Morgunblaðið - 15.04.1978, Side 27

Morgunblaðið - 15.04.1978, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 27 — I Síberíu? Framhald af bls. 33. nema einu sinni á ævinni í nánd við hljóðnema. Það þurfti Carisbergsjóðinn í Kaupmannahöfn til að gefa út þjóðlagasafn sr. Bjarna Þorsteins- sonar á sínum tíma. Kannski ættum við að leita á náðir þessarar stofnunar á ný, því ekki er útlit fyrir að íslenskir menn- ingarvitar, auðmenn, eða stjórn- völd hafi skilning á þessu máli, frekar en um síðustu aldamót, er sr. Bjarni leitaði tii þeirra og var svnjað. Það væri Islendingum mátulegt! Við drekkum jú léttan Carlsberg hérna á Fróni. Viljið þið Carlsbergmenn ekki bjarga tón- arfi okkar uppá gamian kunnings- skap? — Hvers vegna Framhald af bls. 19 geta tekið fyrir þá hættu. Það væri hörmulegt að flytja til landsins nýjan sjúkdóm í búfé. Við höfum um áratuga skeið sopið seyðið af ógætilegum ráðstöfunum af því tagi samanber karakúlsjúk- dómana í sauðfé: Votamæði, Þurramæði, Visnu og Garnaveiki. Við verðum að ganga út frá því, að margir smitsjúkdómar séu enn óþekktir og þar af leiðandi verður illa við komið vörnum gegn þeim. Þetta veldur hinni hörðu afstöðu til hrossaflutninga úr landi og til landsins. Um sjúkdóma í fólki gegnir öðru máli. í fyrsta lagi myndu frjáls- ræðishetjurnar góðu illa þola skerðingu á ferðafrelsi, þótt það kynni stöku sinnum að vera æskilegt, ef litið er eingöngu á málin frá sóttvarnarsjónarmiði. I öðru lagi er heilsugæsla fólks yfirleitt margfalt öflugri en heilsugæsla dýra og þar þarf lítt að spara til þess að öryggið verði sem fullkomnast, eins og sjálfsagt er raunar. Stöðugt samband við útlönd og snerting við smitvalda er sífelld. Mótstaða fólks gegn smitsjúkdómum er því meiri. Þrátt fyrir þetta berast hingað farsóttir iðulega svo sem kunnugt er og stundum fer illa. Með ósk um birtingu í blaði yðar við tækifæri. Virðingarfyllst. Sigurður Sigurðarson dýralæknir. — Misvægið Framhald af bls. 17. Framsóknarmenn börðust ákaf- lega gegn setningu þessara laga, og þau voru með nokkrum hætti sett til höfuðs þeim til þess að gera mögulega viðreisnarstjórn- ina sálugu. Þau voru sett til þess að gefa ákveðnum stjórnmála- flokkum tækifæri til þess að ná saman um stjórn landsins, en ekki af beinni lýðræðisást. Þetta var hagkvæmnisþáttur. Hins vegar hafa hrakspár þær, sem framsóknarmenn höfðu uppi við setningu 'þessara laga 1959, sem betur fer ekki allar ræst. Þeir spáðu t.d. hraklega fyrir auknu flokks- ræði, auknu miðstjórnarvaldi og óhæfilegu flokkaveldi. Flokka- skipting er lýðræðinu nauðsyn- leg og flokkar eiga aö vera samfélög frjálsra man.na, ekki endilega að þeir seu ævinlega sammála í öllum atriðum, heldur að menn með svipaðar lífsskoðanir þoki sér saman í fylkingar. Þeir verða náttúrlega að sýná af sér félagsþroska og sveigjanleik, en þeir verða þó að fá að hafa sín „prinsip". Kjós- endur verða að geta treyst því, að þm. láti ekki teyma sig til hluta sem þeir vita að honum eru ákaflega ógeðfelldir og þm. verða þá náttúrlega að láta AUGI.YSINGASIMINN ER: ^22480 J JWorounblabib kjósendur vita hvaða hlutir í þeim eru ákaflega ógeðfelldir og hver þeirra „prinsip" eru. Ég vil fullyrða, að flokksræði, miðstjórnarvald hefur ekki aukist hjá framsóknarmönnum við þessa kjördæmaskipan. Flokkaskipting er náttúrlega nauðsynleg kjölfesta fyrir full- trúalýðræði, og ef við skoðum stjórnmálasögu fyrstu tveggja áratuga aldarinnar, þá var geysilega mikið los á stjórn- málastarfseminni. Það er sár- grætilegt að sjá hvernig góðar hreyfingar koðnuðu niður vegna þess að menn hlupu sundur og saman sitt á hvað eftir kring- umstæðum sem virtust ekki vera svo veigamiklar að þær gerðu þetta nauðsynlegt. En e.t.v. var það að nokkru leyti vegna þess að kosningarnar voru um persónur þá fremur en stefnur, í mörgum tilvikum. Og persónukjör, eingöngu persónu- kjör býður upp á miklu harðvítugra návígi. Réttur minni hluta í einmenningskjör- dæmi er ekki tryggður eins vel og í kjördæmi þar sem fleiri flokkar fá fulltrúa kjörna, og af því leiðir að stjórnmálabaráttan verður ekki eins hörð, af því að menn vita að enginn einn getur alveg sett andstæðinga sína hjá. Ég er alinn upp við það að vera minnihlutamaður í ein- menningskjördæmi, og þess vegna eru mér ljósir gallar þess. Ég lít svo á að hagsmunum kjördæmis geti verið betur borgið og sé í flestum tilfellum betur borgið þegar menn úr fleiri en einum flokki geta unnið saman að málefnum kjördæmis- ins, og þannig má segja, að ávinningur hafi verið að kjör- dæmabreytingunni 1959. Frv. Jóns Skaftasonar, hv. þm., er viðleitni til þess að gefa kjósendum beinan íhlutunar- rétt. Þessi leið er að minni hyggju nokkuð gölluð. Hún gerir ráð fyrir, að frambjóðendum sé raðað í stafrófsröð. Það yrðu vafalaust einhverjir, sem tækju þá menn, sem hendi væru næst, og byrjuðu efst á listanum. Þá getum við hugsað okkur þann möguleika, að Alþingi fylltist af Albertum og Ellertum og Eyjólfum og við hinir kæmum ekki til greina. Ég held, að það yrðu vafalaust mjög margir sem ekki notuðu rétt sinn til þess að raða á listann og létu sér nægja það að kjósa flokkinn sinn, en kjósandinn vissi raunar ekki nákvæmlega að hverju hann væri að ganga. Hann væri e.t.v. að kaupa köttinn í sekknum, þó að hann hefði ákveðna skoðun á því, hverjir ættu að fara með umboð flokksins. Kjósandinn væri kannski að kjósa menn, sem hann óskaði alls ekki eftir að kjósa. Kjósandinn verður að fá að vita það á kjördegi, hverjir koma til með að fara með það umboð sem hann er að reyna að fela frambjóðanda flokks. Það gætu orðið allt aðrir menn en þeir, sem hann merkti við, sem yrðu ofan á, og e.t.v. menn með blæmun á lífsviðhorfi eða starfsaðferðum. Þess vegna verður að ganga frá því, að röðunin fari fram áður en í kjörklefann kemur, með próf- kjörum, forkosningu eða á annan lýðræðislegan hátt. Ég vil endilega að kjósendum sé ljóst á kjördegi hvort þeir eru að kjósa mig eða einhvern annan. Ég vil líka að þeir viti hvað ég vil og hvað ég vil ekki. Þá kem ég að þeirri hlið, sem snýr að frambjóðendunum sjálf- um. Frambjóðendurnir þurfa að vera samtaka félögum sínum, en ekki standa í innbyrðis deilum, eins og óhjákvæmilega yrði ef hver þyrfti að vera að ota sínum tota og togast á um fylgi við flokksbræður sína. Flokks- bræðurnir verða nefnilega að vera búnir að gera það upp sín í milli, áður en kemur til höfuðorrustunnar, hvar staða þeirra eigi að vera í fylkingunni. Mikið hefur verið rætt um rétt almennings, hvað hann væri allt of lítill til þess að ráða framboðunum, ef ekki væri um prófkjör að ræða. En hann er náttúrlega alltaf fyrir hendi með þátttöku í flokksstarfinu, það er alveg tvímælalaust. Og betra flokksstarf með almennari þátttöku, væri líka lýðræðinu, að minni hyggju, mjög til framdráttar. Ég vil þá fara nokkrum orðum um mismun- andi vægi atkv., sem mjög hefur verið haft á orði. Þetta mismunandi vægi, sem menn eru að tala um, er nú ekki, eins og margoft hefur komið fram í þessum umr. eins hroða- lega mismunandi og þeir vilja vera láta, sem harðast berjast fyrir því að breyta ríkjandi skipulagi. Það liggur ljóst fyrir, að 40% þingmanna, 24 þm. af þeim sem sitja í Sþ. 1977, voru á framboðslistum í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Það er ekki nákvæmlega jafnþungt, sem hvert atkv. vegur. En það er ekki nóg með það að þeir séu 24, sem eru kosnir hér. Búsettir í Reykjavík og Reykjaneskjör- dæmi eru líklega 41 þm., hafa hér sitt heimili og eru hér allt árið, eða hér um bil allt árið. Sumir þeirra eru hér að nokkru leyti út úr neyð, vegna þess að þeir hafa tekið að sér störf hér í höfuðborginni sem ekki er hægt að gegna með því að vera fjarvistum frá höfuðborgar- svæðinu. En þeir eru sem sagt a.m.k. 41 sem eiga hér heimili og eru hér nákunnugir málefnum og dagsins önn. Mér finnst liggja ljóst fyrir að þessir 41 þm. af 60, sem eiga hér sæti, munu ekki láta það líðast að dreif- býlisþm. séu með einhvern óskaplegan yfirgang eða fari illa með Reyknesinga eða Reykvík- inga. Sú hugmynd hefur komið fram að rétt væri að flytja alla uppbótarþm. í þessi fjölmennu kjördæmi hér á suðvesturhorn- inu. En ég verð að leyfa mér, eftir að ég er búinn að sjá, hvernig framboðslistar flokka hafa skipast, að skýra frá þeirri skoðun minni, að ég held að Alþingi yrði ekkert betur skipað þó að búið yrði sérstaklega til pláss handa þessum mönnum, nokkrum þeirra, hér á Alþ. með því að láta þá koma í stað þeirra uppbótarþm., sem eru utan af landsbyggðinni. Ég get ekki fundið að þm. landsbyggðarinn- ar séu of margir. Ég er alveg viss um, að við utanbæjarþing- menn höfum meira að gera en t.d. þm. Reykjavíkur og Reykja- ness við þingstörf, og á ég þ. á m. við sjálfsagðan og eðlilegan erindrekstur fyrir kjördæmi okkar. Borgarstjórinn í Reykja- vík getur farið sjálfur og rekið erindi borgarinnar í Stjórnar- ráðinu og fylgst með gangi mála þar eða í öðrum opinberum stofnunum, og þetta tekur hann ekki nema klukkutíma. En bæjarstjórinn á Siglufirði þarf að leggja á sig langa för, og oft þó nokkuð erfiða og ákaflega tímafreka, til þess að reka svipuð erindi fyrir sitt byggðar- lag og það er ósköp eðlilegt að hann leiti til þm., sem eru hér fyrir sunnan hvort sem er, til þess að taka af sér ómakið, því að við eigum þægilegt með að reka erindi fyrir hann á stuttri stundu, eins og borgarstjórinn í Reykjavík mundi geta, en tæki bæjarstjórann vikuna. Ég vil líka tala um persónu- lega fyrirgreiðslu við kjósendur, sem sumir angurgapar hafa verið að tala illa um og talið mjög forkastanlega. ÉG tel hana hins vegar sjálfsagða og tek ekkert nærri mér að gera fólki greiða, ef ég á þess kost. Öll þau erindi, sem ég hef verið beðinn um að reka fyrir fólk persónulega, hafa verið rétt- mæt, sjálfsögð og heiðarleg. Stjórnkerfi okkar vinnur stund- um óþarflega hægt og erindi stöðvast óratíma vegna þess að e.t.v. eru á þeim einhverjir formgallar. Þessu er oft auðvelt að kippa i lag ef fylgst er með hvað er að gerast eða hvað tefur. Og þm. er ekkert of góður til þess að gera þetta ef hann getur. Ég hef rekið erindi fyrir flokks- bræður mína eða skoðanabræð- ur, en ég hef ekkert síður rekið erindi fyrir andstæðinga mína í pólitík þegar þeir hafa beðið mig þess, og ég vísa algerlega á bug öllu kjaftæði um einhverja ósæmilega fyrirgreiðslupólitík sem einstöku menn hafa verið að slá um sig með og sagt að væri alveg forkastanleg. Vægi atkvæða hefur raskast á undanförnum árum og er stöð- ugt að raskast. Fólkið hefur streymt á suðvesturhorn lands- ins, það kemur hingað vegna þess að það heldur að hér sé betra að búa, og að sumu leyti er hér þægilegra að búa. Þjón- usta er fljótvirkari og ódýrari hér, og það er auðvelt, að nefna dæmi þess að ekki er jafn réttur dreifbýlisfólksins og þess fólks sem býr hér á suðvesturhorninu. Alþ. á að tryggja þegnunum sem jöfnust lífskjör í landinu, og þessari skyldu virðist þá Alþ. ekki hafa gegnt. Það hefur ekki sinnt því hlutverki nægilega að jafna aðstöðu fólksinsi landinu, jafnvel þó að þetta margumtal- aða vægi sé stærðfræðilega meira á atkv. manna fyrir norðan eða vestan heldur en hér á Reykjanesi. Þm. dreifbýlisins hafa ekki staðið sig nægilega vel. Þó að vafalaust sé heppilegt að gera einhverjar breytingar á kosningalöggjöf og þau mál þurfi að vera í nokkurri endur- skoðun öðru hverju, þá legg ég áherslu á það, að að mínu mati eru þm. dreifbýlisins ekki of margir og réttur þess síst of freklega tryggður innan Alþing- is. Þess vegna styð ég ekkert af þeim frumvörpum, sem hafa komið fram á Alþingi í vetur og varða breytingar á kosningalög- gjöfinni. Brynja i rtýjum búningi Byggingavöruverslunin Brynja var stofnuð árið 1919, svo nú er sextugsaldurinn innan seilingar. Fyrstu árin var verslunin til húsa að Laugavegi 24, (þar sem nú er Fálkinn) en 1928 flutti verslunin yfir götuna í húsið Laugavegi 29. Þar höfum við verið í 50 ár og þar ætlum við að vera áfram. Þess vegna höfum við nú breytt versluninni - fært hana í nýjan búning. Nú bjóðum við sjálfsafgreiðslufyrirkomulag í stórum björtum og litríkum sal - þar sem vöruúrval er meira en nokkru sinni fyrr. Verið velkomin í breytta byggingavöruverslun. Laugavegi 29. Sími 24320 og 24321

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.