Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 Ný Morgan Kane-bók á íslenzku ÚT ER komin 8. bókin í bókaröð- inni um Morgan Kane, „Ófreskjan frá Yuma“ eftir Louis Masterson. Sagan gerist í .Texas um 1892 og segir frá hefndum Roys Zarcos — refsifanga úr Yumafangabúðunum — sem brotist hafði út eftir 8 ára þrælkun, en skuggi hans lagðist yfir E1 Paso — bæinn sem dæmdi hann —. Morgan Kane alríkislög- reglumaður var sendur til að stöðva Zarco, „Ófreskjuna frá Yuma“. — í gæzlu Framhald af bls. 32. ásamt öðrum piltum að 15 ára pilti ofarlega á Laugavegi, þar sem hann var á gangi. Börðu þeir piltinn í andlitið án minnsta tilefnis og brutu í honum tennur. Félagar piltsins, sem úrskurðaður var í gæzlu- varðhald, eru á upptökuheimil- inu í Kópavogi, en þeir hafa sloppið þaðan og staðið að þessum árásum. — Vestfirðing- ar ekki með Framhald af bls. 32. Vestfjörðum hefði samþykkt að boða til aðgerða. Alþýðusamband Vestfjarða hefði óskað eftir viðræðum við Vinnuveitendafélag Vestfjarða. „Að mínu viti liggur það í augum uppi að á meðan þær viðræður hafa ekki farið fram eða verið hafnað af hálfu vinnuveit- enda, sýnist mér að engar líkur séu til að gripið verði til aðgerða, fyrr en niðurstaða liggur fyrir. Þannig kemur það mér ekkert á óvart, að á þessu stigi séu Vestfirðingar fyrir utan útflutningsbann." Kar- vel kvað engar ákvarðanir hafa verið teknar um aðgerðir fyrir vestan. — Scanhouse Framhald af bls. 32. landi, sem húsin ættu að rísa á úti við sjóinn, en landi heföi einnig verið dælt upp undir húsin, sem fyrirtækið væri að byggja fyrir landherinn. „Við erum núna að byggja á tveimur svæðum," sagði Haf- steinn. „Annars vegar erum við að reisa 186 íbúðir fyrir 3 fyrirtæki í Statelitte town, þ.e. fyrir Gulf Oil, Shell-BP og Daily Time. Fær hvert fyrirtæki 62 íbúðir í sinn hlut og eiga þær að vera fyrir starfsfólk þeirra. Við reiknum með að Ijúka byggingu þessara húsa á einu ári þ.e. að þau verði tilbúin í byrjun næsta árs. Síðan erum við að reisa íbúðar- hús fyrir landherinn í Okiti Pupa og erum við þar tveir verktakar sem störfum fyrir herinn. Scan- house tók að sér að reisa þarna 101 hús með 12 íbúðum í hverju eða samtals 1212 íbúðir og þessi hús eiga að vera tilbúin öll í apríl-maí 1979. Hinn verktakinn, sem þarna starfar, tók að sér að reisa önnur hús á þessu svæði, eins og skóla, kirkjur o.fl. og ennfremur sér hann um vegagerð og vatns- og frárennslislagnir." Þegar Morgunblaðið spurði Haf- stein hvort forráðamenn Scan- house hefðu í bígerð að taka að sér fleiri verkefni í Nígeríu sagði hann, að viðræður væru í gangi um að fyrirtækið tæki að sér fleiri byggingarverkefni, en varla gæti orðið af því, fyrr en þær fram- kvæmdir, sem þegar hefði verið samið um væru langt komnar, en núverandi verksamningar hljóð- uðu upp á rétt tæpa 13 milljarða króna. Þá sagði hann, að þegar framkvæmdir fyrir sjóherinn hæfust í haust, þyrfti fyrirtækið að fjölga starfsmönnum, en hjá því starfa nú yfir 500 manns, og þyrfti ugglaust að bæta við íslenzkum fagmönnum þá. Það var strax á árinu 1974, sem hinir íslenzku hluthafar í Scan- house fóru að hyggja að fram- kvæmdum í Nígeríu, en samningar tókust ekki fyrr en um sl. áramót. Kvað Hafsteinn, að þeir hefðu fengið til liðs við sig mjög góða Nígeríumenn og gengi samstarfið við þá prýðisvel. Þá má og geta þess, að Scan- house er með einkaumboð í Nígeríu fyrir Butler-stálgrindar- hús og er nú þegar verið að reisa nokkur slík hús þar í landi og sér Scanhouse um uppsetningu þeirra. — 3200 tonna samdráttur . . Framhald af bls. 2 dráttur í frystingu bolfisks. Fyrstu þrjá mánuðu þessa árs hefði framleiðslan verið 17.400 lestir, á móti 18.400 lestum á sama tíma í fyrra. Þar skal tekið fram að þegar Morgunblaðið ræddi við Benedikt var ekki búið að reikna út skiptingu hinna einstöku fiskteg- unda, sem farið hafa til frystingar. Sigurður Markússon fram- kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins sagði þegar Morgun- blaðið ræddi við hann, að fram til 25. marz sl. hefði framleiðsla frystihúsa innan Sambandsins numið alls 6.095 lestum á móti 6.246 lestum á sama tíma í fyrra. Ef loðnuafurðir væru undanskild- ar væri heildarframleiðslan á þessum tíma 5.458 lestir og hefði bolfiskframleiðslan aukist um 11% miðað við sama tíma í fyrra. Að sögn Sigurðar hefur frysting á þorski aukist um 15% það sem af er árinu, frysting á ýsu hefur aukist um 48% og á steinbít um 9%. Hins vegar hefur orðið 39% samdráttur í frystingu á karfa og 63% samdráttur í frystingu á ufsa. Sem dæmi um ýsufrystinguna sagði Sigurður, að hún væri orðin meiri á árinu heldur en samanlagt á steinbít, karfa og ufsa. — Helgi og Margeir Framhald af bls. 2 fyrir velvilja keppnisstjóranna að vera með. Skák hans úr 1. umferð var dæmd töpuð en sem fyrr segir gerði hann jafntefli við Morris í 2. umferð. Þess má geta að einn íslendingur enn teflir á mótinu. Heitir hann Júlíus Loftsson en hann hefur búið í Bandaríkjunum í 20 ár. Eftir 2 umferðir eru þeir Polugaevsky, Miles, Seiráwan og Bogdanovic efstir með 2 vinninga en þeir Helgi og Margeir hafa 1 !/z vinning ásamt 20 skákmönnum öðrum en í þeim hópi eru kappar eins og Petrosjan, Browne og Portisch. . Skák Margeirs og Ligterinks tefldist sem hér segir. Ligter- ink hefur þvítt en Margeir Pétursson hefur svart: 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 — cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 — e5 6. Rdb5 - d6 7. Bg5 - a6 8. Ra3 — Be6 9. Rc4 — hc8 10. Bxf6 - gxf6 11. Re3 - Bh6 12. Rcd5?! - Bxe3 13. Rxe3 - Db6 14. Bd3 - Db4+ 15. Dd2 - Dxb2 16. 04) - Dd4 17. Hbl - b5 18. c3 - Da4 19. Bc2 - Da5! 20. Bb3? - Rd4 21. Bxe6 - Íxe6 22. Rg4 - 04) 23. Hael - Dxc3 24. Dh6 - Dc7 25. Í4 - Dg7 26. Dh3 - IIc2 27. Khl - f5 og hvítur gaf. — Nýtt bréf Framhald af bls. 1. á að forsprökkum „Rauðu her- deildarinnar" í Torino verði sleppt gegn því að Moro verði látinn laus, en sagt að „réttarhöldin yfir Moro muni fara fram með venjulegum hætti, og að sálfræðileg brögð sérfræðinga í viðureigninni gegn skæruliðum geti engu breytt um niðurstöðu". Það vekur eftirtekt að í bréfi Moros er minnzt á 15 daga við makalausar kringumstæður, en það bendir til þess að bréfið hafi verið ritað fyrir a.m.k. 4 dögum. Bréf Moros er stílað til leiðtoga Kristilega demókrataflokksins og segir þar m.a.: „Ég er pólitískur fangi í óþolandi aðstöðu vegna fijótfærnisákvörðunar ykkar ujp að hafna hvers konar viðræðum um aðra einstaklinga sem eru í prísund af sams konar ástæðum", en niðurlag bréfsins er svohljóð- andi: „Megi Guð lýsa ykkur, við vonum að þið gerið strax nauðsyn- legar ráðstafanir." Þegar frá eru taldar nokkrar línur um ,',réttarhöldin yfir Moro“ er fátt að finna í meðfylgjandi yfirlýsingu „Rauðu herdeildarinn- ar“ annað en pólitískar kreddu- . kenningar, en þetta er fjórða orðsendingin sem hryðjuverka- hópurinn sendir frá sér frá þvi að Moro var rænt. — Samskiptin Framhald af bls. 1. komin á nýtt stig. Bann Bandaríkjaþings við sölu vopna til Tyrklands hefur verið í gildi undanfarin þrjú ár, eða frá innrás Tyrkja á Kýpur, og á þeim tíma hefur samband ríkjanna verið stirt. Ecevit sagði meðal annars að ákveðið væri að taka til endurskoðunar varnarsamning, sem undirritaður var árið 1976 en aldrei hefur komið til fram- kvæmda, en sá samningur fól meðal annars í sér milljarðs dollara fjárveitingu. Yfirlýsing forsetans jafngildir ekki fullnaðarákvörðun um að, aflétta vopnasölubanninu, en talið er að þingið veiti samþykki til að slíkt verði gert. Ecevit vildi að svo komnu máli engu spá um það hvort 26 bandarískar herstöðvar í Tyrklandi yrðu opnaðar að nýju í ljósi þessara nýju aðstæðna. Hann sagði að þar væri um að ræða annað mál, en herstöðvunum var Iokað þegar vopnasölubannið var sett á. Tyrkneski herinn og varnir þessa útvarðar Atlantshafsbanda- lagsins í austri hafa orðið sífellt þyngri baggi og hafa valdið ráðamönnum NATO miklum áhyggjum að undanförnu. Afleið- ingin hefur meðal annars orðið sú að varnarmáttur bandalagsins þar eystra hefur farið mjög þverrandi, og er talið að hann sé nú um helmingi minni en hann var fyrir þremur árum. — Hafréttar- ráðstefnan Framhald af bls. 1. hafréttarráðstefnunni. Sagði Castaneda að hafréttarráðstefnan væri stjórnmálalegur vettvangur ríkja en ekki háttsettra einstakl- inga, og yrði það hættulegt for- dæmi ef forseti ráðstefnunnar yrði endurkjörinn án þess að hann kæmi fram sem fullgildur fulltrúi ríkis, sem aðild ætti að ráðstefn- unni. Sagði Castaneda það skoðun S-Ameríkuríkjanna svo og ýmissa strandríkja, að Amerasinghe hefði hingað til tekið of mikið tillit til vilja landluktu ríkjanna á ráð- stefnunni. Meirihlutafylgi er fyrir því á ráðstefnunni að Amera- singhe verði endurkjörinn forseti, en samkvæmt fundarsköpum verður kosning hans að vera mótatkvæðalaus. — Deilt um Framhald af bls. 1. svipaðan afslátt á fargjöldum frá Berlín og Frankfurt vestur um haf, en til þess að breyta flugfargjöldum til og frá stöðum í Sambandslýðveldinu þarf sam- þykki stjórnarinnar í Bonn. Slíkt samþykki hefur ekki feng- izt enn sem komið er, en það hefur leitt til þess að síðustu daga hefur Berlín orðið sá áfangastaður, sem flestra leiðir liggja til. Talsmaður Lufthansa sagði í dag, að nú orðið hagnaðist enginn á því að flytja fólk yfir Atlatnshafið, og aðalforstjóri félagsins spáði því nýlega, að með því að samþykkja afláttar- fargjöld á þessari leið væru bandarísk flugmálayfirvöld að stuðla að hallarekstri fjöl- margra flugfélaga. í bækistöðv- um IATA í Genf er því spáð að þótt tvö eða þrjú flugfélög hefðu á árunum 1976 og 1977 haft lítilsháttar hagnað af farþega- flutningum á þessari flugleið væru fargjöld nú orðin of lág til að þetta flug svaraði kostnaði, og á þessu ári mundu jafnvel leiguflugfélög lenda í erfiðleik- um af sömu sökum. — Bágborin staða Framhald af bls. 12 1) Að sett verði lög um starf- hæfan kvikmyndasjóð. Fyrir Al- þingi liggur frumvarp mennta- málaráðherra um kvikmyndasjóð með 30 milljón króna framlagi úr ríkissjóði. Sambærilegir sjóðir hafa starfað í 10—15 ár á Norðurlöndunum og fjárveitingar til þeirra eru þessar: Svíþjóð 600 milljónir úr ríkissjóði og auk þess 1400 milljónir af aðgöngumiðaverði kvikmynda- húsa. Danmörk 965 milljónir úr ríkis- sjóði. Finnland 400 milljónir úr ríkis- sjóði og af aðgöngumiðaverði kvikmyndahúsa. Noregur Um það bil 1000 milljónir úr ríkissjóði. 2) Gera viðbótarsamning við Sjónvarpið um leiknar kvikmyndir og koma föstu formi á samvinnuna við Sjónvarpið, t.d. með því að ákveðinni prósentu heildardag- skrárkostnaðar þess verðj varið til framleiðslu kvikmynda í samvinnu við innlenda Kvikmyndagerðar- menn. 3) Skipuleggja samvinnuna við Fræðslumyndasafnið. Berjast fyr- ir því að safninu verði gert kleift að kaupa innlendar kvikmyndir á sannvirði og jafnframt að það geti staðið fyrir einhverri fræðslu- myndagerð. 4) Öll önnur málefni sem miða að því að færa okkur af stigi þróunarlands hvað varðar kvik- myndalist. — Könnun BHM Framhald af bls. 12 börn 41, þ.m.t. börn er voru á skólaskyldualdri. 64 konur svör- uðu spurningunni um það hvort foreldrið tæki sér frekar frí frá vinnu er barn þeirra veiktist. 41 (64%) taldi að móðirin gerði það oftar, 17 að það skiptist jafnt og 6 að faðirinn gerði það oftar. Að lokum var spurt hvort þær teldur sig njóta jafnréttis í launum á við karla og sögðu 128 kor.ur já (94%), nei 6% og spurningunni um hvort þær teldu sig njóta jafnréttis á við karla á annan hátt í starfi svöruðu 86% þátttakenda játandi og nei 19 konur og sögðu þær að svo væri samkvæmt kjarasamningum', en ekki þegar um stöðuhækkanir væri að ræða, það væru fyrst og fremst karlmenn er fengju stöður deildar- stjóra, yfirkennara, skólastjóra og annarra forstöðumanna. — Brezhnev F ram hald af bls. 15 hafa gefið vilyrði sín fyrir því að Bandaríkjamenn fái að staðsetja nifteindasprengjur í löndum þeirra. Fullvíst er talið að Breznev reyni að telja Schmidt á að leyfa ekki staðsetningu sprengjunnar í Vestur-Þýzkalandi. Brezhnev mun þó að öllum líkindum verða heldur seinn fyrir, því heimildir herma að utanríkisráðherra Vestur-Þýzka- lands, Hans-Dietrich Genscher, hafi haldið í dag í eins dags heimsókn til Bandaríkjanna. Er haft fyrir satt að ekkert sé því til fyrirstöðu að nifteindasprengjum sé komið fyrir í Vestur-Þýzka- landi. Brezhnev var boðið í opinbera heimsókn til Vestur-Þýzkalands fyrir fjórum árum, er Schmidt kom til Sovétríkjanna. Margsinnis hefur þurft að fresta heimsókn Brezhnevs, nú síðast í febrúar, er tilkynnt var að Brezhnev væri með kvef og gæti ekki komið. — Fiskiðnaður Framhald af bls. 2 4 við stjórnvöld og stundum hafi verið lofað að málið yrði tekið upp, en það síðan ekki fengið neina afgreiðslu. Hjalti Einarsson kvað vandamál fiskvinnslunnar auðvitað vera mun víðtækari en þetta, en þetta litla dæmi sýndi þó að sjávarút- vegur nyti ekki styrkja eins og svo oft virðist álitiö meðal fólks. — „Annie Hall” Framhald af bls. 15 bezta hljóðtækni — „Star Wars“ og „Close encounters of the third bezta hljóð — „Star Wars“ bezta erlenda kvikmyndin — „Madame Rosa“ bezta tónlistin John Williams — „Star Wars“ bezta kvikmyndunin Vilmos Zsig- mond — „Clpse encounters of the third kind“ bezta klippingin Paul Hirsch, Marcia Lucas og Richard Chew — „Star Wars“ brezta frumsamda lagið Josep Broods — „You light up my life“ — Sem mest frelsi. . . Framhald af bls. 13. nokkuð önnur leið í þessu frv. en í norrænni löggjöf, felst í því stórbætt vernd neytenda og lausn á ýmsum knýjandi vandamálum. Hér er þó aðeins um áfanga að ræða í þróun, sem ekki gengur fyrir sig á einum degi, sagði ráðherra. Síðan fjallaði hann um einstök atriði frv. er neytendavernd snertu, m.a. varðandi auglýsingar og villandi upplýsingar. Ný braut í verðlagsmálum Ráðherra sagði með þessu frv. væri farið inn á nýja braut í verðlagsmálum. Það væri stefnt að frjálsri verðmyndun sem byggðist á nægilegri samkeppni. Hins vegar yrði verðlagseftirlit ekki lagt niður, þó með öðrum hætti yrði en áður. Fylgzt yrði með verðlagsþró- un í hverri grein og því, hvort samkeppni væri nægileg til að tryggja sanngjarnt verðlag. Því sé áfram þörf starfhæfrar verðlags- stofnunar. Islendingar hafa lengi búið við verðlagsákvæði og verðlagseftirlit, sem skiptar skoðanir hafa verið um, er komið hefur fram í þeim árangri, sem sú starfsemi hefur borið. En þrátt fyrir skiptar skoðanir hygg ég hins vegar, að ljóst sé, að löggjöf um þetta efni, sem lengi hefur staðið lítt breytt, þarfnist endurskoðunar. Ég er heldur ekki í vafa um að þetta frv. í heild sinni verður til bóta, ef samþykkt verður. Það hefur að geyma mýmörg atriði, sem horfa til góðs, ekki sízt fyrir neytendur, ef vel tekst til um framkvæmd þeirra. En framkvæmd laganna kostar fjármuni. Það verða menn í upphafi að gera sér ljóst. Ég býst við að flestir játi, að sem mest frelsi sé æskilegt í þessum efnum. En aðstæður okkar eru þó á ýmsan veg aðrar en í þeim löndum sem við gjarnan miðum okkur við. Þess vegna þarf það, sem annars staðar á við, ekki endilega að vera bezta leiðin hér. Að lokum mæltist ráðherra til þess að fjárhags- og viðskipta- nefndir beggja þingdeilda störfuðu saman að athugun og meðferð frv., vegna þess hve stutt væri eftir þingtíma, til að málin gengju skjótar fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.