Morgunblaðið - 15.04.1978, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
77. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Cyrus Vance utanríkisráðherra Bandaríkjanna kynnir Julius Nyereré hér sendinefnd
Bandaríkjanna í viðræðum hans og Owens utanríkisráðherra Breta við leiðtoga aðila
Rhódesíudeilunnar. Á hægri hönd Vance situr Andrew Yong sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum.
ísraelar fara
frá S-Líbanon
Kyrrt áfram í Beirut í gær
Bcirut. Kairó. Metulla.
11. aprl. Al*. Reuter.
í KVÖLD, föstudag virtist allt vera með kyrrum kjörum
í Beirut eftir mjög alvarlega bardaga þar síðustu daga en
í þeim munu hafa látizt að minnsta kosti 50 manns og
slasaðir eru hátt á þriðja hundrað.
Þá var útlit fyrir það í kvöld að
ísraelar væru að byrja að færa sig
frá nokkrum stöðvum í Suð-
ur-Líbanon sem þeir hafa haft á
valdi sínu og láta eftirlitssveitir
Sameinuðu þjóðanna taka þar við.
Heldur sýndust þó þeir flutningar
ganga hægt fyrir sig, að minnsta
kosti fram eftir degi.
Frá Kairó bárust þær fréttir
síðdegis að friðarviðræður Israela
og Egypta væru algerlega í sjálf-
heldu og því aðeins gæti komið til
Tillögur norsku stjórnarinnar um aðgerðir í efnahagsmálum:
Rauntekjur standa í stað
eða minnka næstu 4 ár
Ósló. 11. aprfl. AP. Reuter.
í TILLÖGUM norsku stjórnar-
innar um aðgerðir í efnahagsmál-
um sem birtar voru í dag kemur
fram að Norðmenn, verða að
herða mjög sultarólina á næstu
mánuðum.
Samkvæmt tillögunum geta
einungis barnafjölskyldur, eftir-
launafólk og fólk í lægstu launa-
flokkunum búist við lítilsháttar
aukningu á rauntekjum sínum
næstu fjögur árin, að því er
Odvar Nordli skýrði frá. beir sem
Eþíópíustjórn hót-
ar Sómalíu öllu illu
Nairohi. 11. apr. Reuter.
EbíÓPÍUSTJÓRN varaði í dag
við því að hún myndi hefna þess
grimmilega cf Sómah'ustuðning-
ur við skærulið^ í Ogadeneyði-
mörkinni héldi áfram með þeim
tilheyrandi ögrunum sem fylgdu.
Viðvörunin var birt í Nairobi í
Kenya og gerði það sendiherra
Eþíópíu þar í landi. Samtímis því
að viðvörun þessi var birt komu
fréttir frá sómalískum skærulið-
um þar sem þeir fullyrtu að þeir
hefðu fellt mesta fjölda kúb-
anskra hcrmanna — bandamenn
Eþíópíumanna — í Ogadenbar-
dögunum.
Aftur á móti var yfirlýsing
sendiherrans Mengiste Desta ber-
sýnilega stefnt til ráðamanna í
Sómalíu, svo og til Arabaleiðtoga
og til Vesturlanda sem hann sagði
að styddu Sómalíu gegn Eþíópíu-
mönnum.
standa utan við þessa þjóðfélags-
hópa mega búast við að raun-
tekjur þeirra standi í stað eöa
minnki jafnvel.
I tillögum stjórnarinnar er gert
ráð fyrir því að opinber útgjold,
sem ráðgerð voru í fjögurra ára
efnahagsáætlun frá því í fyrra,
verði skorin mjög niður. Líkur eru
taldar á að það muni einkum koma
niður á útgjöldum til hermála,
samgöngumála og til áætlana um
umhverfisvernd. Þá eru miklar
líkur á að frestað verði fjármagns-
frekum breytingum á almanna-
tryggingakerfinu, sem m.a. gerðu
ráð fyrir að launamissir í veikind-
um verkafólks yrði greiddur að
fullu.
Framhald á bls. 26
greina að hefja máls -á þeim á
nýjan leik, þegar Israelar væru
farnir með allt sitt hafurtask frá
Suður-Líbanon og „hefðu breytt
afstöðu sinni" eins og það var
orðað.
I brottflutningi Israela í dag var
ljóst að ísraelskar hersveitir í
grennd við Metula höfðu ákveðið
að eftirláta gæzlusveitunum ýmis
svæði þar í kring. Náði svæðið sem
ísraelar hurfu af í dag, föstudag,
yfir um fimm kílómetra frá Litani
fljóti og í átt til ísraels. Taka
norskir og íranskir gæzlusveitar-
menn við þar sem Israelarnir fara
á braut. Þá munu hermenn frá
Nepal einnig fara til liðs við
norsku hermennina en á þessum
slóðum hafa kristnir hægrimenn
Líbana barizt við skæruliða
Palestínumanna eins og sagt hefur
verið frá.
Frá Taiba í Líbanon bárust þær
fréttir að um þær mundir sem
Israelar hurfu frá áðurnefndum
stöðum í Líbanon hafi ung líbönsk
börn selt á svörtum markaði
sígarettur þegar ísraelskir skrið-
drekar héldu frá þorpum þeirra,
sem munu alls átta talsins.
Erskine, yfirmaður gæzlusveita
Sameinuðu þjóðanna í Líbanon,
sagðist búast við að þetta gengi
erfiðleikalítið fyrir sig, en ef hríð
Framhald á bls. 26
Odvar Nordli
Skæruliðaforingjar
samþykkja friðartíllög-
ur Vance og Owens
Heimta
peninga
Kaupmannahöfn. 14. aprfl. AP.
SAMTÖK hryðjuverkamanna
á Kanaríeyjum, MPAIC, hafa
sent bréí til evrópskra ferða-
skrifstofa sem senda ferðafólk
til Kanaríeyja og krefjast
fjármagns af skrifstofunum
gegn því að samtökin láti
fcrðamennina afskiptalausa.
Framhald á bls. 26
Dar Es Salaam. 11. aprfl. AP. Reuter.
JOSHUA Nkomo og Robert Mugabe foringj-
ar Svarta þjóðernissinnaðra skæruliða í
Rhódesíu tjáðu Cyrus Vance og David Owen
utanríkisráðherrum Bandaríkjanna og Bret-
lands á fundi fjórmenninganna í höfuðborg
Tanzaníu í dag, að þeir væru reiðubúnir að
Bandarískur embættismaður í
Dar Es Salaam tjáði fréttamönn-
um að Nkomo og Mugabe hefðu á
fundinum einungis verið andvígir
hugmyndum yance og Owens um
hvernig framkvæma skyldi áætl-
unina með tilliti til jafns kosn-
ingaréttar svartra og hvítra í
Rhódesíu.
Embættismaðurinn sagði að
skæruliðaforingjarnir hefðu að
öðru leyti verið samþykkir hug-
myndum um hlutverk bresks
landsstjóra og veru friðargæzlu-
liðs Sameinuðu þjóðanna meðan
verið væri að koma friðaráætlun-
inni á. Nkomo og Mugabe voru í
einu og öllu andvígir þessum
hugmyndum á viðræðufundi sömu
aðila á Möltu í janúar.
semja um frið í Rhódesíu samkvæmt
friðartillögum Bandaríkjanna og Bretlands.
A sama tíma tóku níu svartir ráðherrar við
embætti í bráðabirgðastjórn Rhódesíu og
sögðust andvígir aðild Nkomos og Mugabes
að stjórn landsins.
Mugabe tjáði fréttamönnum í
dag að hann væri reiðubúinn að
sitja ráðstefnu allra deiluaðila og
að hann gæti fyllilega sætt sig við
frið í Rhódesíu eins og tillögur
Vance og Owens gera ráð fyrir.
Hann og Nkomo hafa hingað til
afneitað bráðabirgðastjórninni
sem komið var á með samkomulagi
Framhald á bls. 26
Sjúku barni
neitað um
fararleyfi
( incinnati 11. aprfl AP.
BANDARÍSKUR lækna-
vísindamaður bauðst í dag til
að sjá um sjö mánaða gamalt
sovézkt varn sem er með
sjaldgæfan meltingarsjúkdóm
meðan það er á sjúkrahúsi í
Cincinnati. Sovézk yfirvöld
hafa fimm sinnum neitað
foreldrum barnsins um leyfi
til að fara með því til Banda-
ríkjanna. en barnasjúkrahúsið
í Cincinnati er eina sjúkrahús-
ið þar sem hægt er að lækna
barnið.
Að sögn sjúkrahússyfirvalda
hafa sovézk yfirvöld neitað
foreldrum barnsins um leyfi til
að fara til Bandaríkjanna á
þeim forsendum. að móðir
barnsins viti ríkisleyndarmál.
Móðirin, Natalya Katz, vann á
tilraunastofu fyrir nokkrum
árum.
Samband hefur verið haft við
sovézka sendiherrann í
Washington og hann beðinn að
beita áhrifum sínum til að
yfirvöld í Moskvu leyfi foreldr-
unum að fara með barni sínu.
Dæmi eru til þess að börn
sem þjáðst hafa af meltingar-
sjúkdómi þessum, hafi þurft að
vera á sjúkrahúsi til sex ára
aldurs.