Morgunblaðið - 31.03.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978
25
fólk í
fréttum
+ Tom Conti segist hafa átt
auðvelt með að setja sig í
spor Adams Morris í sjón-
varpsmyndinni „Til mikils
að vinna“, sem sýnd var í
íslenska sjónvarpinu fyrir
skömmu. Adam Morris var
Gyðingur, en Tom Conti er
hálfur ítali og hálfur Skoti,
og segist hafa fengið að
finna fyrir því að vera
útlendingur í Bretlandi. Tom
Conti, sem er 36 ára gamall,
er fæddur og uppalinn í
bænum Paisley í Skotlandi.
Faðir hans var ítalskur en
móðir hans skosk. Þegar
síðari heimsstyrjöldinn
skall á var faðir hans
handtekinn og settur í fang-
elsi. Hann var þó látinn laus
eftir nokkra mánuði, en
hann mátti ekki fara frá
Paisley meðan á stríðinu
stóð. Eftir stríðið var fólk
reitt Itölum fyrir að hafa
i unnið með Þjóðverjum. Full-
orðna fólkið talaði niðrandi
um þá og Tom fékk að kenna
á því að faðir hans var
ítalskur. Hann var kallaður
nöfnum eins og ítalska svín-
ið og spagetti-drengurinn.
Þrátt fyrir þetta segist
Conti- hafa átt ánægjulega
æsku. Börnin í nágrenninu
voru vinir hans, það voru
eldri strákar úr öðrum bæj-
arhluta sem gerðu honum
lífið leitt. Hann segir að
þetta hafi komið í huga
hans, þegar hann las hand-
ritið að „Til mikils að vinna"
og segist hafa skilið vanda-
mál Adams Morris vel út frá
eigin reynslu. Það var þó
ekki þess vegna sem hann
tók hlutverkið. Venjulega
tekur hann ekki hlutverk í
sjónvarpsmyndum. En
handrit Frederics Raphaels
heillaði hann svo að hann sló
til. „Til mikils að vinna“
byggir að miklu leyti á
reynslu Frederics Raphaels
sjálfs, og Adam Morris
svipar mjög til hans sjálfs.
Tom Conti segist vissulega
vera ánægður með móttök-
urnar sem þátturinn fékk og
nú eru að hefjast upptökur
á nýjum þáttum eftir
Raphael, sem nefnist „Some-
thing‘s Wrong" og fer Conti
með aðalhlutverkið. Tom
Conti hóf leiklistarferil sinn
aðeins 17 ára gamall. í
upphafi gekk honum vel og
hann fékk mörg hlutverk á
sviði leikhúsanna í Skot-
landi. En þegar hann var 25
ára gamall virtist enginn
hafa þörf fyrir hann meira.
Og í rúm 5 ár lék hann
ekkert. Um það leyti gekk
hann í hjónaband með leik-
konunni Köru Wilson. Hún
hafði meira en nóg að gera
og þau lifðu að mestu leyti
á hennar launum. Conti
gerði þó eitthvað af því að
spila á gítar á veitingahús-
um. Þau fluttu síðan til
London og þar vann hann
fyrir sér sem leiðsögumaður.
Á þessum árum hugsaði
hann oft um að gefa leiklist-
ina upp á bátinn. En þó fór
svo að hann fékk hlutverk í
leikritinu „Savages" í
Comedy-leikhúsinu í London
og síðan hefur honum gengið
allt í haginn og vinsældir
hans halda áfram að aukast.
Svanur BA 19
Þessi bátur er til sölu nú
þegar. Tilboö um verö
sendist Kristjáni
Kristjánssyni, Aöalstræti
14, Patreksfirði, sími
94-1211.
Terelynebuxur frá kr. 2.975.—. Gallabuxur kr.
2.500.—. Leöurlíkijakkar kr. kr. 5.500.—. Úlpur
margar geröir (lágt verö). Peysur nýkomnar.
Skyrtur, ný sending, dökkir litir, sokkar o.fl.
ódýrt.
Andrés Skólavörðustíg 22.
Opið til kl. 7 á föstudögum.
og til kl. 12 á laugardögum.
SHURE
pick-upar og nálar
SKIPHOLTI 19 R.
SIMI 29800 (5 LINUR)
27 ÁR í FARARBRODDI
Utboð
Tilboö óskast í lagningu 8. áfanga dreifikerfis
Hitaveitu Akureyrar.
Útboösgögn veröa afhent á Skrifstofu Hitaveitu
Akureyrar Hafnarstræti 88 b, Akureyri, frá og
með þriðjud. 4. apríl 1978.
Tilboö veröa opnuö á skrifstofum Akureyrarbæj-
ar Gíslagötu 9, Akureyri, mánud. 17. apríl 1978
kl. 14.00.
Hitaveita Akureyrar.
MHIBIilliiB
Púöauppsetningar
Nýkomið glæsilegt úrval af flaueli.
Margar geröir uppsetninga.
Sýnishorn á staönum.
Fljót afgreiðsla.
Ijamigrðattrrzlmmt
tria
Hver
er
konan?
+ Það er varla hægt að
þekkja leikarann Walter
Matthau á þessari mynd.
En í nýrri kvikmynd, sem
verið er að gera, leikur
hann mann, sem verið
hefur konu sinni trúr í 30
ár. En eftir dauða hennar
slettir hann heldur betur
úr klaufunum.
Z GARDÍNUBRAUTIR
Vinsælasta gardínuupp-
setningin á markaðinum.
Fjölbreytt litaúrval.
Sjáum um uppsetningar ef
óskaö er. Fullkomin
þjónusta og 16 ára reynsla.
&G
'ardínubrautir hf
ÁRMÚLA 42 • 105 REYKJAVÍK• SÍMI83103