Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978
29
ííilÍS i * k i : K
/-N
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
ÍOIOO KL. 10—11
MBkÆMMH ny fjjÆrztK" aa'u ii
þessara fanga, sem hér er rætt um.
Þeir þurfa þess með. Engir þurfa
þess meira með en einmitt þeir.
Hlýjar hugsanir sem flestra gætu
haft áhrif á skapgerð þeirra og
þannig bætt andlega líðan þeirra.
Ásökum þá ekki lengur. Hættum
að dæma þá. Þeir eru þegar undir
hinu stranga oki dómsins. Sendum
þeim kærleikshugsanir. Sendum
hugsanir okkar einnig til æðri
máttarvalda, til hinnar æðstu
veru. Leitum þaðan hjálpar til
handa hinum ólánssömu með-
bræðrum okkar. Reynum að stilla
þá til æðri sambanda, við full-
komnara líf, annars staðar í
alheimi, þaðan sem streymir allur
máttur og lækning og góðvild til
allra manna, og einkum til allra
sem þjást. Og hinir lengra komnu
beina kærleikskrafti sínum ekki
síst til þeirra, sem lifa og lifað
hafa andstætt tilgangi lífsins og
lögmálum þess, og þeir munu
leitast við að milda og bæta
hugarfar þeirra sem farið hafa
villur vegar.
Þeir sem ódæði fremja, eru
vafalaust stundum undir hættu-
legum áhrifum frá illum stöðum
annars staðar í alheimi. Það er því
ekki lítið áríðandi, að slík sam-
bönd mættu eyðast, og í þeim
tilgangi skyldu sem flestir hugsa
vel til þeirra sem hér er talað um
og þannig stiila þá til sambanda
við æðri lífstöðvar, þaðan sem
hjálpar er að vænta.
Vita skyldum við, að það er
tilgangur lífsins að eyða megund
hins illa, og góðvildin er eina
vopnið, sem dugað getur í þeirri
baráttu.
Með auðsýndri samúð og góðvild
bætum við hugarfar sjálfra okkar
og annarra.
I.A.“
• Auðvelt nám?
„í dálkum „Velvakanda" mið-
vikudaginn 22. f.m. fór hr. Örn
Ásmundsson ekki rétt með um-
mæli mín í þættinum „Um daginn
og veginn" 20. f.m., er ég minntist
á áfengt öl. Þau voru þannig:
„Getur bruggun og sala áfengs
öls komið í veg fyrir það, að
unglingar neyti snemma víns og
gerist drykkfelldir? Ekki hef ég
trú á því. Einmitt í Svíþjóð, þar
sem áfengt öl er bruggað handa
ungmennum, kemur það í ljós, hef
ég lesið eða heyrt, að áfenga ölið
sé beita Bakkusar. Ungmennin
fara fljótt að vilja fá eitthvað
annað sterkara. Áfenga ölið verð-
ur þeim þá skólaganga í áfengis-
nautn, ofneyslu áfengis, drykkju-
skap. Heyrt hef ég, að mörgum þar
sækist það nám fljótt.“
Samkvæmt tveimur bandarísk-
um bókum, sem ég hef lesið, getur
bjórþefur æst upp áfengislöngun í
drykkjumönnum, sem vilja hætta
við áfengisnautn. Slíkt getur átt
sér víðar stað en þar.
Sæmundur G. Jóhannesson.“
• Mannleg
samskipti
Kærleikur og mannleg sam-
skipti nefnist erindi er flutt var í
útvarpi á sunnudag. Var það
hljóðritun frá bræðrakvöldi í
dómkirkjunni nú um páskana og
hefur Velvakandi verið beðinn að
fara fram á það við útvarpið að
það endurtaki þessa hljóðritun.
„Ég gleymi aldrei þessari útsend-
ingu og veit ég að margir mér
kunnugir og aðrir sem ég hefi hitt,
misstu af því“, sagði kona nokkur
er hafði samband við Velvakanda,
„en aðalefnið var erindi Hilmars
Helgasonar formanns SÁÁ um
kærleika og mannleg samskipti."
t Malbikum
spottann!
Var hvatning ökumanns sem
oft fer um Kleppsvég og í fram-
haldi af því Sætúnið í Reykjavík,
en á milli þessara tveggja gatna er
ómalbikaður vegarspotti. „Þetta
dregur mjög úr umferðarhraðan-
um,“ sagði ökumaður nokkur,
„þannig að allir verða að hægja á
sér til að brjóta ekki bílana eða
skemma þá. Spottinn er svona um
50 metra langur og er því varla
neinn ógurlegur kostnaður því
samfara að sletta malbiki eða
olíumöl á þennan kafla og þar með
að bæta úr þessu litla vandamáli,
sem þó er mjög svo hvimleitt fyrir
okkur sem förum þarna mikið um
á degi hverjum. Margt af bílunum
sem þarna fara um eru vörubílar
og ekki sízt fyrir þá er leiðinlegt
að geta ekki ekið óhindrað fyrir
svona óeðlilegum hindrunum.
Þessir hringdu
• Tapaði
10 þús. kr.
Stúlka nokkur varð fyrir því
óhappi er hún var í Stjörnubíói s.l.
sunnudag kl. 19.13 að hún tapaði
veski sínu með kr. 10 þús. og
skilríkjum í, öku- og nafnskírteini.
Er hún viss um að hún hefur misst
það í kvikmyndahúsinu, en það
fannst ekki við leit þar. Biður hún
því finnanda vinsamlegast að
koma því til sín, eða til lögregl-
unnar, því bagalegt sé fyrir hana
að hafa ekki skilríki sín. Sími
hennar er 12647.
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Svoétríkjunum í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Dzjubans og Pavlenkos,
sem hafði svart og átti leik:
HÖGNI HREKKVÍSI
© 19T8
? ‘ MeNa^kt8^4..hc.
GRAFÍSKA SVEINAFÉLAGIÐ
Skrifstofa félagsins aö Bjargi, Óöinsgötu 7,
verður opin á miövikudögum og fimmtudögum
frá kl. 16.15 til 19.00.
Símanúmer skrifstofunnar er 19945.
• ? •
X
SKÁKSAM BAIMD
is
Skákþing Islands 1978
kvennaflokkur
Keppnin hefst laugard. 8. apríl. Innritun í síma
75893 eigi síöar en 6. apríl kl. 20.
Stjornin.
Morgunblaóið óskar
eftir blaðburðarfólki
AUSTUR
BÆR
Ingólfsstræti,
Upplýsingar í síma 35408
*f$ttttM*fcIfr
Ég held það hljóti að vera barkabólga?
Til sölu er 4 tonna Commer díselvörubif-
reiö, árgerö 1968, meö vökvastýri og
aflhemlum.
Bifreiöin er ekki meö sturtum en meö 14
feta palli fremur lágt byggöum.
Til sýnis í bifreiðasölu
Egils Vilhjálmssonar h.f.,
Laugavegi 118,
sími 22440 og 15700.
21. ... Rxf2!!, 22. Hxf2 - Bd3!,
23. Bfl - He2!!, 24. Re4 - Bxf2+
og hvítur gafst upp. Glæsileg
útfærsla á hagnýti leppunar.