Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 19 — Skyndiverk- fall. .. Framhald af bls. 32. leiðaflugmanna eða aðra talsmenn flugmanna. Hér fer á eftir fréttatilkynning Félags Loftleiðaflugmanna: „Komin er upp deila milli Loftleiða og Félags Lofteliðaflug- manna vegna launagreiðslna. Flugmenn Loftleiða vinna eftir samningi, sem var undirritaður 28. apríl 1976 og hefur verið laus síðan 15. október 1977. Eru flugmenn aennilega eina launastétt landsins, sem vinnur eftir tæplega 2ja ára gömlum samningi. í samningnum er kveðið á um að vísitala framfærslukostnaðar skuli tryggja kaupmátt launa flugmanna Loftleiða og var hún síðast greidd í nóvember 1977. Við þessi áramót eru vangreidd 6% af vísitölu. Flugmenn Loftleiða hafa setið á fundi í dag, 4. apríl, og fjallað um þetta mál. Viðræður eru einnig í gangi við vinnuveit- endur. Flugmenn hafa af þessum sökum ekki getað mætt til flugs seinni hluta dagsins." Hér fer á eftir samtal Mbl. við Örn Ó. Johnson um gang mála í gær: „Það var um kl. 15 í dag að stjórn Félags Loftleiðaflugmanna kom að máli við formann samn- inganefndar og starfsmannastjóra Flugleiða," sagði Örn, „þeirra erinda að mótmæla vísitölu- greiðslum til handa félagsmönn- um Félags Loftleiðaflugmanna við útborgun launa 1. þ.m., en þær vísitölugreiðslur voru i samræmi við lögin um efnahagsráðstafanir, svo sem framkvæmt hefur verið af hálfu Flugleiða við alla starfs- menn félagsins. Jafnframt tilkynnti stjórn Loft- leiðaflugmanna að almennur félagsfundur stæði þá yfir á Hótel Loftleiðum og myndi honum fram haldið um ótiltekinn tíma nema því aðeins að annars vegar kæmi til full vísitölugreiðsla á laun Loftleiðaflugmanna eða samsvar- andi bætur undir öðru heiti. Jafnframt var tilkynnt að vegna ofangreinds fundarhalds væri þeg- ar orðin töf á flugi tveggja Loftleiðavéla á leið vestur um haf, en báðar vélarnar voru fullsetnar farbegum, 250 manns í hvorri vél á leið til Chieago og New York. I kjölfar þessa ræddi stjórnar- nefnd Flugleiða við fulltrúa Loft- leiðaflugmanna og tjáði þeim að ef talið væri að um brot á samning- um eða lögum væri að ræða, væri flugfélagið að sjálfsögðu reiðubúið til þess að leggja málið til úrskurðar fyrir félags- eða gerðar- dóm og jafnframt tjáðu fulltrúar Flugleiða flugmönnum að vísitölu- bætur til allra annarra starfs- manna Flugleiða hefðu við síðustu mánaðamót verið framkvæmdar í samræmi við fyrrgreind lög lands- ins um efnahagsráðstafanir. Þegar hér var komið sögu var klukkan nokkuð gengin í 19 og þá þegar orðin veruleg seinkun á umræddum flugferðum og til- kyhnti stjórnarnefnd Flugleiða fulltrúum Loftleiðaflugmanna þá að hún gæfi þeim frest til kl. 19 til þess að afturkalla ákvörðun flugmannafélagsins um þessa fyrirvaralausu og ólögmætu vinnustöðvun og jafnframt var bent á að yrði þessu ekki sinnt eða til frekari röskunar kæmi á flugáætlun af þessum sökum myndi félagið neyðast til þess að flytja þá 500 farþega sem voru vegalausir í Keflavík í bæinn til gistingar og um leið var hafist handa um útvegun erlendra leigu- flugvéla til þess að koma farþeg- unum til síns áfangastaðar. Að loknum ofangreindum fresti, eða um kl. 19, komu fulltrúar Félags Loftleiðaflugmanna aftur til fundar við fulltrúa Flugleiða og tjáðu þeim að fundahaldi félgs flugmanna væri lokið og væru flugmenn reiðubúnir að hefja störf að nýju, en þó því aðeins að þeim væru greiddar fullar vísitölubætur Amnesty spyr um f jöldamorð á láún sín eða yfirlýsing um slíkt kæmi frá Loftleiðum. Þegar svo var komið hófust Flugleiðir handa um framkvæmd fyrrgreindra ráðstafana vegna farþega félagsins, bllar voru send- ir til Keflavíkur eftir 500 manns og gisting var útveguð á Hótel Loftleiðum, Hótel Esju og fleiri hótelum í borginni, en búizt var við að allir farþegar kæmust í hótelgistingu. Að öðru leyti er ekki vitað um framhald málsins hvað flugmenn varðar." Aðspurður kvað Örn lögbundna vísitöluskerðingu milli 5 og 6% þýða um 20—45 þús. kr. á mánuði hjá flugmönnum allt eftir því hvar þeir væru í launastigum sem er frá 400—900 þús. kr. á mánuði. „Við teljum,“ sagði Örn, „að þessi lög nái jafnt til allra verðbóta á laun í hvaða formi sem þær eru greiddar, en erum tilbúnir að hlíta úrskurði félagsdóms í málinu. Allir starfsmenn okkar hljóta að sitja við sama borð í þessu efni, en staðan vegna þessarar deilu er mjög alvarlegt mál. Það er um mikla samkeppni að ræða á Norður-Atlantshafs- fluginu og áhrif þessarar vinnu- stöðvunar verða örugglega nei- kvæð fyrir starfsemi okkar og við höfum ekkert tækifæri til þess að aðvara okkar farþega. Það má einnig benda á að þeir 500 farþegar sem teppast nú hér á landi eru aðeins hluti af dæminu, því flugvélar okkar áttu í dag að fljúga fullsetnar farþegum frá Bandaríkjunum og skrifstofufólk okkar á endastöðvunum er nú í óða önn að reyna að koma farþegum þar á önnur flugfélög eða í hótelgistingu. Það getur verið að það eigi eftir að sýna sig að vera mjög afdrifarík ákvörðun sem flugmenn Loftleiða hafa tekið.“ Högni fékk ekki að tefla í kvennaflokki STJÓRN Skáksambands íslands hefur fellt umsókn frá varafor- seta þess um að hann fengi að tefla í kvennaflokki á Skákþingi Is- lands. Varaforsetinn, Högni Torfason, sótti um, en stjórnin felldi beiðni hans á jöfnum atkvæðum. Morgunblaðið reyndi í gær að ná tali af Högna til þess að spyrjast fyrir um, hvort hann ætlaði að kæra þessa afgreiðslu til jafnréttisráðs, en það tókst ekki. Konur hafa teflt í karlaflokkum á Skákþingi íslands. Brússel, 30. marz. AP. AMNESTY International skoraði í dag á stjórn Kambódíu að svara stöðugum ásökunum um fjölda- morð í landinu og fór þess á leit að hlutlausum aðilum yrði leyft að fara til landsins og kanna ásakanirnar. SamLökiu acgja að einu avörin sem hafi fengizt við ásökunum hafi verið svohljóðandi yfirlýsing utanríkisráðherra Kambódíu, Ieng Sary, í ræðu í maí 1975: „Við dæmum aðeins mikilvæfra glæpa- menn.“ Ekkert svar hefur borizt við kröfu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um skýring- ar á ásökunum. I yfirlýsingu frá Amnesty er haft eftir frönskum presti sem dvaldist í Kambódíu, Francois Ponchaud, að í það minnsta 100.000 manns hafi verið myrtir í landinu og allt að því tvisvar til þrisvar sinnum fleiri. Amnesty kveðst vilja rannsókn í málinu nú þar sem enn berist fréttir um aftökur í Kambódíu. EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU / ' : Flug og gisting Ein heild á lækkuðu verði. uða um land eru vel búin hótel. Þú getur farið í helgarferð með fiugfélaginu í hópi, með fjölskyldunni, eða bara þið tvö. Hringdu og spurðu um verð á helgarferð. FLUGFÉLAC ÍSLAJVDS INNANLANDSFLUG y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.