Morgunblaðið - 03.05.1978, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
21
f------------------
Fara Stefán
og Marteínn
frá Union?
ÚTLIT er fyrir að þeir
Marteinn Geirsson og
Stefán Ilalldórsson leiki
ekki með Royale Union í
Belgíu á næsta keppnis-
tímabili. Þeir hafa báðir
verið settir á sölulista og
hið sama má segja um
flesta aðra leikmenn þessa
fornfræga félags, sem á nú
í miklum erfiðleikum. Báð-
ir munu Stefán og Mart-
einn hafa áhuga á að
dvelja lengur erlendis við
knattspurnuiðkun, þá
annað hvort í Belgíu eða
annars staðar.
AUSTURBERGSIILAUP íór fram í Breiðholti á laugardaginn og var
góð þátttaka í hlaupinu. Um leið og keppnin er á milH einstaklinga
herjast bekkir í skólunum í Breiðholti um vcrðiaun. A mcðfylgjandi
mynd sjást er yngstu hlaupararnir leggja af stað og þeir fyrstu draga
greinilega ekki af sér.
BJÖRGVIN Þorsteinsson. íslandsmeistari í goifi. sigraði í fyrsta opna golfmótinu á árinu. en það
var Uniroyal-keppnin hjá Keili um síðustu heigi. Lék Björgvin á 73 höggum, en í öðru sæti varð
Magnús Birgisson. GK, á 77 höggum. Fjórir kylfingar léku á 78 höggum. þeir Magnús Ilalldórsson.
sem vann eftir bráðabana. Sigurður Thorarensen og Ilannes Eyvindsson. í keppni með forgjöf sigraði
Tryggvi Traustason. en þeir Gísli Sigurðsson. Ólafur Tómasson, Ilannes Eyvindsson. Elías Einarsson
og Jón Marinósson komu næstir. Alls tóku 110 kylfingar þátt í mótinu. en þetta er í fjórða sinn.
sem keppnin er haldin.
Á meðfylgjandi mynd RAX sjást tveir kylfinganna í keppninni, Jón Marinósson úr Kcili og K jartan
L. Pálsson úr Nesklúbbnum.
Ómar Úlfarsson
varð „Glímukappi
íslands 1978"
ÓMAR Úlfarsson úr KR bar sigur úr býtum í Ísiandsglímunni 1978, sem gii'md var í íþróttahúsi
Kennaraháskólans s.l. sunnudag. Ómar hiaut þar mcð sæmdarheitið „Glímukóngur íslands 1978“
og ennfremur hlaut hann Grettisbeltið til varðveizlu í eitt ár. Ómar hefur ekki áður sigrað í
íslandsglfmunni.
Atta giímumenn tóku þátt í
Íslandsglímunni að þessu sinni
og var sigurvegari síðasta árs
með í þeim hópi, Ingi Þ.
Yngvason IISÞ. Röð keppenda
í Íslandsgiímunni varð þessii
1. Ómar Úlfarsson, KR 6 v
2. Pótur Yngvason. HSÞ 51/; v
3. InKÍ t>. Ynfrvason. IISI> 5 v
4. Guðmundur Freyr
Halldórsson, Ármanni 4V4 v
5. Eyþór Pétursson. IISÞ • 3Vi v
fí. Guðmundur Ólafsson. Ármanni 11 ■ v
7.-8. Eiríkur Þorstcinsson, Víkvcrjal
v 7.-8. Sixurjón Lcifsson. Ármannil
v Eftir fyrstu umferðirnar
varð ljóst að aðalkeppnin myndi
standa milli bræðranna Péturs
og Inga, Omars og Guðmundur
Freys. Pétur byrjaði bezt, vann
þrjár fyrstu glímurnar og m.a.
lagði hann Ómar. Hins vegar
gekk Pétri ekki eins vel í seinni
umferðunum og þrjú jafntefli í
röð, gegn Eyþóri, Guðmundi
Frey og Inga, drógu úr sigur-
möguleikum Péturs. Ómari óx
ásmegin eftir því sem á keppn-
ina leið og vann hann hverja
glímuna af annarri. M.a. gerði
hann sér lítið fyrir og lagði Inga
í hörkuglímu. Kom Ómar mjög
óvæntu bragði á hann svo að
Ingi lá kylliflatur. Þar með fóru
sigurmöguleikar Inga endan-
lega. 1 næst síðustu umferðinni
glímdi Ómar við Guðmund Frey
og lagði hann. I síðustu umferð-
inni lagði Ómar Guðmund
Ólafsson og tryggði sér þar með
Glímukóngstitilinn.
Greinilegt er að Ómar hefur
æft glímuna vel að undanförnu
því hann hafði gott úthald og
sótti sig með hverri glímu.
Ómar glímir kappsamlega og af
kröftum og hann var sá eini,
sem fékk áminningu í þessu
glímumóti. Það má telja til
tíðinda að Ómar skuli nú rjúfa
sigurgöngu þingeysku bræðr-
anna og var hann vel að sigri
kominn.
Þeir bræður Ingi og Pétur
skipuðu 2.-3. sæti í þessu móti.
Þeir glímdu nú lakar en oft áður
á mótum og sérstaklega þó Ingi.
Pétur byrjaði vel en virtist
skorta úthald þegar leið á
keppnina. Guðmundur Freyr
glímdi vel að vanda en félagi
hans Guðmundur Ólafsson stóð
sig ekki eins vel og búast mátti
við. Hans veikleiki er greinilega
léleg vörn gegn lágbrögðum.
Eyþór Pétursson glímdi vel en
hann mætti sækja meira en
hann gerir. Aftur á móti stenzt
honum enginn snúning í því að
verjast brögðum.
Veitt voru sérstök fegurðar-
verðlaun og hlaut Eyþór Péturs-
son þau. Hann fékk 138 stig.
Röðin var annars sú, að annar
UMAK IJllarsson vann Grettisbeltið í fyrsta skipti á sunnudaginn,
en Eyþór Pétursson fékk þá verðlaun fyrir fegurstu glímurnar.
varð Ingi Þ. Yngvason með
133% stig, Pétur Yngvason
hlaut 131 stig, Guðmundur
Freyr Halldórsson hlaut 124
stig, Ómar Úlfarsson 117, Sigur-
jón Leifsson 111, Guðmundur
Ólafsson 98 og Eiríkur Þor-
steinsson 94 stig.
Dómarar mótsins voru Sig-
urður Jónsson, Gunnar R.
Ingvarsson og Garðar Erlends-
son og stóðu þeir sig vel. Aftur
á móti var framkvæmd mótsins
hálf losaraleg og hófst t.d.
keppnin ekki fyrr en 20 mínút-
um eftir auglýstan tíma. Þá var
frágangur mótsskrár til vansa.
- SS.
„DREYMDI FYR-
IR ÚRSLITUM"
IIINN nýi „Glímukóngur Islands“. ómar Úlfarsson. er 30
ára gamall og bókbandsmeistari að atvinnu.
„Nei, sigurin kom mér ekki á óvart“, sagði hann í
stuttu spjalli við blaðamann Mbl. í mótslok. „Mig
dreymdi nefnilega þremur nóttum fyrir keppnina að Ingi
Þ. Ingvason kæmi til mín og rétti mér Grettisbeltið. Eg
er berdreyminn maður og drauminn réð ég þannig, að
ég myndi vinna. Ég tel mig meira að segja vita hver
vinnur næsta ár en frá því skýri ég ekki núna“.
Ómar hefur æft glímu í fjöída ára. Hann keppti á
flcstum mótum fyrir nokkrum árum en fyrir 3% ári hætti
hann keppni og hann hefur ckki verið með fyrr en núna
í vetur að hann byrjaði að æfa og keppa að nýju. „Ég
hef æft mig mjög vel sfðustu þrjár vikurnar og var
ágætlcga undir keppnina búinn". sagöi Ómar.
Ómar hefur unnið til flestra verðlauna f gli'munni en
hann hefur ekki áður sigrað í Islandsglímunni og var
sigurinn því kærkominn. „Ég var eitt sinn mjög nærri
því að sigra“. sagði Ómar. „Ég var kominn með 5%
vinning fyrir sfðustu glimuna en í henni meiddist ég og
varð að hætta keppni. Reglurnar voru þá þannig að
vinningarnir féllu niður ef maður varð að ganga úr
keppninni og Grettisbeltið féll í skaut manns, scm var
með 5 vinninga út úr kcpninni eða hálfum vinningi
minna en ég var búin að fá þegar ég meiddist“. sagði
Ómar.
Hann sagði að lokum að honum hefði ekki þótt mótið
erfitt að þessu sinni en glfman við Pétur hefði verið sú
erfiðasta, enda varð Ómar þar að lúta í lægra haldi. Hann
kvaðst ákveðinn í því að halda áfram iðkun glímunnar.
hún væri góð og hoil íþrótt fyrir mann eins og hann sem
ynni við bókband og fengi því litla hreyfingu í starfinu.