Morgunblaðið - 03.05.1978, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
17
Jóhann Hjálmarsson:
Hversdagsleikinn
og heimsókn
draumsins
LEIKRIT Jökuls Jakobssonar,
Dómínó, lýkur á samræðum
þeirra hjóna Margrétar og
Kristjáns:
Kristján:Og í garðinum —
fyrir utan gluggann okkar —
þar var dálítill gosbrunnur.
Margrét: Nei. það var enginn
gosbrunnur í garðinum.
Kristján: Það var gosbrunnur
í garðinum. og þú —
Stutt þögn, aftur hverfur
hversdagsleikinn einsog dögg
fyrir sólu og í síðustu orðsvör-
unum hljómar ásláttur hins
uggvænlegai
Já. Þú sazt við gpsbrunninn alla
daga...
Margrét brosir: Það var ekki
ég.
í leikritum sinum fékkst
Jökull Jakobsson við að lýsa
hversdagsleikanum og tókst það
betur en mörgum öðrum sam-
tímahöfundum. En hversdags-
leikinn í leikritum Jökuls er
tíðum rofinn af heimsókn
draumsins; hið óskýranlega sest
skyndilega að og byrjar að tala
sínu hálfkveðna máli. Þetta eru
ljóöræn einkenni, enda Dómínó
ljóðrænt verk. Jökull hafði auga
fyrir hinu skoplega, en það sem
fyrst og fremst einkennir verk
hans er tregi. I verkunum er
spurt spurninga um tilvist fólks,
veruleiki og ímyndun verða ekki
skilin að. Við erum líka það sem
við vorum einu sinni eða ætluð-
um að verða. Jökull hefur alltaf
minnt mig á Tsékov. I glímu
sinni við hversdagsleikann var
hann um leið túlkandi hins
óvænta, ævintýrsins. Samtals-
list Jökuls í leikritunum er
yfirleitt fremur lágvær, þar er
enginn dramatískur tilbúning-
ur, og þetta held ég að sumir
hafi ekki áttað sig nógu vel á.
Orðin þurfti að nema opnum
huga líkt og hnitmiðað ljóð sem
er meira en það sem stendur á
pappírnum.
Ég hef valið Dómínó sem
dæmi um leikrit Jökuls Jakobs-
sonar. Kannski hefur hann ekki
náð lengra en í því verki. En
ekkert skal fullyrt um það fyrr
en hið nýja leikrit hans Sonur
skóarans og dóttir bakarans
hefur verið frumflutt. Jökull var
afkastamikill leikritahöfundur
og skal minnt á Hart í bak,
Sjóleiðina til Bagdad, Sumarið
‘37 og Klukkustrengi."
Jökull Jakobsson var fyrst og
fremst leikritahöfundur. Skáld-
sögur hans eru að vísu athyglis-
verðar, en eru ekki nógu heil-
steyptar til að geta kallast
eftirminnilegar. Betri árangri
náði hann sem smásagna-
höfundur. Ferðabækurnar eru
með því besta af slíku tagi sem
við eigum frá síðustu áratugum,
einkum Síðasta skip suður og
Dagbók frá Diafani. Jökull var
frábær útvarpsmaður og munu
margir minnast þátta hans, ekki
síst þeirra sem hann nefndi
Gatan mín. Spurningar hans
voru valdar af kostgæfni og í
þeim var ekkert óþol. Svör
manna voru eftir því.
Ég þekkti Jökul Jakobsson
ekki náið. En ég hitti hann
nokkrum sinnum og talaði nógu
mikið við hann til að mér yrði
það ljóst að hann var gæddur
góðri greind. Þeir eiginleikar
nýttust honum vel í opnberri
umræðu. Öllum er ljóst að það
er sár missir að hann skuli vera
látinn á miðri ævi sem var
helguð skáldskap. Meðal hinna
ungu leikritahöfunda sem nú
eru óðum aö sækja í sig veðrið
var hann einn hinna fremstu.
Sumir munu ekki hika við að
segja fremstur, sá sem mest
kunni og hafði ef til vill mest að
segja.
Jóhann Iljálmarsson
mörg önnur í útvarpi, alvöru og
gamanmál, og alltaf það nýja
eilítið hnitmiðaðra en það síðasta,
— einatt sótt á brattann. Og enn
eigum við óséð á leiksviði það allra
besta. — Sem útvarpsmaður er
Jökull líka greiptur í minnið,
rólegur og yfirvegaður raddblær-
inn með þeim undirtón, að áheyr-
andinn hafði jafnan á tilfinning-
unni, að hann væri að brosa út í
annað munnvikið eða bæla niður
gamansemina, nákvæmlega eins
og hann var svo iðulega á mörgum
skemmtilegum samtalsstundum.
I leikritum Jökuls Jakobssonar
skapaðist atburðarásin oft í kring-
um það, að persónur hans voru að
koma eða fara. Aldrei verður
heimurinn eins og áður eftir að
Jökull er farinn og kemur ekki
aftur. Og mikið höfum við misst
með öllu Jþví sem hann átti
óskrifað. Ég kveð minn gamla
góðvin með djúpum trega.
Vigdís Finnbogadóttir
EFTIRPRENTANIR Sýning á eftirprcntunum af ýmsum
kunnum málverkum í erlendum listasöfnum hófst á Hailveigarstöð-
um um sl. helgi. Þetta er sölusýning og mun hún standa til 7. þ.m.
Hún er opin frá 14—22. Aðgangur er ókeypis.
Höfdinglegt verk
Í DANSKA stórblaðinu Politiken 16.
apríl sl. birti Holger Philipsen í
trímerkjapætti sínum, Frimærkenyt,
umsögn um bók íslensku póst-
stjórnarinnar, islenzk frímerki í
hundrað ár, sem Jón Aðalsteinn
Jónsson samdi. Svo sem lesendur
Mbl. vita, hefur Jón Aðalsteinn ritað
um frímerki hér í blaðið um nokkur
ár. Hinn danski kollega hans skrifar
svo í Politiken:
„íslenzk viðhafnarútgáfa
Það er erfitt aö finna nægjanleg
lýsingarorö í hástigi til þess aö lýsa
þessu höföinglega verki, sem
íslenzka póststjórnin hefur sent frá
sér:
íslenzk frímerki í hundrað ár
Eins og titillinn bendir til, er ritiö
gefið út í tilefni af því, aö íslenzk
frímerki eiga hundrað ár að baki.
— Maðurinn, sem stendur á bak
viö þetta einstæða yfirlitsverk, er
Jón Aðalsteinn Jónsson, sem
annars er ritstjóri viö hina íslenzku
orðabók. í Frimærkenyt nr. 9 er
sagt frá því, aö höfundurinn er einn
Dönsk umsögn um
„íslenzk frímerki
í hundrad ár”
M lll 1 m
1 i Íslenzk frímcrki í hundrad ár m É
1 1 1 y 1
'm 11 H i
$ 1 1
1 1 1 1
af fróöustu mönnum um íslenzk
frímerki og hefur skrifaö margar
greinar um þau efni.
Prentun og myndir
frímerkja í sérflokki
í óvenjufallegu og stílhreinu
bandi fyllir ritið 473 síöur meö
myndum af frímerkjum til 1973.
Þaö, hvernig efniö og hinar ótrú-
lega nákvæmu litmyndir eru settar
upp, minnir um flest á danska ritiö,
sem út kom fyrir um áratug:
Frímerkin eru litprentuð á gráleitar
síður og textinn viö þær er sér meö
teikningu af myndasíðunni.
Sögulega yfirlitiö byrjar með
árinu 1852 á þeim tíma, þegar
dönsk frímerki eru þegar komin í
notkun. Um ieiö er gerð grein fyrir
opinberum skjölum frá sama tíma
um stofnun sjálfstæörar íslenzkrar
póststjórnar — og eins fyrir
póstsögunni: stofnun póststöðva,
nýjum póstleiðum, stefnum í frí-
merkjamálum og hvenær minning-
arfrímerki voru fyrst útgefin o.s.frv.
Textinn er á ensku. Veröið fyrir
þessa viöhafnarútgáfu er 25 þús.
íslenzkar krónur, sem er aðeins
meira en 1000 danskar krónur, en
ekki krónu of mikið.
Ritiö er öruggt með að hljóta
guilverðlaun á hvaöa alþjóöa
frímerkjasýningu sem er.“
kaupa íbúð,
eða stækka við þig ?
Þá er að sýna fyrirhyggju, hún léttir
framkvæmdir. IB-veðlán Iðnaðarbank-
ans opna nýja möguleika.
Hér eru tvö dæmi:
1) 40.000 kr. mánaðarleg innborg-
un í 24 mánuði + IB-lán gerir ráð-
stöfunarfé þitt að 2,1 milljón króna.
2) 50.000 kr. mánaðarleg innborgun í
36 mánuði + IB-lánið gerir ráðstöfunar-
fé þitt að rúmum 4,1 milljón króna.
Þessar upphæðir nægja í mörgum
tilvikum sem milligjöf við íbúðaskipti.
Eða fyrir útborgun í lítilli íbúð.
Þetta lítur Ijómandi vel út, en hvað með
verðbólguna?
Hún er afgreidd svona: Árlega geturðu
hækkað mánaðarlega innborgun þína
(til samræmis við verðlag) og þar með
IB-lánið. Hjón geta bæði undirbúið
IB-lántöku - þá tvöfaldast ráðstöfunar-
féð.
Kynntu þér IB-veðlán, fáðu bækling.
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Aöalbankiogútibú