Morgunblaðið - 05.04.1978, Page 11
Al'GLYSINGA-
SÍMLNN KR:
22480
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978
Daufleg
aflabrögð
Ólaísvík 3. apríl.
MJÖG dauflega horfir með afla-
brögð á þessari vertíð. Varla hefur
fengizt bein úr sjó síðustu daga,
nema hvað einn bátur hefur róið
með línu og aflinn verið allgóður,
5—8 tonn. Samanburður við ver-
tíðina 1977 er þannig, að frá
síðustu mánaðamótum höfðu bor-
izt á land 3877 lestir í 864
sjóferðum og er afli togarans
Lárusar Sveinssonar talinn með,
en bátaaflinn var í fyrra á sama
tíma 4771 lest í 1003 sjóferðum.
Aflahæstu bátar eru Próði með
310 lestir í 53 sjóferðum og Jökull
með 298 lestir í 56 sjóferðum.
Línubáturinn Jón Jónsson hefur
fengið 247 lestir í 49 sjóferðum. -
Ilcltfi.
Ónæmisaðgerðir
gegn mænuveiki
Á árabilinu 1970—1976 gekkst
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
íyrir árlegri bólusetningarher-
ferð gegn mænuveiki meðal full-
orðinna. Ástæðan fyrir því var að
komið hafði í ljós. að þeir sem
hefðu fengið frumbólusetningu
fyrir 1962 höfðu ófullnægjandi
vörn gegn veikinni, en með því
átaki sem gert var, er talið. að
ónæmisástand fólks sé almennt
komið í viðunandi horf.
Nú er talið að fjórar ónæmisað-
gerðir, með því bóluefni sem notað
er hér á landi, veiti fullnægjandi
vörn þó með vissum undantekn-
ingum. í fyrsta lagi þurfa þessar
bólusetningar að hafa átt sér stað
eftir ákveðnum reglum. Auk þess
er þeim einstaklingum sem ferðast
til sólarlanda ' eða vanþróaðra
landa ráðlagt að efla ónæmið enn
frekar með því að endurtaka
bólusetninguna einu sinni á
tveggja til þriggja ára fresti. Til
að bólusetning teljist fullnægjandi
þarf hún að vera framkvæmd á
eftirfarandi hátt:
Fyrsta og önnur ónæmisaðgerð
með fjögurra til sex vikna milli-
bili.
Þriðja ónæmjsaðgerð eftir sjö
mánuði til ár.
Fjórða ónæmisaðgerð eftir
fimm ár.
Á barnadeildum og í grunnskól-
um hefur þessi ónæmisaðgerð
verið framkvæmd eftir settum
reglum.
Þeir sem ekki eiga ónæmisskír-
teini, en hafa fengið ónæmisað-
gerðir sínar hér í Reykjavík, geta
leitað upplýsinga um þær á
Heilsuverndarstöðinni. Þar fara
einnig fram ónæmisaðgerðir fyrir
fullorðna gegn mænuveiki á mánu-
dögum kl. 16.30—17.30.
(Fréttatilkynning frá
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur).
Ágætur afli þrátt
fyrir lélegar gæftir
ÞRÁTT fyrir fremur óhagstæðar
gæftir og viku þorskveiðibann er
afli Hornafjarðarbáta frá áramót-
um til marzloka orðinn 4214 tonn
í 683 sjóferðum.
Á sama tíma í
fyrra var hann 3573 tonn í 425
sjóferðum, þar í innifalinn afli
togarans Skinneyjar, sem var í
marzlok 534 tonn í 7 sjóferðum.
Aflahæsti báturinn er Hvanney
með 505 tonn í 51 sjóferð og Gissur
hvíti með 451 tonn í 50 sjóferðum.
Alls var landað 15700 tonnum af
loðnu. Er það heldur minna en í
fyrra. Fryst voru um 30 tonn og
loðnuhrogn urðu 43.5 tonn. -
Gunnar.
Ketil Björnstad.
Ljóð og jass í
Norræna húsinu
Norski rithöfundurinn og
píanóleikarinn Ketil Björnstad
verður gestur Norræna hússins í
næstu viku og flytur hann tvær
dagskrár. Sú fyrri verður í dag
miðvikudagskvöld kl. 20.30 og hin
síðari sunnudag kl. 16.
Ketil Björnstad, sem fæddur er
1951, varð fljótt þekktur fyrir
ljóðasöfn sín, segir í frétt frá
Norræna húsinu, en hann er
einnig tónlistarmaður, jafnvígur á
jass og sígilda tónlist. Semur hann
einnig tónverk og mun á fyrr-
greindum dagskrám í Norræna
húsinu lesa upp og leika á píanó
eigin verk.
Ketil Björnstad hefur leikið
verk sín inn á sjö hljómplötur og
hefur hann þá leikið með mörgum
kunnum jassleikurum í Noregi.
Kirkjan á Eyrarbakka eftir breytingarnar að utan. Ljósm.i M.K.
Miklar endurbætur
á Eyrarbakkakirkj u
Á síðasta ári var unnið að
endurbótum á Eyrarbakkakirkju ‘
en hún var reist á árunum 1890
— 1891. timburkirkja á tveimur
hæðurn. Rifið var járn og klæðn-
ing af veggjum, grind hennar
mikið endurnýjuð, skipt um
glugga og kirkjan síðan klædd
timbri að utan. Er hún nú svipuð
því sem hún var í upphaflegri
gerð.
Einnig var stækkuð forkirkjan,
ný útidyrahurð sett upp og segir í
frétt frá sóknarnefnd að kirkjan
þyki nú svipmeiri en áður og
stækkun, sem hafi verið gerð á
forkirkjunni sé mjög til bóta.
Kostnaðurinn við þessa endurnýj-
un nam rúmum 5 milljónum
króna. Þá segir í fréttinni að
endurbætur hafi að nokkru hafist
á árinu 1976 er börn Friðriks
Sigurðssonar frá Gamlahrauni
gáfu predikunarstól, og gerðar
voru endurbætur í kór kirkjunnar
en æskulýðsfélag kirkjunnar
greiddi kostnaðinn við þær. Auk
þessa var endurnýjuð hvelfing
kirkjuskips og kórs og kostuðu
þessar framkvæmdir samtals tæp-
lega 600 þúsund krónur.
I ráði er að halda áfram
framkvæmdum á næsta eða næstu
árum, m.a. endurnýja gólf, raf-
lagnir, bekki og mála hana að
innan. Er það von sóknarnefndar
að þessum framkvæmdum takist
að ljúka fyrir 90 ára afmæli
kirkjunnar árið 1981. Bjarni Ólafs-
son hefur séð um hönnun þessa
verks ásamt Björgvini Hjálmars-
syni arkitekt og Guðmundi Hjálm-
arssyni tæknifræðingi.
Þá er getið um aðrar gjafir er
Eyrarbakkakirkju hafa borist að
undanförnu, m.a. 1 milljón króna
er Jón Axel Pétursson og Ástríður
Einarsdóttir gáfu til minningar
um foreldra Jóns, Pétur Guð-
mundsson og Elísabetu Jónsdóttur
og velunnari kirkjunnar sem ekki
óskar að láta nafns síns getið gaf
henni húseign á Eyrarbakka til
frjálsrar ráðstöfunar sóknar-
nefndar. Einstaklingar og hópar
hafa einnig gefið aðrar gjafir og
námu þessar gjafir alls árið 1977
kr. 2.149.078.—. Þá hefur Kvenfé-
lag Eyrarbakka tilkynnt að það
muni afhenda kirkjunni fjármuni
til notkunar við fyrirhugaðar
breytingar.
Sambyggt ferðautvarpstæki er lausnin
Verð kr. 46.745.-
r’* qdo
Verð kr. 89.115.-
Eigum nú mikiö úrval
af frábærum
f eröa útva rpstæ kju m
Verð kr. 19.980-
Verð kr. 56.930-
» ^ I IHÍ i'j
5 SIMI 29800 (5
BUÐIIM 27 ÁR Í FARA