Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 13 Olafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra: Sem mest frelsi æski- legt í þessum efnum — sagði viðskiptaráðherra í framsögu um nýtt verðlagsfrumvarp ÓLAFUR Jóhannesson, viðskipta- ráðherra, mælti fyrir stjórnar- frumvarpi að nýrri verðlagslög- gjöf í fyrradag. Nokkur efnis- atriði ár framsögu hans verða rakin hér á eftir og grein verður gerð fyrir umræðu um frumvarp- ið á þingsiðu Mbl. á morgun. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar I upphafi máls síns gat ráðherra þess að frv. væri samið og flutt í samræmi við ákvæði stefnuyfir- lýsingar ríkisstjórnarinnar, en í stjórnarsáttmálanum segði um það efni: „Undirbúin verði ný löggjöf um verðmyndun, viðskipta- hætti og verðgæzlu. Stefnt verði í frjálsri álagningu og frjálsri verðlagningu yfirleitt er, að sam- keppni sé nægileg til þess að tryggjn sanngjarnt verðlag. I framkvæmd yrði þetta svo, að verðlagsráð mundi meta það, hvort samkeppni í ákveðinni grein væri nægileg til þess að réttlæta verðlagningarfrelsi. Má því búast við, að frjálsri verðlagningu yrði komið á í áföngum." Við hvað skal miðað? Varðandi hugsanlegar aðgerðir, ef samkeppnisaðstaða yrði ekki fyrir hendi, sagði ráðherra að leiðbeiningar fyrir verðlagsráð og verðlagsstofnun væru m.a. í 12. gr. frv. Þar segir m.a.: „Verðákvarðanir samkv. 8. gr. skulu miðaðar við afkomu fyrir- tækja, sem rekin eru á tæknilega frjárhagslega hagkvæman hátt og nýta eðlilega afkastagetu. Verð og álagningu má ekki ákvarða lægra en svö, að fyrirtæki þeirrar tegundar, er í 1. mgr. getur, fái greiddan nauðsynlegan kostnað við innkaup eða endurinnkaup vöru, framleiðslu, aðflutning, sölu, flutning ásamt afskriftum, svo og sanngjarnan hreinan hagnað, þeg- ar tekið er tillit til áhættunnar við framleiðslu vörunnar og sölu.“ í 13. gr. segir, að verðlagsstofn- un skuli í því skyni að örva verðskyn neytenda efla verðsam- keppni og til að tryggja sann- gjarna verðlagsþróun, rannsaka verð- og álagningarhætti á ein- stökum vörum, vöruflokkum og birta grg. og fréttatilkynningar þar um. Verðlagsstjóri hefur að undanförnu nokkuð farið inn á þá braut, sem þar er fjallað um og menn hafa ugglaust veitt athygli." Verðlagsráð og samkeppnisnefnd Ráðherra vék m.a. að II. kafla frv., sem fjallar um stjórnsýslu og framkvæmd, er verður í höndum verðlagsráðs, samkeppnisnefndar og verðlagsstofnunar. í verðlags- ráði verða 7 menn. Viðskiptaráð- herra skipar formann ráðsins án tilnefningar. Tveir tru skipaðir skv. tilnefningu launþega, 2 skv. tilnefningu vinnuveitenda og 2 Samkeppni og frjáls verðmyndun hafa hvarvetna tryggt bezt hagsmuni neytenda um vöruúrval og vöruverð. skv. tilnefningu hæstaréttar. Verðlagsráð fjallar um öll mál, sem frv. tekur til. Akvörðunarvald skv. IV. kafla laganna um mark- aðsráðandi fyrirtæki og sam- keppnishömlur og að hluta til V. kafla, sem fjallar um óréttmæta viðskiptahætti og neytendavernd, verður hins vegar í höndum samkeppnisnefndar, sem skipuð er formanni verðlagsráðs og þeim tveim fulltrúum ráðsins öðrum, sem skipaðir eru skv. tilnefningu hæstaréttar. Þannig er tryggt að hlutlausir aðilar geta ráðið ferð í samkeppnisnefnd og hafa oddaað- stöðu í verðlagsráði. Verðlagsráð hefur m.a. úr- skurðarvald um, hvenær forsendur frv. um samkeppnisaðstöðu nægi til frjálsrar verðákvörðunar. óréttmætir viðskiptahættir og neytendavernd Ráðherra sagði að vegna sparnaðar og hagkvæmnissjónar- miða væri reynt að fella saman þrjá höfuðmálaflokka, sem þetta frv. fjallar um, þ.e. verðlagsmál, samkeppnismál og óréttmæta verðzlunarhætti í einn lagabálk og láta framkvæmd þeirra vera í höndum sömu aðila. Byggist sú viðleitni á séríslenzkum aðstæð- um. Margt, sem snerti neytenda- mál, sé í öðrum lögum, sem fjalla um ákveðin og að ýmsu leyti ólík svið, og megi sem dæmi nefna annars vegar kaupalög og hins vegar matvælaeftirlit. Þó farin sé Framhald á bls. 18 Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráð- herra. átt til almenns eftirlit's neytenda með viðskiptaháttum til að tryggja heilbrigða samkeppni og eðlilega verðmyndun verzlunar- og iðnfyrirtækja til bættrar þjónustu fyrir neytendur. Haft verði sam- ráð við hagsmunasamtök þau, sem hlut eiga að máli.“ Síðan gerði ráðherra grein fyrir aðdraganda og undirbúningi frv. í löngu máli, sem ekki er rúm til að rekja hér frekar að sinni. Frjáls verðlagning Ráðherra gerði grein fyrir efnis- atriðum frumvarpsgreina. Um þann kafla þess, sem fjallar um verðákvarðanir, sagði hann m.a.: „III. kafli fjallar um verð- ákvarðanir. Mikilvægasta gr. þess kafla, er 8. gr., en hún hljóðar svo: „Þegar samkeppni er nægileg til þess að tryggja æskilega verð- myndun og sanngjarnt verðlag, skal verðlagning vera frjáls. Nú hefur verðlagning verið gefin frjáls og getur Verðlagsstofnun þá skyldað hlutaðeigandi aðila til að tilkynna stofnuninni verðhækkan- ir. Reynist samkeppni takmörkuð eins og nánar er tilgreint í IV. kafla eða samkeppni er ekki nægileg til að tryggja sanngjarnt verðlag, ef horfur eru á ósann- gjarnri þróun verðlags og álagn- ingar, getur verðlagsráð ákveðið eftirtaldar aðgerðir til að ná því takmarki, sem getið er um í 1. gr. frv. 1. Hámarksverð og hámarksálagn- ingu. 2. Gerð verðútreiknings eftir nánar ákveðnum reglum. 3. Verðstöðvun í allt að 6 mánuði í senn. 4. Aðrar reglur um verðlagningu og viðskiptakjör, sem verðlagsráð telur nauðsynlegar hverju sinni." Segja má að í þessari gr. komi fram eitt meginmarkmið frv., þ.e.a.s. að gefa verðlagningu frjálsa, þegar samkeppni er nægi- leg. Ég vil leggja sérstaka áherslu á það, að alger forsenda fyrir Stund niilli stríða Taktu þer hle fra daglegum störfum um stund og fáðu þér mjólkurglas. Engin fæða uppfyllir betur þau skilyrði að veita þér flest þau næringarefni. sem nauðsynleg eru lífi og heilsu. Slakaðu á smástund frá starfi og streitu dagsins og byggðu þig upp til nvrra átaka um leið. Drekktu mjolk i dag - og njóttu þess. Miolk oii orkuhnd okkar oj heiLsuídafi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.