Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
68. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978
. Prentsmiója Morgunblaðsins.
Akveður
Carter að
stöðva
smíði
nevtrónu
sprengju?
Washington, 4. apríl. AP.
MIKIL óvissa ríkir nú um íram-
tíð nevtrónu-sprengjunnar. og
þykir óvænt heimsókn v-þýzka
utanríkisráðherrans til Washing-
ton dag renna stoðum undir
fregn Thc Ncw York Times í dag
um að Cartcr íorseti haía ákveðið
að leyfa ekki framlciðslu á þessu
umdeilda vopni. í Hvíta húsinu
íást þau svör að forsetinn hafi
enn ekki tekið ákvörðun, en
ýmsir telja að Warren Christoph-
er aðstoðarutanríkisráðherra
Bandarfkjanna sem'var f Bonn f
siðustu viku hafi tjáð stjórninni
það að forsetinn væri mótfallinn
þvi að sprengjan yrði framleidd.
Sé erindi Genschers til Washingt-
on að telja Carter hughvarf. Af
hálfu v-þýzku stjórnarinnar var
því lýst yfir í dag að Genscher
væri kominn til Washington til
að ræða nevtrón-sprengjuna við
Carter, Vance utanríkisráðherra
og Harold Brown varnamálaráð-
herra.
Nevtrón-sprengjan er nýtt
atómvopn, sem hefur tiltölulega
lítinn sprengikraft, en tvöfalda
geislavirkni venjulegra kjarnorku-
vopna og er mun nákvæmara vopn
en þær kjarnorkusprengjur, sem
tíðkazt hafa hingað til. Þannig
væri unnt að eyðileggja hernaðar-
mannvirki á takmörkuðu svæði án
þess að valda stórfelldum spjöllum
á mönnum og mannvirkjum á borð
við það sem fyrri sprengjugerðir
gætu gert.
Li Tschieng utanríkisviðskiptaráðherra Kína er um þessar mundir í opinberri heimsókn í
Vestur-býzkalandi, og var mynd þessi tekin er hann ræddi við Helmut Schmidt kanslara í Bonn í
gær. (AP—símamynd).
Nýtt bréf
frá Moro:
Óskar eftir
fangaskiptum
Róm, 4. apríl AP.
í BREFI, sem í kvöld barst í
hendur yfirvalda og talið er að sé
ófalsað. segir Aldo Moro að
„fresturinn sé senn útrunninn“,
um leið og hann fer þess á leit að
fangaskipti fari fram þar sem
það sé eina færa leiðin til þess að
honum verði sleppt. Með bréfi
Moros fylgdi þriggja síðna yfir-
lýsing frá „Rauðu herdeildinni,
en í kvöld boðaði Andreotti
forsætisráðherra til skyndifund-
Deilt um fargjöld milli
Berlínar og New York
Bonn, 4. apríl. AP.
ÚTLIT er fyrir að stjórnir Bretlands, Frakklands og Bandaríkj-
anna muni á næstunni beita ákvörðunarvaidi sínu til að útkljá deilu
um fargjöld á leiðinni milli Berlínar og New York, að því er haft
er eftir áreiðanlegum heimildum í Bonn. Mikillar óánægju gætir
nú hjá vestur-þýzkum flugmálayfirvöldum vcgna afsláttarfargjalds
Pan American-félagsins á þessari leið, en þau eru innan við 360
dollara, eða rétt um 90 þúsund íslenzkar krónur. Lægsta
sumarfargjald Lufthansa á sömu flugferð er 398 dollarar, eða
rúmar 101 þúsund íslenzkar krónur, og er þá í báðum tilvikum
átt við ferðir fram og til baka. Venjulegur farmiði á sömu flugleið
kostar yfir sumarmánuðina 880 dollara, eða um 224 þúsund krónur
íslenzkar.
Skilmálar Pan American fyrir
[ afsláttarfargjaldinu eru þeir að
farþegar tilkynni með þriggja
vikna fyrirvara í hvaða viku
þeir óski að leggja af stað í
ferðalagið, en flugfélagið til-
kynnir síðan um brottfarardag
og flugnúmer um það bil 10
dögum áður en ferðin er farin.
-Skilmálar Lufthansa eru hins
vegar þeir, að farþegi verður að
kaupa farmiðann minnst 45
dögum fyrir brottför og að hann
fljúgi ekki heim aftur fyrr en í
fyrsta lagi eftir tvær vikur og í
siðasta lagi eftir 45 daga.
Fátítt er að sigurvegararnir í
síðari heimsstyrjöldinni, Bretar,
Frakkar og Bandaríkjamenn,
sem enn ráða formlega ríkjum í
Vestur-Berlín beiti ákvörðunar-
rétti sínum í málum sem þessu.
Samkvæmt samningum, sem
gerðir voru í stríðslok um
málefni þess borgarsvæðis, sem
kom í hlut bandamanna við
skiptingu hernámssvæðisins,
geta fulltrúar þessara ríkja
ráðið úrslitum um flugfargjöld
til og frá Vestur-Berlín.
Pan American hefur sam-
kvæmt áreiðanlegum fregnum
gert sér vonir um að geta veitt
Framhald á bls. 18
ar um hvernig brugðizt skuli við
þessari síðustu sendingu úr
fylgsninu þar sem hryðjuverka-
menn halda Moro, fyrrverandi
forsætisráðherra ítali'u, föngn-
um.
í dag gerði Andreotti grein fyrir
Moro-málinu á þingi, og sagði þá
m.a. að ríkisstjórnin væri nokkurn
veginn jafnnær um málið nú og
þegar mannránið átti sér stað
fyrir 19 dögum. Um leið var því
lýst yfir að undir engum kringum-
stæðum yrði farið að kröfum
mannræningjanna.
II Popolo, sem er málgagn
stjórnarinnar, heldur því fram að
Moro hafi greinilega verið þving-
aður til að rita bréfið og sé
boðskapur þess í jafnmiklu ósam-
ræmi við vilja hans og afstöðu og
fyrri orðsendingar. I yfirlýsingu
„Rauðu herdeildarinnar" er krafa
um að öllum „kommúnistum verði
sleppt úr fangelsi og að gjöreytt
verði fangabúðum harðstjórnar-
innar“. Ekki er minnzt sérstaklega
Framhald á bls. 18
Rússar
heita
Palestínu-
aröbum
stuðningi
Beirút, 4. apríl. Reuter.
AÐ SÖGN áreiðanlegra heim-
ildarmanna í Beirút hefur
Sovétstjórnin heitið Palestínu-
aröbum, sem neita að láta
stöðvar sínar í S-Líbanon í
hendur friðargæzluliðs Sam-
einuðu þjóðanna, fullum stuðn-
ingi. Yfirmaður gæzluliðsins
fór til hafnarborgarinnar Tyr-
os í dag. Þar hafði þá slegið í
brýnu milli Israelsmanna og
Palestínuaraba, sem enn hafa
borgina á valdi sínu. Skipu-
lagningu af hálfu gæzluliðsins
um brottflutning Israels-
manna er enn ekki lokið.
Moshe Dayan, utanríkisráð-
herra Israels, er í Búkarest, og
er haft eftir áreiðanlegum
heimildum að Ceausescu for-
seti hafi á fundi þeirra í dag
lagt áherzlu á þá skoðun sína
að ísraelsmenn yrðu að hverfa
burtu af öllum hernumdum
svæðum ef samningar ættu að
takast um frið í Miðaustur-
löndum.
Samskiptm eru
komin á nýtt stig
— segir Ecevit um yfírlýsingu Carters
Ankara, 4. apríl. Reuter.
YFIRLÝSING Carters forseta um
að aflétta vopnasölubanni á Tyrk-
land hefur bersýnilega hreinsað
andrúmsloftið milli stjórna rfkj-
anna, og Bule * Ecevit, forsætis-
ráðherra Tyrkiands, lýsti í dag
yfir bjartsýni sinni og sagði að
samskipti ríkjanna væru hér með
Framhald á bls. 18
Hafréttarráð-
stefnan í Genf:
Amerasinghe
hafnað sem forseta
Genf, 4. apríl. AP.
FRÁ ÞVÍ að hafréttarráðstefna
Sameinuðu þjóðanna kom á ný
saman í Genf fyrir rúmri viku
hefur staðið í þófi um það hver
eigi að sitja þar í forsæti, og í dag
tóku fulltrúar Suður-Ameríku-
ríkja af skarið er þeir lýstu því
yfir að ekki kæmi til mála að
Hamilton Shirley Amerasinghe
yrði ráðstefnuforseti áfram. Á
fundi með fréttamönnum sagði
mexíkanski fulltrúinn Luis
Castaneda, sem hafði orð fyrir
s-amerísku fulltrúunum, að nauð-
synlegt væri að gæta þess að
nýjum forseta yrðu ekki fengin í
hendur sömu völd og Amera-
singhe, um leið og hann krafðist
Hamilton Shirley Amerasinghe
þess að sú regla yrði látin gilda
við afgreiðslu meiriháttar mála á
ráðstefnunni að um þau yrðu
gerðar samhljóða samþykktir en
ekki færi fram um þau venjuleg
atkvæðagreiðsla
Amerasinghe, sem verið hefur
forseti ráðstefnunnar síðan hún
kom fyrst saman fyrir tæpum
fimm árum, setti hana á þriðju-
daginn í síðustu viku, en vék að því
búnu sæti til bráðabirgða, eða þar
til ágreiningur um forsetamálið
væri leystur. Eftir að ný ríkistjórn
tók við völdum á Ceylon, eftir fall
Bandaranaike á síðasta ári er
Amerasinghe ekki lengur sendi-
herra og fulltrúi landsins á
Framhald á bls. 18