Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 17 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson Þorbjöm Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, simi 22480. Askriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Atvinnuleysi í Evrópu — En ekki hér I* dag 5. apríl, efna verkalýössamtök í Vestur-Evrópu til margvíslegra aðgerða til þess að mótmaela atvinnuleysi. Kröfur verða settar fram á hendur ríkisstjórnum V-Evrópulanda og samtökum atvinnurekenda um fulla atvinnu. Sendinefndir frá verkalýðsfélögunum leggja þessar kröfur fram hjá Efnahagsbandalagi Evrópu, Fríverzlunarbandalagi og Evrópuráði. Til stuðnings kröfugerð verkalýðssamtakanna verður efnt til mótmælaað- gerða af ýmsu tagi, fjöldafunda, stuttra verkfalla, blaðamannafunda og svo framvegis. Astæðan fyrir þessum aðgerðum verkalýðssamtaka í Vestur-Evrópu er sú, að í þessum löndum eru nú um 7 milljónir manna atvinnulausar, ekki sízt ungt fólk. Verkalýðssamtökin i V-Evrópu sjá fram á vaxandi atvinnuleysi á þessu ári, ef ríkisstjórnir þessara landa grípa ekki til ráðstafana til þess að efla atvinnulífið og auka atvinnu. Eftirtektarvert er, að í flestum V-Evrópulöndum sitja ríkisstjórnir að völdum, sem ómögulegt er að telja fjandsamlegar verkalýðsfélögunum. í Bretlandi, Þýzkalandi og Danmörku sitja jafnaðarmannastjórnir að völdum og á Italíu, þar sem atvinnuleysi meðal ungs fólks er geigvænlegt, hafa áhrif kommúnistaflokksins aukizt mjög. Eins og allir vita, er t.d. Verkamanna- flokkurinn í Bretlandi vinstri sinnaður og ætla mætti, að hann væri mjög viðkvæmur fyrir atvinnuleysi. Hvað veldur því þá, að þær jafnaðarmanna- stjórnir sem með völdin fara í flestum þeim Evrópulöndum, þar sem atvinnuleysi er nú mest, hafa ekki gripið til aðgerða til að draga úr því og kalla þar með yfir sig mótmælaaðgerðir verkalýðssamtakanna? Ástæðan er einföld. Jafnaðarmannastjórnir þessara landa hafa litið svo á, að það væri meira hagsmunamál fyrir launþega og láglaunafólk í V-Evrópulöndum að halda verðbólgunni í skefjum en að tryggja fulla atvinnu, m.a. vegna þess, að atvinnuleysisstyrkir eru nú tiltölulega háir. Jafnaðarmannastjórnin í V-Þýzkalandi hefur t.d. staðið fast gegn írekuðum tilmælum og tilraunum áhrifamikilla vinaþjóða V-Þýzkalands, eins og Bandaríkjamanna og Breta, um að hleypa auknum krafti í v-þýzkt efnahagslíf, af ótta við að slíkt mundi hafa í för með sér aukna verðbólgu. Reynsla Þjóðverja af verðbólgu fyrr á árum veldur því, að almenningur þar í landi telur ekkert mikilvægara en að standa gegn verðbólgu og af tvennu illu vill almenningur þar í landi fremur sætta sig við atvinnuleysi en verðbólgu. Hér á Islandi rikir ekkert atvinnuleysi. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum hafði hún það að meginmarkmiði að tryggja fulla atvinnu. Ráðherrar í núverandi ríkisstjórn gerðu sér glögga grein fyrir því, að þeir gætu með nógu harkalegum samdráttaraðgerðum náð miklum árangri í viðureign við vferðbólguna. Þeim var jafnframt Ijóst, að ef þeir gripu til ráðstafana, sem mundu á tiltölulega skömmum tíma ráða niðurlögum verðbólgunnar, eins og tekizt hefur í öðrum V-Evrópuríkjum, mundu þeir um leið kalla yfir launþega mikið atvinnuleysi. Af tvennu illu valdi núverandi ríkisstjórn þann kostinn að una meiri verðbólgu en ella til þess að tryggja fulla atvinnu. Þeirri stefnu hefur ríkisstjórnin haldið út þetta kjörtímabil. Það er þess vegna mótsagnakennt í meira lagi, þegar stjórnarandstöðu- flokkarnir, Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið, sem báðir telja sig byggja á sósíalískum grundvelli í stefnumálum sínum, veitast að ríkisstjórninni vegna þess, að hún hafi ekki náð nægilegum árangri í viðureign við verðbólguna. Með þvi eru þeir væntanlega að segja, að ríkisstjórnin hefði átt að grípa til svipaðra ráðstafana og jafnaðarmanna- stjórnir í ýmsum V-Evrópulöndum, sem náð hafa mjög verulegum árangri í baráttu við verðbólguna, en hafa gert það á kostnað atvinnu fólksins. Það er hægt að ræða það, hvort sú afstaða ríkisstjórnarinnar hefur verið rétt að láta fulla atvinnu sitja í fyrirrúmi fyrir árangri í viðureign gegn verðbólgu, en áreiðanlega munu flestir Islendingar vera fylgjandi þeirri stefnu, sem ríkisstjórnin hefur markað, að tryggja fremur fulla atvinnu en skjótan árangur í verðbólgubaráttunni. Við verðum hins vegar að horfast í augu við þá staðreynd, að ef óðaverðbólga stendur árum saman hlýtur hún að lokum að leiða til atvinnuleysis. Markmið ríkisstjórnarinnar hefur verið að halda uppi nægri atvinnu, en mjaka verðbólgunni smátt og smátt niður. Þessi stefna bar verulegan árangur fram á mitt sl. ár og hún hefði haldið áfram að bera árangur, ef verkalýðssamtökin hefðu borið gæfu til að eiga heiðarlegt samstarf við ríkisstjórnina um þessa stefnu. Þess í stað knúðu verkalýðssamtökin fram óraunhæfar kauphækkanir, sem hafa leitt til nýrrar verðbólguöldu. Eftir sem áður hlýtur niðurstaðan samt að verða sú, í okkar íitla og fámenna þjóðfélagi, að við verðum að leitast við að halda fullri atvinnu um leið og við reynum að mjaka verðbólgunni niður á við. Almenningur í okkar landi mundi aldrei sætta sig við það, sem fólk unir við í V-Þýzkalandi, að verðbólgunni sé haldið niðri með þvi að halda uppi umtalsverðu atvinnuleysi. En það er lærdómsríkt, að á sama tíma og verkalýðsfélög í V-Evrópu, sem hafa milli 30 og 40 milljónir manna innan sinna vébanda, efna til sérstakra mótmælaaðgerða einn dag til þess að mótmæla atvinnuleysi 7 milljóna manna, er engin ástæða til slíkra aðgerða hér vegna þess að hér er ekki við neitt atvinnuleysi að stríða. Kannski er það eitt mesta afrek, sem núverandi ríkisstjórn hefur unnið, að koma í veg fyrir atvinnuleysi í kjölfar þess kreppuástands sem skapaðist í efnahags- og atvinnumálum vestrænna iðnríkja á árunum 1973 og 1974. 500 umburðarlyndir stranda- glópar á Keflavíkurflugvelli Töskurnar voru skyldar eftir. W.A. Nicol og eiginkona — alls ekki uppvæg yfir töfinni. flugvélin á leið vestur um haf kl. 16.45 í gærdag en hin síðari kl. 17.50 og eins og fyrr segir vissi afgreiðslufólkið og farþegarnir ekki hvað var í vændum fyrr en farþegarnir voru að búast til að ganga aftur um borð í vélarnar. Hins vegar var að því stefnt að farþegarnir þyrftu ekki að tefjast nema þessa einu nótt, því að verið var að vinna að því að fá leiguflugvélar til að flytja þá héðan vestur um haf í dag. Það helzta sem virtist vefjast fyrir farþegunum sjálfum hvað þessa óvæntu töf áhrærði, var það hvort þeir þyrftu að vera að burðast með allan farangurinn til Reykjavíkur eða hvort þeir mættu skilja hann eftir. Flestir tóku óþægindunum með jafnað- argeði, eins og áður segir og sumir af hreinni kátínu. Einn farþeganna var William A. Nicol, ferðaskrifstofufulltrúi frá Ohio, á ferð yfir hafið ásamt eiginkonu sinni, og blaðamaður forvitnaðist um afstöðu hans. „Nei, hér ríkir engin reiði,“ svaraði Nicol. „Við vitum að svona getur gerzt hvar sem er í heiminum og þetta er alls ekki Loftleiðum að kenna. Félagið getur ekkert við þessu gert. Loftleiðir minnka ekkert í áliti hjá mér, mér er hlýtt til þess félags eins og landsins hér, sem ég hef gist áður og eiginlega er það bara kærkomið að fá svona eins dags viðbót við fríið. Nei, ég verð ekki var við að það gæti neinnar reiði meðal samferða- manna minna.“ Dálítið óánægðara fórnar- lamb þessara verkfallsaðgerða flugmanna var Þorsteinn Jóns- son, flugstjóri hjá Cargolux. „Auðvitað er ég hinn óhressasti,“ sagði hann. „Ég var að koma frá Luxemborg og ætlaði til Chicago en þaðan átti ég að fara til Honolulu til að taka við Cargoluxvél. En svo verð ég alveg óvænt fyrir barðinu á kollegum mínum hérna heima og er hundfúll að stranda hér. Hvort ég sé ósáttur við aðgerðir flugmannanna? Ég veit ekki einu sinni um hvað þetta snýst.“ Hann var töluverður orðsendingabunkinn sem Flugleiða- fólk þurfti að koma áfram yfir hafið fyrir farþegana. óhress strandaglópur, Þorsteinn Jónsson, flugstjóri hjá Cargolux (t.h.), og Jón óskarsson, stöðvarstjóri Flugleiða á Keflavíkurflugvelli. EKKI var unnt að merkja að skyndiverkfall flug- manna Flugleiða í gær vekti verulega reiði meðal hinna 500 farþega af ýmsu þjóðerni, sem urðu strandaglópar í flughöfn- inni á Keflavíkurflugvelli af þessum sökum. I það minnsta var ekki að heyra að farþegar álösuðu Flug- leiðum fyrir óþægindin, enda þótt afgreiðslufólkið væri á því að flugmennirn- ir væru ekki í sérstöku uppáhaldi þessa stundina. Farþegarnir höfðu margir hverjir komið við á barnum til að stytta biðina og voru greinilega létt- lyndari á eftir. „Það er mesta furða hvernig fólkið tekur þessu,“ sagði einn fiugafgreiðslumanna, „en það er eins og flugfarþeg- ar séu orðnir svo upptekn- ir af flugránum að þeim finnast allar aðrar uppá- komur smámál.“ Þegar blaðamenn Mbl. komu í flugstöðina, hafði skömmu áður verið ákveðið að senda alla farþegana úr báðum DC-8 þot- unum, sem þarna biðu, á hótel í Reykjavík og voru því eðlilega miklar annir hjá starfsfólki Flugleiða í flugstöðinni, því að leiðbeina þurfti farþegum um hótelrými og koma þeim í áætlunarbílana. Alls þurfti 11 rútur til að flytja fólkið til Reykjavíkur. „Þetta kom algerlega fyrir- varalaust og okkur í opna skjöldu," sagði Jón Oskarsson, stöðvarstjóri Flugleiða á Kefla- víkurflugvelli, í samtali við Mbl. „En við verðum samt ekki vör Yfirleitt var heldur glatt yfir farþegum, og þeir kvörtuðu ekki að ráði. (Ljósm. Mbl. Friðþjófur). við neina reiði hjá farþegunum, eða minnsta kosti bitnar hún ekki á okkur, því að þetta fólk veit að það er ekki við flugfélag- ið eða okkur afgreiðslufólkið að sakast.“ „Ég er þó ekki eins viss um að þeir verði svona ljúfir við flugmennina,“ skaut ein af- greiðslustúlkan inn í, um leið og hún blaðaði í gegnum stóran bunka af orsendingum frá far- þegum. „Já, þau eru auðvitað margvísleg vandamálin sem koma upp við kringumstæður sem þessar," sagði Jón Óskars- son og benti á bréfabunkann. „Þau eru mörg skeytin og símtölin héðan í dag, afpantanir á hötelum og fleira í þeim dúr sem við höfum þurft að sinna. Að sögn Jóns lenti fyrri Fyrsta foringjaráð Faxa, efsta röð f.v.i Sigurjón Kristinsson nú blaðaútgefandi. Jón Valdimarsson járnsmiður. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi, Jón Runólfsson vélsmiður, Einar Torfason tollvörður. Miðröð f.v.i Gísli Guðlaugsson. tryggingafulltrúi, Magnús Sigurðsson sjómaður, Leifur Eyjólfsson skólastjóri, Friðrik Haraldsson bakarameistari. Neðsta röð Kári Kárason múrarameistari, Magnús Kristinsson forstjóri og Kristinn Guðmundsson bæjarstjóri. Skátafélagið Faxi 40 ára SKÁTAFÉLAGIÐ Faxi í Vest- mannaeyjum var 40 ára fyrir stuttu. Var félagið stofnað hinn 22. febr. 1938 og bar þannig til að nokkrir drengir úr efstu bekkjum barnaskólans höfðu lesið um skátafélag og gengu á fund Jóns Oddgeirs Jónssonar, sem þá var fulltrúi Slysavarnafélags Islands, og báðu hann liðsinnis við stofnun félagsins. Friðrik Jensson íþróttakennari var kjörinn fyrsti formaður félagssins en stofnendur voru alls 20. Hefur félagið starfað að ýmsum málum meðal æsku Vest- mannaeyja, eins og segir í grein í skátablaðinu Foringjanum. Skjaldhamrar frum- sýndir á Húsavík Húsavík, 1. apríl. SKJALDHAMRAR. sjónleikur Jónasar Arnasonar, var frum- sýndur hjá Leikfélagi Húsavikur í gærkvöldi, fyrir fullu húsi og við mjög góðar undirtektir áhorf- enda. Leikstjóri er Sigurður Hall- varðsson og er þetta tólfta verkið, sem hann leikstýrir fyrir Leikfél- ag Húsavíkur. Leikmynd Svein- bjarnar Magnússonar er ágæt og sömuleiðis lýsing Gríms Leifsson- ar. Með veigamestu hlutverkin fara Snædís Gunnlaugsdóttir, sem leikur Katrínu Spanton leftenant, og Benedikt Sigurðsson sem leikur Kormák vitavörð. Ekki er að sjá að þetta sé frumraun þeirra á fjölun- um, því leikur þeirra er heilsteypt- ur og mjög góður, þó sérstaklega Snædísar. Maður gæti haldið að hún hefðLlokið prófi í leiklist s.l. vor en ekki lögfræðiprófi, eins og hún gerði, því leikur hennar er eðlilegur og laus við allan viðvan- ingsbrag. Aðrir leikarar eru: Jón Fr. Benónýsson, Ólafur Straumland Einar Njálsson, og María Axfjörð. Allt er þetta fólk, sem hér hefur áður sýnt list sína á leiksviði og leysir hlutverk sín yfirleitt vel af hendi. Fréttaritari. Frá fundi FÍB um vegamál: Stórátak verði hafið til uppbyggingar vega FÉLAG ísl. bifreiðaeigenda gekkst fyrir almennum borgara- fundi um vegamál og skatt- lagningu á bifreiðaeigendur og fór fundurinn fram á Selfossi nýlega. Framsögumenn voru tveir, Jón Helgason alþingismað- ur og Þór Hagalín sveitarstjóri. Gestur fundarins var Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri. I frétt frá FIB segir, að miklar umræður hafi orðið á fundinum og því mótmælt að ríkissjóður skuli á þessu ári ætla að taka um 15 milljarða með sérstakri skattlagn- ingu á bifreiðaeigendur, en veita um 9 milljörðum af þeirri apphæð til vegamála. Á fundinum upplýsti Ólafur G. Einarsson alþingismaður og stjórnarformaður Olíumalar h.f. að á næstu dögum muni koma fram sameiginlegt tilboð frá 4 fyrirtækjum, Olíumöl h.f., Miðfelli h.f., Véltækni h.f. og Grettistaki h.f., til Vegagerðar ríkisins um að leggja olíumalarslitlag á eftirtalda vegi á þessu ári: Þrengslaveg og Þorlákshafnarveg, 22,6 km; Suður- landsveg, frá Þjórsárbrú að Hellu, 17,4 km, og vegarkafla í Hvalfirði um 30 km. Verðið í þessu tilboði er frá 8,7 milljónum til 11,8 m.kr. á hvern kílómetra. Fundurinn samþykkti nokkrar ályktanir m.a. um að hafið yrði stórátak til uppbyggingar vega iandsins og bendir fundurinn á að margsannað hafi verið að vart finnist arðsamari opinber fjárfest- ing en í vegakerfi landsins, m.a.' vegna þeirra stórkostlegu gjald- eyriseyðslu sem þjóðin sé neydd til vegna varahlautakaupa og megi rekja beint til slæms yfirborðs vega. Skorar fundurinn á alþingi og ríkisstjórn að hlutast nú þegar til um að innflutningsgjald af bifreiðum verði gert að mörkuðum tekjustofni til vegasjóðs og verði þær tekjur eingöngu notaðar til lagningar á bundnu slitlagi. Bend- ir fundurinn á að Vegagerðin neyðist til að verja stórum hluta takmarkaðs fjármagns síns í bráðabirgðaframkvæmdir og vegaviðhald sem ekki hefði þurft að koma til væri bundið slitlag á aðalvegum landsins. Þá lýsti fundurinn stuðningi sínum við framkomna þingsályktunartillögu frá Ólafi G. Einarssyni og Jóni Helgasyni um lagningu bundins slitlags á þjóðvegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.