Morgunblaðið - 03.05.1978, Síða 14

Morgunblaðið - 03.05.1978, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978 Felldur verði niður söluskatt- ur af raforku BÆJARSTJÓRN Siglufjarðar hef- ur sent frá sér ályktun þar sem m.a. er fagnað þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að taka ekki tillit til stjórnskipaðrar nefndar sem gerði tillögur um lausn rekstrarfjárvanda Rafmagns- veitna ríkisins, sem fram komu í hækkun á verðjöfnunargjaldi af raforku úr 13% í 20% eða um 740 m. kr. á ári. Þá vill bæjarstjórnin taka undir þær tillögur sem fram hafa komið að undanförnu „að þegar í stað verði felldur niður söluskattur af raforku, svo og gasolíu til raforku- vinnslu til þess að bæta sam- keppnishæfni innlendra orkugjafa við innflutta". Var Abraham Lincoln hjartveikur? Los Angeles AP. ABRAHAM Liricoln, fyrrv. Banda- ríkjaforseti, var hjartveikur og hefði að öllum líkindum dáið áður en kjörtímabili hans lauk þó svo að ekki hefði komið til morðið í leikhúsinu, að því er dr. Harold Schwartz læknir i Los Angeles heldur fram. Hann segir að útlitsleg einkenni sem munu vera arfgeng séu til dæmis, að armar og fótleggir eru óeðlilega langir, brjóstkassi innfallinn og ónóg stjórn á augum sem veldur því, að fólk sem hefur þessi einkenni er oft rangeygt eða tileygt. Segir dr. Schwartz sem kynnt hefur sér gaumgæfilega heimildir um Lin- coln og ætt hans, að forsetinn hafi haft þessi einkenni. Hann kveðst hafa rannsakað mál Lincolns síðan árið 1959, þegar hann varð var við sjúkdóminn, sem kallaður er marfansyndrome, í ungum dreng og komst að því að Lincoln var einn forfeðra hans. Schwartz er þeirrar skoðunar að þrjú af börnum Lincolns hafi dáið úr þessum sjúkdómi og hafi honum nú tekizt að rekja sjúkdóminn til forfeðra Lincolns á Englandi aftur til 15. aldar. Schwartz segir að síðustu mánuðina sem Lincoln hafi lifað hafi hann þolað mjög litla áreynslu, fengið höfuðverk æ ofan í æ og hafi stundum verið rúmliggjandi af þreytu og höfuð- kvölum. Hafi þetta verið vísbend- ing um að hjarta hans væri að gefa sig. MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI • - SÍMAR: 17152-17355 Óskilmunadeild lögregiunnar í vörslu lögreglunnar er nú margt óskilamuna, svo sem reiöhjól, fatnaður, lyklaveski, lyklakippur, veski, buddur, úr, gleraugu, barnavagnar o.fl. Eru þeir, sem slíkum munum hafa týnt, vinsamlega beðnir að gefa sig fram í skrifstofu óskilmunadeildar á Hverfisgötu 113 (gengið inn frá Snorrabraut) næstu daga kl. 2—7 e.h. til að taka við munum sínum, sem þar kunna aö vera. Þeir munir sem ekki veröa sóttir, verða seldir á uppboði. Lögreglustjórinn í Reykjavík. ELDHÍS GLLGGATJÖLD ný sending gerö 2120 breidd 270 cm. kr. 8.023- Vorum að fá nýja sendingu af norskum og sænskum eldhúsgluggatjöldum. Litir og stærðir í úrvali. Hentar fyrir gluggabreiddir frá 90 cm og upp í 180 cm. SKIPHOLTI17A-SIM117563 Wmmmmmmmm Listkynning Listkynning ISLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR er meö listkynningu í Hafnarstræti 3. Sýndir veröa leirmunir eftir HAUK DÓR og Batik kjólar, „K O S“ kjólar, eftir KATRÍNU og STEFÁN. Sýningin er opin á venjulegum verzlunartíma kl. 9.00—6.00 og laugardaga kl. 9.00—12.00. Islenzkur heimilisiðnaður Hafnarstræti 3 Bilsby' Skurvog-ne A-S Industribakken 1. Sengelöse. 263(LTaastrup. Danmark. Talsimi 09—02-99 47 08 StarfsfólksvaKnar, skrifstofuvagnar. ibúðarvagnar. geymsluvagnar. hreinlætisvagaar. (jóðfúslega biðjið um upplýsingapésa. • Lengi getur gott batnað • ISlú á 450 kg. burðaröxli • Nú á sverum blöðru-hjólbörðum • Til afgreiðslu strax Greiðsluskilmálar BENCO, Bolholti 4, Reykjavík; sími 91-21945 Skgndil^álpar- kassar með öllu því nauðsynlegasta fyrir skyndihjálp. í kassanum eru umbúðir og tæki samkvæmt vestur-þýskum staðli. Slíkur kassi ætti að vera bæði í atvinnu- og einkabifreiöum, skólum, á heimilum og á vinnustöðum. HJdLPdRTÆKIdBdllKmil NÓATÚNI 21 • SÍMI 213 33 -105 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.