Morgunblaðið - 25.06.1978, Page 30
MORGUNBLAÐÍÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1978
62
— Um fjölskyldu-
gengi...
Framhald af bls. 46.
þá kemur í ljós að líkur þeirra sem
fæddar eru á tímabilinu
1940—1950 eru tíu sinnum meiri
en þeirra er fæddust einni öld áður
eða 1840-1850.
Því má skjóta inn í að aðrar
tegundir krabbameins breytast
fremur ört og þær tegundir, sem
hafa aukist aðrar en brjósta-
krabbamein, eru krabbamein í
blöðuhálskirtli, í lungum og ristli.
En tíðni magakrabba og krabba-
meins í vélinda hefur mínnkað.
Fjóríalt minni líkur á
að kona fái
brjóstakrabbamein eigi hún
1. barn innan við tvítugt...
Ástæðan fyrir hinni gífurlegu
aukningu á krabbameini í brjóst-
um er alls ekki ljós. Þekktir eru
áhættuþættir, sem geta aukið eða
minnkað líkurnar á því að konur
fái brjóstakrabbamein. Þýðing
þeirra er talsverð þannig að
nauðsynlegt var að kanna þessa
áhættuþætti ítarlega áður en hægt
væri að reyna að koma tölu á hlut
ættgengis í allri áhættunni.
Þessir þættir eru einkum
bundnir fæðingarsögu konunnar
og eru þannig, að því yngri sem
konan er þegar hún á sitt fyrsta
barn því minni eru líkurnar á'því
að hún fái krabbamein i brjóst.
Hér munar svo miklu að þegar
bornar eru saman konurnar sem
eiga sitt fyrsta barn tvítugar og
yngri er munurinn fjórfaldur.
Þessar upplýsingar komu fyrst
fram í kringum 1970. Hefur verið
hægt að sýna fram á þetta víðast
hvar sem leitað hefur verið að því,
þó er vert að geta þess að ekki
komast allir vísindamenn að þess-
ari sömu niðurstöðu.
Á íslandi hefur þetta komið
greinilega í ljós og er þessi munur
alveg marktækur.
Hinn þátturinn sem tengist
fæðingarsögunni er sá að fjöldi
barna sem kona eignast, hefur líka
áhrif. Þau áhrif eru þannig að því
fleiri börn sem kona hefur átt því
minni eru líkurnar á því að hún fái
brjóstakrabbamein. Þessar rann-
sóknir voru gerðar hér á íslandi og
má segja að þær séu nýjar og eru
þetta niðurstöður úr rannsóknun-
um sem nýlokið er við á vegum
Krabbameinsskrárinnar en upp-
lýsingar sem aflað hefur verið í
leitarstöð Krabbameinsfélags ís-
lands hafa reynzt þýðingarmiklar.
Meðalaldur kvenna við fyrsta
barnsburð og barnafjöldi kvenna
breytist með tímanum. Því er
nauðsynlegt að taka tillit til þess
þegar spurt er hvort tíföldun á
tíðni sjúkdómsins eigi rætur sínar
að rekja til breytinga á þessum
atriðum fæðingarsögunnar. Svo er
ekki því að þýðingarmeiri þáttur-
inn af þessum tveimur sem nefnd-
ur hefur verið, þ.e. aldur við fyrsta
barnsburð hefur farið lækkandi
síðastliðna öld ocr ætti hað að hafa
leitt til þess að tíðni sjúkdómsins
minnkaði fremur en ykist.
Hitt atriðið, að barnafjöldinn
skipti máli, stefnir frekar í hina
áttina, þ.e. að meðal barnafjöldi
kvenna á íslandi í dag er lægri en
hann var fyrir einni öld en um það
munar minna eins og áður var
sagt. Þátturinn sem bundinn er
barnafjöldanum er þýðingarminni
en hinn.“
Krabbameinsskráin
Á rúmum tveimur áratugum
hafa verið skráð á tíunda þúsund
illkynja æxli á íslandi. Krabba-
meinsskrá Krabbameinsfélags ís-
lands tók til starfa árið 1954 undir
forstöðu Ólafs Bjarnasonar. Hrafn
Túliníus núverandi yfirlæknir
Krabbameinsskrár hefur sagt m.a.
í Fréttabréfi um heilbrigðismál að
tilgangurinn með skráningu á
öllum krabbameinstilfellum sé að
afla ítarlegra og áreiðanlegra
upplýsinga um alla sjúklinga, sem
greindir eru með illkynja æxli.
betta er gert til þess að á því sé
hægt að byggja nákvæmar rann-
sóknir á útbreiðslu sjúkdómanna
og veitir það ómetanlega hjálp við
alls konar rannsóknir á krabba-
meini eins og greint er frá hér að
framan.
— Leitarstarfsemi
Framhald af bls. 51.
Krabbameinsféiags íslands að
taka upp þéttari brjóstaskoðanir
og myndatökur í ríkara mæli en
nú er gert, en þetta kostar aukið
fjármagn. Þess skal getið, að á 12
ára tímabili 1965—1976 dóu alls
284 konur úr brjóstakrabbameini
eða um 24 árlega. Athugun hefur
verið gerð á legudagafjölda þess-
ara sjúklinga og miðað við núver-
andi daggjöld sjúkrahúsanna í
Reykjavík reiknast okkur til að
þær konur sem deyja úr brjósta-
krabbameini kosti ríkið árlega um
60 milljónir kr. Sé árangurs að
vænta af brjóstaskoðunum til
fyrri greiningar á brjóstakrabba-
meini, verður vart fundin vænlegri
fjárfesting innan heilbrigðiskerf-
isins.
— Krabbamein 1...
Framhald af bls. 51.
sem byrji samlíf snemma og með
mörgum sé hættara við legháls-
krabba en öðrum. Þá er hærri tíðni
hjá konum sem eiga mörg börn.
Veirur geta einnig verið orsaka-
þáttur og óhreinlæti. Mjög há tíðni
á leghálskrabba er til dæmis
meðal vændiskvenna. „Nunnur og
konur sem lifa skírlífi eru að
mestu leyti lausar við legháls-
krabbamein. Af því hafa verið
dregnar þær ályktanir að sjúk-
dómurinn orsakaðist af smitun,
sennilega af völdum veiru, sem
bærist frá karlmanninum, segir
m.a. í grein efir Guðmund Jóhann-
esson yfirlækni leitarstöðvar
krabbameinsfélagsins. Segir enn
fremur í sömu grein að langvar-
andi notkun pillunnar eða lykkj-
unnar virðist ekki hafa áhrif á
tíðni leghálskrabba.
Að sögn dr. Gunnlaugs Snædal
er leghálskrabbi mjög sjalegæfur
hjá konum undir 25 ára aldri en
algengastur hjá konum milli
fertugs og sextugs.
Það er erfiðara að greina
legbolskrabba en leghálskrabba
því hann á rætur lengra uppi í
leginu og að sögn Gunnlaugs
Snædal er hann tíðari hjá konum
sem eiga fá eða engin börn.
Þó telur Gunnlaugur varasamt
að koma með slíkar yfirlýsingar
því ein rannsóknin bendi á þetta
og önnur hitt.
Af þessum þremur tegundum
krabbameins í móðurlífi er erfið-
ast að greina krabbamein í
cggjastokkum, Það er ekki hægt
að greina með frumurannsóknum
og æxlið þarf að vera búið að ná
vissri stærð til að hægt sé að finna
það með þreifingu. Segir Gunn-
laugur að til séu margar tegundir
af krabbameini í eggjastokkum og
mjög ólíkar að gerð. Stuðli það að
þeirri kenningu að sennilega sé
krabbamein margir ólíkir sjúk-
dómar. Við meðhöndlun krabba-
meins í eggjastokkum eru yfirleitt
báðir eggjastokkar fjarlægðir og
geisla- sem lyfjameðferð notuð
strax.
Gunnlaugur gat þess að vonir
stæðu til þess að krabdameinsgát-
an yrði leyst áður en langt um liði
og benti á það að fjármagninu sem
lagt væri í krabbameinsrannsókn-
ir mætti líkja við herkostnað
stórveldanna.
Fetar þú í fótspor
Fileasar Fogg?
Einhver áskrifandi Dagblaðsins gerir
það áreiðanlega.
Og ekki einn. Því sigurlaun í áskrif-
endaleiknum okkar eru ferð fyrir tvo
umhverfis jörðina á 30 dögum.
Því ekki þú?
Þá biða þín framandi stórborgir og
furðulönd. London, Róm, Karachi,
Bangkok, Manila, Hong Kong, Tokyo,
Honolulu, San Fransisco og New York.
Ferðaskrifstofan Sunna sér um
ferðina og þið gistið á mörgum
frægustu lúxushótelum heims, t.d.
Royal Cliff hótelinu í Bangkok.
Sértu áskrifandi nú þegar, þá ertu
þar með þátttakandi í áskrifenda-
leiknum.
Gerist þú áskrifandi nú fyrir
mánaðamótin verða tveir seðlar með
þínu nafni í pottinum þegar dregið
verður þann 20. ágúst.
Tveir seðlar.
Og símanúmer Dagblaðsins
verður þú að muna:
27022
Um það verður spurt þegar þú
vitjar vinningsins.
En fyrst er að gerast áskrifandi.
Hringdu strax. Síminn er 27022.
mmiADa
Áskrifendasími 27022
SOKKAcÆ; *
BUXUR