Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 1978
Landsgrunnslögin 50 ára í dag:
Minnispeningar gefnir út og
rit um vemdun landgrunnsins
F'IMMTÍU ár eru í dag, 5. apríl,
liðin frá því er lögin um
vísindalesa verndun land-
Krunnsins voru samþykkt á
Alþingi. Þessi lög voru grund-
völlur að öllum aðgerðum
íslendinga í sambandi við
víkkun fiskveiðilögsögu úr 3
sjómflum í 200 sjómflur. Frá
1948 hafa alls verið settar 87
reglugerðir á grundvelli lag-
anna og eru þá meðtaldar allar
friðunaraðgerðir, sem stjórn-
völd hafa fyrirskipað á þessu
30 ára tímabili.
Ríkissjórnin hefur samþykkt
að minnast þessa afmælis með
tvennum hætti. Annars vegar
verður efnt til útgáfu lítillar
bókar um sögu og þróun friðun-
ar á landgrunninu. Þar er sagan
rakin frá 1948, þróun þjóðar-
réttar og hvaðeina, sem gerzt
hefur í þessum málum. Mun
þetta rit koma út einhvern
næstu daga. Þá hefur einnig
verið ákveðið að slá minnispen-
ing í silfri og bronsi, sem
væntanlegur er á markað eftir
hálfan mánuð til þrjár vikur.
Verður minnispeningurinn
svipaður þjóðhátíðarpeningn-
um, sem gefinn var út 1974. Á
annarri hlið hans stendur með
jaðrinum „Lög um vísindalega
verndun fiskimiða landgrunns-
ins“, en á miðjum peningnum
stendur „Landgrunnslögin
1948-1978 - 5. apríl". Hin hlið
minnispeningsins sýnir ísland
og landgrunnið umhverfis. Er
landið upphleypt, en síðan koma
fram dýptarlínur landgrunnsins
umhverfis.
Þórður Ásgeirsson, skrif-
stofustjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að upplag
minnispeninganna yrði ekki
mjög stórt. Flestir silfurpening-
arnir verða aðeins seldir í
settum með bronspeningum.
Peninginn teiknaði Þröstur
Magnússon teiknari, sem einnig
teiknaði Þjóðhátíðarmyntina á
sínum tíma. Seðlabankinn mun
annast sölu minnispeninganna,
en enn hefur ekki verið ákveðið
hvað þeir eigi að kosta.
Peningarnir eru gerðir á
vegum Ispor og slegnir hjá
sænska fyrirtækinu Sporang.
Könnun BHM:
Yfir 95% háskólamenntaðra
kvenna vinna utan heimilis
BANDALAG háskólamanna
kannaði á s.I. ári atvinnuþátttöku
háskólamenntaðra kvenna, en
fjöldi þeirra var um áramót
1970 — 77 tæplega 900 eða um 16%
heildarfjölda háskólamenntaðra
manna. Sendir voru spurninga-
listar til 270 kvenna og bárust
svör frá 143. Þriðjungur þeirra
hafði lokið BA-prófi, um 8%
BSc-prófi, 8% prófi í læknis-
fræðum, en aðrir hópar voru
minni.
Yfir 95% þeirra, sem þátt tóku
í könnuninni, gegna störfum utan
heimilis og 5% sinna eingöngu
heimilisstörfum. Stærsti hópur-
inn eru kennarar 26%, næstflestir
voru sérfræðingar á rannsókna-
stofnunum, 7%, og læknar 6%.
45% kvennanna voru 32 ára og
yngri og 82% 42 ára og yngri.
Spurningarnar voru 8, sumir í
nokkrum liðum. Meðal þeirra var
hvort menntunin hefði nýtzt í
störfunum og svöruðu 74% þátt-
takenda því játandi og yfir 95%
höfðu gegnt störfum sem eru í
samræmi við menntun þeirra.
Fullan vinnudag utan heimilis
vinna 54% og gáfu hinar, 46% upp
eftirfarandi ástæður fyrir því að
vinna ekki fullan vinnudag; meiri
tími fyrir heimilisstörf (40%),
skortur á barnaheimilum (15%),
aðrar ástæður (45%) en þær voru
m.a.: Ekki þörf fyrir það, önnur
áhugamál, framhaldsnám og meiri
tími til að annast börnin.
Um það bil 97% kvennanna
töldu rétt að auka atvinnuþátttöku
kvenna og nefnd voru ýmis atriði
sem þyrfti að breyta til að svo
mætti verða svo sem fleiri barna-
heimili (49%), frjálsari tilhögun
vinnutíma (40%), aukin heimilis-
störf karla (39%), aukna mögu-
leika á endurmenntun kvenna
(35%) o.fl. Sumar tiltóku öll
atriðin og fleiri samtengd þeim.
110 konur í þessum hópi voru
mæður og dvöldu börn 4ra á
dagheimili, börn 30 á leikskóla,
börn 13 á heimili ættingja, börn
22ja í einkagæzlu, annars staðar
Framhald á bls. 18
SVO sem kunnugt er, eiga Færeyingar í smíðum sjómannaheimili skammt írá Sjómannaskólanum.
Ilafa þeir m.a. aílað peninga í byggingarsjóðinn með því að efna til bflhappdrættis. Hefur
byggingarnefndin, en formaður hennar er Jakob Mortensen, ákveðið að efna ti! happdrættis á þessu
ári og er vinningurinn ameriskur bfll. Er sala happdrættismiðanna nú í þann veginn að hefjast. í
fréttatilk. frá byggingarnefndinni segir að haldið verði áfram smíði hússins á þessu ári en platan
undir húsið er nú fullgerð. Ekki er þetta fyrirhugaða sjómannaheimili einskorðað við að vera hcimili
fyrir færeyska sjómenn heldur fyrir sjómenn almennt, sem leið eiga um Reykjavíkurhöfn. —
Bygginganefndin væntir þess að sölumönnum happdrættismiðanna sem reynt verður að selja um land
allt, verði vel tekið.
Prófkjör sjálfetæðis-
manna íMosfellssveit
SUNNUDAGINN 9. aprfl verður
prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Mosfellssveit og eru 12 manns f
framboði. Kosningin fer fram í
Hlégarði kl. 10—22 á sunnudag.
Frambjóðendur halda á fimmtu-
dagskvöld kl. 20:30 kynningarfund
í Hlégarði þar sem þeir flytja
ræður og svara fyrirspurnum.
Framboðslistann skipa: Jón M.
Guðmundsson oddviti, Hilmar
Þorbjörnsson lögregluvarðstjóri,
Salóme Þorkelsdóttir gjaldkeri,
Sæberg Þórðarson verktaki, Páll
Aðalsteinsson kennari, Hilmar
Sigurðsson viðskiptafræðingur,
Magnús Sigsteinsson búfræðiráðu-
nautur, Bernhard Linn bifreiðar-
stjóri, Svanhildur Guðmundsdótt-
ir húsfrú, Örn Kærnested raf-
virkjameistari, Ingunn Finnboga-
dóttir húsfrú og Einar Tryggvason
arkitekt.
Kjósa skal minnst fjóra og mest
sjö og á atkvæðaseðlinum verða
tvær auðar línur ef kjósendur vilja
bæta nöfnum við.
Bræðrafélag Langholtssóknar
boðar til útbreiðslufundar
NÆSTKOMANDI miðvikudag 5.
apríl mun Bræðrafélag Laugarnes-
sóknar boða til útbreiðslufundar í
fundarsal kirkjunnar kl. 20.30.
Meðal efnis á fundinum verur
erindi í umsjá Halldórs Rafnar
lögfræðings. Halldór Vilhelmsson
syngur einsöng með undirleik
Gústafs Jóhannessonar. Lagðar
verða fram teikningar af nýja
safnaðarheimilinu og mun Karl
Ómar Jónsson verkfræðingur út-
skýra þær. Einnig verða kaffiveit-
ingar.
Bræðrafélagið hefur starfað í
mörg ár, en lítið auglýst starfsemi
sína. En nú þegar sýnt er orðið að
nýtt safnaðarheimili fer að rísa af
grunni eru verkefnin mörg sem
blasa við safnaðarfólki og ekki síst
safnaðarfélögunum.
Kvenfélag Laugarnessóknar
hefur starfað mjög ötullega í
áraraðir, eins og safnaðarfólki er
kunnugt. Kvenfélagskonur hafa
mikið hvatt til frekari samvinnu
safnaðarfélaganna þ.e. Kvenfé-
lags, Bræðrafélags og jafnvel
Æskulýðsfélags. Haldinn var mjög
ánægjulegur fundur um þetta nú
fyrir skömmu og verður unnið
frekar að þessari samvinnu.
Hugmyndin með þessari sam-
vinnu er auðvitað sú, að hægt verði
að halda sameiginlega fundi og
vinna að sameiginlegum verkefn-
um fyrir kirkjuna, ekki síst með
byggingu safnaðarheimilisins í
huga.
Eg vil því hvetja karla jafnt sem
konur á öllum aldri að koma til
starfa í Kvenfélagi og Bræðrafé-
lagi safnaðarins. Sérstaklega vil
ég hvetja karlmennina til að sækja
þennan auglýsta útbreiðslufund,
sem vonandi á eftir að sýna að í
sókninni leynast margir sem vilja
kirkjunni vel og vilja ganga til
starfa undir merkjum hennar.
Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur.
Aðalfundur kvikmyndagerðarmanna
Bágborin staða inn-
lendrar kvikmyndagerð
ar áfram á dagskrá
AÐALFUNDUR Félags kvik-
myndagerðarmanna var haldinn
fyrir skömmu, og hefur Mbl.
borizt eftirfarandi fréttatilkynn-
ing um þau mál sem tekin voru
fyrir á fundinum>
I skýrslu fráfarandi stjórnar
kom fram, að félagið hafði gerst
aðili að Norræna kvikmynda- og
sjónvarpssambandinu (Nordisk
Film og TV Union) og var
aðalfundur sambandsins 1977
haldinn í Reykjavík. Þar var kynnt
hin bágborna staða sem kvik-
myndagerð býr við á íslandi og í
tengslum við fundinn var þrýst á
ráðamenn vegna fyrirhugaðs
frumvarps um kvikmyndasjóð.
Það var hins vegar ekki fyrr en
eftir sameiginlegan þrýsting* frá
Félagi kvikmyndagerðarmanna,
Bandalagi listamanna og fram-
kvæmdastjórnar Listahátíðar, að
menntamálaráðherra Vilhjálmur
Hjálmarsson lagði frumvarp um
kvikmyndasjóð og kkvikmynda-
safn fram á Alþingi. Kvikmynda-
hátíð Listahátíðar var haldin í
febrúar 1978 og átti Félag kvik-
myndagerðarmanna tvo fulltrúa í
undirbúningsnefnd hennar. Full-
trúar félagsins sóttu alþjóðlega og
norræna fundi, m.a. undirbúnings-
fund vegna ráðstefnu um samstarf
sjónvarpsstöðva og kvikmynda-
gerðarmanna á vegum Norræna
kvikmyndaráðsins (Nordisk Film
Utvalg), fund um Kvikmynda-
menningu á Norðurlöndum (Film-
kulturen í Norden), sem haldinn
var í Helsinki í þyrjun mars, og
fulltrúi félagsins mun sækja fund
Alþjóðasambands kvikmynda-
gerðarmanna (FISTAV) um sjón-
varpstungl í byrjun apríl.
Sex nýir félagar voru teknir í
félagið á aðalfundinum og eru
félagar þá orðnir 42.
Á aðalfundinum var samþykkt
eftirfarandi ályktun vegna úthlut-
unar listamannalauna: „Félag
kvikmyndagerðarmanna harmar
að úthlutunarnefnd listamanna-
launa skuli enn á ný hafa opinber-
að ókunnugleika sinn á tilveru
kvikmyndagerðar í landinu."
Nýja stjórn félagsins skipa:
Þorsteinn Jónsson formaður, Sig-
urður Sverrir Pálsson varaformað-
ur, Páll Steingrímsson ritari,
ísidór Hermannsson gjaldkeri.
Helstu málefni sem félagið mun
vinna að á næstunni eru:
Framhald á bls. 18
Skógræktar-
sýning í
Norræna húsinu
SKÓGRÆKT ríkisins og Skóg-
ræktarfélag Islands gangast fyrir
fræðslusýningu í Norræna húsinu
6.-9. apríl.
Sýningin verður opnuð fimmtu-
dagskvöldið þ. 6. apríl kl. 20.30. Að
lokinni opnun sýningar flytur
prófessor Ola Börset frá Noregi
erindi, er fjallar um skógrækt við
erfið skilyrði. Erindi hans nefnist:
„Polare og alpine skogers ökolog-
iske, sosiale og ökonomiske
betydning“.
Á laugardagskvöldið þ. 8. apríl
verða kynningarfundir í Norræna
húsinu, þar sem kynnt verða störf
þeirra opinberu aðila, sem vinna
að skógrækt hér á landi. Að
loknum framsöguerindum verða
frjálsar umræður.
(Fréttatilkynning)