Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1978
31
Stean
efstur
Las Palmas, Kanaríeyjum,
2. maí AP.
SKÁK Friðriks Ólafssonar og
Anthony Miles fór í bið í þriðju
umferð sjöunda alþjóðlega skák-
mótsins í Las Palmas á Kanarí-
eyjum í dag.
Fjórar aðrar skákir fóru í bið.
Úrslit urðu þessi: Michael Stean og
Alexandre Panchienko gerðu jafn-
tefli, Bent Larsen vann Isvan
Cson, Markkus Weterinen vann
Juan Pedro Dominguez.
Stean er efstur með 2'h vinning
og Larsen er með 2 en með 1 '/2 eru
Friðrik, Westerinen, Vladimir
Tukmakov, Jesus Diez del Corral
og Miles.
— Breti
Framhald af bls. 1.
sífellt nær hvor öðru. Það hlýtur
að vera gott því að við stöndum
hvorir tveggja andspænis and-
stæðingi sem hefur Moskvu
fyrir höfuðborg." Hann lagði
líka til að Bretar og Kínverjar
skiptust á reynslu til að vera í
betri aðstöðu ef skriðdrekahern-
aður gegn Sovétríkjunum reynd-
ist nauðsynlegur.“
Rússar svöruðu fyrir sig í dag.
Flokksmálgagnið Pravda sagði
að Sir Neil sem þjálfaði rúss-
neska flugmenn í Sovétríkjun-
um í síðari heimsstyrjöldinni
hefði greinilega misst stjórn á
sér. „Hann rygsaði fyrir framan
kínversku liðsforingjana eins og
drukkinn héri,“ sagði blaðið.
Mulley sagði í þinginu að
ekkert gæti verið fjær sanni en
að halda því fram að Sir Neil
hefði verið undir áhrifum áfeng-
is. Callaghan reyndi að eyða
deilunni með því að lýsa því
ákveðið yfir að athugasemdir
Sir Neils breyttu í engu núver-
andi samskiptum Breta við
Sovétríkin og Kína.
— 250 bátar
Framhald af bls. 1.
hólmi misst mestöll fiskimið
sín.
Eyjaskeggjar eru mikið háðir
sjávarútvegi og þar sem
Efnahagsbandalagið hefur ekki
tekizt að ná samkomulagi um
stefnuna í fiskveiðimálum hafa
ekki verið gerðir fiskiveiði-
samningar við Eystrasaltsríki
sem standa utan EBE. Þetta
hefur roðið til þess að afli
fiskimanna borgundarhólmi
hefur stórminnkað og efnahag-
ur eyjarinnar hefur komizt í
alvarlega hættu.
— Moro
Framhald af bls. 1.
ráðherra að hann legði til að
lýðveldið sýndi miskunn í verki
svo að Moro yrði látinn laus. Hann
skýrði þetta ekki nánar, en sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
leggur hann til að sleppt verði
öfgasinnaðri vinstrikonu sem
hefur eignazt barn í fangelsi.
Opinberlega hafa engin viðbrögð
komið fram, en samkvæmt
áreiðanlegum heimildum eru tveir
stærstu stjórnmálaflokkar Italíu
flokkar kristilegra demókrata og
kommúnista, mótfallnir hugmynd-
inni. Þannig sagði talsmaður
kommúnista í dag meiri líkur á því
að takast mætti að bjarga Moro ef
stjórnmálaflokkarnir stæðu
saman í þeim ásetningi að gefast
ekki upp en ef reynt yrði að bjarga
honum á grundvelli tillagna
Craxi.
Fjölskylda Moros fékk enn eina
viðvörun í gær frá Rauðu her-
deildunum sem hótuðu að myrða
hann ef kristilegir demókratar
féllust ekki á að ganga til
samninga en frestur sem þeir
settu rann út án þess að nokkuð
heyrðist frá ræningjunum.
Bréfin frá Moro um helgina
þykja sýna betur en áður að
ræningjar hans nota hann fyrst
eins konar talsmann í taugastríði
sínu við stjórnina. Tilgangurinn er
að koma af stað sem mestum
umræðum um Moro og valda
stjórnmálakerfinu eins miklum
skaða og hægt er segja sér-
fræðingar. Þeir vilja að valda-
menn fyllist sektarkennd og þeim
hefur þegar tekizt að valda
klofningi meðal flokkanna.
I síðasta bréfinu endurtók Moro
ásakanir í garð flokksbræðra
sinna og þakkaði Craxi fyrir
tilraunir til að bjarga lifi sínu.
— Njörður P.
Njarðvík...
Framhald af bls. 47.
In>;imar Krlendur Sitfuröss.
Jóhannes Helgi
Jónas (luömundsson
l’jetur Lárusson
Sigurdur Gunnarsson
Stefán Júliusson
Þórir Guðbergsson
B-listi
Arni Larsson
Asi í Bæ
Geir Kristjánsson
Guðniundur Steinsson
Guörún Heliíadóitir
Jóhann Hjálmarsson
Líney Jóhannesdóttir
Olafur Haukur Simonarson
Sinuröur Pálsson
Stefán Júlíusson
Svava Jakohsdóttir
Ornólfur Arnason
B-Iisti var kjörinn með 29
atkvæðum gegn 27. Auðir seðlar 4.
Samþykktar voru lagabreyting-
ar sem fela í sér breytt stjórnar-
form, þar sem Rithöfundaráð og
stjórn sambandsins verða samein-
uð, en sú breyting tekur ekki gildi
fyrr en 1980. — Þá var lögum
einnig breytt á þann veg að
inntökuskilyrði voru þrengd að því
er varðar fjölda verka, sem
höfundur þarf að leggja fram
(verða nú 2 í stað 1), en víkkuð að
því er varðar tegund verka. — Á
aðalfundi voru teknir inn 32 nýir
félagar, þar af 13 leikritaþýð-
endur.
Aðalfundur samþykkti tvær
ályktanir:
Hin fyrri hljóðar svo:
Aðalfundur Rithöfundasam-
bands íslands, haldinn í Norræna
húsinu 30. apríl 1978, skorar á
menntamálaráðherra að beita sér
fyrir því að lögboðið orlof verði
framvegis greitt þeim sem laun
hljóta úr Launasjóði rithöfunda.
Hin síðari:
„Aðalfundur Rithöfundasam-
bands ísl. 30. apríl 1978 samþykkir
að vinna beri að því að koma af
stað víðtækari umræðum um þær
áætlanir sem uppi eru um norræn-
an gervihnött (NORDSAT).
Þinginu lauk með að fulltrúar
sóttu boð hjá borgarstjóra í Höfða.
— Kabul
Framhald af bls. 1.
diplómatar hafa gefið áhrifamikl-
ar lýsingar á bardögunum. Þeir
segja að 1500 manna hallarvörður
Daouds forseta sem var búinn
brvnvörðum vögnum og skriðdrek-
um hafi veitt örvæntingarfullt
viðnám í forsetahöllinni í 16
klukkustundir þótt þeir ættu við
ofurefli að etja. Sjónarvottar segja
að sovézksmíðaðar MIG 21 þotur
hafi haldið uppi árásum á forseta-
höllina í nokkra klukkutíma. Þær
réðust einnig á aðalstöðvar sjö-
unda og áttunda herfylkisins
skammt frá Kabul og það vakti
eftirtekt hvað þær voru hittnar.
Yfirstjórn flughersins er í nán-
um tengslum við kommúnista-
flokkinn samkvæmt heimildunum.
Kommúnistaleiðtoginn Amir
Akbar Khabir var í Kabul-flug-
stöðinni snemma dags 17. apríl,
daginn sem hann var ráðinn af
dögum. Tilræðið virðist hafa verið
kveikjan að stjórnarbyltingunni.
Afganir hafa flykkzt til forseta-
hallarinnar þar sem lík Daouds
forseta og bróður hans,
Mohammed Naim, eru til sýnis. I
dag klifruðu áhorfendur yfir þrjú
skriðdrekaflök til þess að komast
inn á lóðina.
Rúmlega 200 skriðdrekar og
brynvagnar voru hafðir til taks
umhverfis Kabul í dag en á þá
höfðu verið settir blómsveigar. Líf
í Kabul virðist aftur vera komið í
eðlilegt horf að mestu og þar er
rólegt. Lögreglumenn ganga um
óvopnaðir en hafa hingað til borið
skammbyssur.
Samkvæmt heimildunum voru
Daoud forseti, kona hans, bróðir
hans Haeern, allir synir hans þrír
og nokkur barnabörn — sumir
segja 30 skyldmenni alls — myrt
á hallarlóðinni á föstudagsmorg-
un, daginn eftir að byltingin hófst.
1
10 ástæóur fyrir kaupum
á PHILCO
þvottavélum
'Fckur inu hcitt kalt vatn, sem þyðir Viðurkcnnt uliarþvottakcrfi.
tíina og rafmagnssparnað. n
Stór þvottabelgur. scm tckur 5 kg. og
Vinduhraði sem er allt að 850 snún/- stórar dyr cr auðvelda hlcðslu.
mín, flýtir þurrkun ótrúlega. g
tjöldi kerfa, scm licnta þörfum og þoli
4 hitastig (32/45/60/90°C), scm henta alls þvottar.
öllum þvotti. Q
A ''
Fullkomin viðgcrðarþjónusta cr ykkar
Sparnaðarstilling fvrir vatn og raf- liagur.
magn. 1().
Vcrðið cr mun lægra cn á sambæriieg-
3 mismunandi hraðar í þvotti og tvcir í um vélum.
vindu, trvggja rétta meðfcrð þvottar-
ins.
PHIIAX) og fallcgur
þvottur fara saman.
0455 -- 5ÆTUN 8 - 15655
HAFNARSTRÆTI 3