Morgunblaðið - 15.04.1978, Page 5

Morgunblaðið - 15.04.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 5 Sumardagskrá •• GALLERÍ Suðurgata 7 er um þessar mundir að ganga frá sumardagskrá sinni og eru ráð- gerðar a.m.k. 9 sýningar fram til hausts þar sem bæði innlendir og erlendir listamenn koma við sögu. Þriðjudaginn 18. apríl verður sýning er stendur aðeins í einn dag, en þá mun Magnús Pálsson opna sýningu á galleríi í tösku. Ingiberg Magnússon opnar einka- sýningu á grafíkmyndum og teikningum og lýkur henni 7. maí. Dagana 13,—28. maí sýnir Gylfi Gíslason verk sín og hinn 3. júní munu hinir 17 aðstandendur gallerísins opna afmælissýningu en ))að hefur þá starfað í rúmt ár. A fundi með fréttamönnum nýlega kynntu forráðamenn Gallerís Suðurgötu 7 dagskrána og sögðu þeir að m.a. hefði verið lögð á það áherzla að fá hingað erlenda listamenn og yrði einnig svo í sumar. Myndi Brian Buzak opna sýningu á teikningum sínum hinn 24. júní, en hann kemur frá New York. 15.—30. júlí verður lista- maður af þýzkum ættum, Peter Schmidt, með sýningu á vatnslita- myndum, en sýningin kemur frá París og hefur einnig verið sýnd í London. Hefur Peter Schmidt starfað með tónlistarmanninum Brian Eno og gert m.a. fyrir hann plötuumslag. Hinn 5. ágúst opnar sýning á Brunch-safninu, en sú sýning er sett upp af George Brecht og Stephan Kukowski. George Brecht er Bandaríkja- maður búsettur í Þýzkalandi og er hann einn af upphafsmönnum svonefndrar Fluxushreyfingar og bjó til listformið atburð, en Brecht hefur einnig starfað sem upp- finningamaður. Kukowski hefur starfað í Bretlandi. Brunch-safnið er samsafn verka eftir ímyndaðan sérvitring og er það nokkurs konar skopstæling á vísindum og dýrkun á mennta- og listamönnum sögðu aðstandendur Gallerísins. Gabor Atalai mun 26. ágúst opna sýningu á umhverfisverki sem aðstandendur gallerísins vinna upp fyrir hann, en Atalai er Ungverji og á þess ekki kost að fara úr heimalandi sínu. Hafa útgáfur af þessu verki verið settar upp í Póllandi og Hollandi. Bjarni Þórarinsson opnar í september- mánuði sýningu, en hann er einn af aðstandendum Gallerís Suður- götu 7. Fleiri sýningar eru ráð- gerðar og jafnframt þessum sýningum verður bókasýning í allt sumar á handunnum bókum eftir myndlistarmenn. í ráði er að færa nokkuð út kvíarnar og eru m.a. fyrirhugaðir tónleikar með sópransaxófón- leikaranum Evan Parker og Derek Baidley sem leikur á gítar og ráðgerð eru einnig tónlistarkvöld með íslenzkum hljómlistarmönn- um. Þá mun Galleríið fá úrval tilraunakvikmynda. Um þessar mundir er unnið að þriðja hefti tímaritsins Svart á hvítu og verður efni þess helgað íslending- um sem starfa að nýlist erlendis. Aðstandendur Gallerís Suðurgötu 7 kynntu sumardagskrá gallerísins. 0 ■ ■ Jl 1 höllinni aó Bíldshöfða Sunnukórinn syngur vid messu í Dómkirkjunni N.k. sunnudag 16. apríl fær Dómkirkjusöfnuðurinn ágæta heimsókn. Sunnukórinn á ísafirði syngur hér í Reykjavík um þessa helgi á 40 ára afmælismóti Lands- sanibands blandaðra kóra, Söng- leikum ‘78, og þar sem söngfólk Sunnukórsins er flest einnig í kirkjukórnum á ísafirði, hefur orðið að ráði, að frumkvæði sóknarprestsins á ísafirði, sr. Jakobs Ágústs Hjálmarssonar, að hann flytji messu í Dómkirkjunni kl. 2 á sunnudaginn ásamt Sunnu- kórnum og söngstjóra hans, sem jafnframt er organisti ísafjarðar- kirkju. Sungnir verða hátíða- söngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Dómkirkjusöfnuðurinn fagnar þessari heimsókn, og ég veit, að margir munu vilja sækja þessa messu, ekki síst þeir mörgu Reykvíkingar, sem eiga rætur sínar á ísafirði og víðar þar vestra. Að sjálfsögðu verður einnig messað í Dómkirkjunni kl. 11 f.h. eins og venja er. Þá messar sr. Hjalti Guðmundsson. Einsöngv- arakórinn (Ljóðakórinn) syngur og Gústaf Jóhannesson annast orgel- leik. Þriðja guðsþjónustan á vegum Dómkirkjunnar þennan sunnudag verður á Landakotsspítala kl. 10 f.h. þetta er sýning sem allir veröa aó sjá BILAHAFPDRÆTTI vinningur MAZDA 323 GESTUR DAGSINS hlýtur sólarlandaferö með Samvinnuferóum SERSTAKAR afsláttarferóir og gisting á vegum Flugleióa Dags. Frá kl. Til kl. 14-4 19°° 2200 15-4 14°o 2200 16-4 14oo 22°° 17-4 15°c 2200 18-4 15°° 22°° 19-4 15oo 22°° 20-4 14oo 22°° 21-4 1500 22°° 22-4 14.oo 2200 23-4 140° 2200 ■ ■ Þórir Stephensen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.