Morgunblaðið - 03.05.1978, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.05.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978 29 Stranglers í Reykjavík: Við erum ný- bylgjuhljóm- sveit... ekki ræflarokkarar I>AÐ TELST til tíðinda ef erlendar hljómsveitir heimsækja ísland. jaín vel þótt til heimsóknarinnar hafi verið stofnað af hálfgerðu handahófi eins og var með hljómsveitina THE STRANGLERS, sem steig á íslenzka grund síðdegis í gær. Hljómsveitin heldur hljómleika í Laugardalshöllinni í kvöld á vegum United Artists plötuútgáfufyrirtækisins í London, sem stendur fyrir heimsókninni og kostar hana. en markmiðið er að kynna nýjustu plötu hljómsveitarinnar, „Black and White“, sem kemur út á næstunni. Útgáfufyrir- tækinu fannst tilvalið að velja einhvern „skrýtinn4* eða óvenjulegan stað til kynningar á plötunni og þar sem The Stranglers eru að hefja hljómleikaferð um Norðurlöndin þótti tilvalið að byrja hana sem næst norðurpólnum. Blaðamenn og ljósmyndarar stóðu í nepjunni á Keflavíkur- flugvelli, þegar þota Flugfélags- ins lenti með þá félaga og fimmtíu manna fylgdarlið, þar af um tylft blaðamanna og ljósmyndara frá brezkum stór- blöðum, tónlistarblöðum og blöðum annars staðar frá í Evrópu. Eins og stórstirnum sæmir stigu hljómsveitarmenn siðastir út úr vélinni, kannski í þeirri von að gabba ljósmyndara og blaðamenn, en óneitanlega eru þeir það sérkennilegir í útliti að enginn í fylgdarliðinu komst í líkingu við þá. Hugh Cornwell hinn „yfir- gengilegasti" þeirra kom fyrstur út, með sjálflýsandi kattargler- augu og í rússneskum ryk- frakka. Hann er gítarleikari og annar aðalsöngvarinn. Næstur kom Jet Black trommuleikari sem er aldursforseti hljómsveit- arinnar, og tjáði einn hljóm- sveitarmanna Mbl. að hann væri um sextugt, hver sem trúa vill. Maðurinn er hvorki unglegur né ellilegur en búinn að vera svo lengi í spilverkinu að sögn að hann nennir ekki lengur að sýnast. Þess utan hefur hann átt fimm ísbúðir. Þá eru það þeir Jean Jaques Burnel franskur bassaleikari og söngvari, og Dave Greenfield, sem leikur á hljómborð og raddar. Steinar Berg, einn þeirra sem séð hafa um undirbúning hijóm- leikanna í kvöld, sagði sigri hrósandi að nú þegar hefðu fleiri miðar selzt á hljómleikana en þegar Led Zeppelin komu hingað eða um 2500 miðar. A leiðinni í vegabréfaskoðun- ina sagði Jean Jaques, svart- klæddur, að allar yfirlýsingar hljómsveitarinnar yrðu gefnar af þeim í sameiningu, þannig væri allt þeirra samstarf. Hugh Cornwell pírði í gegnum gler- augun, er hann var spurður hvort hann væri punkari og sagði: Tilheyrir þú þeirri ómerkilegu stétt sem kallast blaðamenn? Hvað er að vera punkari? Blaðamenn hafa fund- ið þá upp. Black hafði hljótt um sig en Greenfield kvaðst móðg- aður. Hljómsveitin hélt áleiðis til Loftleiðahótelsins ásamt fylgdarliði í rútu, en blaðafull- trúi United Artists varð sam- ferða Morgunblaðsfólki til Reykjavíkur. Hann heitir Hugh Cornwell söngvari og gítarleikari t.h. og Jet Black trommuleikari. Bassaieikarinn Burnel. JeanJaques Dave Greenfield hljómborðs- leikari. Michael Gray. United Artists. blaðafulltrúi Stranglers á Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær. Ljósm. RAX. Michael Gray, fyrrverandi kennari og öðlaðist frægð fyrir bók sína um Bob Dylan „Song and danceman". Hann sagði að United Artists hefði gert samn- ing við Stranglers í upphafi ársins 1977. Fyrsta tveggja laga hljómplatan þeirra hefði ekki átt miklum vinsældum að fagna, en í kjölfar hennar hefði komið albúm, sem hefði tryggt þeim öruggan markað. Þeir vildu alls ekki vera bendlaðir við punk- hljómsveitir eins og Sex pistols heldur væru þeir „nýbylgju- hljómsveit" sem sumir teldu afturhvarf til tónlistarinnar 1964. Punkið breiddist út upp úr 1976 og orsök þess var atvinnu- leysið í Bretlandi segja sumir, en þangað á það rætur sínar að rekja. Sex Pistols voru eiginlega frumkvöðlar en bakgrunnur og fortíð þessárar hljómsveitar er allur annar. Tveir hljómsveitar- manna, þeir Jean Jaques og Hugh, hafa háskólagráður, hinir eru langreyndir hljómlistar- menn. „Mér finnst þeir betri tónlist- armenn en Sex Pistols", sagði Gray. Á meðan hljómsveitin beið þess að vera kölluð til blaða- mannafundar í Hljóðrita í Hafnarfirði, náði Morgunblaðið tali af bassaleikaranum Jean Jaques á Hótel Loftleiðum. „Ég set það sem skilyrði að þér leggið pennan og skrifblokk- ina til hliðar, ég fái að þúa yður ðg að þér ræðið ekki við mig um einhverja dellu eins og allir blaðamenn," sagði „ræflarokk- arinn". Jean Jaques hefur svarta beltið í karate og blaða- maður þorði ekki annað en að fallast á þau skilyrði. „Ég er afskaplega heilbrigður og góður strákur, mjög pólitískur og lifi mínu lífi eftir minni „raunveru- leikaþerapíu". Þeta er allt sem ég á,“ sagði hann og benti á handfarangur sinn. „Það er óþarfi að kalla mig punkara þótt ég eigi ekki nema tvær gallabux- ur til skiptanna. Ef blaðamenn vilja klína á okkur einhverjum „óþverrastimpli" þá þeir um það.“ Blaðamaður spyr hann þá hvers vegna þeir gerðu í því að vera ruddalegir. Hvers vegna þeir hefðu látið hafa það eftir sér í blaðaviðtölum að peningar væru skítur, ef þeir gerðu fátt annað en græða peninga. Hvort þeir væru ekki bara hræsnarar og punkarar af því að það væri í tízku. Jean Jaques hlær og segist aldrei hafa neitað því að þeir væru kapítalistar. Þótt hann ætti ekki sex kádíljáka héldur aðeins mótorhjól og ætti hvergi höfði sínu að halla þessa stund- ina á heimaslóðum í London því honum hefði verið kastað út úr níu leiguíbúðum á s.l. ári. Við erum ekki kommúnistar, sósíalistar né rokkarar. Rokk- hljómsveitir eru svona eins og Teddy Bears. Við erum ungir, nýir á markaðinum og sterkir. Annars vil ég ekki svara spurn- ingum um tónlist. okkar, þú verður að hlusta á hana og dæma sjálf. Ég yrði mjög feginn ef Frakk- ar smíðuðu nifteindasprengju. Það er mín hugsjón að Evrópa sameinist gegn hinum stóru heimsveldum í austri og vestri og berjist gegn yfirráðum þeirra, sem eru orðin allt of mikil. Við vorum í hljómleika- ferð um Bandaríkin nýlega, það er óþarfi að ég telji upp staðina, þar sem við spiluðum. Þeir voru allir jafn ferlegir. Það er þessi hugsun sem er nú að vakna hjá ungu fólki í Bretlandi. Við Frakkar höfum alltaf verið föðurlandssinnar og átt erfitt með að þola erlend áhrif. Það er þetta sem við í hljómsveitinni viljum segja um tónlist okkar og sviðsframkomu. Við erum spegilmynd raun- veruleikans — tímanna tákn“, sagði tónlistarmaðurinn Jean Jaques og glotti. - H.Þ. Rekstrarkostnaður Reykjavíkurborgar: 460 þús. kr. á barn á dagheimili, 445 þús. kr. á skóladagheimili og 90 þús. kr. á barn á leikskóla REKSTRARKOSTNAÐUR sem Reykjavíkurborg greið- ir nú á hvert barn yfir árið á dagheimili er 460 þúsund krónur, 445 þúsund krónur á skóladagheimili og 90 þúsund krónur á leikskóla og er þá miðað við hálfs- dagsdvöl á leikskóla. Þetta kom fram í ræðu borgar- stjóra, Birgis ísleifs Gunnarssonar, á hverfa- fundi með íbúum Árbæjar- | og Seláshverfis á laugardag. 1 Borgarstjóri sagði að hlut- fallsleg þátttaka foreldra í rekstrarkostnaði dagvist- unarstofnana minnkaði stöð- ugt. Hún hefði verið 76,9% á leikskólastigi árið 1970 en var 54,7% í fyrra, og á dagheimilisstigi var hún 47,6% árið 1970 en 31,6% árið 1977. Áætlaðan kostnað við byggingu dagvistunarstofn- ana sagði borgarstjóri vera 2,—2,4 milljónir króna á barn við dagheimili, en leikskóla- kostnaður er 600 þúsund krónur á barn miðað við hálfsdagsvistun hvers barns. Borgarstjóri gat þess að hlutfall barna á forskólaaldri sem áttu kost á dagvistunar- rými var 10% árið 1962, 13% árið 1966,18% árið 1970, 32% árið 1974 og áætluð tala í árslok 1978 er 48%. Sama þjónusta og gott samstarf í SAMBANDI við frásögn af umra'ðum á alþingi í Mbl. s.l. sunnudag óskar fræðslustjóri lieykjancsumdæmis þess Ketið. að llafnarfjarðarbær hafi fensið alla sömu þjónustu fra'ðsluskrif- stofu Reykjanesumda'mis og önnur sveitarfélöx í umdæminu ok hafi samstarfið verið mjög Kott.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.