Morgunblaðið - 16.04.1978, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRIL 1978
Heimsókn
í Portúgal
4. grein
Eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
Yfirlitsmynd
yfir
aðalathafnasvæði
Sorefame
í Amadora
Þessar myndir gefa hugmyndir
Litið inn hjá Sorefame- skoðað
postulín í Alcobaca og farið
í samvinnufélagið Unisul
SADO
Sýnishorn af framleiðsluvörum Unisul
SÍÐLA föstudags í blíðu veðri
komum við Maria Teresa til
Sorefame. Það er gríðarstórt
málmiðnaðarfyrírtæki sem fram-
leiðir búnað til orkuvera og
virkjana, í olíuiðnaö og efnaiðnað,
smíðar járnbrautarvagna sem
seldir eru vítt um veröld, rann-
sóknatæki til olíuleitar, eininga-
byggingar og ég veit eiginlega
ekki hvað. Auk Þess sem Sore-
fame er víðfrægt, albjóölegt
verktakafyrirtæki á Þessu sviði og
hefur hérlendis til dæmis verið
með hluta Sigölduvirkjunar qg
hefur nú boöið í gerð uppistööu-
lóns við Hrauneyjarfossvirkjun.
Allt hjá Sorefame er svo stórt í
sniðum að það er töluvert átak
leikmanni að skilja allt sem þar fer
fram. Og eins og sjá má af mynd
sem fylgir þessari grein frá aðal-
bækistöðvum Sorefame er ekki um
aö ræða neitt smáræðis flæmi sem
undirlagt er og hver vinnusalur
fæst við sitt afmarkaöa verkefni.
Aðalbækistöðvarnar, sem eru í
Amadora, 200 þúsund manna bæ
skammt frá Lissabon, ná líka yfir
um 221 þús. fermetra svæði. Þar
vinna 4300 verkamenn. Þeir voru
nú að Ijúka strangri vinnuviku því
að ekki er unnið um helgar og
vaktavinnu hefur ekki verið komið
á, heldur er unnið frá 8—5 eöa
9—5.
Fernando Arrobas da Silva,
yfirmaður upplýsingadeildarinnar,
var hinn jákvæðasti. Hann var ekki
að flýta sér þótt helgi færi í hönd
og auk þess aö sýna okkur
kvikmynd um starfsemi Sorefame
arkaði hann með okkur um vel-
flesta vinnusali, og var engin
þreytumerki á honum að sjá eftir
þá reisu, þótt við Maria Teresa
værum orðnar býsna sárfættar.
Sorefame var komið á laggirnar
árið 1943 og vakti fyrir stofnendum
að þróa nútímalega framleiöslu
Portúgala á tækjum og búnaöi sem
geröi þeim kleift að keppa á
alþjóölegum mörkuöum á þessu
sviöi. Sorefame hefur tekizt þetta
og stendur nú í fremstu röð, enda
hefur fyrirtækið verið með verkefni
í um tuttugu og fimm löndum. Nú
er talsvert í gangi í Suður-Ameríku
og sagðist da Silva búast viö þaö
yxi á næstu árum.
Til að skýra með sem minnstum
málalengingum framleiðslu og
verksvið Sorefame má segja aö
skipta megi þessu í eftirfarandi
þætti:
1. tækjabúnaö fyrir vatnsvirkjanir,
2. raftækjabúnað fyrir orkuver,
bæði venjuleg svo og kjarnorku-
ver,
3. tækjabúnað fyrir efnaiönað og
olíuiðnað,
4. járnbrautarvagna,
5. tæki til olíuleitar og olíufram-
leiöslu,
6. einingabyggingar.
Fyrsta afgreiöslan á pöntun utan
Portúgal var sex árum eftir stofnun
fyrirtækisins, til vatnsorkuvers í
Marokkó. Stðan hefur uppbygging
fyrirtækisins veriö mjög hröö og
mikið kapp á það lagt að starfs-
menn fái góða og uppbyggilega
þjálfun í starfi sínu.
Þarna er prýöileg aðstaöa fyrir
starfsfólkiö, máltíöir seldar á um
tuttugu eskúta sem eru um 130
krónur sem er auðvitað sama og
gefið. Læknir og hjúkrunarkona
eru jafnan á vakt meðan unnið er.
Da Silva segir að töluvert sé til
þeirra leitaö vegna minniháttar
skráma og umferðarpesta en þar
sem Sorefame legði mikið upp úr
því aö öryggis væri gætt væru
vinnuslys næsta fátíö.
í heimsókn
hjá Unisul
í smábænum Coruche hefur
samvinnufyrirtækiö Unisul miðstöð
sína, en það er samsteypa fjögurra
félaga. Á leiöinni þangað förum við
urp svæði og horfum yfir akra sem
höfðu orðiö illa úti í miklum flóðum
sem urðu í Portúgal í síðari hluta
febrúarmánaðar. Sums staðar hef-
ur uppskera ónýtzt, annars staöar
veröur engu hægt aö koma niður
vegna bleytu í jarðveginum fyrr en
einhvern tíma seint og um síðir. Allt
slíkt er tjón veikburöa efnahag
Portúgala.
Þessi fyrirtæki UNISUL leggja
mesta áherzlu á tómatræktun og
vinnslu á tómatkrafti. Þó er verka-
skipting með þeim þannig að í einu
er framleitt meira af mjólkurvörum
og í því næsta unnið mikið af
niðursoðnum ferskjum og svo
mætti lengi telja. Þarna í Coruche
er verkstjóri sá sem sér um
grænmetisakrana að gera athyglis-
verðar tilraunir meö nýjar græn-
metistegundir og miðar allt að því
að auka framleiðsluna sem hefur
ekki verið unnt að hafa í gangi allt
áriö. Með aukinni fjölbreytni og
nýrri tækni í framleiöslu grænmetis