Morgunblaðið - 15.04.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978
25
í Flatey.
k sem hann hefur málað af dóttur sinni.
Ljósmynd Mbl. RAX.
Greinargerð frá rannsóknarlögreglustjóra um Landsbankamálið:
Deildarstjórinn dró að sér 51,4
milljónir og gerði tilraun til að
draga að sér 6 millj. til viðbótar
HALLVARÐUR Einvarðsson rann-
sóknarlögreglustjóri ríkisins hefur
sent frá sér greinargerð um fjár-
dráttinn, sem komst upp um hjá
Hauki Heiðari, fyrrverandi forstöðu-
manni ábyrgðadeildar Landsbanka
islands, seint á árinu 1977. í
greinargerðinni er lýst ítarlega á
hvern hátt Haukur Heiðar tókst að
draga að sér fé, en pað er
viðurkennt af hans hálfu að hann
hafi á árunum 1970—‘77 dregið að
sér samtals krónur 51.450.603,00 í 25
tilvikum. Þá kemur ennfremur fram
að hann hafi játað að hafa gert
tilraun til að draga aö sér rúmar 6
milljónir króna skömmu áður en
upp komst um fjárdráttinn.
Greinargerð rannsóknarlögreglu-
stjóra fer í heild hér á eftir:
Svo sem áður hefir fram komið var
það hinn 22. des. s.l., að bankastjórn
Landsbanka íslands sneri sér til
rannsóknarlögreglustjóra ríkisins
með beiðni um að þá þegar yrði hafin
rannsókn á misferli, sem fram hefði
komið, að einn starfsmanna bank-
ans, Haukur Heiðar, deildarstjóri
ábyrgðadeildar bankans, hefði gerzt
sekur um. Var hann sakaður um að
hafa á árunum 1973—1977 dregið
sér fé í sambandi við viðskipti
bankans og fyrirtækisins Einar Ás-
mundsson Imp/Exp hér í borg.
Aödragandi málsins var sá, aö
umrætt fyrirtæki hafði óskaö eftir
sundurliöun á kostnaðarreikningi hjá
ábyrgðadeildinni, og hafði þá komið
í Ijós, aö ósamræmi var milli
fylgiskjals í bókhaldi bankans og
tilsvarandi fylgiskjals í bókhaldi
fyrirtækisins. Þegar endurskoðunar-
deild bankans kannaði af þessu
tilefni hvað misræmi þessu ylli, varð
Ijóst, að Haukur Heiðar myndi hafa
útbúið tvenns konar færsluskjöl,
önnur sem viðskiptamaðurinn fékk
og hin, sem gengu til bókhalds
bankans. Hófst þá sérstök athugun
af hálfu endurskoðunardeildar
Landsbankans á málinu.
Rannsóknarlögregla ríkisins tók
málið til rannsóknar síðla kvölds 22.
des. s.l. Var kærði Haukur Heiðar þá
þegar handtekinn og að kröfu
rannsóknarlögreglunnar var hann
úrskurðaður í gæzluvarðhald í þágu
rannsóknar þessa máls 23. des. s.l.
Sat hann í gæzluvarðhaldi til 15. f.m.,
er honum var sleppt, en gert að sæta
takmörkun á ferðafrelsi sínu. Viður-
kenndi kærQi þegar í fyrstu yfir-
heyrslum að hafa undanfarin ár
dregið sér fé í sambandi við viðskipti
Landsbanka íslands og fyrirtækisins
Einar Ásmundsson Imp/Exp. Kvaðst
hann hvorki geta játað eða neitað, að
hér væri um a.m.k. 35 millj. króna að
ræða. Fé þessu hefði hann varið til
eigin þarfa, aöallega í sambandi við
sumarbústað, viðhald á íbúðarhúsi,
til ferðalaga o.s.frv. Væri ekkert af fé
þessu eftir og kvaöst hann þá ekkert
hafa lagt inn í banka, hvorki hér né
annars staðar. Unnið hefir verið
síðan að rannsókn málsins með
skýrslutökum og gagnaöflun. Hefir
rannsóknin reynst umfangsmikil, en
er nú vel á veg komin. Endurskoðun-
ardeild Landsbanka íslands vann að
samantekt gagna og greinargeröa af
hálfu bankans að fyrirlagi og undir
umsjá rannsóknarlögreglu ríkisins og
í samvinnu við endurskoðendur þess
fyrirtækis, sem mál þetta snertir
mest, þ.e. Einar Ásmundsson
Imp/Exp., en kærði notaði ábyrgðar-
reikninga þess fyrirtækis við fjártökur
sínar.
Við rannsókn málsins hefir komið
í Ijós og viðurkennt af hálfu kærða að
hann hefir á árunum 1970—1977
dregið sér samtals kr. 51.450.603.00
í 25 tilvikum. Þá hefir kærði játað að
hafa gert tilraun til að drgga sér kr.
6.074.360,- rétt áður en hann varð
uppvís aö þessum fjártökum. Er
uþplýst hvernig staðið var að þessum
fjártökum af hálfu kærða. Haukur
Heiðar hafði ekki á sínu starfssviði
aðgang að neinum sjóði (kassa). Til
að koma fjárdrættinum í kring hefir
hann ýmist falsað skjöl eða skotið
skjölum undan og þá útbúið ný skjöl
í staðinn, en annars efnis en þau,
sem undan var skotið. í tilvikum
þeim, sem að framan er getið, hefir
framkvæmdin á því byggst, að eftir
að innborgunar- og útborgunarskjöl
höfðu farið um hendur gjaldkera fékk
Haukur Heiðar þau aftur til baka og
þar með tækifæri til að breyta þeim
áður en hann afhenti þau viðkomandi
Framhald á bls. 26
• 700
5,1%
áætlunarflugi á leiðum International
Air Bahama 82,231 farþegi og hafði
farþegafjöldi aukist um 5.4% frá
árinu áður. Sætanýting var góð, eða
76.5% en var 74.3% árið áður.
Leiguflug
Flugvélar Flugleiða fóru mörg
leiguflug árið 1977 og voru samtals
fluttir 62,799 farþegar. Þar af næst-
um helmingur eða tæplega 31 þús.
farþegar fluttir í pílagrímaflugi milli
Alsír í Oran, Kanó í Nígeríu og
Jeddah í Saudi Arabíu. Þá voru
farnar margar leiguflugferðir fyrir
íslenskar ferðaskrifstofur með ís-
lendinga til sólarlanda og ennfremur
fyrir ferðaskrifstofur í Þýzkalandi,
Austurríki og Sviss með erlenda
ferðamenn til íslands. Þá voru flogin
mörg leiguflug fyrir erlenda aðila milli
Luxemborgar og Miami og Florida og
ennfremur milli Sviss og Bahama og
Austurríkis og Bahama. Einnig voru
farin leiguflug frá París til
Bmeemebmmay og Dehli á Indlandi.
Vöruflutningar
íslensk og erlend fyrirtæki hafa í
vaxandi mæli notfært sér flutninga í
lofti og á árinu 1977 fluttu Flugleiðir
samtals 10,803 tonn af vörum í
millilanda- og innanlandsflugi. Aukn-
ing varð 12.9% miðað viö árið áður.
Meginþungi vöruflutninganna er til
Islands. Þó hefur útflutningur á
iðnaðarvörum og ferskum fiski vaxið
að undanförnu og sem dæmi má
nefna að ferskfiskútflutningur í lofti
nam 12.6% af vöruflutningum til og
frá landinu á s.l. ári. Árið 1977 var
hafið beint vöruflutningaflug til og frá
Kaupmannahöfn. Ennfremur voru
vörur fluttar á pöllum allt áriö milli
Kaupmannahafnar og íslands og
London og Islands. Að öðru leyti eru
vörur fluttar í lestum flugvélanna. Til
þess að þjóna viðskiptavinum á sviði
vöruflutninga hafa Flugleiðir byggt
upp aðstöðu undanfarin ár. Að
Bíldshöfða í Reykjavík er afgreiðsla,
en afgreiösla Farmsöludeildar að
Suðurlandsbraut 2. Á Reykjavíkur-
flugvelli er stór vörugeymsla og
afgreiðsla fyrir innanlandsflug. i
þessum deildum störfuöu í árslok 75
manns. Ennfremur eru fraktdeildir
starfandi í Keflavík, New York og
Luxemborg auk vörumóttöku á öllum
viðkomustöðum félagsins. Farmsölu-
deildir eru í Reykjavík, Luxemborg.
New York og Chicago.
Flugfloti
Ekki hefur orðið breyting á flug-
flota félagsins frá því þriðja DC-8-63
Fækkun á
N-Atlants-
hafsleiðinni
CF flugvélin var keypt í október 1976.
Er sú flugvél nú leigð International
Air Bahama Ltd. til Bahamaflugsins.
Sumarið 1977 voru tvær DC-8-63 CF
leigðar til viðbótar til að anna
sumarfluginu. Það er einni DC-8-63
þotu meira en verið hefur undanfarin
ár. Boeing 727 þoturnar hafa auk
áætlunarflugs á Evrópuleiðum verið
notaðar til leiguflugs með erlenda
ferðamenn til islands, einkum vor og
haust. Einnig hafa þær annast að
mestu sólarflug með íslendinga.
DC-8-63 þoturnar voru notaðar
reglulega til Evrópuflugs háannatím-
anna sumarið 1976 og 1977 en
einnig í sólarflug síöastliöiö ár. Tvær
þessara véla voru nýttar til pílagríma-
flugs á síöastliðnu hausti. Um sama
leyti tók fétagið DC-8-33 þotu á leigu
til áætlunarflugs.
Starfslið
Starfsmenn Flugleiða hf., Loftleiða
hf. og Flugfélags Islands hf. voru 29
fleiri í árslok 1977 en í ársbyrjun. Þar
af fjölgaði 20 á íslandi en níu
erlendis. Fjölgun starfsmanna er í
tengslum við flugreksturinn, mest
vegna aukins pílagrímaflugs í lok
ársins 1977. Hinsvegar hefur starfs-
mönnum fækkað í fjármála- og
stjórnunarsviði. í árslok voru starf-
andi hjá félögunum 1,644. Þar af
erlendis 484 en 1,160 á íslandi. Þar
að auki voru starfsmenn Air Bahama
67 og er það óbreytt tala frá fyrra ári.
Starfsfólk á Hótel Esju var 70 í árslok
og hafði fjölgaö um einn á árinu.
Starfsmenn feröaskrfstofunnar Úr-
vals voru 12.
Hótel Loftleiöir,
Hótel Esja,
Bílaleiga Loftleiða
Á þessum tveim hótelum eru
samtals 351 gistiherbergi, þar af 217
á Hótel Loftleiðum og 134 á Hótel
Esju. Salarkynni fyrir veitingastarf-
semi, fundi og ráðstefnur eru á
báöum hótelunum og rúma samtals
2,400 í sæti. Herbergjanýting varð á
Hótel Loftleiðum 63.1% og Hótel Esju
70.6%. íslenskum gestum fjölgar
stöðugt á báðum hótelunum. Röskun
varð á starfsemi hótelanna oftar en
einu sinni vegna verkfalla eöa
yfirvofandi verkfalla. Bílaleiga Loft-
leiða haföi 102 bíla til leigu sumarið
1977 og voru þeir níu fleiri en
sumarið áöur. Nýting bílanna varö
72.3%.
Fjárfestingar
Á árinu 1977 var lokið við viðbótar-
byggingu skrifstofuhúss félagsins á
Reykjavíkurflugvelli. Ennfremur voru
gerðar miklar endurbætur á eldri
skrifstofuálmu. Þessar framkvæmdir
höfðu í för með sér hagræðingu og
möguleika á endurskpulagningu
ýmissa deilda félagsins. Á árinu
keyptu Flugleiðir af flugmálayfirvöld-
um flugskýli númer fjögur á Reykja-
víkurflugvelli. Áður hafði félagið haft
þetta flugskýli á leigu. Allmiklar
endurbætur voru gerðar á skýlinu og
hefur það bætt mjög aðstöðu til
viðgerða og viðhalds. A Reykjavíkur-
flugvelli var ennfremur endurbyggt
eldra húsnæði og innréttað sem
mötuneyti fyrir starfsfólk innanlands-
flugs og viðhaldsdeildina t Reykja-
víkurflugvelli. Aðrar fjárfestingar voru
minni háttar, einkum fólgnar í
lagfæringum og endurbótum á hús-
næði og endurnýjun á tækjakosti,
þar á meðal flugafgreiöslutækjum
bæöi innanlands og erlendis. Þá var
haldið áfram aö tengja söluskrifstof-
ur við Gabríel farskrárkerfið sem
hefur gefið mjög góða raun.
Eldsneyti og laun
Fram kom á fundinum að Flugleiðir
keyptu eldsneyti fyrir rúmiega 4.2
milljaröa króna og laun greidd á
árinu námu 3,451 milljónum króna.
Þá var á aðalfundinum gefið yfirlit
um dótturfyrirtæki og hlutdeildar-
fyrirtæki Flugleiða. Dótturfyrirtækin
eru International Air Bahama, Hekla
Holdings Ltd., Hótel Esja og erfða-
skrifstofan Urval.
Talsverð aukning varð á starfsemi
International Air Bahama á árinu
1977. Velta fyrirtækisins nam 15,5
milljónum Bandaríkjadala og hafði
aukist um 9.3% á árinu. Nokkurt tap
varö á rekstri félagsins. Félagiö leigir
DC-8-63 flugvél af Flugleiðum og er
hún jafnframt að nokkru notuð á
Norður-Atlantshafsleiðinni.
Hekla Holdings Ltd. er í eigu
Flugleiöa og er skráö í Bahama.
Enginn rekstur er nú á vegum þessa
fyrirtækis og starfsmenn engir.
Velta Hótel Esju hf. á árinu varð
510 milljónir króna og hafði aukist
um 60% frá árinu áður. Tap varð á
rekstri 1977 þrátt fyrir batnandi
afkomu. Allt frá því að Flugleiðir hf.
keyptu þetta fyrirtæki á árinu 1974
hefur verið unnið að framkvæmdum
og endurbótum við hótelið. Ný
veitingabúð, Skálafell, var opnuð á
níundu hæð á s.l. ári. Þá er gert ráð
fyrir söluskrifstofu í austurhluta
hússins í ár. Áfram er unniö að
frumathugun á uppbyggingu austur-
hluta hótelsins en þar yrðu rúm fyrir
135—170 hótelherbergi auk veit-
ingaaðstöðu.
Flugleiðir urðu á árinu 1977
meirihlutaeigendur ferðaskrifstof-
unnar Úrval og eiga nú 80% hlutafjár.
Auk almenns ferðaskrifstofureksturs
annast Úrval afgreiðslu færeysku
btlaferjunnar Smyrils og móttöku
skemmtiferðaskipa. Nettó velta fyrir-
tækisins árið 1977 var 248 milljónir.
Smávægilegt tap varð á árinu.
Starfsmenn í árslok voru 12.
Hlutdeildarfyrirtæki
Þá var gefið yfirlit um hlutdeildar-
fyrirtæki Flugleiða en þau eru
Cargoiux Airlines International í
Framhaid á bls. 26