Morgunblaðið - 03.05.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
11
um á tímburkirkjumii
geymir hún menningarverðmæti,
sem skylda ber að varðveita.
Sóknarnefnd hefur því ákveðið
að minnast 120 ára afmælisins —
og skal þá lokið viðgerð þeirri á
kirkjunni, sem unnið hefur verið
að undanfarið.
En viðgerðin er býsna kostnað-
arsöm og þess vegna hefur verið
ákveðið að leita til sóknarbarna og
annarra velunnara kirkjunnar um
stuðning við framkvæmdir þessar
— bæði með fjárframlögum eða
með vinnu.
Við efumst ekki um, að hér vill
margur leggja hönd á plóg, ekki
síst skaftfellingar nær og fjær.
Framlögum skal komið til sókn-
arprests eða sóknarnefndar
Prestsbakkakirkju. Einnig er hægt
að leggja framlög inn í sparisjóðs-
bækur kirkjunnar í útibúi Bún-
aðarbankans í Vík í Mýrdal og
Kirkjubæjarklaustri, bók nr. 3000,
og í sparisjóðsbók nr. 2360 í útibúi
Samvinnubankans í Vík og Kirkju-
bæjarklaustri."
Sóknarnefnd.
120 ára afmæli Prestbakkakirkju:
Prestsbakkakirkja á Siðu
Fröken
Margrét
að kveðja
Sýningar á leikriti brasilíska
höfundarins Roberto Athaydes,
Fröken Margréti. sem Þjóðleik-
húsið hefur sýnt í vetur, nálgast
nú 50. Það er Herdís Þorvaldsdótt-
ir, sem fer með hlutverk fröken
Margrétar, kennslukonunnar, sem
talar yfir hausamótunum á nem-
endum sínum í hálfa aðra klukku-
stund.
Næsta sýning er miðvikudags-
kvöldið 3. maí og eru þá aðeins
örfáar sýningar eftir.
Vörður vill
jafna kosn-
ingaréttinn
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Landsmálafélagsins Varðar:
„Stjórn Landsmálafélagsins
Varðar skorar á leiðtoga þing-
flokkanna að hefjast tafarlaust
handa um raunhæfar aðgerðir í
því skyni að jafna kosningarétt
landsmanna. Núverandi ójöfnuður
kosningaréttar er brot á mann-
réttindum og ekki verður þolað, að
enn líði heilt kjörtímabil, þar til
nýskipan kjördæma- og kosninga-
hátta verður ákveðin.
Stjórnin styður eindregið tillögu
allsherjarnefndar sameinaðs Al-
þingis um skipan nýrrar stjórnar-
skrárnefndar, sem fengi það höf-
uðverkefni að skila tillögum um
jöfnun kosningaréttar með breyt-
ingum á stjórnskipunarlögum og
almennum kosningalögum."
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JN»r»mMaftib
Unnið að endurbót-
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning:
„A skírdag, sem bar upp á
sumardaginn fyrsta, árið 1859
vígði séra Páll Pálsson prófastur í
Hörgsdal Prestsbakkakirkju á
Síðu, svo að á næsta ári á kirkjan
120 ára afmæli.
Prestsbakkakirkja er því með
elstu timburkirkjum hér á landi og
er byggð í þeim stíl, sem á 19. öld
leysti gömlu torfkirkjurnar af
hólmi.
Kirkjan er að því leyti sérkenni-
leg, að predikunarstóll stendur
fyrir framan grátur, fyrir miðju,
en ekki sunnanmegin, sem venja
er. Kirkjan er mjög vegleg, rúmar
yfir 200 manns í sæti, og árið 1910
málaði Einar Jónsson frá Fossi í
Mýrdal kirkjuna að innan, svo að
enn í dag geymir hún list manns,
sem í vitund þeirra er til þekkja
tengist uppvaxtarskeiði íslenskrar
myndlistar.
Auk þess hlutverks, sem Prests-
bakkakirkja hefur gegnt sem
sóknarkirkja í öll þessi ár — þá
„Nú erum við búin að fá okkur
Philips litsjónvarpstæki, og ég get sagt
þér það, að ég var búinn að ganga hús úr
húsi að kíkja á litinn hjá kunningjunum,
áður en ég skellti mér á Philips. Sko,
maður þarf að geta borið saman, til þess
að geta áttað sig á því hvað maður vill.
Svo heyrir maður, að þetta sé allt sama
tóbakið, að þetta sé aUt eins en það er nú
öðru nær ...
Við vitum að Philips stendur fram-
arlega í tækninni, nú, og svo sér maður
það, sem maður sér. Litirnir eru svo
eðlilegir að maður hefði bara ekki trúað
þessu.
Blessaðu líttu til okkar í kvöld og
taktu konuna og krakkana með. Ég vil
endilega að þið sjáið í okkar tæki áður en
þið ákveðið hvað þið ætlið að kaupa.
Geriði það ...
Jónereinnaf okkar
bestu söhimönnum
samt vinnur hann
alls ekki hjá okkur
Hann notar hvert tækifæri til að
segja kunningjunum frá því, hvað Philips
litsjónvarpstækið hans sé frábært.
PHILIPS
litsjónvarpstæki með
eðlilegum litum.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655