaman af að spila og tefla og var mjög fær í þeim efnum á okkar vísu sem á stöðinni störfum. Erfitt var þó að fá hann til keppni við aðra starfshópa, og bar hann jafnan því við hvað lítið hann kynni. Þannig er oft með þá menn sem bestir eru og mest geta þegar til kastanna kemur. Hann var mikill og góður heimilisfaöir og tók heimilið fram yfir allt annað. Það var eitt hans æðsta takmark að reynast góður faðir og eiginmaður og bregðast engu sem honum var til trúað. Hann var einn af þeim mönnum sem kveikti Ijós á vegi vegfarand- ans og minningarnar um hann eru eins og vitar sem varða veginn langt fram í ókominn tíma. Við hjónin vottum fjölskyldu hans fullstu samúð á kveðjustund um leið og við þökkum honum langa samfylgd á liðinni ævi. Aö lokinni upprisuhátíð er hann lagður til hinstu hvílu og boðskap- ur frelsarans mun leiða hann til nýrra heirrikynna. „Ég er upprisan og lífið, hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ Jakob Þorsteinsson. LEGSTEmAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Sjálfstæðisfélag Akureyrar boöar til rabbfundar sunnudaglnn 2. apríl n.k. kl. 14 aö Kaupvangsstræti 4. Fundarefni: Almennar umræöur um skipulagsnefnd Akureyrarbæjar Starfsreglur og starfssviö nefndarinnar Nefndarmennirnir Guömundur Guölaugs- son og Haraldur Sveinbjörnsson koma á fundinn. einnig Haraldur Haraldsson sem vinnur aö hinu marg umtalaöa miöbæjarskipulagi. Allt áhugafólk um þetta efni hvatt til aö koma á fundinn og taka þátt í umræöum. Stjórnin. Vesturlandskjördæmi — Akranes Landssamband Sjálfstæöiskvenna og aöildarfélög í Borgarfjarðar- sýslu efna til almenns stjórnmálafundar i Sjáltstæöishúsinu á Akranesi laugardaginn 1. apríl kl. 4 sföd. Ræöur og ávörp flytja. Margrét Einarsdóttir Salóme Þorkelsdóttir Emilía P. Árnadóttir Guöný Jónsdóttir. Rætt um almenn landsmál og kjördæmismál. — Fyrirspurnir og frjálsar umræöur aö loknum framsöguræöum. — Fundurinn er öllum opihn. — Fjölmennum. Stjórnin. Heimdallur SUS Fundur um frjáfisa fjölmiðlun veröur í Valhöll Háaleitisbraut 1 4. apríl n.k. Frummælendur Guömundur H. Garöarsson alþingismaöur og Einar Karl Haraldsson fréttastjóri. Frjálsar umræöur. Allir velkomnir. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.