Morgunblaðið - 03.05.1978, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
27
12:0 sigur dugði Gladbach
ekki til sigurs í V-Þýzkalandi:
KÖLN MEISTARI Á
BETRI MARKATÖLU
KNATTSPYRNUVERTÍÐINNI í V-Þýzkalandi lauk um helgina og þvílíkur endír! í síðustu
umferðinni þurfti Borussia Mönchengladbach að vinna andstæðinga sína lliO, með þeim
fyrirvara þó að Köln ynni aðeins liO sigur á andstæðingum sínum. Hefðu úrslitin orðið þessi
hefði Borussia unnið titilinn. Svona fór þetta þó ekki. Borussia gerði að vísu betur en að vinna
lliO, leikmenn Borussia Dortmund fóru heim með 0il2 á bakinu, mesti markamunur, sem um
getur í sögu þýzku „bundesligunnar**. Á sama tíma lék Köln á útivelli á móti St. Pauli í
Hamborg. Með þremur mörkum í lokin tryggði Kölnarliðið sér sigurinn í deildinni, vann 5i0.
Gladbach hefði þurft að vinna 15i0 til að ná betra markahlutfalli en Köln, sem í ár varð
tvöfaldur meistari í V-Þýzkalandi og varð þriðja liðið til að vinna deild og bikar sama
keppnistímabilið.
Leikir toppliðanna hófust á
sama tíma og þarf ekki að hafa
mörg orð um að stöðugar upplýs-
ingar fóru á milli vallanna um
hvernig staðan væri hjá erkióvin-
--------------------\
24 KEPP-
ENDURí
FIRMA-
KEPPNI
FIMLEIKA-
MANNA
FIRMAKEPPNI Fimleika-
sambands íslands fór fram í
Laugardalshöll á sunnudag,
alls voru keppendur 24, 20
stúlkur og 4 piltar.
Stúlkurnar voru úr ÍR,
Björk, Ármanni og Fylki.
Piltarnir úr KR og Ár-
manni. Keppni þessi er með
forgjafarsniði og kepptu
stúlkurnar í fjórum greinum
en piltarnir í sex.
Sigurvegarinn í kcppninni
varð bráðefnileg fimleika-
stúlka úr ÍR, Þóra Guðjón-
sen, keppti hún fyrir
Magnús Þorgeirsson hf. Var
Þóra langyngst keppenda á
mótinu, aðeins 10 ára. í öðru
sæti var Davíð Ingason,
Ármanni og keppti hann
fyrir Björgunarfélagið,
þriðja sætið hreppti svo
Guðrún B. Kristinsdóttir,
Björk.
inum. Þegar 66 mínútur voru
liðnar af leikjunum virtist sem
möguleikar Gladbach á að verja
titilinn væru talsverðir. Köln hafði
þá aðeins gert 1 mark gegn St.
Pauli, en leikmenn- Gladbach
höfðu níu sinnum sent knöttinn í
mark Borussia Dortmund. I lokin
opnuðust allar flóðgáttir hjá St.
Pauli og hetja meistaraliðsins var
Japaninn Okudera, sem gerði 2
glæsileg skallamörk í lokin.
Jupp Heynkes gerði 4 af mörk-
um Borussia Mönchengladbach,
Carsten Nielsen og Del Haye gerðu
2 mörk hvor. Köln tekur þátt í
Evrópukeppni meistaraliða næsta
haust, Fortuna Dússeldorf verður
með í Evrópukeppni bikarmeistara
og í UEFA-keppninni verða
Mönchengladbach, Herta Berlin,
Duisburg og VFB Stuttgart. ST.
Pauli, Múnchen 1860 og
Saarbrúcken féllu niður í 2. deild.
Úrslit leikja í V-Þýzkalandi
urðu þessi:
Bochum — DUsseldorf 2,1
Herta Berlin — Hamborg SV 3,2
MSV Duisburg — Schalke 04 1,0
MUnchen 1860 — SaarbrUcken 2,0
Eintracht Frankfurt —
Eintracht Braunswick 2>0
Kaiserlautern — Bayern MUnchen 5,0
VFB Stuttgart — Werder Bremen 2,0
St. Pauli - FC Köln 0,5
Mönchengladbach — Dortmund 12,0
Staða efstu liða,
FC Köln 34 22 4 8 86,41 48
Burussia
Mönchengladbach 34 20 8 686,44 48
Herta Berlin 34 15 10 9 59.48 40
Markvörður Borussia Mönchengladbach, Wolfgang Kleff, horfir
angistarfullur á eftir knettinum rúlla yfir marklínuna. I leiknum um
helgina hafði Kleff það náðugt. en kollegi hans í marki Dortmunds
mátti hins vegar hirða knöttinn 12 sinnum úr netinu.
Ekki er gott að segja hver hefur haft bezt í þessari viðureign.
en það er Örn Óskarsson. sem er nastur á myndinni.
Skagamenn
unnuí Litla
bikarnum
• VALSMENN náðu sinum bezta leik á keppnistimabilinu er þeir
léku gegn ÍBV í meistarakeppninni í knattspyrnu á Melavellinum
á laugardaginn. Unnu Valsarar leikinn meö 4 mörkum gegn 1
og var það sízt of stór sigur miðað við gang leiksins. Þessi úrslit
tryggja í rauninni stöðu ÍA í efsta sæti keppninnar og nægir
liðinu jafntefli í leiknum við IBV. sem er síðasti leikur
meistaranna. Mörk Vals í leiknum á laugardag gerðu Ingi Björn
Albertsson. Atli Eðvaldsson, Jón Einarsson og Guðmundur
Þorbjörnsson. Fyrir ÍBV skoraði Örn Óskarsson og var það
jafnframt fallegasta mark leiksins. Ilörkuskot af löngu fa'ri. sem
small í þverslá og þaðan í bak Ólafs markvarðar Vals og í netið.
• SKAGAMENN tryggðu sér sigur í Litlu bikarkeppninni er þeir
unnu Breiðablik 4,1 á Akranesi á laugardaginn. Pétur Pétursson
skoraði 2 mörk í leiknum. Kristinn Björnsson og Árni Sveinsson
1 mark hvor. Fyrir Biikana skoraði Ólafur Friðriksson.
• í Keflavík léku heimamenn gegn FH og unnu Keflvíkingar 3il.
Steinar Jóhannsson og Þórir Sigfússon (2) skoruðu fyrir IBK. en
Janus Guðlaugsson eina mark FH-inga. I keppni b-liða félaganna
vann FII 1.0 og tryggði sér þar með sigur í b liða keppninni.
• í Reykjavíkurmótinu mættust KR og Víkingur á sunnudaginn
og var þar um leik efstu liðanna í mótinu að ræða. Svo var þó
ekki að sjá þegar leikurinn hófst. Áhugaleysið var algjört hjá
Víkingum. en KR-ingar börðust vel og færðus;t na-r sigri í mótinu
með því að næla sér í aukastig í leiknum. Urslitin urðu 3i0 og
hefðu KR-ingar getað skorað fleiri mörk frekar en að Víkingur
na'ði marki. Fyrir KR skoruðu Sverrir Herbertsson, Sigurður
Indriðason og Vilhelm Fredriksen.
• Á mánudagskvöld léku síðan Fram og Þróttur og varð jafntefli
í leiknum. Ll.
• Þá íór efnn leikur fram í Stóru bikarkeppninni suður í Garði.
Víðir lék gegn Afturcldingu og sigruðu heimamenn 2i0.
^uðmundui^Knútssoi^koraðibæðimörkii^Heiknun^^^ái^^
Æ
Ulfurinn Tony Knapp
ætlar að gera Víking
að stórliði á 2 árum
VIKING írá Stafangri og Lilleström gerðu jafntefli, 2t2, í 2. umferð keppninnar í
1. deild í Noregi um helgina. Leikið var í Stafangri, og þarf varla að geta þess að
þjálfarar liðanna eru gamlir kunningjar íslenzkra knattspyrnumanna, Tony Knapp
með Víking og Joe Ilooley með Lilleström. í upphafi keppnistímabilsins hefur lið Moss
komið mest á óvart og hefur unnið báða leiki sína til þessa, en úrslit í 1. deildinni
í Noregi um helgina urðu þessii
Válerengen — Lyn 1«0
Bodö/Glimt — Bryne L2
Skeid — Moss 1,2
Start — Steinkjer Ll
Viking — Lilleström 2>2
Brann — Molde 2>1
NORSKIR knattspyrnumenn
eiga að geta náð langt og
samanborið við landsliðið mitt á
íslandi, sem ég var með í nokkur
ár, á norska landsliðið að vera
enn betra. Norskir leikmenn éru
yfirleitt reyndari, hafa meiri
knatttækni og leikskipulag
norskra liða er mótaðra en hjá
t.d. íslenzkum.
Það er Tony Knapp, sem hefur
orðið og að venju lætur hann
móðan mása. Knapp hefur gert
góða hluti með norska liðið
Viking frá Stafangri og af
norsku 1. deildarliðunum kom
Viking bezt frá vorleikjunum. J
1. umferð 1. deildarinnar vann
Viking 2:0 sigur á Molde á
útivelli. Það er góður árangur,
því Molde varð í 3ja sæti 1.
deildarinnar í fyrra. Mörk Vik-
ings í þessum leik gerði Tryggve
Johannesson, en hann skoraði 18
mörk í 1. deildinni í fyrra og
varð markakóngur.
Nú hefur Tryggve þessi, sem
enn hefur ekki fundið náð fyrir
augum norska landsliðsþjálfar-
ans, tekið upp þráðinn að nýju.
Hann var þó ekki meira en svo
öruggur í liði Vikings í 1.
umferðinni ogiKnápp skammaði
hann ósleitilega vikuna fyrir
fyrsta leikinn í deildinni. í
fyrsta skipti í mörg ár a.Viking
ekki mann í norska landsliðinu
og segir Knapp í nýlegu blaða-
viðtali að það sé furðulegt miðað
við hve sterkir leikmenn eru í
liðinu.
— Við þurfum að eignast 2-3
landsliðsmenn, það eykur aug-
lýsingu fyrir leikjum félagsins
og fólkið kemur frekar á leiki
liðsins ef það veit að landsliðs^
menn verða á ferðinni, segir
Knapp. — Mér finnst aðeins eitt
að hjá Viking, það er að
áhorfendur taka ekki nægilega
mikinn þátt í því sem er að
gerast inni á vellinum. I Bergen
hrópa allir og hvetja lið sitt
áfram allaft leiktímann, en því
miður er þetta ekki svona hjá
okkur. Ég ætla að gera Viking
að stórliði á tveimur árum og til
að mér takist það þarf fólkið að
hjálpa til.
Knapp hefur fengið gælunafn-
ið „Úlfurinn“ hjá leikmönnum
Vikings og segir hann að góð-
kunningi leikmanna ÍBV, mark-
vörðurinn Erik Johannessen,
eigi frumkvæðið að nafngiftinni.
— Mér er alveg sama þó
strákarnir kalli mig Úlfinn,
bara að þeir virði mig og treysti.
Þá kemur árangurinn og mér er
sama um allt annað, segir Tony
Knapp. Hann er mjög vinsæll
meðal leikmanna sinna og í
Stafangri vita allir hver Tony
Knapp er. Hann hefur farið
lofsamlegum orðum um ísland
og íslenzka knattspyrnu í viðtöl-
um i norskum fjölmiðlum. Það
þarf þó ekki að taka fram að
hann minnist ekki á þann tíma
er hann þjálfaði KR, aðeins á
landsliðið og árangur þess, sem
hann þakkar sér einum.
Viking vann Molde 2:0 í 1.
umferðinni eins og áður sagði,
en Knapp hafði sagt fyrir mótið
að fengi Viking 3 stig úr fyrstu
2 umferðunum myndi liðið verða
í toppbaráttunni strax í ár. Um
helgina mætti Viking meistur-
um tveggja síðustu ára, Lille-
ström, í Stafangri og ieikmenn
Vikings hafa lofað sigri, Það
hafa leikmenn Lilleström og Joe
Hooley þjálfari þar einnig gert,
en Lilleström hefur þó ékki
verið eins sannfærandi í vor og
undanfarin ár. Liðið tapaði
meðal annars 0:1 í æfingaleik
gegn Víkingi fyrir nokkru og um
helgina varð jafntefli hjá liðun-
um í 2. umferð keppninnar í
norsku 1. deildinni. Knapp hefur
eflaust viljað sigur í þessum
leik, en honum tókst það seni
hann hafði stefnt að: Að ná
þremur stigum úr 2 fyrstu
umferðunum. — áij