Morgunblaðið - 31.03.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978
DOMARAR
PRÓFAÐIR í
FINNLANDI
ÞRIR íslenskir handknattleiksdóm-
arar munu taka pátt í dómaranám-
skeiði sem IHF heldur dagana 21.
til 23. apríl næstkomandi í Helsinki
í Finnlandi. Þeir eru Gunnlaugur
Hjálmarsson, Kristján Órn Ingi-
bergsson og Kjartan Steinbach.
Námskeið petta er B-námskeíð. en
standist Þeir próf aö loknu ná-
skeiði öðlast peir millirikjadóm-
araréttindi. Fjórir handknattleiks-
dómarar hér hafa milliríkjaréttindi,
peir Karl Jóhannsson, Hannes Þ.
Sigurösson, Björn Kristjánsson og
Óli Olsen. Dómaranefnd HSÍ og
HSI standa straum af kostnaði við
ferð Þessa.
HAFA LEIKIÐ
ALLA BLAK-
LANDSLEIKI
ÍSLENDINGA
LANDSLIOIÐ i blaki heldur til
Færeyja í dag tíl tveggja lands-
leikja. sem verða í Þórshöfn á
föstudag og laugardag. Með pess-
um leikjum nær Blaksambandiö
Því marki aö hafa stofnað til 25
landsleikja. Með í Færeyjaferðinni
eru tveir leikmenn, sem hafa leikiö
alla landsleiki Islands i blaki.
Þróttararnir Guðmundur Pálsson
og Valdemar Jónasson. Síðustu
leikir Islands og Færeyja fóru fram
hér á landi i desembermánuði
síðastliðnum og unnu islendingar
Þá 3:0 og 3:2.
KA HEFUR
HARMA AÐ
HEFNA...
EINN leikur fer fram í bikarkeppni
HSÍ í kvöld. KA og FH leika á
Akureyri í 8-liða úrslitum keppninnar.
Leikurinn hefst í iþróttaskemmunni á
Akureyri klukkan 20.30. Þessi sömu
lið léku saman í keppninni í fyrra —
þá i Hafnarfirði. Þrátt fyrir heimavöll-
inn áttu leikmenn FH í hinum mestu
erfiðleikum með gestina, en tókst þó
að knýja fram eins marks sigur ettir
framlengdan leik. KA-menn hafa því
harma að hefna og ætla sér sigur í
leíknum nyrðra í kvöld.
Á morgun leika Þór og Þróttur
klukkan 15 í Skemmunni á Akureyri.
Þessi leikur er í 16-liða úrslitum
keppninnar, eftirlegukind, sem ekki
varð komið á fyrr en nú.
Fyrsta lýsingin
á sunnudaginn
FYRSTA útvarpslýsingin frá íslandsmótinu í handknattleik verður á
sunnudagskvöld og verður pá lýst frá leikjum Víkings og Hauka og ÍR og
Vals, eftir pví sem ípróttafréttamaður ríkisútvarpsins Hermann Gunnarsson
upplýsti í samtali við Morgunblaðiö í gær.
— Ætlunin er að lýsa frá Þeim leikjum sem eftir eru í mótinu og geta
ráðið úrslitum, sagði Hermann. — Útvarpslýsingar frá ípróttamótum eru
mjög vinsælar og um leið góð auglýsíng fyrir ípróttina, sagði hann. Hermann
sagði að ekki væri búið að semja við KSÍ um lýsingar frá knattspyrnuleikjum
i sumar en mikill og góður vilji væri fyrir hendi hjá ráðamönnum
ríkisútvarpsins. —pr.
ATLI FÆR RÚMLEGA
22 ÞÚSUND KRÓNUR
FYRIR HVERT STIG
ATLI HÉDINSSON, knattspyrnumaður úr KR, hefur sem kunnugt er leikið meö danska liðinu Holbæk undanfarin
ár. Liðið féll síðasta haust úr 1. deildinni niður í 2. deild og ákvað Atli pá að söðla um og færa sig enn einni
deildinni neðar. Hann leikur nú með Herfölge í priðju deild og hefur liðið fengið til sín 7 leikmenn, sem í fyrra
léku í 1. deildinni. Eftir að Danir ákváðu að taka upp atvinnumennsku í ípróttinni síöastliðið haust hafa félagsskipti
leíkmanna mjög aukizt og sterkari leikmennirnir hafa í miklum mæli fært sig niður um nokkur prep, par sem
Þeir telja sig fá meiri peninga fyrir ípróttina.
Herfölge féll niður úr 2. deild í fyrra
og þótti forystumönnum liðsins það
í meira lagi súrt í broti. Nú skal öllu
fórnað til að liðið komizt strax aftur
SYLSS \35M
t ÍVCSTA ilEPPÍ STt't>
E-£ weiM«,í?,'iKAte
HAL-Ötto 'I BáJCCÍfTO.
OOOÍsLiSti<_C><J teÓSS-
LAMbi cx. A.fcCrtO'r'noo
EtOO ALLAe HEL5TU
K kVAT-rsT*-vicou v=-odesne iJAS:
HV^-TTAíZ T i i_ U-e i KS
SOóiov;A(fcf>ie>
t=>Al_T S-0*u-«r«ú
esX>AHÖV>
upp í 2. deild og innan þriggja ára á
Herfölge að vera meðal liðanna í 1.
deildinni í Danmörku.
Herfölge hefur
gert atvinnusamning við 11 leikmenn,
en mun fleiri æfa með aðalliðinu og
atvinnumannasamningunum á eftir
að fjölga á næstunni.
Laun þeirra,
sem samið hefur verið við eru
nokkuð breytileg, en allir fá þeir
sama bónus, sem er rúmlega 22.000
krónur íslenzkar fyrir hvert stig í
þriðju deildinni. Fari svo að Herfölge
komist upp úr þriðju deildinni í sumar
hefur leikmönnum verið boðið í ferð
til Florida í Bandaríkjunum næsta
haust.