Morgunblaðið - 15.04.1978, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978
Enn eykst spennan í 1. deild eftir jafntefli Víkings og ÍR
ÆSISPENNANDI leik Víkings
og ÍR í 1. deild karia í gærkvöldi
lauk með jafntefli 23.23. í lok
leiksins var Víkingum dæmt
vítakast og fékk Arni Indriðason
það erfiða verkefni að fram-
kvæma vítakastið eftir að leik-
tíma lauk. Jens Einarsson mark-
vörður ÍR-inga gerði sér lítið
fyrir og varði skot Árna og
tryggði Iiði sínu annað stigið í
leiknum. Var gleði ÍR-inga mikil
að leiknum loknum. engu líkara
en þeir hefðu orðið íslandsmeist-
arar, og var Jens markvörður
tekinn og tolleraður.
Úrslit leiksins þýða það að
forysta Víkings í 1. deildinni er
nú aðeins 1 stig á Haukana og
eiga bæði þessi lið eftir einn leik.
Valur hefur tapað jafn mörgum
stigum og Haukarnir, en eiga
tveimur ieikjum ólokið. Er því
mikil spenna á toppi 1. deildar-
innar. Fari svo að Haukar vinni
KR og Valur vinni Fram þarf
Víkingur að vinna Val á miðviku-
daginn í næstu viku til að hljóta
meistaratitil. Verði jafntefli í
þeim leik þarf að fara fram
aukaieikur á milli Vfkings og
Hauka, en vinni Valsmenn þarf
aukaleik milli þeirra og Hauka.
Sannarlega spennandi endir á
íslandsmótinu f handknattleik.
Það var greinilegt þegar í
upphafi ieiks Víkings að um
hörkuleik yrði að ræða. Bæði lið
léku af miklum krafti bæði í sókn
og vörn og varnarmenn IR-inga
börðu hver annan áfram með
látum. Varnarleikurinn hvarf þó í
skuggann fyrir góðum sóknarleik
og eftir að staðan hafði verið jöfn
5:5 um miðjan hálfleikinn léku
Víkingar mjög sterkt það sem eftir
var hálfleiksins og leiddu 13:9 í
leikhléi. Þorbergur Aðelsteinsson
var sérlega atkvæðamikill í Vík-
ingsliðinu í fyrri hálfleiknum og
gerði hvorki meira né minna 8 af
13 mörkum liðsins í fyrri hlutan-
um.
Víkingar höfðu áfram 2—4 mörk
yfir fram undir miðjan seinni
hálfleikinn, en þá bættu IR-ingar
við sig. Komu framar í vörninni og
trufluðu Víkingana og í sókninni
iéku þeir stíft upp á markið og
virtust svæfa Víkingana á tíma-
bili. IR-ingum tókst að kjafna
21:21 þegar átta mínútur lifðu af
leiktímanum og það sem eftir var
leiksins skiptust liðin á um að
skora, en Víkingar ávallt á undan.
Er 2 mínútur voru eftir varði
Kristján vítakast frá Brynjólfi,
Víkingar sneru vörn í sókn og Páll
breytti stöðunni í 23:22.
IR-ingar byrjuðu á miðju og
Knattspyrna
um helgina
UM IIELGINA fara fram tveir
leikir í Reykjavíkurmótinu. á
laugardaginn leika Fram og
Fylkir og á sunnudaginn leika
Víkingur og Valur. Einn leikur
fer fram í meistarakeppni KSÍ.
IA leikur við ÍBV á Akranesi. bá
leika í Keflavík í litlu bikar-
keppninni ÍBK og FII. Allir
leikirnir hefjast klukkan 14.
Leikur Víkings og Vals á sunnu-
daginn ætti að geta orðið
skemmtilegur. því þarna eigast
við tvö sterk lið.
Valur tapaði óvænt fyrir Þrótti
á fimmtudag. 2—1. það var Páll
Ólafsson sem skoraði fyrra mark
Þróttar með glæsilegu skoti af 30
metra fa-ri. Atli Eðvaldsson
jafnaði fyrir Val. en fyrrverandi
leikmaður hjá Val. Úlfar Hróars-
son. skoraði svo sigurmark Þrótt-
ar rétt fyrir leikslok.
Staðan í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu. er nú þannigs
VíkinKur 110 0 1.0 3
Valur 2 10 1 1.2 3
Þrúttur 2 110 3.2 3
KR 1 0 1 0 1.1 1
Fram 0 0 0 0 0.0 0
Fylkir 10 0 1 0.3 0
Armann 10 0 1 0.1 0
Á stóru myndinni hér að
neðan sést Jens Einarsson
verja vítakast frá Árna
Indriðasyni og tryggja
liði sínu þannig annað
stigið í leiknum. Fögnuð-
ur IR-inga var mikill eins
og sést á litlu innfelldu
myndinni, en félagar Jens
tóku hann og „tolleruðu“
í lok leiksins.
■ ",
Jens varði vítakast eft-
irað leiktímanum lauk
leikurinn líktist ekki lengur hand-
knattleik. Bjarna Bessasyni tókst
að skora og þegar Víkingar
byrjuðu á miðju eftir að tíminn
hafði verið stöðvaður og dómarar
borið saman bækur sínar voru 6
sekúndur eftir. Björgvin fékk
knöttinn út í hægra hornið og
hugðist fara inn, en brotið var á
honum. Vítakast var dæmt, hæp-
inn dómur, en Jens varði frá Árna
eins og sagði í upphafi.
Mikil harka var í leiknum og
hann engan veginn auðdæmdur og
verkefni þeirra Jóns Friðsteins-
sonar og Vals Benediktssonar því
allt annað en auðvelt. I heildina
dæmdu þeir leikinn undir meðal-
lagi og högnuðust IR-ingar nokkuð
á dómum þeirra. Sést það meðal
annars á því að í leiknum fengu
ÍR-ingar 8 vítaköst, en Víkingar 2.
Hins vegar mega fylgismenn
Víkings og jafnvel leikmenn liðs-
ins) gæta sín á því að vera ekki
sífellt að mótmæla dómurum eins
og tíðkast hefur undanfarið. Dóm-
gæzlan batnar ekki vitund við slíkt
nema síður Sé.
í fyrri hálfleik var það Þorberg-
ur Aðalsteinsson, sem hélt Vík-
ingsliðinu gangandi. í seinni
hálfleiknum var hans vel gætt og
á tímabili var hann eltur. Þá tók
Páll Björgvinsson upp markið og
átti stórleik í seinni hálfleiknum
og skoraði þá 5 mörk. Árni
Indriðason var klettur í Víkings-
vörninni að venju og drjúgur í
sókn, en brást illa bogalistin í
lokin. Björgvin skoraði góð mörk,
en útispilarnir hefðu mátt gefa
oftar á hann.
Af ÍR-ingum voru þeir
Brynjólfur Markússon og Vil-
hjálmur Sigurgeirsson beztir í
sókninni, en í varnarleiknum voru
þeir hver öðrum betri, Bjarni,
Sigurður G. og Sigurður Svav-
arsson. Sá síðarnefndi átti einnig
góðan leik á línunni ásamt Ársæli,
sem sýnir framfarir með hverjum
leik. Ekki má gleyma Jens mark-
verði sem öðrum fremur bjargaði
öðru stiginu.
Mörk ÍRi Brynjólfur Markússon
9 (lv), Vilhjálmur Sigurgeirsson 7
(3v), Bjarni Bessason 4, Ársæll
Hafsteinsson 1, Sigurður Svavars-r
son 1, Guðmundur Þórðarson 1.
Mörk Víkingsi Þol-bergur Aðal-
steinsson 8, Páll Björgvinsson 8,
Björgvin Björgvinsson 4, Viggó
Sigurðsson 2, Olafur Jónsson 1.
Misheppnuð vítakösti
Vilhjálmur Sigurgeirsson misnot-
aði 3 vítaskot, 2 fóru framhjá
marki og eitt varði Eggert. Krist-
ján Sigmundsson varði vítakast
frá Brynjólfi. Víkingar fengu tvö
vítaskot og varði Jens þau bæði,
frá Páli og Árna.
Brottvísanir af leikvellii Engin.
- áij.
fbröttir
• Mikilvægir leikir verða í hand-
knattleik um helgina og einn
ekki síður mikilvægur á mánu-
dagskvöld. Á sunnudag kl. 19
leika Víkingar og Haukar í 1.
deild kvenna en að þeim loknum
leika Valur og Fram. Sker sá
Ieikur út um hvor þessara liða
nær FII að stigum hjá kvenfólk-
inu. Verði jafntcfli í leiknum cru
FH-stúlkurnar orðnar íslands-
meistarar. Klukkan 21 leika
síðan KR og Haukar í 1. deild
karla og á mánudagskvöld kl. 21
leika Fram og Valur.
ÍRi Jens G. Einarsson 3, Hörður
Ilákonarson 1. Ásgeir Elíasson 2.
Ólafur Tómasson 1, Sigurður
Svavarsson 3, Guðmundur Þórðar-
son 2. Bjarni Bessason 2, Ársæll
Hafsteinsson 2, Vilhjálmur Sigur-
geirsson 3. Sigurður Gíslason 3,
Ingimundur Guðmundsson 1,
Brynjólfur Markússon 3.
VÍKINGURi Eggert Guðmunds-
son 1, Magnús Guðmundsson 2,
ólafur Jónsson 2, Skarphéðinn
Óskarsson 2, Páll Björgvinsson 4,
Erlendur Hcrmannsson 2. Árni
Indriðason 3, Þorbergur Aðal-
steinsson 3, Viggó Sigurðsson 2,
Kristján Sigmundsson 1, Björgvin
Björgvinsson 3, Steinar Birgisson
HM
\ «. sv<\9>r'v
Wktuto UJOfA
AiWOItA'öe
QOAeöA