Morgunblaðið - 03.05.1978, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
Herþrúður Hermanns-
dóttir — Minningarorð
Fædd 10. marz 1897
Dáin 21. apríl 1978
Nú þegar ég sest niður og set
nokkur kveðjuorð á blað til
minningar um Herþrúði og kynni
mín af henni síðastliöin fjörutíu
ár, f.vrst sem nágranni hennar við
Laugarnesveginn og síðar sem
félagi í Kvenfélagi Laugarnes-
sóknar, frá stofnun þess, eða í
þrjátíu og sjö ár, þá fer ekki hjá
því að margs er að minnast og þá
ekki síst í sambandi við kirkjuna
og kvenfélagið, því þar hafði hún
brennandi áhuga. Aldrei verður
saga Laugarneskirkju skráð án
þess að þeirra hjónanna Herþrúð-
ar og Jóns Olafssonar verði getið.
Því þau mætu hjón unnu braut-
ryðjendastarf með miklum sóma.
Marga ferðina fórum viö Herþrúð-
ur um kirkjusóknina í fjáröflunar-
skyni meðan kirkjan var í bygg-
ingu og aidrei gleymist stóra
bókin, sem liggur í anddyri
kirkjunnar, hún var borin í hvert
hús sóknarinnar. Eg sagði við
hana áður en farið var að bera
bókina út, að það væri ekki
framkvæmanlegt að bera svona
stóra bók um alla sóknina. Þá
sagði hún: Blessuð góða, þetta er
vel hægt, við erum svo ungar og
frískar og við svo skiptum við
þessu á milli kvennanna í félaginu
og allt gekk þetta mjög vel og má
segja að þetta sé nokkurs konar
manntal á árunum 1945 og 46, því
allir í sókninni, sem vildu leggja
kirkjunni lið, skráöu nöfn sín í
bókina.
Herþrúður var mjög gæfusöm í
sínu einkalífi. Hún átti elskuiegan
mann, indæl börn, enda var hún
ætíð glöð og skemmtileg í okkar
hópi og fyrir allt þetta starf
hennar í félaginu okkar vil ég
þakka henni og nú þegar hún
gengur á .Guðs síns fund, inn í
eilífðarsumarið, þá veit ég að það
verður tekið vel á móti henni.
Eg bið Guð að biessa börn
hennar, tengdabörn og barnabörn-
um góðar minningar.
Ásta Jónsdóttir.
Á einum fegursta morgni hins
nýbyrjaða sumars, þann 22. apríl
s.I., andaðist á sjúkrahúsi hér í
borg, eftir mjög skamma legu, frú
Herþrúður Hermannsdóttir, 81 árs
að aldri. Að' kveðja þennan heim
í slíku veðri hefði hún viljað kjósa
sér, því sól og heiðríkja geislaði
um allt hennar líf. Ekki svo að
skilja að hún hafi ekki orðið að
þola mótbyr og veikindi eins og
flestir sem ná svo háum aldri,
heldur var hún ein af þeim sem
löðuðu fram allt það jákvæöa í
lífinu, lagði sig fram um að njóta
þess og gafst ekki upp þó að á móti
blési enda þurfti hún fljótt að
standa á eigin fótum.
Herþrúður var fædd á Þingeyri
við Dýrafjörð þann 10. marz 1897.
Foreldrar hennar voru Guðrún
Mikkelína Guðbjartsdóttir og Her-
mann Wendel. Faðir hennar var af
þýskum ættum, hann var úrsmið-
ur, málari og mikill hagleiksmað-
ur. Móðir hennar var af þekktu
dugnaðar- og sjósóknarfólki á
Vestfjörðum. Hún ólst upp hjá
móður sinni og voru þær mjög
samrýndar og minntist hún oft
þess tíma. Um fermingaraldur
varð hún fyrir því áfalli að missa
móður sína og þurfti hún þá á
sínum dugnaði og bjartsýni að
halda. Fljótlega eftir þetta fluttist
hún til Reykjavíkur og dvaldist á
heimili Guðbjarts Guðbjartssonar,
skipstjóra, móðurbróður sins um
nokkurt skeið. Herþrúður átti 5
hálfsystkini og eru þau nú öll látin
nema Andres Wendel.
Árið 1921 giftist hún Jóni
Eiríkssyni, skipstjóra, og fluttust
þau til Kaupmannahafnar og
bjuggu þar í 5 ár. Herþrúður var
fædd heimskona og kunni því vel
við sig í stórborginni og hafði þessi
tími varanleg áhrif á lífsviðhorf
hennar. Þau eignuðust 2 syni. Þeir
voru Steinþór, sem fórst í hafi á
stríðsárunum aðeins tvítugur að
aldri, hann lét eftir sig unnustu, '
Sigríöi Marteinsdóttur frá Akur-
eyri, og 1 son.
Ólafur Hreiðar, er búsettur í
Kópavogi og er annar af aðaleig-
endum fyrirtækisins „Skipatækni
h.f.“ Hann er kvæntur Hólmfríði
Þórhallsdóttur, þau eiga 7 börn.
+ Eiginkona mín og móöir, ÞÓRUNN INGIMUNDARDÓTTIR, ffrá Garöstöóum í Garði, lést aö heimili sínu 1. maí. Markús Guömundsson og börn. + Móöir mín, ÞÓRA JÖNASDÓTTIR, Hringbraut 106, lést 26. apríl s.l. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag miövikudaginn 3. maí kl. 10.30. Hrólfur Halldórsson.
*
+ Eigmmaður minn, faöir okkar og tengdafaöir. JENS GUÐBJÖRNSSON, andaöist í Heilsuverndarstöö Reykjavíkur aö morgni 1. maí. Þórveig S. Axfjörð, Brynhildur Jenadóltir, Jeneína Jenedóltir, Jóhann Gunnar Jóhannason. + Útför móöur okkar, ESTRID FALBERG BREKKAN, veröur gerö frá Fossvogskirkju föstudag 5. maí klukkan 10.30. Þeir, sem vitdu heiðra minningu hennar, eru minntir á Blindrafélagiö viö Hamrahlíö. Ásmundur Brekkan, Eggert Brekkan.
+ JÚLÍUS INGIMARSSON, bifreióaatjóri Iri Akureyri, lést 20. apríl s.l. Fyrir hönd vandamanna, Olga Elíasdóttir, Ragnar Júlíuason. + Móöir ’okkar. tengdamóöir og amma, HERÞRÚDUR HERMANNSDÓTTIR, Fellsmúla 11, veröur jarösungin frá Laugarneskirkju í dag miðvikudaginn 3. maí kl. 13.30. Hörður Jónsson, Ólafur Hreiöar Jónsson, Olafur Hermann Jónsson, Gunnar Á. Jónsson, Hertha W. Jónsdóttir. tengdabörn og barnabörn.
+ Systir okkar. SVANDÍS SIGURDARDÖTTIR, andaöist aö Elli- og hiúkrunarheimílinu Grund þann 1. maí. Jóhannes Sigurösson, Anna Þ. Siguröardóttir, Stefán Sigurösson. Móöir mín og tengdamóðir, GUÐRUN ÓLAFSDÓTTIR, Meistaravöllum 15, sem andaðist 22. apríl, veröur jarösungin frá Neskirkju föstudaginn 5 maí kl. 3 e.h. Blóm vinsamlega afbeöin. Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd vandamanna, _ „ . ... Guðbjörg Knstjansdóttir, Kristófer Kristófersson.
Eiginkona mín, móöir. tengdamóöir, amma og langamma, GUDNÝ BORGÞÖRA GUÐMUNDSDÓTTIR, trá Fáskrúósfirði, Boöaslóö 20, Vestmannaeyjum, lést í sjúkrahusi Vestmannaeyja þriöjud. 2. maí. Friöjón Guömundsson. Ester Friðjónsdóttir, Haukur Kristjánsson. Höröur Jakobsson, börn og barnabörn. + Eiginmaöur minn, faöir, sonur og stjúpsonur, GUÐMUNDUR SVAN INGIMARSSON, Baldursgötu 3 B, lést 15. apríl s.l. Jaröarförin hefur fariö fram. Ragna Olafadóttir. Ingimundur Guðmundsson, Sígríður Hannesdóttir, Björn Vigfússon.
Faöir okkar og tengdafaöir. ^ ÞORLEIFUR GUÐMUNDSSON, tyrrverandi verkstjóri, Arnarhrauni 13, Hafnarfiröi andaöist aö morgni 2. maí. Kristín Þorleifsdóttir, Haukur Magnússon, Margrét Þorleifsdóttir, Siguröur Jónsson, Sigrún Þorleifsdóttir, Guömundur Þorleitsson, Grétar Þorleifsson, Gréta Arngrímsdóttir. + Sonur okkar, JÖKULL JAKOBSSON, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í dag kl. 3 e.h. Þeim, sem vHja minnast hans, er bent á Hallgrímskirkju í Reykjavík og líknarstofnanir. Fyrir hönd vandamanna, Þóra Einarsdóttir, Jakob Jónsson.
Þau Herþrúður og Jón Eiríksson
skildu.
10. júní 1932 giftist hún Jóni
Ólafssyni, forstöðumanni Bifreiða-
eftirlits ríkisins, og eignuðust þau
3 börn. Þau eru: Ólafur Hermann,
búsettur í Reykjavík, flugumferð-
arstjóri þar, kvæntur Guðríði
Björnsdóttur, þau eiga 4 dætur.
Gunnar Álfar, búsettur á Selfossi,
skrifstofustjóri Kaupfélags Árnes-
inga, kvæntur Unni Einarsdóttur,
þau eiga 4 börn. Hertha Wendel,
búsett í Kópavogi, hjúkrunarkenn-
ari við Hjúkrunarskóla Islands,
gift Stefáni M. Gunnarssyni,,
bankastjóra Alþýðubankans í
Reykjavík, þau eiga 2 börn.
Herþrúður gekk í móðurstað syni
Jóns Ólafssonar af fyrra hjóna-
bandi hans, Herði, sem er bifreiða-
eftirlitsmaður í Reykjavík. Hann
var kvæntur Guðrúnu Sigurðar-
dóttur frá Akranesi, en hún lést
1958 iangt fyrir aldur fram. Jón
Ólafsson lést snögglega 1962 sjö-
tugur að aldri og var það henni
mikill missir.
Herþrúður var greind kona og
víðsýn, glaðværð var henni í blóð
borin, hún átti svo auðvelt með að
sjá broslegu hliðarnar á hlutunum.
Heimilið var stórt og oft mjög
gestkvæmt og þó að það sæti í
fyrirrúmi átti hún mörg áhuga-
mál. Hún vann mikið að félags-
málum og var víða heima, hún
haföi trú á æsku landsins og naut
þess að vera innan um unga fólkið,
enda sóttist það eftir félagsskap
hennar allt til loka. Á heimili
hennar og manns hennar, öðlings-
ins Jóns heitins Ólafssonar, var
friðhelgi heimilisins í hávegum
höfð. Þar ríkti ástríki og virðing
fyrir öllu smáu og stóru. Þau áttu
barnaláni að fagna og voru mjög
samhent um að hlúa að þessari
dýrmætu eign sinni. En það voru
fleiri sem nutu góðs af, þau gerðu
sér far um að kynnast vinum
barnanna sinna og stóð heimili
þeirra þeim opið hvenær sem var
og alltaf var tími til viðræðna.
Ég undirrituð átti því láni að
fagna að kynnast þessu góða fólki
í byrjun minnar barnaskólagöngu
en þá urðum við Hertha dóttir
þeirra skólasystur og vinkonur og
hefur sú vinátta haldist órofin alla
tíð síðan. Nú þegar Herþrúður er
horfin héðan, þessi elskulega kona
sem hélt sinni reisn allt til síðasta
dags, sækja minningarnar á,
minningarnar um allar samveru-
stundirnar á Laugarnesveginum
og annars staðar, hlýja viðmótið
og umhyggjuna sem hún bar fyrir
mér og allar þær mörgu stundir
sem við ræddum saman um allt
milli himins og jarðar bæði í
gamni og alvöru, ég var ávallt
ríkari á eftir. Hún hafði alltaf
áhuga á því sem við vorum að gera
og á sinn sérstæða hátt örvaði hún
okkur og hvatti. Fyrir allt þetta og
margt fleira vil ég þakka henni.
Þaö var mikill vinskapur milli
foreldra minna og þeirra hjóna og
eftir að faðir minn og Jón voru
báðir horfnir áttu þær Herþrúður
og móðir mín sínar góðu stundir
saman. Á kveðjustund þakkar hún
henni trygga og einlæga vináttu.
Herþrúður kveið ekki dauðan-
um, hún var bjargföst í trú sinni
á Guð og annað líf, hún var
þakklát Guði fyrir gæfu sína í
þessum heimi. Nú er hún komin til
endurfunda við sinn elskulega
eiginmann og son. Megi friður
Guðs fylgja þeim. Ég bið Guð að
blessa börnin hennar, tengdabörn
og barnabörn sem hún lét sér svo
annt um og megi birta minning-
anna draga úr söknuðínum. Ég og
fjöiskylda mín sendi þeim innileg-
ar samúðarkveðjur.
Bjarney Tryggvadóttir.
í dag verður frú Herþrúður
Hermannsdóttir, Fellsmúla 11,
jarðsungin frá Laugarneskirkju.
Nöfn hennar og mannsins hennar,
Jóns heitins ðlafssonar fyrrver-
andi forstjóra Bifreiðaeftirlits
ríkisins, verða alltaf náið sam-
tvinnuð þeirri kirkju, sem átti
þeim svo mikið að þakka. Fyrir
eldmóð þeirra, hugrekki og trú á
málefnið gerðust þau forystufólk í
hinum nýstofnaða Laugarnessöfn-