Morgunblaðið - 16.04.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1978
35
Hið liðna er til
borvarður Helgasoni
TEXTAR I
Letur 1978.
Flest leikrit Þorvarðar Helga-
sonar snúast um fortíðina, það
sem er liðið, er eins konar
upprifjun. Að þessu leyti stend-
ur Þorvarður að vísu ekki sér í
íslenskri leikritagerð, mörgum
höfundum er tamt að líta um
öxl. En það vekur athygli hve
gamlar ástir og ástamál eru
Þorvarði áleitið viðfangsefni.
Minna má á skáldsögur hans
Eftirleit (1970) og Nýlendusögu
(1975). Hið liðna er aðeins til
sem saga sögð, orti Steinn. I
verkum Þorvarðar er hið liðna
til.
I einþáttungnum Rósamundu
er sagt frá konu sem beðið hefur
eftir vini sínum í fjörutíu ár.
Hún hefur setið á sama bekkn-
um og horft út á hafið og er
orðin jafn merkileg í augum
ungá fólksins og safnið og
dómkirkjan. Vinur hennar er
loksins kominn heim gamall
maður klæddur að hætti um-
renninga Becketts „í snjáðum og
stórbættum sjakketbuxum og
gömlum lafafrakka utan yfir
blárri peysu og með rauðan
silkitrefil um hálsinn. A fótun-
um er hann með lakkskó og
pípuhatt á höfðinu". Gamli
maðurinn heldur yfir Rósa-
mundu langa tölu um líf sitt og
tilgang þess. Hann flýði vegna
þess að hann vildi ekki verða
bókari í banka virtur fjölskyldu-
faðir með gullkeðju á maganum.
Meðan Rósamunda beið hefur
hann notið lífsins úti í heimi,
m.a. unnið í hringleikahúsi,
verið vasaþjófur og hórmangari.
Lok leikritsins eru frumleg.
Gamla konan yngist upp við
ræðuna, afklæðist og stígur
dans kringum lík veraldarflakk-
arans. Orð hans hafa veitt henni
lausn. Dansinn er súrrealískur
og gæti orðið áhrifamikill. á
sviði. Þetta er eina leikritið í
Textum sem minnir á absúrd-
isma, hin eru í raunsæisstíl.
Einþáttungurinn Síðasta við-
tal dagsins eða Tilbrigði við
jarðarfarastef er hnyttilega
saminn. Gamall maður kemur á
skrifstofu lögfræðings og minn-
ir hann á óþægilegar staðreynd-
ir úr lífi hans. Lögfræðingurinn
lætur sér fátt um finnast í
fyrstu, en að því kemur að hann
fer að skilja hvað sá gamli er að
fara. Þetta síðasta viðtals dags-
ins á skrifstofunni verður til
þess að lögfræðingurinn þarf að
endurmeta líf sitt. Segja má að
í Rósamundu og Síðasta viðtali
dagsins hafi Þorvarði tekist á
sannfærandi hátt að draga upp
myndir mannlegra örlaga.
Fyrrnefndu einþáttungarnir
eru báðir fyrir svið. Afmælis-
dagur er aftur á móti útvarps-
leikrit. Tveir gamlir vinir hitt-
ast á bar, drekka saman nokkra
manhattan, halda drykkjunni
áfram og rifja upp viðkvæm
ástamál. Með Afmælisdegi sýnir
Þorvarður að honum er lagið að
rýna í sálarlíf fólks sem býr við
óöryggi, einkum hvað ástamálin
varðar. Afmælisdagur segir
alveg nógu mikið um persónur
sínar, en heldur ekki of mikið.
Lesanda, áheyranda eru gefin
tækifæri til að ráða sjálfur hvað
verkið feiur í sér. Mér virðist að
í Afmælisdegi sé komið að
veigamiklu atriði í sambúð
fólks. Hvað á það í raun
sameiginlegt? Eru það ekki
tilviljanir sem hafa leitt það
saman? Skilur það hvort annað
eða er nokkurn tíma unnt að
ætlast til þess að um algjöran
skilning sé að ræða?
Sigur er lengsta verkið í
Textum 1, einþáttungur fyrir
útvarp, svið eða sjónvarp. Það
hefur verið leikið bæði í útvarpi
og sjónvarpi og munu margir
kannast við það. Leopold Thom-
as einræðisherra í Sramakíu er
að því kominn að bíða ósigur
fyrir uppreisnarmönnum. En
hann hefur ákveðið að hopa
ekki, taka á móti fulltrúum
uppreisnarmanna og ræða við
þá. Sigurinn er fólginn í per-
sónulegu uppgjöri hans. Sjálfur
var hann uppreisnarmaður sem
náði völdum með byltingu. En
allt það góða sem hann ætlaði
að koma til leiðar hefur að engu
orðið. Nú iðrast hann þess að
hafa látið stjórnast af öðrum,
rótgrónum ættum auðmanna og
Bðkmenntlr
eftir JOHANN
HJÁLMARSSON
embættismanna. Á stund ósig-
ursins hefur hann loksins kjark
til að bjóða öllum byrginn. En
hinn rómantíski draumhugi elur
með sér tálsýn sem lok verksins
leiða í ljós á miskunnarlausan
hátt. Byltingin étur að vanda
börnin sín.
í Sigri eru ekki sögð nein ný
sannindi. En þar er fjallað um
hluti sem alltaf eru að gerast.
Helsti galli verksins er að mínu
viti sá að það er of langur
einþáttungur en of stutt leikrit.
Of mikil áhersla er lögð á
Thomas sjálfan. Aðrar persónur
verksins eru litlausar, flöktandi
skuggamyndir. Samtöl eru ekki
nógu markviss. I verkum sínum
hættir Þorvarði til að vera
reyfaralegur á köflum án þess
að það sé tilgangur hans. Sigur
er engu að síður verk sem vekur
athygli og naut sín til dæmis vel
í útvarpi. Það fer að verða
tímabært að einhver verka
Þorvarðar séu sviðsett. Ekki
skal það samt vanmetið að
semja fyrir útvarp. Ég býst við
að Þorvarður gæti náð góðum
árangri í gerð útvarpsleikrita ef
hann sneri sér að því fyrir
alvöru.
Eins og nafn bókarinnar
Textar 1 gefur til kynna er von
á framhaldi. Meðal þess eru að
öllum líkindum leikrit. Það eru
gamlir fordómar að leikrit séu
ekki fallin til lestrar. Aukin
leikritaútgáfa er virðingarverð
og ber að þakka Letri fyrir það
framtak að koma verkum Þor-
Framhald á hls. 63.
ÆVAR R. Kvaran leikari á um þessar mundir 40 ára leikaTmæli og
var hann af því tilefni heiðraður í lok sýningar Þjóðleikhússins á
Ödípúsi konungi í fyrrakvöld. Þjóðleikhússtjóri, Sveinn Einarsson,
ávarpaði Ævar, svo og Klemenz Jónsson fyrir hönd Félags íslenzkra
leikara. Þakkaði Ævar fyrir sig með ávarpi. Ólafur K. Magnússon
tók myndina af Ævari í hlutverki sínu.
Vantar
halfa milljón-eða meira ?
Með IB-lánum Iðnaðarbankans opnast
nýir möguleikar á að tryggja sér lán þegar
á þarf að halda. Ef þú vilt spara um lengri
eða skemmri tíma skuldbindur bankinn sig
til að lána jafnháa upphæð og þú hefur
lagt inn að tímabilinu loknu. Sama upphæð
er lögð til hliðar mánaðarlega. Sé tíma-
bilið 2 - 4 ár og stefnt að háu láni gefst
kostur á IB-veðláni. Sé hins vegar stefnt
að láni eftir 6 eða 12 mánuði er um IB-lán að
ræða. Athugum nánar þá möguleika sem í
því felast.
Ákveðin upphæð er lögð inn á IB-reikning í
Iðnaðarbankanum í 6 eða 12 mánuði. Sé
um 6 mánaða sparnaðartímabil að ræða er
hámarksupphæð mánaðargreiðslu 20.000
kr.; annars 30.000 kr.
Hverjir eru möguleikarnir séu t.d. lagðar
inn 20.000 kr. í 12 mánuði? Við lok tíma-
bilsins er búið að spara 240.000 kr. Bankinn
lánar jafnháa upphæð. Með vöxtum af
innstæðunni verða þá til ráðstöfunar
500.580 kr. Lánið er endurgreitt með jöfnum
greiðslum afborgana og vaxta á jafn-
löngum tíma og sparað var, þ.e. 12 mán-
uðum.
Enmöguleikarnir eru fleiri eins og sést á töfl-
unni hér fyrir neðan. Vert er að athuga að
upphæðirnar eru teknar sem dæmi, og velja
má aðrar.
Allar frekari upplýsingar
veita IB- ráðgjafar Iðnaðarbankans.
SPARNAÐAR
TfMABIL
6
mán
12
mán
MÁNAOARLEG
INNBORGUN
10.000
15.000
20.000
10.000
20.000
30.000
SPARNAOUR I
LOK TÍMABILS
60.000
90.000
120.000
120.000
240.000
360.000
lONARARBANKINN
LÁNAR
60.000
90.000
120.000
120.000
240.000
360.000
RÁOSTÖKUNARPfc
122.295
183.450
244.590
250.290
500.580
750.860
MÁNABARLKG
ENDURGRK.IOSLA
MK» VÖXTUM
10.772
16.558
21.543
11.464
22.927
34.391
ENDUR
GRKIÐSLU
TlMABIL
6
mán
12
mán
Bankiþeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Lækjargötu 12, Sími 20580